Morgunblaðið - 03.02.1965, Qupperneq 19
Miðvikudagur 3. febröar 1965
MORGUHBLAÐID
19
Bjarni SigwTðsson
Minningarorð
26/6 1875 — 26/1 1965.
í DAG verður til moldar borinn
Bjarrii Sigurðsson, Ökrum við
INesveg, sem lézt 26. jan. á 90.
aldursári. Hann átti að baki
langa ævi, ekki ævi stórra við-
burða eða mikils veraldarframa,
heldur ævi látlausrar elju í sveit
og borg, ævi harðrar lífsbaráttu
á því erfiða tímabili sem nú er
orðið íslenzkri æsku álíka fjar-
lægt og torskilið og miðaldir.
Bjarni Sigurðsson var fæddur
á Stóra-Vatnsskarði í Skagafirði
26/6 1875, sonur hjónanna Sig-
urðar Bjarnasonar og Salbjarg-
ar Sölvadóttur. Hann var af
skagfirzkum bændaættum langt
í kyn fram, kominn í beinan
karllegg af Hrólfi sterka á Álf-
geirsvöllum; föðurafi hans var
garpurinn Bjarni skytta Jónsson
á Sjávarborg, sem snemma varð
þjóðsagnahetja í Skagafirði.
Bjarni Sigurðsson fór ungur að
heiman og lengra en þá var títt,
var um skeið í þjónustu Bene-
dikts sýslumanns Sveinssonar á
Héðinshöfða og síðar vinnumað-
ur hjá sr. Jakobi Benediktssyni
á Hallfreðarstöðum. Hann sneri
þó bráðlega aftur til Skaga-
fjarðar, varð vinnumaður hjá
Jóni hreppstjóra Jónssyni á Haf-
steinsstöðum érið 1900 og kvænt-
ist dóttur hans Valgerði þremur
árum síðar. Þau reistu bú í
Glæsibæ 1903 og bjuggu þar í
níu ár; síðan áttu þau heima á
Sauðárkróki þangað til þau flutt-
ust búferlum til Hafnarfjarðar
1925; ári síðar settust þau að í
Reykjavík og áttu þar heima
eftir það.
Bæði á Sauðárkróki og í
Reykjavík vann Bjarni að marg-
víslegum störfum, en þó einkum
„Uppá tindinn"
BLAÐINU hefur borizt eftirfar-
andi frá Bandalagi íslenzkra
skáta:
Bandalag íslenzkra skáta tók
fyrir nokkrum árum upp þá
venju að nefna hvert starfsár
skátanna ákveðnu nafni, sem
sýndi þá þann þátt, sem aðal-
áherzla væri lögð á hvert ár.
Þannig hefir undanfarin þrjú ár
verið lögð áherzla á hinar mis-
munandi aldursgreinar skáta-
starfsins. Það ár, sem nú stendur
yfir, hefur hlotið nafnið „Upp á
tindinn.“ Með þessu slagorði er
ekki fyrst og fremst átt við tind
í hinni eiginlegu merkingu orðs-
ins, heldur er á yfirstandandi ári
lögð áherzla á ýmis atriði, sem í
fljótu bragði virðast lítilfjörleg
og hversdagsleg, en eru þó nauð-
synleg til að starf skátanna nái
tilgangi sínum, að ala upp góða
og nýta þjóðfélagsþegna. Verk-
efnin, sem þarna koma fyrir, eitt
í hverjum mánuði eru jafnvel
sum þess eðlis, að þau takmark-
ast síður en svo við skátastarfið,
en koma fremur inn á ýmsa ósiði
og óvenjur, sem allt of algengar
eru í okkar þjóðfélagi.
Hér meðfylgjandi er sýnishom
af renning með verkefnum skát-
anna í máli og myndum, en þess
konar renning hefur verið dreift
til allra skáta á landinu. Verk-
efnin eru að sjálfsögðu mismun-
andi fyrir hin ýmsu aldursskeið,
en meðfylgjandi mynd sýnir verk
efni skátanna, sem eru á aldrin-
um 11 til 14 ára.
Þegar upp úr áramótum hvert
ár, fer fjöldi skáta á landinu að
hugsa til hreyfings. Á hverju ári
berast Bandalagi íslenzkra skáta
nokkuð mörg tilboð að heim-
sækja skáta I nágrannalöndum
og taka þátt i minni og stærri
mótum þeirra.
f þeim tilgangi hafa islenzkir
skátar ferðazt víða, heimsótt lönd
eins og Mexfko, Bandaríkin,
Frakkland, Sviss, Grikkland, en
algengastar eru þó ferðir til
Norðurlandanna og Englands.
f ár er íslenzkum skátum boð-
ið að heimsækja eft'rtalin lönd:
Svíbjóð, Danmörk, Noreg, Finn-
land. Sviss, Belgiu og England.
Síðastliðið ár fór m.a. 132
manna hópur á slóðir forfeðra
okkar og ferðaðist víða um Nor-
eg. í ár er gert ráð fyrir að
stærsti straumurinn liffgi til Svf-
þjóðar, en f ágúst halda sænskir
I skátar landsmót sitt og gera ráð
fyrir allt að 12,000 manna þátt-
töku. Eftir landsmótið er boðin
dvöl á sænskum heimilum.
Ferðir á erlend skátamót hafa
alltaf verið mjög vinsælar og þeir
eru ófáir fslendingarnir, sem
fyrst hafa komið til annarra
landa í skátahópi. Það má því
búast við fjölmennri ferð til Sví-
þjóðar í ágúst n.k.
UPP ÁTINDINN
S.KA’TAK 19S 4-1 1) * «.
KAHZ
Hinn nýi ambassador Sambandslýðveldisins Þýzk alands, herra Henning Xhomsen, afhenti í dag við
hátíðlega athöfn handhöfum valds forseta íslands trúnaðarbréf sitt, að viðstöddum utanríkisráð-
herra.
að smíðum, enda var hann prýði-
lega laghentur til allra verka
sem hann tók höndum til; bók-
band stundaði hann og öðru
hverju allt fram á síðustu ár.
Alla tíð var hann starfsmaður og
ötull að hverju sem hann gekk
og lét sér ekki verk úr hendi
falla meðan heiláa leyfði.
Bjarni var maður óvenju glað-
lyndur og bjartsýnn; hann var
manna gestrisnastur og hrókur
<¥ alls fagnaðar, bæði heima og
heiman. Söngelskur var hann
alla ævi og góður söngmaður á
yngri árum; var m. a. einn af
stofnendum Bændakórs Skag-
firðinga, sem mikið orð fór af í
þá daga. Hann var hreinn í lund
og falslaus; skapgerð hans var
slík að hann lét aldrei and-
streymi eða erfiðleika á sig
ganga, ekkert af því tagi fékk
dregið úr bjartsýni hans eða
heft greiðvikni hans og hjálp-
semi öðrum til handa. Því er eng-
in furða að hann var vinsæll
maður og vinmargur hvar sem
hann fór, og margir eru orðnir
gestir þeirra hjóna á sex ára-
tugum. -
Valgerður, kona Bjarna, sem
lifir mann sinn, var honum
tryggur lífsförunautur. Þau eign-
uðust þrjú börn; Salbjörg dóttir
þeirra lézt fyrir tæpum 30 árum,
en hjá hinum tveimur, Steinari
trésmið og Önnu, hafa gömlu
hjónin átt athvarf síðustu ária
og séð sístækkandi hóp barna-
barna og barnabarnabarna vaxa
úr grasi. Sá vaxtarbroddur var
mesta gleði Bjarna í ellinni, og
þá umbun langrar og eljusamrar
ævi hygg ég að hann hafi vitað
bezta.
Bjarni kunni ávallt vel við sig
í hópi yngri manna; því áttt
hann marga vini ofan moldar ttt
æviloka, og þeir minnast hans
með þakklátum huga. Hann var
svo heill og hreinn í gleði sinni
Og bjartsýni að hann hlaut að
láta aðra njóta góðs af. Slíkir
menn eru sjálfum sér og öðrum
gæfumenn.
Jakob Benediktsson.
Hin heimsfrœgu
PRIMIIS
gasfœki
Nú er tíminn til að panta
bessi eftirsóttu gastæki
fyrir vorið.
Þau eru ómissandi í ferða
lög, í sumarbústaði, í veiði
hús, í útilegu og til heimil
isnotkunar.
SUÐUTÆKI
LJÓSATÆKI
HITUNAKTÆKI
„PRIMUS"
er heimsþekkt
vörumerki
„PRIMUS"
vörur eru seld-
ar í verzlunum
um allt land.
IÐNADARTÆKI
PRI MUS
merkið er trygging fyrir
vönduðum vörum.
A B. BAHCO
Stockholm
UMBOÐ:
Þórður Sveinsson & Co. h.f.