Morgunblaðið - 03.02.1965, Page 21
Miðvikudagur 3. fébrúar 1965
MQRGU NBLADl ->
21
Sendibréf
Til bókmenntapáfa
Frá einni af „kellingunum"
Útsýn í riýjum húsakynnum
ÉG VILDI nú fyrst þakka ykk-
ur, ágætu bókarýnendur, sem
bæði beinlínis og óbeinlínis haf-
ið stuðlað að því að veita okkur
skáldkonum landsins ríflegar aug
lýsingar undanfarnar vikur, ekki
aðeins í fjölda greina heldur
einnig vísum og bara vel gerð-
um skopteikningum. Og allt þetta
höfum við fengið öldungis ókeyp
is og af fúsum vilja ykkar.
Samt segir mér hugur um að
eigi hafi það verið ætlunin að
gera okkur skáldkonunum
greiða.
En þið þekkið nú víst af eigin
reynd að sitt sýnist hverjum við
skilgreiningu hugverks — og er
það vel.
Eflaust stæði það nær okkur
skáldkonum að þegja ykkur í hel
— það er ekki nema það sem þið
hafið reynt gagnvart okkur flest-
um undanfarin ár — nema stöku
sinnum þegar þið týnið úr eitt-
hvert það skáldverk okkar, sem
þið teljið lélegt og takið til op-
inberrar flengingar í háðungar-
skyni. ,
Ekki er ég þess umkomin að
dæma um það sem aðrir eiga að
lesa. Ég segi bara fyrir mína
parta að heldur vildi ég pæla
gegnum langloku eftir einhverja
skáldsystur mína en sögu eða
kvæðakorn eftir einhvern þess-
ara langsoltnu, magadregnu, sem
betur fer skeggjuðu hryggða-
mynda, sem eru fimm til tíu ár
að drita úr sér söguræfli og eru
vart heilir á sönsum eftir koll-
hríðina.
Svona getur hugsjónin leikið
sterka kynið.
Hitt er annað mál að hvorugt
hefi ég þurft að lesa til að vinna
mér til lífs og eru þá mínar
bækur meðtaldar.
Ég hef aðeins stöku sinnum
forvitnast í ritdóma ykkar um
bækur. Og það segi ég satt að
miklu eru sýnishornin úr bókum
kvenna betur til þess fallin að
skapa hóflega gleði það sem eft-
ir er dagsins heldur en það sem
úr bókum karla kemur. Og mik-
ið skelfilega eru þær bækur leið-
inlegar sem ekki einu sinni er
hægt að brosa að.
Ekki get ég ímyndað mér hvað
það er sem veldur hinni nei-
kvæðu afstöðu ykkar gagnvart
okkur konum sem bækur skrifa.
Lélegt ritverk hefur aldrei vald-
ið fjaðrafoki.
i Hvað amar þá að?
Vorum við of margar konurn-
ar sem gáfum út bækur síðast-
liðið ár?
Lízt karlkyninu ekki á blik-
una?
Er það öfund út I fmyndaðar
metsölubækur okkar kvenna eða
bara hreint og klárt minnimátt-
arkomplex?
Tökum við bita frá munni
skáldbræðra?
Hvað sýna úthlutunarlistar rit-
höfundalauna? Hvað sýnir nafna-
listi rithöfundasjóðs útvarpsins?
Hve hátt erum við skrifað-
ar í útvarpsþættinum, „Raddir
skálda“?
Jú, reyndar — einar tvær,
þrjár skáldkonur hafa komið þar
fram. — Þær eiga það allar sam-
eiginlegt að hafa setið eða sitja
í stjórn rithöfundafélagsins eða
Slysavarnadeild
kvenna stofnuð
í Bolungarvík
BOLUNGARVÍK, 1. febr. — I
gær var haldinn stofnfundur
slysavarnadeildar kvenna hér.
Fundinn setti Blízabet Hjaltadótt
ir, ea á fuadinn voru mættar 58
félaganna — ef ekki er komin
á einhvers konar ssfnsteypu-
stjórn. Og þá er komið að einu:
Ber ekki að senda öllum félags-
meðlimum fundarboð þegar kos-
in er stjórn. — Eða fá þeir með-
limir einungis fundarkvaðningu
sem kjósa hver annan? — Já, það
er margt skrýtið í kýrhausnum.
Ég hygg mig mæla fyrir munn
skáldkvenna þegar ég segi: —
Þær okkar sem það geta og vilja
munu halda áfram að hugsa,
skrifa og senda út það sem okk-
ur sýnist! Því fjölbreyttari skáid-
verk, því meiri tilbreytni í þjóð-
félaginu — og ekki veitir af ef
marka má kveinstafi Sigurðar A.
Magnússonar.
Sjálfir getið þið haldið áfram
að lesa og birta ykkar andlega
fóður eftir Dag Sigurðsson og
hans fylgifiska, þeir eru margir
— en á meða'n þið gerið það
munu þeir sem það vilja lesa
sína Guðrúnu frá Lundi og henn-
ar skáldsystur.
24/1 1965
Guðrún Jacobsen.
ATHUGASEMD
Reyndar voru þær víst ekki
nema tíu, „Ósendibréfafæru kerl-
ingarnar", sem S.A.M. taldi fram
í Lesbók Morgunblaðsins í síðast-
liðnum desembermánuði. Þar af
leiðir að annað hvort hefur S.A.
M. viljandi eða óviljandi svikið
undan framtalningunni eða eggja
saga Nasareddins endurtekið sig
og Hagalín í sinni upptalningu
sama mánaðar óbeinlínis verpt
þessum þremur í viðbót.
Ég læt þessa tvo heiðursmenn
um að komast að samkomulagi
varðandi þetta alvarlega atriði
óður en í óefni er komið.
í DAG fer fram frá Fossvogs-
kirkju útför Inigvarar Önnu Guð-
björnsdóttur, Efstasundi 31, sem
andaðist 28. f.m.
Iniga, eins og vinir hennar
nefndu hana ávallt, var fædd 28.
nóvember 1911 og var því rúm-
lega 53 ára að aldri er hún féll
frá skyndilega og óvænt. Ætt
hennar og uppvaxtarár verða
ekki rakin hér. Þess skal aðeins
getið, að hún var kominn af
góðu og traustu fólki og ólst upp
við svipuð kjör og þau, sem voru
hlutskipti flestra á þeim árum,
takmarkað skólanám, en mikið
starf.
konur. 1 stjórn deildarinnar voru
kosnar: Ásgerður Hauksdóttir,
formaður, Guðríður Benedikts-
dóttir, gjaldkeri; og Hólmfríður
Hafliðadóttir, ritari. — A fund-
inum mætti formaður slysavarna
deildarinnar á Akranesi, Bergur
Arinbjarnarson; stjórn slysa-
varnadeildar karla hér og stjórn
slysavarnadeildar kvenna á ísa-
firði.
« — Hallur. .
FERÐASKRIFSTOFAN Útsýn
hefur nú fyrir skömmu flutt starf
semi sína í ný húsakynni við
Austurstræti 17, í hinu nýja stór-
hýsi Silla & Valda. Útsýn var
áður til húsa í Hafnarstræti 7, en
þar var orðið of þröngt um starf-
semina svo flytja þurfti í stærra
húsnæði. Hin nýju húsakynni Út-
sýnar í Austurstræti 17 eru í alla
staði hin glæsilegustu og hefur
öllu verið þar komið fyrir á mjög
smekklegan hátt Útsýn á 10 ára
afmæli í þessum mánuði, og má
því segja að þetta sé nokkurs
Árið 1932 giftist hún Jóni Jó-
hannssyni, trésmíðameistara, ag
lifir hann konu sína ásamt 6 mann
vænlegum börnum þeirra hjóna.
Allt líf hennar einkenndist af
starfsemi, hjálpsemi og fórnfýsi
fyrir aðra. Hún vann starf sitt
í kyrrþey, fyrir heimili sitt, mann
sinn, börn og barnabörn og gerði
meiri kröfur til sín en annarra.
Hún öðlaðist í reynsluSkóla lífs-
ins þroska, sem ekki lærist af
bókum, en er eigi að síður mikil-
vægur í samlífi manna. Þess
vegna er gott að minnast hennar.
Nú, að leiðarlokum, er hún
kvödd með söknuði og þakklæti
fyrst og fremst af eiginmanni og
börnunum sex, tenigdabörnum,
21 barnabarni, aldraðri og sjú’kri
móður, systkinum, háöldruðum
tengdaforeldrum og öðrum vin-
um og vandamönnum, í fullri
vissu um að nú ekur 'hún heilum
vagni heim.
V.E.
— í kvikmyndasal
Framh. af bls. 6
brautarstöðinni, sem sýnir vel
viðbrögð hins svokallaða nor-
mala fólks gagnvart þessum ung
lingum. Einnig er minnisstætt at-
riðið hjá trénu, þar sem Davíð
talar til Lísu á hennar rímaða
máli og nefnir hana „a pearl of
a girl“ og andlit hennar fyllist
af birtu. Og myndin af Lísu
hjúfrandi sig upp að styttu sem
táknar móðurást, situr í manni.
Myndin ristir ef til vill ekki
sérlega djúpt í vandamálin. Hún
er slétt og felld, en án ljóstrandi
innsæis og leitar um of auðsótt-
ustu andsvara áhorfandans. En
þetta er þekk mynd og á upp-
örvun skilið, þótt aðallofið um
hana byggist að mestu á hvað
aðrar bandariskar kvikmyndir
eru að jafnaði lélegar.
Pétur ólafsson.
konar afmælisgjöf til hennar.
Ingólfur Guðbrandsson, for-
stjóri Útsýnar, skýrði blaðamönn-
um frá því að það færi ört vax-
andi að menn leituðu til ferða-
skrifstofu um margvíslega fyrir-
greiðslu, þegar þeir brygðu sér út
fyrir landsteinana, .og að hópferð-
ir Útsýnar ættu síauknum vin-
sældum að fagna. Á seinasta ári
hefði verið uppselt í allar hóp-
AÐALFUNDUR Dansk-ís-
lenzka félagsins í Kaupmanna
höfn var nýlega haldinn í
húsi Læknafélagsins við Öst-
erbro. Að fundarstörfum Iokn-
um voru skemmtiatriði, og
mjög vel til þeirra vandað, þar
þar sem fram komu tveir af
mestu listamönnum Danmerk-
ur, hvor á sínu sviði.
Fyrst las Poul Reumert upp
sögu eftir Gunnar Gunnars-
son, og þótti upplesturinn tak-
ast afburða vel jafnvel þegar
tekið var tillit til þess að það
var meistari hins talaða orðs,
sem átti hlut að máli. Þá lék
Erling Blöndal-Bengtsson, pró
fessor, á knéfiðlu og hreif á-
heyrendur með list sinni.
Formaður félagsins, dr. med.
E. Meulengracht, þakkaði
ferðir Útsýnar, og eru pantanir
þegar farnar að berast í hópferð-
ir þessa árs, sem farnar verða
til flestra landa Evrópu. Fyrst*
hópferðin verður páskaferð, sem
hefst 15. aprll til London, Lissa-
bon og Madeira, „hinnar blóm-
skrýddu eyjar hins eilífa vors."
í nóv.-des. sl. efndi Útsýn til
fyrstu ferðarinnar kringum
hnöttinn.
listamönnunum innilega. — f
skýrslu sinni sagði formaður-
inn annars svo frá, að félagið
hefði í hyggju að efna til hóp-
ferðar til íslands í sumar. Eit
aðalstarf félagsstjórnarinnar
væri að annast útgáfu tíma-
ritsins „Nyt fra Island“. Til
þeirrar útgáfu hefur félagið
notið styrks frá því opinbera.
Varaformaður félagsins, Kaj
Petersen, lögmaður, las upp
reikninga félagsins. Var á-
kveðið á fundinum að tvöfalda
félagsgjaldið, og verður það
nú tíu danskar krónur á ári
Margt gesta var á fundinum,
þeirra á meðal Stefán Jóh.
Stefánsson, sendiherra, og frú.
og einnig frú Bodil Begtrup.
fyrrum sendiherra Dana á ís-
landi, en nú sendiherra í Sviss.
Frú Ingvör Anna
Guðbjörnsdóttir - Kveðja
Poul Reumert og E. Meulengracht.
Reumert og Blöndal-
Bengtsson á aðalfundi
Dansk-ísL íélagsins í Kaupmannahöfn