Morgunblaðið - 31.12.1964, Side 16

Morgunblaðið - 31.12.1964, Side 16
18 MOHCU N BLAÐIB Fímmtudagur 31. des. 1964 títgefandi: Fr amkvæmdas t j ór i: Ritstjórar: Auglýsingar: Útbreiðslus t j óri: Ritstjóm: Auglýsingar og afgreiðsla: Áskriftargjald kr. 90.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Árni Garðar Kristinsson. Sverrir Þórðarson. Aðalstræti 3. Aðalstræti 3. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. UM ÁRA UM áramótin líta menn til baka yfir farinn veg, og huga að framtíðarhorfum. Stjórn- málaleiðtogar setja fram sjónarmið sín og þjóðin leitast við að gera sér grein fyrir aðstöðu sinni allri; það er líka hollt að staldra við öðru hvoru, og reyna að líta lengra en til hinna daglegu viðfangsefna, sem í önn og ys dreifa hugum manna. Síðustu dagana höfum við íslendingar verið minntir óþyrmilega á það, að við búum í norðlægu og harðbýlu landi. Ef til vill má líka segja, að tíma- bært hafi verið að það agaði oss öll með sín ísköldu él, því að sannast sagna, hættir okkur í góðærinu til að gleyma því, að óvænta erfiðleika getur að höndum borið hér norður við íshaf, enda má segja að yngri kynslóðin þekki naumast annað en góðæri. En þótt við hljótum auðvitað að vona og treysta að gott veðurfar og aflasæld haldist í framtíðinni eins og að undanförnu, er varlegra að eiga nokkra varasjóði til að mæta hugsanlegum skakkaföllum. Þótt ætíð sé nóg við fjármunina að gera, og flestum finnist víst oftast, að þeir beri helzt til lítið úr býtum, eigum við að hafa næga forsjálni til að eyða ekki öllu, þegar vel gengur, heldur hugsa fyrir nokkr- um fyrningum. í því efni má segja að á síðustu ár- um hafi okkur búnazt vel, því að nú á þjóðin um 1500 milljón króna gjaldeyrisvarasjóð, og er staðan við útlönd betri en nokkru sinni, síðan við lok heimsstyr j aldarinnar. Ýmislegt fleira bendir til þess að þrátt fyrir mis- tök, sem auðvitað hafa orðið, séum við á réttri leið. Við höfum haft ár vinnufriðar og aukins skilnings á nauðsyn þess að setja niður deilur. Að vísu eru nú um þessi áramót blikur á lofti, en vonandi tekst með góðvilja og þjóðhollustu að stýra fram hjá þeim vanda. Þá er þess að geta, að æ fleiri gera sér grein fyrir því, að stórauka þurfi vísindarannsóknir og bæta skilyrði til mennta. Horfur eru á því, að unnt muni verða að koma upp stóriðju og virkja fallvötn- in í miklu ríkari mæli en áður. íslenzkt efnahagslíf er nú, þrátt fyrir allt, svo miklu traustara en fyrir nokkrum árum, að við erum orðnir hlutgengir í al- þjóðlegu samstarfi á sviði efnahags- og fjármála. Atvinna er mikil og tækifærin ótæmandi. Allt þetta og margt fleira bendir til þess, að lífs- kjör muni enn batna stórum á næstu árum og ára- tugum og sjálfstæði þjóðarinnar eflast, ef við kunnum fótum okkar forráð. í þeirri von, sendir Morgunblaðið landsmönnum öllum óskir um 9 Hvar má vænta átakaárið 1965? ÁRTÐ 1964 hefur á mörgum sviðum haft í för með sér framfarir fyrir mannkynið. Enda þótt viða hafi verið róstusamt, hafa engir meiri háttar atburðir orðið til þess að stemma stigu fyrir fram- förum, hvorki í Austri né Vestri, Yfirlit yfir ársfram- leiðslu þjóða heims sýnir, að á siðasta ári hafa verið fram- leiddar um það bil 15 miljónir bifreiða, 20 miljónir sjón- varpstækja, 1 miljón kg gulls hefur verið unnið úr jörðu óg 2 miljónir lesta af kolum, 1 miljarður lesta af jarðolíu og 230 miljónir lesta af járni. 240 miljónir lesta af hrís- grjónum hafa verið ræktaðar, 235 miljónir lesta af hveiti, 59 miljónir lesta af sykri og veiddar hafa verið 40 miljónir lesta af fiski, Af sígarettum hafa verið framleiddar u» það bil 1900 miljarðar stk. Heildaraukning iðnaðarfram- leiðslunnar á árinu nemur um það bil 4%. • Og hvrað tekur nú við, árið 1965? A kortinu hér að ofan er reynt að gefa yfirlit yfir nokkra þá staði, þar sem vænta má átaka á komandi ári. Þeirra á meðal eru, eins og sjá má á kortinu, nokkur svæði í norðurhluta Kanada, þar sem meirihluti íbúanna eru af frönskum uppruna. Átakasvæðin í Bandaríkjun- um eru þau, sem byggð eru miklum fjölda blökkumanna og þegar hafa verið vett- vangar óeirða. Á karabíska svæðinu má vænta margra átakasvæða. Einkum er á- stæða til að óttast alvarleg vandræði í Venezuela. Neð- anjarðarstarfsemi kúbanskra kommúnista mun'halda áfram að breiðast út. íbúðum heims fjölgar óð- fluga — skýrslur sýna, að aukningin nemur 5.100 manns á mínútu. Skipting jarðar- auðsins er alvarlegt mál — þróunin sýnir, að hinar betur megandi þjóðir verða æ auð- ugri en hjá fátækari þjóðun- um er ýmist kyrrstaða eða afturför. Nú er svo komið, að 28% íbúa heims ráða yfir 75% heiidartekna heims. Hin svonefndu Bandung ríki eru smám saman að láta meira að sér kveða á vett- vangi Sameinuðu þjóðanna — auka áhrif sín sem þriðja ríkjaheildin og hafa tekið sér stöðu milli Austurs og Vest- urs. Hin nýja ríkjaheild verð- ur því öflugri sem sjálfstæð- um ríkjum fjölgar. Bandung ríkjunum er það sameiginlegt að vera skammt á veg komin í efnahagsþróuninni. í Kairo hefur verið sett á laggirnar nefnd, sem hefur það hlut- verk að rannsaka efnahags- þróun ríkjanna og finna ráð tit úrbóta. Um miðbik meðfylgjandi korts sjáum við merkt hugs- anleg átakasvæði við Gíbralt- ar, — vegna herstöðva Banda- ríkjanna á Spáni. Á kortinu er Suður-Týról einnig merkt sem hugsanlegt átakasvæði. i Arabaríkjunum eru mörg svæði, þar sem til átaka getur komið, einkum í þeim lönd- um, þar sem mestur áhugi er á einingu Araba. Stjórnirnar í Egyptalandi, Túnis og Mar- okko eru málsvarar mismun- andi lausna á því vandamáli. Egyptar berjast fyrir samein- ingu Sýrlands, Líbanon, írak, Jemen og Egyptalands. í Suður-Afríku munu kyn- þáttamálin efiaust verða efst á baugi í nánustu framtið. Þær vísbendingar, sem sam- skipti Kínverja og Rússa hafa gefið um átökin í heimi kommúnismans verða án efa æ Ijósari. Ágreiningurinn, sem komið hefur fram, jafnt í hugtakadeilum sem pólitísk- um þrætumálum, er fyrst og fremst sprottinn af tortryggni Kínverja gagnvart stefnu Krúsjeffs um friðsamlega sam búð við kapitalísk ríki. Ágrein ingurinn kom fyrst berlega i ljós í október 1959, þegar Krúsjeff heimsótti Peking í tilefni 10 ára afmælis komm- únistastjórnar í Kína. Síðan hefur deilan þróazt á mörg- um sviðum og má nú segja, að hún sé eins og eldur, sem hefur læst sig um alla suð- austur Asíu. Það er greini- lega takmark Kinverja að hafa valdastöðuna í allri Austur-Asíu í sinum höndum. Enda þótt ennþá megi líta á Sovétríkin sem forystuþjóð hins kommúníska heims verð- ur þó deginum ljósara, að Rússar geta ekki, þegar til lengdar lætur, hjá því komizt, að taka tiilit til sjónarmiða Kínverja. Þróunin mun hafa í för með sér, að önnur komm únísk ríki verða að gera upp við sig, hvorum aðilanum þau vilja fylgja. Munu kornmún- istaríkin i Evrópu og Asíu því fara hvert sína leið, — sum munu fyigja Rússum, önnur Kínverjum og einhver þeirra munu e. t. v. reyna að vega salt þeirra í milli. Þess ber að gæta, að um það bil helmingur jarðarbúa bygg- ir aðeins fjögur lönd, Kína, Indland, Sovétríkin og Banda- ríkin. Því er sérstök ástæða til þess að fylgjast vel með þróuninni í þessum ríkjum ■ árið 1965. (Nordisk Pressebureau). ísland slaðfestir AL.ÞJÓÐASAMÞYKKTIN urn öryggi mannslífa á hafinu var gerð í London á alþjóðaráðstefnu sem haldin var á vegum IMCO, þ.e. siglingamálasbofnum samein uðu þjóðanna í maí/júní 1960. Samþykktin var undirrituð af alþ j óðasamþykkt fuUtrúum landa þeirra, er þátt bóku í ráðstafnunni þann 17. júní 1960. Af fsilarvds íháMu undir- rituðu samþykktina þeir Hjátan- ar R. Bárftarson skipaskoðunar- stjóri og Pálil Ragnars.son, sikrif- sbofustjórL Þann 11. desember 1964 stað- festi ríkiastjórn íslands þessa allþjóðasamþykkt, með því að aflhenda IMCO þann dag í Lonid- on fullgildingarskjal íslands. Alþj óðasamþyk kt þessi tekur giLdi hinn 26. maí 1965, en nú er í .gildi allþjóðasamlþyklkt um ör- yggi mannslífa á hafinu fxú 1948,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.