Morgunblaðið - 06.12.1964, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 06.12.1964, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 6. des. 1964 JÓLABÆKUR FRÁ Ævisaga John F. Kennedy Bandaríkjaforseta eftir Thorolf Smith. — I hókinni er m.a. rakin ætt hans og uppruni, lýst heimilislífi hans og þrotlausri haráttu fyrir friði og réttlæti og hinum válegu ör- lögum hans. Sjaldan eða aldrei hefur andláts- fregn vakið jafn djúpan og almennan harm, eins og þégar það spurðist hinn 22. nóv. 1963, að John Fitzgerald Kennedy hefði verið skot- inn til bana í Dallas í Texas. Ævi og forseta- ferill John F. Kennedy varð ekki langur, en minning hans mun seint fyrnast. Bókin er byggð á traustustu heimildum, sem höfundi voru tiltækar. Thorolf Smith, höf- nndur bókarinnar, er iandskunnur blaða- og útvarpsmaður. Árið 1959 kom út bók eftir hann um annan Bandaríkjaforseta, Abraham Lincoln, er vakti mikla athygli. Ævisögu John F. Kennedy prýða yfir 100 myndir. Úr myndabók læknis Höfundur þessarar bókar, Páii V. G. Kolka, er einn af þekktustu læknum landsins, kunn- • ur ræðuskörungur og útvarpsfyrirlesari. Páll lifði bernsku sína í sveit, en kom til Reykja- víkur rétt áður en vatnsveita, hafnargerð, gas og rafmagn, hófu að breyta ásýnd höfuð- staðarins. Læknisstarf sitt stundaði hann á annan áratug í stærstu verstöð landsins, Vest- mannaeyjum, og síðan í rúman aldarfjórð- ung í einu af stærstu sveitahéruðum þess. Á báðum þeim stöðum tók Páll verulegan þátt í almennum málum og sat ekfki alltaf á frið- arstóli. Hann hefur því haft allgóð skilyrði til að fylgjast með þeirri framþróun, sem orðið hefur hér á landi síðustu hálfa öldina, auk þess sem hann hefur kynnzt miklum fjölda manna. Karlotta Lövenskjöld er skáldsaga eftir Selmu Lagerlöf, í þýðingu Arnheiðar Sigurðardóttur. Fjölmörg verka hennar hafa verið þýdd á íslenzku, þeirra á meðal Gösta Berlingssaga og Jerusalem. 1 skemmtilegu viðtali við skáldkonuna, sem birtist í sænsku dagblaði sama árið og hún andaðist, víkur hún að því í gamansömum tón, hversu sumar af sögupersónum sínum hafi reynzt sér baldnar og óstýrilátar við nánari kynni og samskipti. Nefnir hún þar fremstan í flokki Karl Arthúr, sem lesend- ur eiga nú fyrir höndum að kynnast í sög- unni um Karlottu Lövenskjöld. Um hann segir hún, að hann hafi blátt áfram neitað að segja sér sumt, er hún hafi ætlað að leggja honum í munn. Karlottu Lövenskjöld gefur hún hins vegar þann vitnisburð, að hún væri gull af manni. — Karlotta Lövenskjöld er stórbrotin ættar- og ástarsaga. Um ársins hring eftir Sigurbjörn Einarsson biskup • Undirtitill bókarinnar er: Úr stól — frá altari — yfir moldum. Fyrsti kafli bókarinpar eru ýmsar prédikanir á stórhátíðum ársins og öðrum tyllidögum. Annar hlutinn nefnist ^astir í daganna rás“, og eru það nokkrar merkar ræður og loks siðasti kaflinn minn- ingarorð um 4 látna heiðursmenn: Stein Steinarr skáld, séra Friðrik Friðriksson, John F. Kennedy Bandaríkjaforseta og Davíð Stefánsson skáld. Grær undan hollri hendi eftir Viihj. s. viihjáimsson Þessi bók er safn viðtala við 28 menn og kionur, sem búið hafa við hin ólíkustu lifskjðr. Eitt á allt þetta fólk sameiginlegt: Það hefur gegnt hlutverki sínu af skyldurækni og samvizkusemi, — það hefur gróið undan höndum þess. í bókinni er m.a. rætt við Bjarna Björnsson leikara, Jón Erlendsson verkamann, Ásgrím Jónsson listmálara, Bríeti Bjarn- héðinsdóttur, Ludvig Kaaber bankastjóra Ara Arnalds bæjarfógeta, Pál fsólfsson tón- skáld, Friðfinn Guðjónsson leikara, Ragnar Jónsson í Smára, Magnús Jónsson prófessor, Sigurbj. Á. Gíslason, Martein Meulenberg biskup, Gunnar Andrew og læknana Sæ- mund Bjarnhéðinsson, Sigurð Magnússon og Þórð Sveinsson, svo nokkur séu talin. — Til hægri að ofan eru myndir af öll'WJt sögumönnum og konum. SETBERG k

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.