Morgunblaðið - 13.12.1964, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
l
Sunnudagur 13. des. 1964
Anna í Grœnuhlíð
Fyrsta og önnur bók eru komnar út.
Bækurnar um önnu í Grænuhlíð eru
einhverjar allra vinsælustu bækur sinn-
ar tegundar, sem út hafa komið, enda
eru þetta sígildar bækur handa telpum
og unglingsstúlkum. Fyrsta bókin var
flutt sem framhaldsleikrit í barnatíma
útvarpsins við óskiptar vinsældir jafnt
barna sem fullorðinna. — Kr. 120,00 ib.
hvor bók.
CULARFULLA
HALSMENIÐ
sem h var f -\
Anne-Cath. Vestly
Oii Aiexander
fiytiir
Fimm í hers höndum
Ný bók um félagana fimm eftir Enid
Blyton, höfund Ævintýrabókanna,
prýdd mörgum myndum. Hörkuspenn-
andi og skemmtileg eins og allar
Blyton-bækur. — Kr. 110,00 ib.
Dularfulla hálsmenið
Fimmta bók í bókaflokknum um fimm
menningana og hundinn þann sjötta
eftir Enid Blyton. Þessir félagar taka
sér fyrir hendur að upplýsa ýmis dul-
arfull mál í samkeppni við Gunnar karl
inn lögregluþjón. Afar spennandi og
mjög vinsælar bækfur. Myndskreytt. —
Kr. 110,00 ib.
Dagbók Evu
Mjög skemmtileg og þroskandi bók
handa unglingsstúlkum eftir Moilie
Faustman sem hlaut fyrir þessa bók
verðlaun í sænskri samkeppni um beztu
bókina handa unglingsstúlkum. —
Kr. 92,00 ib.
Eyja útlaganna
Hörkuspennandi drengjabók úr norska
skerjagarðinum eftir Magnus Thingnæs.
— „Svona á að skrifa drengjabækur“,
sagði norskur gagnrýnandi um bækur
Thingnæs, og áreiðanlega munu allir
röskir drengir taka undir það. —
Kr. 92,00 ib.
Óli Alexander flytur
Þetta er fimmta og síðasta bókin um
uppáhaldssöguhetju yngri barnanna,
Óla Alexander, sem nefndi sig Fíli-
bomm-bomm, ídu og Mons. Ennþá eru
til örfá eintök af fyrri bókunum fjór-
um. Fjöldi mynda. — Kr. 65,00.
Margt er sér til
gamans gert
Gátur, leikir og þrautir, valið úr safni
Jóns Árnasonar og Ólafs Davíðssonar.
Hér eru verkefni til hollra og þroskandi
dægrastyttinga fyrir börn og unglinga.
Þessi þjóðlega bók ætti að vera til á
sérhverju barnaheimili. — Kr. 80,00 ib.
Dansi, dansi dúkkan mín
Sögur handa litlum börnum eftir Davíð
Áskelsson. Fjöldi mynda eftir Halldór
Pétursson. — Kr. 65,00 ib.
Litlu börnin leika sér
Sögur handa litlum börnum eftir Davíð
Áskelsson. Fjöldi mynda eftir Halldór
Pétursson. — Kr. 65,00 ib.
Puti r kexinu
Skemmileg saga eftir Bjöm Daníelsson
skólastjóra, prýdd fjölda mynda eftir
Sigrid Valtingojer. Ætluð byrjendum í
lestri. — Kr. 40,00.
Bangsabörnin
Bráðskemmtilegt ævintýri eftir Önnu
Brynjúlfsdóttur, prýtt mörgum mynd-
um eftir Bjarna Jónsson. — Kr. 35,00.
I 0 U N N
lslenzkur
fróölcikur
gamalt ocj nýr
1 1 1 ... f • ÍÍMíh u "1 %
«11; ■■
Heimdragi
Þetta er fyrsta bindi nýs safnrits, er flytja skal ís-
lenzkan fróðleik, gamlan og nýjan, eftir ýmsa höf-
unda og víðs vegar af landinu. í þessu bindi birtist
m.a. dagbók Nínu, dóttur Gríms amtmanns Jóns-
sonar, rituð árið 1839, fróðlegar endurminningar
frá öldinni sem leið, allýtarleg ritgerð um skreið-
arferðir Norðlendinga, frásöguþættir ýmis konar,
dulrænar sagnir o. fl. Ritstjórn Heimdraga annast
Kristmundur Bjarnason. — Kr. 325,- ib.
Reimleikar
ÁRNI ÓLA gerir í bók þessari skil allmörgum kunn
um íslenzkum fyrirbærum, sem eru af sama toga
spunnin og hin alþjóðlegu „Poltergeist“-fyrirbæri.
Höfundurinn rekur hvert mál fyrir sig eftir beztu
fáanlegum heimildum. Þarna er því að finna skil-
ríkar og sannfróðar upplýsingar um frægustu reim-
leika á íslandi, s. s. Hjaltastaðafjandann, Garps-
dalsdrauginn, Núpsundnin, undrin í Hvammi í
Þistilsfirði o. fl. — Kr. 265,- ib.
Lífsorrustan
Ný skáldsaga eftir Óskar Aðalstein
Fyrst og síðast er þetta saga um mann og konu,
máttugur óður um ástir tveggja einstaklinga, sem
sæta hörðum örlögum, en njóta þó mikillar ham-
ingju, bera höfuðið hátt í hverri þolraun og fara í
rauninni með sigur af hólmi, þótt annað kunni
að virðast við fljóta sýn. Jafnframt er Lífsorrustan
ádeila á stjórnmálaspillingu og stjórnmálamenn, og
mun bókarinnar verða lengi minnzt fyrir það. —
Sagan er bráðskemmtileg og pevsónurnar ljóslifandi.
Kr. 280,- ib.
Neyðarkall frá
norðurskauti
Ný æsispennandi saga eftir Alistair MacLean, -höf-
und bókanna Byssurnar í Navarone og Til móts
við gullskipið.
Hver er Carpenter læknir, og hvað geymir harðlæst
taska hans? Hvað hefur gerzt í veðurathugunar-
stöðinni á ísnum og hvað er að Höfrungi? Hver
gæti lagt þessa bók frá sér fyrr en hann hefði fengið
þeim spumingum svarað?
Þetta er margslungin, hárnákvæm, hröð og átaka-
mikil saga. — ICr. 265,- ib.
Brúðarleit
Hörkuspennandi saga eftir L. T. White, sem segir
frá ævintýrum, hættum og mannraunum. Frásögn-
in er hfandi og fjörleg og aldrei slaknar á eftir-
væntingu lesandans. Mjög sambærileg við hinar
vinsælu sögur Shellabargers, Sigurvegarann frá
Kastilíu og Bragðaref. — Kr. 185,- ib.
Ofantaldar bækur fást hjá bóksölum um
land allt. Sendum einnig burðargjaldsfrítt
gegn póskröfu.
I Ð U N N