Morgunblaðið - 02.12.1964, Síða 26
26
MORGUNBLAÐI0
Miðvikudagur 2. des. 1964
Fjórir af beztu badminton-
mönnum heims hingai
Sýna hér og keppa innbyrðis
á föstudag og laugardag
Á FIMMTUDAG koma hingað til
lands á vcgum Tennis- og bad-
mintonsfélags Reykjavíkur, fjór-
ir úr hópi beztu badmintonmanna
Dana, en Danir eru beztu bad-
mintonleikarar Evrópu, og eiga
að margra dómi jafnfram beztu
badmintonleikara heims, Jiótt
Indónesar og aðrar Malajaþjóðir
standi þeim nokkurn veginn á
sporði.
Danimir munu hafa hér
hadmintonsýnirigu og inn-
byrðis keppni á föstudags-
kvöld kl. 8,30 og kl. 3 síðdegis
á laugardag í íþróttahúsi
Vals. Gefst öllum badminton-
unnendum þá kostur á að sjá
badminton Ieikið eins og það
gerist bezt í heiminum.
Þeir sem koma hingað í heim-
sókn eru Erland Kops, Henning
Borch, Svend Andersen og Tor-
ben Kobs (bróðir Erlands).
Erland Kops hefur verið talinn
bezti einliðaleikari í heiminum
undanfarin ár, enda hefur hann
5 sinnum unnið „All Enigland"
keppnina í einliðaleik, en sú
keppni er eins konar óopinber
heimsmeistarakepipni í einliða-
leik.
Henning Borch kom hingað til
lands fyrir nokkrum árum með
félaga sínum Jörgen Hammer-
gaard-Hansen. Þeir sýndu og
kepptu hér á vegum TBR svo
sem mörgum mun í fersku minni.
Borch var þá kornungur og tal-
inn efnilegasti ungi badminton-
leikari Dana. Síðan hefur hann
verið í fremstu röð badminton-
leikara, verið óslitið í landsliði
Dana og unnið marga keppnina,
m.a. sigraði hann í einliða- og
tvíliðaleik á opnu hollenzku leikj
unum á þessu ári, og voru þó
meðal þátttakenda margir góðir
danskir og malajiskir leikmenn.
Svend Andersen er upprenn-
andi stjarna. Hann vann einliða
og tvíliðaleik á dönsku ungliniga-
ieikjunum í jánúar. Leikir hans
og Elo Hansen vöittu gífurlega
athygli. Á móti í Höfn í okt. s.l.
vann hann Borch og komst í
úrslit í einliðaleik móti Erland
Kops, en tapaði þeim (10:15,
18:14, 5:15).
Torben Kops er ungur og mjög
efnilegur leikmaður eins og
Svend Andersen og hefir hann
staðið sig mjög vel á mótum.
Á föstudag og laugardag gefst
badmintonunnendum því ágætt
tækifæri til að sjá þessa fögru
íþrótt leikna af frábærum snill-
inigum í íþróttinni.
Garpurinn með lög-
regtuskot í maganum
ÞAÐ er ekki ein báran stök
með hnefaleikakappa heims-
ins. Á laugardagskvöld særðist
illa Bandaríkjamaðurinn
Cleveland Williams sem er
einn þeirra fjögurra sem
Heimssamband hnefaleika-
manna tilnefndi til að berjast
um heimstitilinn sem sam-
bandið hefur svipt Cassius
Clay.
Cleveland Williams særðist
illa af skoti lögreglumanns.
Var hnefaleikagarpurinn
grunaður um að aka bifreið
undir áhrifum víns og upp-
hófst eltingaleikur. Lögreglan
segir að skotið hafi verið á
hann eftir að hann sló einn
lögreglumanna rothöggi.
Williams var þegar skorinn
og segja læknar að hann
geti barizt á ný eftir hálft ár.
Segja þeir að einstakt sé að
Williams hafi haldið lífi því
kúlan fór gegnum magann,
skar æðar og sinar sundur.
En lífsorka Williams sé næsta
fágæt.
Cleveland Williams átti
samkv. ákvörðun Heimssam-
bandsins að berjast við Ernie
Terrell og sigurvegari þess
leiks að berjast um heims-
titil við siigurvegara úr leik
Pattersons og Kanadamanns-
ins Chuvalo sem ákveðinn er
2*9. jan. n.k. Það verður því
bið á að Heimssambandið fái
heimsmeistara í stað Clays
sem það setti af fyrir að gera
samning um annan leik við
Liston.
Haustmót sund-
fólksins í kvöid
f KVÖLD fer fram i Sundhöll-
inni „Haustmót“ Sundráðsins.
Verður þá keppt í 7 sundgrein-
um karla og kvenna og auk þess
fer fram úrslitaleikur í sund-
knattleiksmóti sem staðið hefur
síðustu daga. Keppa þar til úr-
slita lið KR og Ármanns og má
vænta þess að úrslitin verði jafn-
ari en á mótum undanfarið.
Sundgreinarnar sem í er keppt
eru þessar greinar karla: 100 m.
skriðsund, 200 m. bringusund,
100 m. baksund og 4x50 m. skrið-
súnd. Konur keppa svo í 100 m.
bringusundi, 50 m. skriðsundi og
3x50 m. þrísundi.
Meðal keppenda i mótinu er
allt okkar bezta sundfólk, m.a.
þau Guðmundur Gíslason og
Hrafnhildur Guðmundsdóttir sem
þátt tóku í Olympíuleikunum í
Tokió.
Sundknattleikurinn ætti að
geta orðið skemmtileg viðureign.
Armenningar hafa um langt ára-
bil verið ókrýndir konungar
þessarar erfiðu keppnisgreinar.
KR liðið hefur hins vegar sýnt
miklar framfarir á síðustu árum
og vann t. d. KR lið Ægis nú á
dögunum með 11—2 en þrjú lið
tóku þátt í mótinu sem lýkur í
I Grikkir unnu 1
( Dani 4:2
| GRIKKIR sigruðu Danii |
l landsleik í knattspyrnu ái
1 sunnudaig með 4 mörkum gegn!
§ 2. Leikurinn fór fram í Aþenu|
| og var liður í heimsmeistara-i
|keppninni. í hálfleik vari
= staðan 1—0 fyrir Grikki. Á =
| fyrstu sek. síðari hálfleiks:
| skoruðu Grikkir aftur. Siðan:
| jöfnuðu Mogens Berg og Oleí
| Madsen fyrir Dani, en tvö síð-i
| ustu mörkin skoraði Papaini
i annou fyrir Grikki.
kvöld. Hvort KR-ingum tekst nú
að stöðva sigurgöngu Ármenn-
inga, skal engu um spáð, en við-
ureignin gæti orðið mjcg jöfn.
Ársþing KSÍ vill greiða
landsliðsmönnum vinnutap
og somþykkt var allt að 10
daga keppoisbann á leikmann
er vísað er af velli
Á ÁRSÞINGI KSÍ um síðustu
helgi urðu nokkrar umræður um
fjölgun liða í I. deild og ýms
atriði varðandi framkvæmd I.
deildar keppninnar. Kom í ljós
að varðandi fjölgun liðanna
voru menn ekki allir.á eitt sáttir
og einnig kom fram óánæ.gja
með þann tvístring og óreglu sem
er á leikjum I. deildar liðanna.
Ár Fjölgun í I. deild
Stjórn KSÍ hafði lagt tillögu
fyrir þingið um að sérstakri milli
þinganefnd yrði falin athugun á
fjölgun liða í I. deild. Sú tillaga
var samþykkt. Þessari milli-
þinganefnd, sem sfjórn KSÍ á
að skipa var einnig falið að fjalla
um tillögu frá Hafsteini Guð-
mundssyni um að fjölgað yrði í
1. deild úr 6 liðum í 8 og að leik-
ir færu fram í I. deild ákveðna
daga í viku hverri.
í umræðum um þessi mál
komu fram skiptar skoðanir.
Sumir töldu að með fjölgun í I.
deild væri stoðum kippt undan
2. deild og slíkt mætti ekki.
Gagnrýnt var hversu óreglulegir
og með löngum millibilum leikir
I. deildarinnar geta verið o.fl. En
milliþinganefndin fékk öll þessi
mál til lausnár.
Aukið vald dómara
Þriðja tillagan sem markar
veruleg tímamót var um dómara-
mál. Hún var á þá leið að ef
leikmanni er vísað út af velli 1
kappleik verður hann óhlutgeng-
ur til keppni frá leikdegi þar tii
dómur hefur fallið í máli hans.
Falli dómur ekki innan 10 daga
öðlast hann keppnisréttindi aftur,
þar til dómur hefur fallið sem
kveður á um annað.
Þessi tillaga var samþykkt
með þorra atkvæða og umræðu-
laust. En þvi mætti spá að til-
lagan ætti eftir að valda meiri
deilum en hún gerði á þessu
ársþintgi KSÍ. Með tiilögunni eru
dómarar á íslandi valdameiri en
dómarar annars staðar. Brott-
vísun af velli þýðir 10 daga
leikbann.
Á Breyttar áhugamannareglur.
Þá kom fram tillaga varð-
andi áhugamannareglur ÍSÍ. Bar
stjórnin hana fram á bá leið að
stjórn KSÍ fái heimild til að
greiða vinnulaun til þeirra knatt-
spyrnumanna, sem samkv. yfir-
lýsingu vinnuveitanda, raun-
verulega tapa launum vegna
landsleikja.
í meðförum þinigsins bættist
klausa aftan við þessa tillögu
sjórnarinnar þannig: ......... og
undirbúningi við þá, enda sam-
þykkti KSÍ reglur um skyldur
leikmanna við það“.
Svona breytt var tillagan sam-
þykkt samhljóða og enginn mælti
mót og predikaði áframhaldandi
algera áhuigamennsku.
Aðrar tillögur sem þingað af-
greiddi voru þessa efnis:
. . . athuga möguleika á að
koma upp í náinni framtíð æf-
ingabúðum fyrir knattspyrnu-
menn.
. . . áskorun til íþróttafulltrúa
og fræðslumáJastjórnar að
tryggja að jafnan sé í kennara-
liði íþróttakennaraskóla íslands
hæfur kennari til að annast full-
komna kennslu knattspyrnuþjálf-
ara, svo öruiggt sé að íþrótta-
kennarar, sem útskrifast frá skól-
anum, hafi öðlast nægjanlega
kunnáttu til að geta starfað sem
fullgildir knattspyrnuþjálfarar.
. . . áskorun til aðila innan
KSÍ að notfæra sér í ríkara mæli
aðsöðu þá, sem skapaðist með
samningi KSÍ og íþróttakennara-
skólans um námskeið fyrir knatt-
Stjóm KSÍ sem endurkjörin
var á sunnudaginn. Fremri
röð f.v.: Sveinn Zoega, Björg-
vin Schram, form., Guðmund-
ur Sveinbjörnsson. Aftari röð
f.v.: Ingvar N. Pálsson. Jón
Magnússon, Axel Einarsson
og Ragnar Lárusson.
spyrnuþjálfara, og sæki um að
fá námskeið haldin, hver í sínu
héraði sem oftast.
. . . að stofna Fulltrúaráð KSÍ
sem skal skipað einum manni úr
hverju kjördæmi og skal hann
valinn af sambandsaðilum í kjör-
dæmunum. Fulltrúaráðið skal
koma saman einu sinni á ári.
. . . að þakka ÍSÍ fyrir það
mikla átak og frábæra árangur,
sem stjórn ÍSÍ hefur náð í stór-
aukinni tekjuöflun til íþrótta-
hreyfingarinnar sem KSÍ og hlið-
stæðir aðilar innan ÍSÍ hafa þeg-
ar notið góðs af í ríkum mæli.
. . . að hagnaður er varð af
þátttöku ísl. í knattspyrnukeppni
OL-leikjanna 19*59 og er í vörzlu
Olympíunefndar íslands, verði
varið til eflingar knattspyrnu i
landinu í samráði við stjórn KSÍ,
Mikið var rætt um tillögu um
breytingu á reglum er gilda um
þátttöku 2. flokks manna f
meistaraflokki. Kom til harðrar
atkvæðagreiðslu sem að lokum
varð að vera skrifleg og með
henni var framkominni tillögu til
breytingar á gildandi reglum
vísað frá.
Fjárhagur KSÍ stendur með
miklum blóma samkv. skýrslu
gjaldkera Ragnars Lárussonar.
Varð um 270 þús. kr. hagnaður af
heimsókn Bermudamanna og
124 þús. kr. hagnaður af lands-
leik við Skota. Á knattspyrnu-
sambandið nú nær hálfa millj.
kr. í sjóði.