Morgunblaðið - 31.12.1964, Page 18

Morgunblaðið - 31.12.1964, Page 18
18 MQR6UNBLAÐID Fímmtudagur 31. des. 1964 var um, hvernig verkalýður- inn skyldi íá þær bættar. Það er alveg rétt, sem Eð- varð Sigurðsson sagði í út- varpsumræðunum frá Alþingi á dögunum, að í júní-sam- komulaginu var aldrei um það samið, að verðlagi skyldi hald ið; niðri með niðurgreiðslum úr ríkissjóði, heldur að ef verðlagshækkanir yrðu, þá skyldu þær bættar eftir á- kveðnum reglum. Jafnvíst er hitt, að ríkissjórnin áskildi sér að greiða verðlag niður, ef hún teldi þáð henta. Um hitt var deilt, hvort hún hefði gef- ið ádrátt um að afla ekki fjár með nýjum sköttum í því skyni á þessu ári. Sá ágrein- ingur skiptir ekki lengur máli, því að öllum kemur sam an um, að ríkisstjórnin hafi gert beinan fyrirvara um, að shk skattheimta mundi óhjá- kvæmileg á árinu 1965, ef auknum niðurgreiðslum yrði haidið áfram. Öllum var því ljóst, að ríkis stjórnin hefði á hendi sér að velja á milli 1) að auka niðurgreiðslur þegar í stað og halda þeim, 2) eða láta kaup hækka, 3) eða láta hvorttveggja verða, vaxandi niðurgreiðslur eða kauphækkun samkvæmt vísitölu. Um vísitöluna og útreikn- ing hennar var samið og er þá einkum athyglisvert, að af hálfu ríkisstjórnarinnar var eftir því sótt, að hún yrði end urskoðuð en því lítill áhugi sýndur af fulltrúum Alþýðu- sambandsins, þó að þeir féil- ust á, að mæla með því, að slík endurskoðun væri hafin. ★ Eftir á hefur því verið hald ið fram, að beinir skattar, tekjuskattur og útsvör, hafi á sL sumri hækkað gagnstætt því, sem ráðgert hafi verið, þegar júní-samkomulagið var gert. Hér er staðreyndum alveg snúið við. Tekjuskattsstigi hafði verið samþykktur á Al- þingi og lögfestur nokkrum vikum áður en samið var. Af- sláttur á útsvarsstiga í Reykja vík varð meiri en ráðgert var í maí- og júníbyrjun. í þeim útreikningum, sem aðilar höfðu til athugunar við sarnn- ingsgerðina, var m. a. s. gert ráð fyrir, að vísitala mundi nokkuð hækka vegna hækk- unar þessara skatta, en þegar til kom verkuðu þeir til lækk- unar vísitölunnar, — þeirrar vísitölu, sem verkalýðsfélögin voru ekki áköf í að endur- skoða. í heild urðu verðlags- hækkanir án niðurgreiðslna hinsvegar nokkru meiri en í vor hafði verið ráðgert. Sam- kvæmt þeim áætlunum, sem þá voru lagðar fyrir aðila, var búizt við, að vísitala mundi frá 1. maí til ársloka hækka um 6,2 stig en í framkvæmd hefði hækkunin orðið 8,4 stig, hvorttveggja miðað við, að niðurgreiðslur yrðu ekki aukn ar. Vegna aukinna niður- greiðslna hefur hækkunin í raun og veru einungis orðið 1 stig. Hækkunin umfram það, sem í vor var ætlað, er eingöngu að kenna meiri hækkun land- búnaðarvöruverðs en reiknað hafði verið með. Aðrir liðir, þ. á m. þeir, sem helzt eru á valdi stjórnarinnar, hækkuðu þvert á móti minna en búizt hafði verið við. Alls reyndist hækkunin vegna landhúnaðar vöruverðsins 5,7 stig. Um þessa hækkun sömdu fulltrú- ar neytenda, þ. á m. umboðs- menn Alþýðusambandsins, við fulltrúa framleiðenda. Að vísu með fyrirgreiðslu ríkis- stjórnarinnar, því að framleið endur höfðu gert kröfur um miklu meiri hækkun og héldu fast-við hana fram á síðustu stund. í haust heyrðust engar, eða a. m. k. fáar og lágværar, raddir um, að þessi hækkun væri of mikil. Var þá svo að heyra sem flestir teldu vel sloppið. Og má þó ,hvað sem gildandi verðákvörðunarregl- um líður, deila um, hvort sann gjarnt sé, að bændur fái tekjuhækkun vegna vinnu- tíma-styttingar verkamanna. Menn létu þetta og hið gamla deilumál um áhrif sjávarafla á kaup bænda liggja í láginni m. a. vegna þess, að hinar auknu niðurgreiðslur gerðu hækkun landbúnaðarvaranna ekki eins tilfinnanlegar og ella. ★ Eðlilegt er, að um það sé spurt, hvernig á því standi, að ríkisstjórnin hafi fremur valið að auka niðurgreiðslur og halda þeim með nýrri skattálagningu, sem umdeild er, heldur en að láta verðlagið hækka samkvæmt óniður- greiddri vísitölu. Þessu er því til að svara, að fram eftir ár- inu var það býsna almenn skoðun, að gengi krónunnar yrði ekki haldið óbreyttu. Til þess að koma í veg fyrir þann óróa, sem af þessu staf- aði, varð í lengstu lög að halda verðlagi stöðugu og endurvekja þar með traust á krónunni. Það hefur tekizt og eiga niðurgreiðslurnar á verð- hækkun landbúnaðarvöru drjúgan þátt í því. Þeim varð hinsvegar ekki með neinu móti haldið lengur en til áramóta án skattahækk- unar. Þá kom að nýju að vali. Söluskattshækkun til að halda óbreyttum niðurgreiðsl um leiðir til minni vísitölu- hækkunar og þar með minni almennra verðlagshækkana en brottfall niðurgreiðslna og þar með verðlagshækkun landbúnaðarvara. — Segja mætti, að þetta sýni, að vísi- talan sé rangt reiknuð og skýri þess vegna af hverju um boðsmenn Alþýðusambands- ins séu þessari leið mótfallnir. Gegn því stríðir aftur á móti, að þeir, eins og áður segir, hafa verið tregir til endurskoð unar vísitölunnar og vissu þó fullvel, að ríkisstjórnin hafði áskilið sér að velja þann kost, sem hún teldi heilladrýgstan. Hér sem oft ella getur góð- viljuðum mönnum sýnzt sitt hvað um hver úrræði séu væn legust. Villan er að segja ekki hreinlega hvað fyrir hverjum og einum vakir og láta í stað þess eins og menn séu komnir ofan af fjöllum, þegar þeir sjá það, sem þeir hlutu ætíð að vera viðbúnir. ★ Þó að játa verði, að þeir verkalýðsforingjar, sem hlut áttu að júní-samkomulaginu, hefðu mátt vera fastari í rás- inni, verður því aldrei móti mælt, að þeim ber að þakka merkilegt nýmæli, sem verð- ur talið marka tímamót í kjarabaráttunni, ef vel tekst til um framhaldið. Þessir menn hafa og í fleiru sýnt, að þeir vilja koma á betri starfs- háttum innan Alþýðusam- bandsins. Kosningar til þess voru á sl. sumri með friðsam- legasta móti og þegar á þingið kom, reyndi Hannibal Váldi- marsson að efna til samvinnu allra flokka um stjórn sam- bandsins, sennilega ekki sízt í því skyni að jafnhliða nauð- synlegri endurskoðun á skipu lagi þess yrði áfram unnið að lausn kaupgjaldsmála í anda j úní-samkomulagsins; Hinn góði ásetningur um allsherjarsamstarf fór hins vegar út um þúfur. Hann strandaði ekki fyrst og fremst á línu-kommum, eins og sum- ir hefðu ætlað, heldur á Fram sóknarmönnum. í kosningun- um til Alþýðusambandsþings höfðu þeir haft náið samstarf við kommúnista og aðrar deildir Alþýðubandalagsins. Allar líkur benda til þess, að án þess samstarfs, hefðu lýð- ræðissinnar, þ. e. Sjálfstæðis- menn og Alþýðuflokksmenn, orðið í rífum meiri hluta á þinginu. Framsóknarmenn töldu þess vegna bandamenn sína eiga sér líf að launa og voru ófeimnir að ganga eftir gjaldi fyrir lífgjöfina. Fram- sóknarmenn settu algera synj un á öllu samstarfi við lýð- ræðissinna sem úrslitakosti af sinni hendi. Fyrir þessum hót unum gugnuðu hinir og hélzt stjórn Alþýðusambandsins ó- breytt. Úrslitakostir Framsóknar eru því lærdómsríkari sem hún hefur lengst af eftir upp- gjöfina 4. des. 1958 hamrað á nauðsyn samstarfs allra flokka til lausnar verðbólgu- vandans. Á Alþýðusambands- þingi átti hún kost á að sýna hver hugur fylgdi máli. Raun in varð sú, sem flestir skyni- bornir menn höfðu séð fyrir. Samtímis samvinnuhjali öðru hverju, þá hafa hóflaus yfir- boð einkennt málflutning Framsóknar hin síðustu miss- eri. Aldrei hefur þetta komið Ijósar fram en á Alþingi und- anfarna mánuði. Þar hefur talsmaður hennar ögrað for- ystumönnum Alþýðusam- bandsins með því, að þeir hafi verið allt of linir í kröfu- gerð á sl. vori. Þá hefði verið sjálfsagt að knýja umsvifa- laust fram styttingu vinnu- tíma ofan í 48 stundir viku- lega í mesta lagi. Málssvari Framsóknar fagnaði og fögr- um orðum tillögu Einars Ol- geirssonar um verkfallsrétt til handa opinberum starfsmönn um og taldi þá hafa verið setta hjá um kjarabætur. Út yfir tók þegar Framsókn vildi við afgreiðslu fjárlaga bæta a. m. k. 550 milljónum við útgjöld án þess að ætla einn eyri til að standa undir þeim. í stað þess að fara í fel- ur með ábyrgðarleysið leggur hún allt kapp á að kynna það sem flestum. Framsókn lætur sig þá engu skipta, þó að allur mála- tilbúnaður hennar hljóti að leiða til þess að vekja urg gegn þeim reglum, sem fylgt er við ákvörðun landbúnaðar- vara, og veikja á ný traustið á gildi krónunnar. Verður ekki annað séð, en a. m. k. suma forystumenn Eramsóknar fýsi í allsherjaröngþveiti, vegna þess að það muni skapa ríkisstjórninni örðugleika. Það höfuðmarkmið við- rcisnarstefnunnar, að tryggja athafnafrelsi inn á við og við- skiptafrelsi út á við, hefur að vísu náðst. Gagnstætt því, sem margir ætluðu fyrir ári, þá hefur einnig tekíst að tiyggja gengi krónunnar. Gjaldeyrisstaðan út á við hef ur aldrei verið sterkari en nú frá því stríðsinnieignunum lauk. Jafnvægi á verðlagi er ólíkt meira en áður eins og sést af því, að nú er gert ráð fyrir að vísitala framfærslu- kostnaðar hækki á tímabilinu l. maí 1964 til jafnlengdar 1965 um 8 stig gagnstætt 32 stigum á sama tíma 196.3— 1964. Nú liggja fyrir upplýs- ingar um vöruskiptajöfnuð fyrstu 11 mánuði ársins 1964, og reyndist hann hagstæður um 114 millj. kr. (án skipa og flugvéla, en innflutningur þeirra sveiflast mjög á milli ára). Það er og til marks um þá miklu breytingu, sem orðið hefur, að á 5 ára tímabilinu 1955—1959 var vöruskiptajöfn uður fyrstu 11 mánuði ársíns að meðaltali óhagstæður um 650 m. kr. á núverandi gengi (án skipa og flugvéla) en á 5 ára tímabilinu 1960—1964 að meðaltali óhagstæður um 150 m. kr. en er í ár, eins og áður er sagt, hagstæður um 114 m. kr. Orsök breytingarinnar er ekki góðæri, því að á báðum tímabilunum voru áraskipti eins og gengur, heldur breytt stjórn efnahagsmála. Af þess- ari breytingu hefur svo leitt gjörbreytingu gjaldeyrisstöð- unnar. Nú er inneign, er nemur um 1500 m.kr., þar sem gjaldeyriseignin komst aldrei á tímabilinu 1955—1959 yfir 300 m. kr. og snerist í 144 m. kr. hreina skuld í árslok 1959. í framhaldi alls þessa hef- ur Seðlabankinn nú ákveðið verulega vaxtalækkun. A'llt er þetta til mikilla bóta. En við margan vanda er enn að glíma. Það sést bezt af yfirvofandi verkföllum bátasjómanna nú um ára- mótin, óvissu um fiskverð og þar með útgerð á hinu nýja ári. Öll er þessi vandamál þó vafalaust hægt að leysa með einbeitni og góðvild. Rík isstjórnin mun ekki víkjast undan þeirxi ábyrgð, senx hún hefur á sig tekið, heldur óhikað ganga að lausn þeirra verkefna, sem að steðja. Þrátt fyrir allar ögranir Framsóknar hefur Sjálfstæð- ismönnum aldrei komið til hugar að setja Framsóknar- menn „til hliðar“ í þjóðfélag- inu eins og á árinu 1958 var af hálfu Framsóknar hælzt um að búið væri að gera við Sjálfstæðismenn. En Fram- sókn á hvorki til þess heimt- mgu né hefur hún til þess unnið, að henni séu nú feng- in aukin völd yfir ýmsum helztu fjármálastofnunum og atvinnufyrirtækjum á vegum ríkisins. Þvert á móti skyti það mjög skökku við, eftir að hún hefur tryggt Alþýðu- bandalagsmönnum æðstu völd í Alþýðusambandinu, að þeim væri þá ýtt frá aðild að stjórn þessara stofnana og fyr irtækja, sem ekki eiga sízt hagsæld sína undir að vinnu- friður haldist í landinu og miklu ráða um hvort svo verður. Þrátt fyrir þá örðugleika, sem yfirboð Framsóknar og valdabaráttan innan hins marg-klofna Alþýðubanda- lags skapa, er enn óreynt, hvort þeir verkalýðsforingjar, sem beittu sér fyrir júní-sam- komulaginu, láta hrekjast af réttri braut og hverfa frá þeirri stefnu, sem líklegust er til að tryggja umbjóðendum þeirra varanlegar kjarabætur. 'k Lausn dægurmála og það þvarg, sem henni fylgir, tek- ur sinn tíma en má aldrei draga hugann um of frá því, sem meira máli skiptir. ís- ienzkt þjóðfélag verður með engu móti styrkt með skiótari og öruggari hætti en nýtingu allra okkar auðlinda. Lang-mikilvægasta verk- efnið, sem nú er framundan, er stórvirkjun í Þjórsá og bygging alumíníum-verk- smiðju, sem geri þá virkjun fjárhagslega kleifa. Sumir segja, að með því verði hall- að á aðrar atvinnugreinar svo sem sjávarútveg, því að mikið skorti á, að afurðir hans séu enn full-unnar í landinu. Vafalaust er þar mik ið verkefni fyrir höndum. En léleg vetrar-síldveiði hér við suðvesturland undanfarn ar vikúr minnir okkur enn á, að óviss er sjávarafli. Engin veiðitækni og vinnslustöðvar koma að gagni, þegar fisk- ur gengur ekki á miðin. Þess vegna verðum við umfram allt að skapa fleiri öruggar atvinnugreinar, sem geti orð- ið burðarásar í okkar veik- byggða þjóðfélagi. Fæstir ókunnugir trúa. að svo lítið og fábreytt þjóðfé- lag fái staðizt, og ýmsir ætla, að það sé þrjózka og oflæti af okkur að ætla að halda því uppi. Við skulum ekki loka augunum fyrir veikleikanum, en vera því eindregnari í að beita öllum okkar kröftum, þekkingu og vilja til að styrkja það svo, að það megi standa um allan aldur. t mjtt cír!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.