Morgunblaðið - 31.12.1964, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 31.12.1964, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 31. des. 1964 — Málverk Framhald af bls. 3. Y hefur sýnt eittíhvað á ' Norðurlöndum, er það ekki?“ | „Þegar ég kom frá Vín í eeinna skiptið, var mér boðið að halda sjálfstæða sýningu 1 Holst Halvorsen sýningar- salnum í Osló. Það var dóttir Haivorsens, magister frú Bjærke, sem hafði samband við mig. Ég var farin heim éður en sýningunni lauk, en síðasta sýningardaginn gerði einihver maður sér lítið fyrir, laibbaði inn og bar eina mynd- anna út undir handleggnum. Ég hef ekki frétt af henni síðan. Magister Bjærke sagði mér, a'ð þetta væri í fyrsta sinn, sem stolið væri úr sýn- ingarsalnum og þetta var líka ( fyrsta skipti, sem stolið var frá mér mynd. En sjaldan er ein báran stök. Frá Osló sendi ég myndirnar, sem óseldar voru, til Bergen. Voru þær i eýndar þar ásamt nokkrum, sem ég sendi a5 heiman. í lestinni frá Osló til Bergens týndíst ein mynd og allt benti til að henni hefði líka verið stolið.“ „Komstu beint heim frá Bandaríkjunum?" „Nei, ég kom við í Kaup- mannahöfn á leiðinni og þar hittist svo skemmtilega á, að góð vinkona mín, Grethe Bagge, myndlhöggvari og listmálari, sem var hjó Kokosdhka um lei'ð og ég, var að opna sýningu. Sýning- in var litlum sýningarsal „Det Blá Ateliere". Eigandi sem er siálf listmálari. Grete hafði sýnt henni myndir eftir mig og bún bauð mér að 'halda sýningu í sýningarsal sínum, þegar ég hefði tíma og mig langar mikið til þess.“ „Ætlarðu ekkert að sýna hérna heima á næstunni?“ „Það stendur til að ég sýni í Bogasalnum í haust, en það er of snemmt áð tala um það.“ s. J. UNGÓ! UNGÓ! Áramótafagnaður LÚDÓ sextett og STEFÁN ásamt PÓNIK og EINARI skemmta í Ungmennafélags- húsinu í Keflavík á gamlárskvöld. Forsala aðgönguntiða er hafin í verxl. Fonz, Kefla- vík og Hreyfilsbúðinni, Reykjavík. Tryggið ykkur miða í tíma. UNGÓ! UNGÓ! EITT FULLKOMNASTA VATNS KASSAVERKSTÆÐI LANDSINS Viðgerðir á vatnskössum. Endurnýjum eliment. Rennslisprófanir á vatnskössum. Sjóðum óhreinindi úr elementum. Tökum vatnskassa úr og setjum L Gufuþvoum métora o. fL Eigum fyrirliggjandi vatnskassa í flestar tegundir bifreiða. Eigum ávallt fyrirliggjandi nosur vatnsdælur, vatnslása o. fL BIFREIDAVERKSTÆÐIO STIMIMLL hf. Grensásvegi 18. — Sími 37534 — Kommúnístar Framhald aif bls. 1 isins indverska neitaði að gefa nokkra skýringu á þessum skyndi legu handtökum indverskra kommúnista, en talið er að mestu hafi um valdið væntanlegar kosn ingar 1 Kerala-fylki, þar sem stjórnin stóð höllum fæti and- spænis mögulegri samvinnu kommúnista. Þó hefur banda- ríska fréttastofan AP það eftir einum talsmanni stjórnarinnar, að kommúnistar hefðu „undirbú- ið óeirðir" og „starfað sem fimmta herdeild" — og vildi með því gefa í skyn að þeir hefðu unnið fyrir erkifjendur Indverja, kommúnistastjórnina í Kína. í Kerala eru stjórnmálauppþot og matarskortur landlæg og þar eru kommúnistar mjög öflugir. í haust var fylkisstjórn Shastris í Kerala steypa af stóli og í sept- ember lýsti hann yfir forseta- stjórn 1 fylkinu, en það er ráð- stöfun, sem mjög sjaldan er grip- ið til, er veitir forsetanum og stjórninni 1 Nýju Dehli allt vald í málefnum fylkisins. Auk handtakanna í Kerala og Andra Pradesh handtók ríkislög- reglan kommúnista í snæviþaktri borginni Jammu í Kashmir, í Jaipur, sem er á mörkum eyði- merkurinnar miklu í vestri og í hinni mannmörgu Kalkútta á austurströndinni. Svipaðar hand- tökur hafa áður farið fram en aldrei jafn skipulegar og sam- taka og þessu sinni. Mikill klofningur hefur verið lengi innan indverska kommún- istaflokksins og verið mjög til trafala aliri starfsemi hans. En er flokkurinn eygði sigurmögu- leikana í kosningunum, sem fram undan eru nú í Kerala, gekk held ur saman með fylgismönnuim Kínverja og þeim er aðhyllast Sovétríkin (og eru fjölmennari armur flokksins), þar sem fyrir var hinn sameiginlegi andstæð- ingur, stjórnarinnar í Nýju Dehli. En Shastri og stjórn hans voru ekki á þvi að láta kommún ista vinna Kerala og gripu til hinna sérlegu laga um neyðar- ráðstafanir frá 1962, sem sett voru þegar ófriðvænlegast horfði með Kínverjum og Indverjum í landamæradeilunum 1962. — Samkomulag Framhald af bls. 1 þykkja skyldi tillöguna, en það var almenn skoðun manna í höfuðstöðvum SÞ, að fyrirmæl- ip yr'ðu jákvæð. Fallist Sovét- ríkin á að greiða hlut skuldar sinnar í áðurnefndan sjóð, verð- ur unnt að hefja atkvæðagreiðsl ur á ný á Allsherjarlþinginu. Sem kunnugt er, hefur ekki ver- ið gengið tii atkvæda frá því að þingið kom saman í byrjun des emiber. Var samlþyikkt að fresta öllum atkvæðagreiðslum til þess að koma í veg fyrir að árekstrar yrðu milli stórveldanna, en Bandaríkjamenn hafa krafizt þess, að Sovétríkin verði svipt atfkvæðlsrétti, grefði þau ekki hluta skuldar sinnar. Bandarísku stórblöðin „T1h<* New York Herald Trilbune“ og „The New York Times“ gagn- rýndu í dag aðferðina, sem not- uð var við val fulltrúa í Örygg- isráð SÞ í gær. „The New York Herald Tribune'* segir m.a., að Allslherj- arþingið haifi glata'ð bæði vilja og getu til a'ð varðveita friðinn, og storveldin verði að finna nýj- ar leiðir á því sviði. ÖryggLsráð- ið sé löngu orðið áhrifalaust, upplausnin á Allsherjarþinginu 'hafi komið á óvart eins og hnefa högg í andlit vina SÞ um allan heim. Aldrei hefðu stofnendur samtakanna getað gert sér 1 hugarlund ástand eins og skap- aðist í gær, er fulltrúar a'ðildar- ríkjanna sáu sér ek>ki fært að ganga til atkvæða fyrir opnum tjöldum, en læddust inn í bak- herbergi til að skýra forseta Alla herjarþingsins frá óskum sinum varðandi kjörið. Blaðið segir að lokum, að skaðinn, sem nú sé skeður, ver'ði seint bættur og vofa Þjóðabandalagsins haifi svifið yfir höfuðstöðvum SÞ. „The New York Times" segir m.a., að aðferðin, sem notuð hafi verið við val fulltrúa 1 Öryggisréði'ð sé hlægileg, en þó megi v-erja hana, verði bún til þess að bjarga samtökunum frá algerri upplausn vegna skuidap Sovétríkjanna. j FINNLAND THE FINNISH BOARD MILLS ASSOCIATION THE FINNISH PAPER MILLS' ASSOCIATION Þessí vörumerki og verksmiðjur eru þekkt um allan heim þar sem pappír og pappi eru í notkun Við erum umboðsmenn fyrir neðangrelnd sölusambönd, sem hafa selt til íslands I áratugí rv*»wffi€ Hm»I« KymmMMS tSiWwt WUMmo io«m4(otka a«r MyMyfcMli ftrfw NoWa TwámN UN* V*<t»Kuofai 9. A. SŒIACHK4 0« |i^,l A. AHLSTfcöM OIT DWnltl W*fá*u» VNITBO fAJHM AAiUli»* eNsocuriOT o«r Kotfc« Kwpola 5lrr.pW« TrinionfcMVI XXNEKOSKl HEINOLA INGEROIS KARHOLA KYRO LÖNNQVIST MÁNTTX HÁSIJARVI PANKAKOSKI 8IMPELC CTRQMSOAL TAKO TIENHAARA VEITSH.UOTO WERLA S. ARNASON & CO

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.