Morgunblaðið - 03.02.1965, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.02.1965, Blaðsíða 12
MORGUNBLADIÐ Miðvikudagur 3. febrúar 1965 r 12 Gengið á fjörur VIÐ Reykjanesskaga sunnan- verðan svarrar sjórinn 'dag og nótt. Þar er sjaldan kyrrt, en síkvik alda læðist þar með strönd, og þegar svo ber und- ir hníga þar brimskaflar á fjöru. ísólfsskáli er þar miðja vegu milli Grindavíkur og Krýsu- víkur og á þar langar fjör- ur. ísólfur bóndi gengur fjör- urnar, þegar rekaátt er og margt ber þar að landi. Nú hefur um nokkurt skeið verið týndur skozkur togari og hefur ísólfur haft það í huga, þegar hann hefur litið á fjörur, ef nokkuð myndi berast þangað, er gæti upp- lýst hver örlög þessa skips hefðu orðið. En það er ekki alltaf sem réttar heimildir berast eins og hjá Magnúsi á Hrauni, þegar hann fann bjarghringinn af Hans Hed- toft. Dimmbúin fjaran fyrir neðan ísólfsskála á Reykjanesi. Að morgni mánudags bárust á fjörur ísólfsskála lestarborð og annað rekald, sem benti til þess að úr starfandi skipi væri. Þessi lestarborð sögðu þó enga sögu því að þau geta tekið út af skipi, sem er of- an sjávar. En meðal annars braks í fjörunni voru tveir kassar grámáíaðir. Virtust þeir vera undan meðulum eða einhvers konar sjúkra- kistur. Vöktu þeir sérstaka at hygli ísólfs, en við nánari at- hugun kom í ljós að þeir voru ekki brezkrar ættar. Var áletrun þeirra á rússnesku að því er virtist og gáfu þeir enga vísbendingu um örlög hins skozka togara, sem sakn- að er. Á þessum stað er alltaf von á einhverju, sem rekur á land. Á stríðsárunum kom þar margvíslegt brak og veldur það nokkuð að bóndinn í Is- ólfsskála gengur enn fjörur og hyggur að því, sem sjór- inn skilar á land. Oftast er það ekki stórvægilegt, en stundum má marka dálítið af, ef aðgát er höfð. — Hsj. ísólfur Guðmunðsson, bóndi í ísólfsskála. Séð heim að bænum. Síðasta hefti Kenn aratals komið út tJT ER komið sjötta og síðasta hefti Kennaratals á íslandi, 192 bls., með 853 æviágripum, 474 karla og 379 kvenna. í heftinu eru æviágrip þeirra kennara, sem eiga Þ—Ó að upphafsstöfum, og hefst það á Þór Vilhjálmssyni og endar á Össuri Guðbjartssyni, alls 159 æviágrip. Þá er í heftinu viðbætir, en í honum eru ævi- ágrip kennara, sem af ýmsum á- stæðum hafa fallið úr eða þeirra sem gerzt hafa kennarar, meðan á samningu verksins stóð. Enn fremur er í heftinu skrá um kenn ara, sem lokið hafa kennaraprófi árin 1962 og 1963, og að lokum ritar ritstjóri Kennaratalsins, Ólafur Þ. Kristjánsson, eftirmála, greinargerð fyrir öllu verkinu. Þá fylgir og titilblað fyrir H. bindi Kennaratalsins. 1 sjötta hefti eru 842 myndir (aðeins 11 myndir vantar) auk 10 mynda, af kennurum, sem til- heyra öðrum heftum, þar af tvær teiicnaðar myndir. í sjötta heft- inu ber langmest á unga fólkinu, sem er í yfirgnæfandi meirihluta. ÍÞá er þess að geta, að upplýs- ingar í æviágripum ná aðeins til vorsins 1962. 13 ára starf. Það var á útmánuðum árið 1952, sem fjórir menn voru skip aðir í nefnd til þess að vinna að undirbúningi að útgaíu Kennara tals á íslandi. Hefur nefndin starfað alla tíð síðan, en í hana völdust Ingimar Jóhannesson full trúi, formaður; Guðmundur í. Guðjónsson, kennaraiskólakenn- ari; Ólafur Þ. Kristjánsson, skóla- stjóri, og Vilbergur Júlíusson, skólastjóri. Ólafur var strax ráð- inn ritstjóri verksins, og hefur mestur þungi af samningu ritsins hvílt á hans herðum. Kennaratal á íslandi er safn æviágripa allra kennara landsins, við æðri sem lægri skóla frá því um 1800—1962. í því eru upplýs- ingar um ætt kennarans, mennt- un hans og störf. Alls eru 4184 æviágrip í ritinu og 4105 myndir. Vantar aðeins myndir af 79 kenn urum, 72 körlUm og 7 konum. Ritið er í tveim stórum bindum, alls um 964 bls. með viðbæti og eftirmála. Kennarar eru þeir taldir, sem stundað hafa eða stunda kennslu við opinbera skóla, æðri sem lægri, hvernig sem námi þeirra eða prófum kann að hafa verið háttað, og einnig þeir, sem lokið hafa kennaraprófi (þar með talið kennarapróf í sérgrein, svo sem ííþróttuim, handavinnu o.fl.) þótt Kennaratalsnefnd á fundum í Hótel Sögu í gær. Talið frá vinstri: Ólafur Þ. Kristjánsson, ritstjóri verksins, Ingimar Jóhannesson, Guðmundur t. G uðjónsson og Vilbergur Júlíusson. þeir hafi ekki stundað kennslu. Kennaratalið er fyrst og fremst mannfræðirit, en auk þess má iinna í því upplýsingar um fjöl- mörg atriði í fræðslu- og skóla- málum þjóðarinnar. Kennaratal- ið er stærsta mannfræðirit, sem enn hefur verið gefið út á ís- landi, og engin íslenzk bók geym- ir fleiri mannamyndir. Á fundi með fréttamönnum 1 gær, sem haldinn var í tilefni áf útkomu síðasta heftisins, tóku ýmsir til máls. ólafur Þ. Krist- jánsson hafði orð fyrir nefndinni og þakkaði öllum þeim aðilum. sem hjálpað hefðu til við söfnuu upplýsinga og útgáfuna. Nefndi hann einkum Samband íslenzkra barnakennara, fræðslumálast.ióru ina, Hagstofu íslands, Þjóðskjala safnið og Þjóðminjasafnið. Hið síðastnefnda sagði Ólafur að hefði verið ómetanlega hjálplegt um útvegun mannamynda. Þá þakkaði hann að síðustu Prent- smiðjunni Odda h.f. og star.fs- mönnum þess fyrir geysilega milc ið og gott framlag til útgáfunn- ar. Helgi Elíasson, fræðslumála- stjóri, þakkaði nefndarmönnum og öðrum starf þeirra við \ erkið og kvað framlag þeirra mikið til íslenzks menningarlífs með út- gáfu þessa merka heimildarrits- Kvaðst hann aðeins kvíðinn um áframhald verks þessa á kom- andi árum. Þá tóku fleiri til máls og fögnuðu útgáfu þessa verks. Fyrrí heftin á þrotum. Útgefandi Kennaratalsins er Prentsmiðjan Oddi h.f., Grettis- götu 16, Rvík, sími 20280, og ann ast hún sölu og dreifingu ritsins. Geta áskrifendur í Reykjavík sótt 6. heftið í prentsmiðjuna, en öðrum verður sent það í póst- kröfu næstu daga. Heftið koslar kr. 300,00. Eigendur Kennaratala ins geta fengið hefti sín bundin í rexin eða skinn hjá Sveinabók- bandinu, en það er einnig til húsa að Grettisgötu 16, Reykjavík. Mjög lítið er til af fyrri heftum Kennaratalsins en nokkur ein- tök af Kennaratalinu í tveim bindum í rexínbandi verða til sölu innan skamms og kosta kr. 2000,00. Rannsóknarlög- reglan lýsir efíir vitnum FYRIR nokkrum dögum voru unnin skemmdarverk á bifreið- inni R-5375, þar sem hún stóð á bak við húsið nr. 30 við Baróns- stíg. Bifreiðin, sem er ljós á lit, Skoda ’56, var rispuð eftir endi- langri annarri hliðinni. Þeir, sem einhverjar upplýsingar gætu gefið um verknað þennan, eru beðnir að hafa samband við rann sóknarlögregluna. Milli kl. tvö og hálfþrjú i gær var ljósblárri vörubifreið ekið utan í dreng á hjóli á móts við Fossvogskirkjugarðinn. Drengur- inn féll í götuna og meiddist smávægilega og ennfremur skemmdust föt hans. Bifreiða- stjóri vörubílsins, svo og sjónar- vottar, sem voru að þessu eru beðnir að gefa sig fram við rann- sóknarlögregluna. Bílstjóranám- skeið í Bolungar vík Bolungarvík, 1. febr. NÁMSiKEIÐ til undirbúningj meiraprófs bílstjóra er að hefj- ast hér í dag. Aksturspróf haf* staðið yfir undanfarna daga. Um 35 manns munu sækja námskeið ið. Forstöðumaður þess er Vil- h'jálfur Jónsson frá Akureyri, en auk hans kenna Hafsteinn Hann esson frá ísafirði og Jón G. Tómasson, lögreglustjóri. — Hallur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.