Morgunblaðið - 03.02.1965, Síða 28

Morgunblaðið - 03.02.1965, Síða 28
.. 3 : w . , I KELVINATOR KÆLISKAPAR Júkls LAUGAVEGI 28. tbl. — Miðvikudagur 3. febrúar 1965 Sjálfvirkt símasam- band til Akureyrar 1 DAG, 3. febrúar, klukkan 17.00 verður opnað sjálfvirkt talsíma- samband milli Akureyrar og Reykjavíkur svo og annara sjálf- Virkra stöðva innanlands. Notendur sunnanlands, sem ætla að ná í símanúmer á Akur- eyri, velji fyrst svæðisnúmerið 96 og strax á eftir númer not- andans. Hinsvegar þurfa notend- ur á Akureyri, sem ætla að tala suður, fyrst að veija hlutaðeig- andi svæðisnúmer (91) Reykja- víkursvæðið, 92 Keflavíkursvæð ið, 93 Akranes, 98 Vestmanna- Skall með liöfuðið í skjólborðið SDYS varð í gær er verið var að skip,a saltfiski um borð í Drottn i ng u n a. Tveir menn stóðu á bílpalli og voru að setja krók í net, sem saltfiskurinn var flutur í um borð. í>arna var að vinnu Guðni J. Bæringsson, Skólavörðustíg 42. l>egar verið var að taka síðasta netið af bílnum mun hann hafa haldið í það um leið og híft var, mi-sst af því og fallið aftur fyrir sig og lent með höfuðið á skjól- borði bílsins, en það er úr járni. Guðni fékk slæman áverka á höfuðið og var fluttur á slysa- varðstofuna og síðar á Landa- kotsspítala. Ekki var fullljóst í gærkvöldi, hversu alvarlegs eðlis meiðsli hans eru. Guðni er nærri sjötugur að aldri, fæddur árið 1806. eyjar) og notendanúmerið svo strax á eftir. Hverjar 6 sekúendur í sjálf- virku langlínusímtali milli Akur eyrar og stöðvanna sunnanlands teljást sem eitt innanbæjarsím- tal eða teljaraskref og kosta því kr. 1.10, ef farið er yfir það tak- mark (600 teljaraskref á ársfjórð ungi), sem félagið er í fasta af- notagjaldinu. Frá atkvæðagreiðslu bátasjómanna um samkomulagii í sjómannaverkfallinu. Sjómenn og útvegsmenn greiddu atkvæði um samkomuiagiö í gær Hveragerði Sjálfstæðisfélagið „Ingólfur" heldur almennan fund í kvöld kl. 20:30. Ræðumaður Matthías Á. Mathiesen, alþingismaður. Sknut minkinn ú 8 metio færi Akranesi, 2. febrúar. SÍÐASTLIÐINN laugardag kl. 11 um morguninn varð manni ein- um gengið inn með sjó. Veður var stillt og kyrrt með öilu. Og því var engin furða að maður- inn hrökk I kút, er minkur hent- ist í loftköstum spölkorn fyrir framan hann. Maðurinn á morgungöngunni var á leið á fuglaveiðar og hafði byssu reidda um örl sér. Hann var fljótur að hlaða, þótt hagla- byssa væri, og hleypti af á 8 metra færi. Skotið kom í haus minksins og dýrið steinlá. „Tvö hundruð kall þar,“ hrökk af vörum byssu- mannsins. — Oddur. Menn vongóðir um oð bábir aðilar hafi samþykkt það, atkvæði verða talin i dag Á FUNDI sáttasemjara með fulltrúum sjómanna og út- vegsmanna í fyrrinótt náðist samkomulag um kaup og kjör og í gærkvöldi voru greidd atkvæði í félögum þeirra um samkomulagið, sem undirrit- að hafði verið með fyrirvara. Atkvæði verða talin x dag kl. 2 ef þau hafa borizt fyrir þann tíma. í gærkvöldi voru menn vongóðir um, að báðir aðilar myndu samþykkja samningsuppkastið. Sáttafundurinn hófst á mánu- dagskvöld strax að lokinni taln- ingu atkvæða um sáttatillögu ríkissáttasemjara, en hún var felld af sjómönnum. Fundinum lauk klukkan 5,30 um morguninn með samkomulagi, sem felur í sér, að skiptaprósenta á hring- nótaveiðum verði 1% lægri en á síldveiðum. Hefur meirihluti fiskmatsráðs gefið fyrirheit um, að reglugerð verði breytt þannig að ekki þurfi að slægja allan fisk veiddan í hringnót. Á línu- og netaveiðum verður skiptahlutfallið þannig, að á 12 —20 tonna bátum verði 7 menn og 40% hlutur; á bátum 20—30 tonn verði 8 menn og 34% hlut- Garðahreppur SPILAKVÖLD Sjálfstæðisfélags Garða- og Bessastaðahreppa verð ur í kvöld í samkomuhúsinu að Garðaholti. Hefst það kl. 20,30. Félagar taki með sér gesti. ur; á 30—50 tonna bátum verði 10 menn og 29,5% hlutur; á 50 —130 tonna bátum á netaveið- um verði 11 menn og 31% hlutur; á 50 tonna bátum og yfir verði á línuveiðum 11 menn og 31% hlutur og á 130 tonna bátum og yfir á netaveiðum verði 12 menn og 31,5% hlutur. Samkomulagið gildir út þetta ár, en framlengist með tveggja mánaða uppsagnarfresti. Verkfallið hefur náð til 5 ver- stöðva við Faxaflóa, 4 verstöðva á Snæfellsnesi og Akureyrar. Á öllum þessum stöðum voru haldn ir fundir í sjómannafélögunum í gærkvöldi. í Reykjavik lauk atkvæðagreiðslu um samkomu- lagið klukkan 10 síðdegis, en á Snæfellsnesi á miðnæUi. Framhald á bls. 27 195 tonn fyrir 1,7 milljónir TOGARINN Maí frá Hafnarfirðl seldi afla sinn í Grimsby í gær- morgun. Hann var með 195.5 tonn, sem seldust fyrir 14.227 sterlingsjund, eða ein milljón og 702 þúsund íslenzkar krónur. Þetta er nokkru lægra verð miðað við aflamagn en togararn- ir hafa fengið í Bretlandi að undanförnu. Fjórir soðningar- bátar stöðvaðir Grindavík, 2. febrúar. ÞEGAR bátarnir komu hér að á sunnudag voru fyrir til að mæta þeim formaður sjómannadeildar verkalýðsfélagsins hér og fleiri úr stjórninni. Tilkynntu þeir fjór um bátum, Ólafi, Kára, Gullfaxa Og Búðafelli, að þeir fengju ekki lengur að veiða í soðið, hvorkl fyrir Reykvíkinga né aðra. Þessir bátar fengu upphaflega leyfi til að fiska í soðið á meðan á verkfallinu stæði. Á sunnudag gerðist það svo fyrirvaralaust, að þessir bátar voru stöðvaðir. — G.K, Fjögur íslenzk skip tefjast verkfallsins vestra vegna Selfoss hefur legið í hofninni í IMew Vork í rúmar þrjár vikur VERKFALL hafnarverknmanna í New York stendur enn yfir og hefur Selfoss verið þar i höfn innj frá 11. janúar s.l. og á bæði eftir að losa farminn og taka nýjan. Þá er fyrirsjáanlegt, að Detti- foss muni tefjast talsvert í New Unnið að þáttföku íslands i heimssýningu í Montreal Norræna undirbúningsnefndin beldur væntanlega fund i Reykjavik i vor MORGIINBLAÐID hafði í gær samband við Gunnar J. Friðriks- son, framkvæmdastjóra, sem er fulltrúi tslands í nefndinni, sem annast undirbúning fyrir ríkis- stjórnir Norðurlanda vegna beimssýningarinnar, sem vænt- anlega verður opnuð í maímán- uði 1967 í Montreal í Kanada, Gunnar sagði, að nefndin vinni nú að fyrsta undirbúningi fyrir sýninguna, sem ríkisstjórnir íjölmargra landa verða aðilar að. Norðurlöndin öll verði með sameiginlegt sýningarsvæði og verði á því allt hið helzta, sem þessar þjóðir séu stoltar af og vilji láta þekkja sig af. Ekki verði sýndar beinlínis vörur ein- stakra framleiðenda, nema þá sem liður í heildarfnynd, t. d. útfiutningi. Gunnar sagði ennfremur, að nefndin hafi haldið nokkra fundi og sé gert ráð fyrir að hún haldi fund í Reykjavík annaðhvort í apríl eða maí í vor. York, þótt verkfallið leysist skjótlega, en skipið er nú í Wilm ington á leið þangað. Svo mörg skip hafa tafizt í New York höfn vegna verkfallsins, að alllangan tíma tekur að losa þau og hlaða að nýju. ' Skip Jökla h.f. hafa alveg losnað vlð tafir af verkfallinu og hafa þau siglt til Glocester, en þau losa frysta fiskinn fyrir dótt urfyrirtæki SH vestra. Jökulfell Skipadeildar SÍS hef ur verið í Camden í vikutíma og á að losa þar fisk og taka kornvörur heim. Vonazt er til, að verkfallið í Camden leysist um eða upp úr næstu helgi, að Tekur 2000 tunn- ur á Rússlands- markað Akranesi, 2. febrúar. HAFÖRN fiskaði í gær á línuna 3.7 tonn. Hingað kom ms. Katla í dag og lestar 2 þúsund tunnur af saltsíld á Rússlandsmarkað. því er Hjörtur Hjartar, fram- kvæmdastjóri Skipadeildar SIS, tjáði Morgunblaðinu í gær. Hann sagði ennfremur, að Arn arfell sé nú í New Haven og hafi átt að losa þar í dag, en ekki sé ljóst hvernig ástandið þar er við höfnina og má jafnvel búast við, að Arnarfell stöðvist þar í dag sökum verkfallsins. Fyrsta loðnan berst til Eyja Vestmannaeyjum, 2. feþrúar. FYRSTA loðnan barst til Eyja í kvöld. Það var Víðir SU, sem kom með 70 tunnur og verður beitt með henni í kvöld fyrir línubátana. Er þetta talsvert fyrr en loðna hefur veiðzt hér undan- farin ár. Línubátar voru í dag með svip aðan afla og að undanförnu, eða 5—9 tonn. Sl. laugardag var góð- ur afli hjá línubátum. Þeir fengu allt up í 15 tonn. Síldarbátarnir voru byrjaðir að veiða um kvöldmat, en fáir bát- ar eru á miðunum, því margir þeirra voru að landa hér í dag sérlega góðri vinnslusíld.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.