Morgunblaðið - 06.12.1964, Page 2

Morgunblaðið - 06.12.1964, Page 2
MORGU N BLAÐIÐ Sunnudagur 6. des. 1964 Aukin veiðisvæði lífsnauð- syn fyrir togara AB UNDANFÖRNIT hafa orðið nokkrar umræður um þann vanda, sem nú steðjar að islenzkri togaraútgerð. Ýmsar tillögur hafa verið um úrbætur, og með;n' annars hef ur verið rætt utr., að hleypa þyrfti togurunum inn í land- helginsC og einnig, að heppi- iegt kynni að reynaist að gera togarana út á síldveiðar. Við höfum þvi snúið okkur til Þor steins Arnalds, en hann hefur verið starfsmaður Bæjarút- gerðar Reykjavíkur, frá því að starfsemi fyrirtækisins hófst, og framikvæmdastjóri hennar síðan 1961. Bæjarút- gerðin gerir sem kunnugt er út átta togara og rekur auk þess uinfangsmiklar fiskvinnslu- stöðvar. Af viðtalinu við Þor- stein kemur fram, að fjárhag- ur togaraútgerðar á landinu er mjög bágur. Við spyrjum Þorstein, hverjar séu helztu orsakir þess. Minnkandi afli. — Ástæðurnar eru martg- víslegar, en aflaleysi togar- anna á undanförnum árum ræður hér mestu um. Út- færsla fiskveiðilögsögunnar 1952 úr 3 i 4 mílur með breytt- um grunnlínupunktum og út- færslan í 12 mílur 1956 hefur svipt togarana 60—80% þeirra veiðisvæði, sem þeir áður höfðu. í því samibandi vil ég ben-da á, að stækkun fiskiveiðilöigsögunnar var ein- göngu til þess ætluð að bægja útlendum fiskiskipum frá mið- unum, þannig að íslendingar nytu þeirra sjálfir, en ekki til að koma í veg fyrir not- kun einstakra veiðarfæra, svo sem botnvörpu. Botnvörpu- veiðar eru að áliti fiskifræð- inga og annarra sérfróðra manna talin ein heppilegasta veiðiaðferð, sem nú er þekkt. — Þagar togaramir höfðu þannig verið sviptir beztu fiskimiðum sínum hér við land, urðu þeir að leita til fjarlægra miða, sem sum hver eru í annarri heimsálifu, í allt að 1300 mílna fjarlægð. Gefur að skiljað að útgerðar- kostnaðurinn jókst mjög við hinar löngu siglingar, um leið og tími til sjálfra veiðanna minnkaði að mun. Hin fjar- lægu mið gáfu góða raun fyrst í stað. Nú er hins vegar svo komið, að afli á þessum slóðum hefur rýrnað mjög, enda hafa erlendir fiskimenn leitað á þessi mið meira en nokkru sinni áður vegna tak- markananna á fiskisvæðun- um við ísland. Geta íslenzkir togarar nú ekki stundað veið- ar á neinum þeim fiskimiðum, sem geta gefið vonir um halla- lausan rekstur. — Hins vetgar er það trú togarafiskimanna, að afla- horfur to@arannia munidiu gjör breytast til batnaðar, ef þeim yrði heimilað að fiska á ákveðnum timum á vissum stöðum innan fiskveiðitak- markanna, þar sem ekki eru uppeidis- eða hrygningar- stöSvar. Víðs vegar við iand- ið eru viss fiskimið á ákveðn- um tímum látin algjörlega ónýtt, þar sem þau eru innan við núverandi takmarkalínu, og hafla þvi toganamir ekki getað fiskað á miðum þessum, en bátaflotinn á hinn bóginn bundinn við síldveiðar. —Ég vil sérsbaklegia vekja athygli á þeirri gjörbreytingu, sem orðið hefur á fiskveiðum bátaflotans á síðustu árum. Fyrir nokkrum árum stund- uðu bátamir yfirleitt að mestu fiskveiðar allt árið, nema þá mánuði, sem sumarsíldveiðar stóðu yfir. Nú er hins vegar orðin sú breytinig, að veruleg ur hluti bátaflotans er við síldveiðar meginhluta ársins að undanskilinni vetrarvertíð. Það er því algerlega út í hött að vernda fiskistofnana fyrir veiðum togaranna með hagsmuni bátaflotans fyrir augum, þegar bátarnir stunda þessar veiðar aðeins lítinn hluta ársins. —Ég vii einnig láta þeas get ið, að hvert kíló af fiski, sem togararnir afla, er mun verð- mætara en hvert kíló af báta- fiski. Stafar það af því, að á togurunum er gert að fiskin- um, um leið og hann kemur úr sjó og hann geymdur í ís í lestum, sem oftast eru kæld- ar niður með kælitækjum. Hins vegar er ekki gert að bátafiskinum, fyrr en bátur- inn kemur að landi, otg þegar veitt er í net, er oft talsvert af fiskinum dautt, þegar hann er innbyrtur. Er ekki óal- gengt, að fiskurinn liggi dauð- ur í netunum í allt að þrjá sólarhringa. Gefur það auga leið, hvor veiðiaðferðin er heppilegri með tilliti til nýt- inigar aflans. — Aflaleysi togaranna hef- ur einnig haft mjög alvarleg- ar afleiðingar varðandi ráðn- ingu skipebaiftia. Ka.upgjaiLd til skipverja er að allverulegu Ieyti greitt í aflahlut. Hefur því hinn minnkandi afli rýrt jafnt afkomu toigarasjómanna sem útgerðarinnar og orðið til þess, að góðir sjómenn sækj- ast eftir skipsrúmi á bátunum, þar sem tekjuvonin er meiri. — Útfærsla fiskveiðitak- markananna hafði fleiri ókosti í för með sér fyrir tog- araútgerðina en stórminnkuð aflabrögð. Ein alvarlegasta afleiðing hennar var löndunar- bannið í Bretlandi, sem að langmestu leyti bitnaði á toig- araeigendum einum. Vökulögum þarf a» breyta. Það hefur komið fram að undanfömu, að margir telja vökulögin svokölluðu standa í vegi fyrir því, að togararnir geti borið sig, og leitum við álits Þorsteins í þeim efnum. — í samningum sínum við sjómenn hefur togaraútgerð- in algera sérstöðu. Hver ein- asta atvinnugrein þjóðarinn- ar hefur frjálsar hendur til að semja um kaup og kjör við starfsmenn sína. Hins vegar hefur togaraútgerðin verið Þorsteinn Arnalds. svipt þessum rétti að nokkru leyti með lögigjöf Alþingis um vinnutíma sjómanna á togurum o. fl. Allar aðstæður til vinnu um borð í íslenzkum togurum hafa gjörbreytzt, frá því að lög þessi voru sett. Nú stunda togararnir svo að segja eingöngu ísfiskveiðar og sigla með aflann til útlanda. Afla- magnið er sennilega einn þriðji eða einn fjórði hluti þess, sem áður var, og kemur því miklu minni vinna í hlut hvers einstaks manns. Nú mjög nýlega hefur aðferðin við að taka trollið breytzt mjög og krefst minni mann- afla. Auk þess var áður fyrr almennt krafizt miklu meiri vinnu af hálfu skipverja við skip ag veiðarfæri en nú er gert, þar sem þessi vinna er nú framkvæmd af fóLki í landi. — Ég tel ástæðulaust, að á íslenzkum togurum verði að starfa 30—31 maður á sama tíma og Bretar komast af með 20—21 mann og Þjóðverjar 23—24. f septetmiber 1963 var togarinn Freyr seldur til Bret- lands. Þegar togarinn var igerður út frá íslandi, var áhöfn hans 30—31 maður. Þegar togarinn kom í eigu "brezks útgerðarfélags var hins vegar óþarft, að á skipinu væri nema 21 maður, og stund aði togiarinn þó veiðar með jafnigóðum árangri og áður. Ef skipverjum yrði fækkað, leiddi það til nokkurs sparn- aðar fyrir útgerðina, samtímis því, sem grundvöllur fengist til kjarabóta fyrir sjómennina sjálfa. Af því leiddi svo, að búast mætí* við, að betri menn sæktu eftir skipsrúmi. Aukin veiðisvæði nauðsyn. Hvaða ráð, eru þá helzt til að tryggja rekstrangrundvöll togaraútgerðarinnar? — í fyrsta lagi tel ég nauð- synlegt, að nýting íslenzkrar fiskveiðlandhelgi verði endur- skoðuð af fiskifræðinigum og öðrum kunnáttumönnum, og fái þá togaraflotinn fullkom- in veiðréttindi á móts við önnur íslenzk fiskiskip. Ef togararinr fá hins vegar ekki jafnrétti til veiða á við aðra, tel ég að grundvellinum hafi verið kippt undan áframhald- andi togaraútgerð á íslandi. í öðru laigi tel ég nauðsyn- legt, að numin verði úr gildi lagaákvæði um vinnutíma á togurunum, og útgerðarmönn- um og sjómönnum verði heim- ilað að semja um kjör sín óbundnir af lagaákvæðum, Framh. á bls. 18 í Pétur Ólafsson, „Kellingarnar" á bókamarkaö- inum og bókaútgáfa Isafoldar Samtal við forstjóra ísafoldar „GRÚSK“, bók Árna Óla um ýmis sagnfræðileg og náttúru- fræðileg efni kom út hjá fsa- fold í gær. „Við höfum gefið út nýja bók hvern útgáfubær- an dag frá því snemma í októ- ber“, sagði forstjóri ísafoldar, Pétur Ólafsson, í viðtali við blaðið í gær. — Mér er alls ekki sama hvaða dag vikunnar bækurnar koma út, sagði Pétur. Við höf- um löngum helzt valið til þess þriðjudaga og föstudaga, en einnig fimmtudaga og laugar- daga. Margar skáldsögur — Við erum að þessu sinni, eins og stundum áður, svo heppnir að hafa á forlagi okk- ar bæði nokkrar sögur eftir „kellingarnar", sem Sigurður A. Magnússon var að amast við í sunnudagsrabbi sínu og svo Sigurð A. sjálfan. Síðast vorum við með „Við elda Ind- lands“ eftir Sigurð, en sú bók seldist að mestu upp, og nú erum við með skáldsögu, sem Sigurður hefur þýtt úr grisku, „Sól dauðans", eftir gríska nú- tímaskáldið og verðlaunahöf- undinn Pervalakis, skemmti- lega og hrífandi skáldsögu. En íslenzku „kellingarnar“ standa líka fyrir sínu. Nú þegar et ljóst, að „Taminn til kosta“, bók borgfirzku skáldkonunnar Guðrúnar A. Jónsdóttur, ætlar að verða vinsæl, einnig „Sig- ný“, sem er sannsöguleg skáld saga eftir Þorbjörgu Árna- dóttur. Og enginn fær því á móti mælt, að skáldkonan Ragnheiður Jónsdóttir er meir lesin í íslenzkum bókasöfnum en flestir aðrir íslenzkir höf- undar. Við erum jafnvel með norska „kellingu", Anitru, en hún er ákaflega vinsæl í heima landi sínu, hún skrifar skemmtilegar sögur í léttum stíl. Síðasta bók hennar á ís- lenzku heitir „Gúro“. — Guðmundur Daníelsson hefur nú um nokkurra ára skeið verið, ef svo má segja, „stjarnan“ í skáldsagnaútgáfu ísafoidar. Við hófum í fyrra að gefa út ritsafn Guðmundar og eru komin út tvö bindi, „Bræð urnir í Grashaga" og „Ilmur daganna". Nú fyrir jólin erum við einnig með smásagnasafn eftir Guðmund, „Drengur á Fjalli“, góða bók. Enn ein ís- lenzk skáldsaga er á forlagi okkar í ár, „Myllusteinninn“ eftir Jakob Jónasson, en þetta er fjórða skáldsaga Jakobs. — Vissulega er ekki hægt að ætlast til að ég geti sagt hvaða bók ísafoldar verður talin þyngst á metunum í ár, það fer að sjálfsögðu eftir mis jöfnum smekk manna. Allar áðurnefndar bækur verða þungar á metunum hjá mörg- um, en einnig er ljóst, að bæk- ur Árna Óla, „Horft á Reykja- vík“ og „Grúsk“, verða vel metnar af þorra manna. Við Árni höfum báðir viljað vekja á því alveg sérstaka athygli, að í bókinni „Horft á Reykja- vík“ er nafnaskrá yfir allar fjórar Reykjavíkurbækur Árna. En úr því að við minn- umst á Árna, langar mig til að vekja athygli á bók hans, „Erill og ferill blaðamanns". Ég trúi því ekki, að gefin verði út skemmtilegri og fróðlegri bók um alla helztu atburði, sem gerzt hafa hér á Iandi á undanfarinni hálfri öld heldur en þessi bók Árna. Þessa bók ætti unga fólkið að lesa. — Menn eru að spyrja mig, hvenær nýja Læknatalið komi út, segir Pétur. Nokkur hluti þess er fullsettur í prentsmiðj- unni, og má telja fullvíst, að það komi allt út í tveimur bindum á næsta ári. Lögfræð- ingatalið (669 lögfræðingar, 736 bls.) eftir Agnar Kl. Jóns- son, ráðuneytisstjóra, kom út fyrr á þessu árL Þess má geta, að prentsmiðjan hefur nýlega fengið handrit af íslenzk- danskri orðabók eftir dr. Ole Widding, prófessor, og Harald Magnússon, yfirkennara. Kem ur sú bók væntanlega á næsta ári. Verður það allstór bók og hefur verið unnið að henni í mörg ár. — „Oft er gott, það er gaml- ir kveða", og er ekki að efa, að margir munu hafa ánægju af greinum Snæbjarnar Jóns- Framh. á bls. 18

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.