Morgunblaðið - 31.12.1964, Blaðsíða 23
Fimmtuðagur 31. de*. 1964
MOHGU NBLAÐIÐ
23
— Annáll ársíns
Framhald af bls. 14.
og enga aðstöðu til að rann-
saka handritin.
Var nú hafin leit að raun
verulegum menningarbæ á ís-
landi, sem væri þess umkom-
inn að veita dýrgripum okkar
viðtöku. Kom í ljós, að bóka-
safn norska sjómannaheimil-
isins á Siglufirði mundi full-
nægja dönskum kröfum og
var því ákveðð að reisa þar
handritahúsið, sem hefði átt
að vera fullsmíðað í Reykja-
vík fyrir löngu.
Bretar færðu landhelgina út
1 12 mílur til stuðnings kröf-
um íslendinga um friðun land
grunnsins og kunnu lands-
menn vel að meta. Alþjóðleg
ráðstefna um geymsluþol fisks
með geislun var haldin erlend-
is og greindu íslendingar þar
frá skreiðarverkun sinni —
og vakti það athygli. Andri
Heiðberg ákvað að kaupa sér
þyrlu og verða fyrsti þyrl-
ari landsins — og fyrsti raf-
eindaheilinn kom hingað. Var
það fyrsti ópólitíski heilinn á
íslandL Rætt var um hægri
og vinstri akstur, en Tíminn
sagði, að í rauninni væri ekki
hægt að gera greinarmun á
þessu tvennu. Stundum væri
betra að aka á vinstri kantL
stundum á hægri kanti — og
auðvitað yrði það að ráðast í
hvert sinn.
Goldwater hét þvl nú að
senda Eienhower til S-Viet-
nam, ef hann næði kosningu
■— og fóru sigurlíkur hans þá
skyndilega vaxandi. Nú var
dagur Leifs heppna haldinn
hátíðlegur í Bandaríkjunum
og hér heima. Mjög hátíðleg
athöfn fór fram við styttu
Leifs hér í Reykjavík — þar
sem henni var á sínum tíma
valinn fa-gur staður í tilkomu-
miklu umhverfi, eins og venja
er, þegar miklir menn eiga í
hlut. Viðbúnaður okkar vestra
var allur með sama myndar-
bragnum og var þetta í fyrsta
sinn, að okkur gafst raunveru-
legt tækifæri til að vekja at-
hygli á landi og þjóð — og
að íslendingur hefði þrátt fyr-
ir allt fundið Ameríku. Norð-
menn voru eitthvað að reyna
að eiigna sér piltinn, en á þá
hlustaði auðvitað enginn,
enda vaknaði áhugi þeirra á
málinu ekki fyrr en þeir sáu,
að íslendingar stóðu með
pálmann í höndunum.
Þessi ánægjulegi viðburður
fyllti höíuðstaðarbúa einhverj
um fornum vikinga-blóð-
þorsta, því aldrei hefur verið
meiri eftirspurn eftir siátri í
Reykjavík en einmitt í haust.
Rússar tendu itú þrjá menn
í geimfari umhverfis jörðu,
Bandaríkjamenn ákváðu að
senda næst fjóra menn svo að
þeir gætu þó alltaf spilað eina
rúbertu á leiðinni.
Wilson og kratar hans fengu
nauman meirihluta í brezka
þinginu eftir harða kosninga-
baráttu — og þar kom, að
sjálfur Krúsjeff féll af stall-
inum, eins og öllum er 1
fersku minni. Kommar hér
vissu lengi vel ekki hvort þeir
ættu að setja upp sorgarsvip
eða gleðibros, en nýjar mynd-
ir voru samt sendar í inn-
römmun hér sem annars stað-
ar í herbúðum þeirra. En, þeg
ar nýju foringjarnir höfðu
sagt það afdráttarlaust, að sá
gamli hefði verið skýjaglópur
og grasasni — fóru okkar
menn að styrkjast á línunni og
nú eru flestir búnir að jafna
sig, eins og vera ber. Ekki
sízt vegna þess, að sjálfur fé-
lagi Brezhnev tók við valda-
mesta embættinu og sendi
hann síldarsölunefndinni glans
lukkaðist svo vel hjá Sam-
bandinu, að nú er ákveðið að
endurtaka hana á sama hátt
fyrir hver jóL Við borð lá, að
Hamrafellið lenti á útsölu
þessari. En Esso bjargaði eins
og fyrri daginn, enda er það
þekkt framsóknarfyrirtæki I
Ameríku.
Leynilistinn yfir handritin,
sem afhenda á okkur var birt-
ur í Höfn - og var ekki seinna
vænna að við fengjum að vita
um hvers konar skinn deilt
hefur verið jafnlengi og raun
ber vitni. Geigvænlegt afla-
leysi togaranna í árslok
tryggðL að framkoma þeirra
yrði ekki betri nú en í fyrra,
enda hefðu þá allir útreikning
ar raskazt. Landhelgisgæzlan
ákvað að kaupa sér eina þyrlu
úr því að Andri Heiðberg
hefur efni á því — og stóra
sjokkið kom, þegar Færeying-
ar skiluðu Akurey aftur. Glas
gow Rangers greiddi margfalt
hærri upphæð fyrir Þórólf
Beck en við gætum nokkru
sinni fengið fyrir þetta glæsi-
lega skip.
Fáir kvörtuðu yfir hitaveit-
unnL þegar fór að vetra. En
allmargir kvörtuðu yfir kulda
veitunnL Á Parísarfundinum
greiddu íslendingar ekki at-
kvæði, þegar kjarnorkufloti.
NATO var tekinn á dagskrá.
Meirihluti aðildarríkjanna
hafði ekki myndað sér neina
skoðun í málinu, en ætlað að
fylgja Íslendingum, eins og
svo oft áður, og varð því af-
stöðuleysi íslands til þess, að
engin endanleg ákvörðun rmr
tekin. Nú fóru bækur að be*-
ast á jólamarkaðinn frá
um 8 eða 10 kellingum,
skrifa bókmenntir þjóðarin^.
ar, eins og frægt er orttl —
og seldust aðrar bækur aár%-
lítið. íslendingar eru en
látir bókamenn og Skeyta
um tízkur og stefnur, mo
flestar hverjar brjóta 1 bága
við lífið sjálft Ástin «r það,
sem blívur — hvort, sera um
er að ræða lækni og hjúkrun-
arnema ,eða útlærða hjúkrun
arkonu, sem er auðvitað miklu
meira spennandi.
Bygging hinnar umræddu
olíustöðvar í Hvalfirði var end
anlega leyfð. Er það ekki
mynd af sér þar sem hann
stóð á gæruskinninu frá Kven
félagi Sósíalista.
Lýsisgeymir á Eskifirði
sprakk og rann góðgætið í
lækjum um götur kauptúnsins
og þurfa staðarmenn ekki að
draga frekari björg í bú það,
sem eftir er vetrar. Prentara-
verkfall var yfirvofandi, en
samkomulaig náðist. Var efnt
til fundar ,en svo slysalega
vildi til, að það gleymdist að
bera sáttartillöguna undir at-
kvæði. Verkfallið var hafið —
og stóð nær tvær vikur — og
verður því töluverð eyða í
annálinn, sem byggður er á
blaðafregnum.
En verkfallið breytti því
ekki, að Goldwater tókst ekki
að sigra Johnson þrátt fyrir
dyggilegan stuðning Ragnars
í Smára. Jólavarningurinn
brann hjá SÍS, en hin stórkost
loga brunaútsala fyrir jólin
r
Hefst nú hver fundur Allsherj
arþingsins með því, að illir
andar eru reknir úr þingsaln-
um með bumbuslætti og sær-
ingum. En einhvern veginn
smjúga þeir alltaf inn aftur —
og hefur ekki fundizt neitt
ráð við því fremur en lykt-
inni frá Kletti.
Er nú komið að áramót-
um — þegar menn líta yfir
farinn veg — úttroðnir af
hangikjöti, svínakjöti og fjöl-
mörgum öðrum matartegund-
um — þá er vart annað hæigt
es þakka gott ár, gleyma svita
dropum — og fara svo í megr
unargöngu eftir öll herleg-
heitin. h.j.h.
seinna vænna, því kjarnorku-
kafbátar Bandaríkjamanna
eru að verða olíulausir.
Komið er fram í desember
og opnuð er verzlun með ís-
lenzjtan iðnvarning í New
York. íslendingum til heið-
urs fékkst þriðja gata borgar-
innar skírð upp i eina viku
— og hét hún þá Icelandic
Way. Nú hefur þess verið far-
ið á leit, að skemmtigarður
New York, Central Park,
verði líka skírður upp — og
kallaður Klambratún. Spari-
skírteini ríkissjóos runnu út
eins og heitar lummur og
varð að halda einni milljón
eftir fyrir barnafjölskyldur,
sém aftast lentu í röðinni.
Á erlendum vettvangi gerð-
ist það raunar merkast, að
Ghanabúi var kjörinn forseti
Allsherjarþingsins iNewYork
en sá er kominn af merkum
veiðimannaættum í landi sínu.
GÖMLUDANSA
KLUBBURINN
Gleðilegt nýtt ár
Síl/urtunjtiðí
GAMLÁRSKVÖLD 31. DES.
gomlu dansarnir
Magnús Randrup og félagar lefka.
Föstudagur 1. jan. nýársdagur.
gömlu dansarnir
Magnús Kandrup og félagar leika.
Söngvari: Björn þorgeirsson.
kÖ»W-1-
Opið gamlárskvöld til k. 3.
Nýársdag til kl. 1.
Laugardag 2. nýársdag til kl. 1.
Gleðilegt nýtt ár
itb&nuu
LINDARBÆR
Gömlu-
dansarnir
eru í Lindarbæ
laugardaginn 2. jan.
Garðar, Guðmundur,
Rútur og Svavar leika.
DANSSTJÓRI:
Sigurður Runólfsson.
Húsið opnað kl. 8,30.
Lindarbær er að Lindar-
götu 9, gengið inn frá
Skuggasundi. Sími 21971.