Morgunblaðið - 06.03.1965, Síða 8

Morgunblaðið - 06.03.1965, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ f Laugardagtir 6. marz 1965 WÆWHESm Hepariítið fótk fái ökuréttind f GÆR var skýrt frá umræðum um frumvarp um ný læknaskip- unarlög, sem fram fóru í fyrra- dagr. Hér á eftir verður greint frá öðrum þingmálum, sem voru á dagskrá Alþingis þennan dag, en ekki var unnt að segja frá hér í blaðinu í gær. í báðum deildum voru mörg mál á dag- skrá. Þá fylgdi Jóhann Hafstein dómsmálaráðherra úr hlaði frum varpi um breytingu á umferðar- lögum þess efnis, að heyrnarlítið fólk öðlist heimild til þess að aka bifreiðum og að tryggingar- fjáirhæðir vegna bifreiða verði hækkaðar. >á var frumvarp um fjárhagslegan stuðning ríkisins Við leiklistarstarfsemi áhuga manna samþykkt sem lög. NEÐRI DEILD Lífeyrissjóður hjúkrunarfólks Gunnar Thoroddsen fjármála- ráðherra mælti fyrir frumvarpi um lífeyrissjóð hjúkrunarfólks, sem var til 1. umr. en Efri deild hefur þegar fjaliað um frum- varpið. Sagði ráðherrann, að stjórn lífeyris- sjóðs hjúkrunar kvenna hefði far ið fram á það á s.l. ári, að sam- ið yrði frum- varp að nýju um iífeyrissjóð hjúkrunar- kvenna til sam- raemis við gildandi lög um líf- eyrissjóð starfsmanna ríkisins. Á árinu 1963 voru sett ný lög um lífeyrissjóð starfsmanna ríkis- ins og voru gerðar á lögunum margra mjög mikilvægar breyt- ingar. Var Kr. Guðmundi Guð- mundssyni tryggingafræðingi fal ið að annast þessa endurskoðun í samræmi við stjórn lífeyrissjóð hjúkrunarkvenna og væri þetta frumvarp árangur þessa starfs. Væri frumvarpið samið til sam- ræmingar við lög um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. í Efri deild hefði niðurstaðan orðið sú að heitinu yrði breytt og sjóðurinn kallaður lífeyrissjóður hjúkrun- arfólks. Kvaðst ráðherrann telja það til bóta. Var frumv. vísað til 2. umr. og fjárhagsnefndar. Aðstoð við fatlaða. Frumvarp um breytingu á lög- um um áðstoð við fatlaða var nú til 3. umr. og var samþykkt og vísað að nýju til Efri deild- ar, vegna breytingartillagna við það, sem Efri deild hefur ekki enn fjallað um. Umferðarlög. Jóhann Hafstein dómsmálaráð- herra gerði grein fyrir frum- varpi um breyt- ingu á umferðar lögum. Gat hann þess í upphafi, að sér hefði bor- izt erindi frá heyrnarleysingj um, þar sem þess var farið á leit, að breytt yrði umferðarlöggjöf inni og þeim með því gefinn kostur undir vissum kringum- stæðum að geta fengið ökuskír- teini og aka bíl eins og aðrir. Skólastjóri Heyrnleysingjaskól- ans hefði átt tal um þetta við ráðherrann og kom þá í ljós, að í nágrannalöndum okkar er lög- gjöfin töluvert ö'ðruvísi að þessu leyti heldur en hjá okkur og reynsla annarra landa hefur sýnt að slys við akstur hjá heyrnar- lausu fólki er töluvert minna heldur en almennt gengur og gerist. >að er af þessu tilfel.li, sem þetta frumvarp væri borið fram. Kvaðs ráðherrann hafa fengið umsögn umferðarlaganefndar um þetta mál, þar sem mælt var algerlega með því, að þáð næði fram að ganga. Nefndin hefði hins vegar talið rétt, að taka með í leiðinni einn þátt í hugsanleg- um breytingum þessara laga í sambandi við tryggingarnar, en það væri í 2. gr. frumvarpsins, sem fjallar um vátryggingarnar og miðar áð því að breyta upp- hæðunum en þar er sagt, að eig- andi skráðs vélknúins ökutækis sé skylt að kaupa í vátryggingar félagi, sem viðurkennt er af dómsmálaráðherra og halda við vátryggingu fyrir ökutæki sitt, sem nemur 500 þús. kr. fyrir reiðhjól með hjálparvél, það var áður 100 þús kr. 1 millj. fyrir Gagnrýni á lækna- deild Háskólans I UMRÆÐUM á Alþingi í fyrra- dag um hið nýja frumvarp til læknaskipunarlaga gagnrýndi Einar Olgeirsson (K) harkalega læknadeild Háskólans. Sagðist hann vilja benda á, að í lækna- deildinni ríkti tremdarástand, þar eð meira en helmingui stúd- enta þar væri felldur við nám, og stundum hindraðir með skammarlegum hætti í að halda áfram námi. >etta miðaði ekki að því að bæta úr þeirri neyð, eins og ræðumað- ur komst að orði, sem hér á landi hefði skapazt, hvað snerti skort á læknum. Kvaðst hann vilja skora á heilbrigðismálaráðherra að láta rannsaka alla stjórn læknadeildarinnar. Þá tók Einar Olgeirsson það íram, að hann áliti rétt að taka upp námslaunafyrirkomulag hér við læknanám, því að námið væri það langt og dýrt, að efnalitlir stúdentar legðu ekki út í það þrátt fyrir mikinn vilja og áhuga. >á gagnrýndi hann einnig lækna- námið sjálft hér við Háskólann. Taldi hann það allt of bókstafa- kennt og úr tengslum við lífið sjálft. Kristján Thorlacius (F) tók einnig til máls í þessum umræð- um. Kvaðst hann vilja fagna því, að þetta frumvarp væri fram komið og sagðist vona, að þær úrbætur, sem frumvarpið hefði að geyma, yrðu til þess að bæta kjör lækna. >á kvaðst hann einn ig vilja benda á það, að nauðsyn væri á því að bæta kjör annarra stétta meðal starfsmanna ríkisins, ekki hvað sízt kjör hjúkrunar- kvenna, en á þeim væri mikil vöntun. Var frumvarpið að lokum tek- ið út af dagskrá og umræðum um það frestað. dráttarvél. >a’ð var 200 þús. kr. og 1 millj. fyrir bifhjól sem var 200 þús. kr. og 2 millj. fyrir bif- reið, sem hámarkið var 500 þús. kr. í sambandi við þessar skyldu tryggingar. >etta er vegna þess að miðað við verðlagsþróunina hjá okkur hefur gildi vátrygg- ingarfjárihæða rýrnað svo mikið, að skyldutryggingin er ekki tal- in fullnægjandi, hvorki fyrir eig- endur ökutækjanna né þá, sem fyrir tjóninu ver’ða. Að mati um- ferðarlaganefndar væru þetta eðlilegar breytingar. Ráðlherrann sagði, að þ'etta mundi ekki hafa í för með sér mjög veruiegar hækkanir á ið- gjöldum en þær væru áætlaðar um 10—14%. Sagði ráðlherrann enn fremur, að ef menn yrðu á anna'ð borð á eitt sáttir um að breyta þessum upphæðum, þyrfti þetta mál að ná fram að ganga, þannig að það gæti orðið að lög- um fyrir næsta tryggingartíma- bil, sem hefst 1. maí. Var frumvarpinu síðan vísað til 2. umr. og allsherjarnefndar. Miðhús í Gufudalshreppi. Gunnar Gislason (S) mælti fyrir nefndaráliti um frumvarp um sölu eyðijarðarinnar Mið- húsa í Gufudalsihreppi, og var þar mælt með sölunni. Var frum- varpið síðan sarrlþykkt til 3. umræðu. EFRI DEiLD Búfjárrækt Frumvarp um búfjárrækt var til 3. umræ’ðu og var samþykkt til Neðri deildar. Leiklistarstarfsemi áhugamanna >á var frumvarp um fjárhags- legan stuðning við leilklistarstarf semi áhugmanna samþykkt sem lög frá Alþingi, en það var nú til 3. og þar með síðustu um- ræðu í Efri deild. Einkasala ríkisins á tóbaki. Frumvarp um bann við aug- lýsingum á tóbaki, sem Magnús Jónsson er flutningsmaður að var nú til 3. umræðu og var sam- þykkt til Neðri deildar. Síldarverksmiðjur ríkisins Jón Árnason (S) mælti fyrir nefndaráliti sjávarútvegsnefndar um breytingu á lögum um Síld- arverksmið j ur ríkisins, en það frumvarp er til staðfestingar á bráðabirgðalög- um, sem gefin voru út í fyrra .... .. ... sumar. Sagði Jón ,4 'WllUr Árnason, að wlllk bráðabirgðalög- in hefðu verið sett samikv. óskum stjórnar Síld- arverksmiðja ríkisins og LÍÚ. Efni frumvarpsins væri í því fólgið að afnema forgangsrétt sam ningsbundinni viðskipta- manna fyrir öðrum um móttöku síldar. Samkv. lögum um Síldar- verksmiðjur ríkisins frá 1938 hef- ur alla tíð verið hafður á sá háttur, að samningsbundin skip hafa haft forgangsrétt til lönd- unar í þeirri röð, sem þau koma áð landi. Gegn þessum forréttind um hafa svo þessir viðskipta- menn Síldarverksmiðjanna orðið að skuldibinda skip sín til þess að leggja upp allan bræðsluafla hjá verksmiðjunum. >etta á- kvæði hefur oft komið sér illa t.d. á meðan Síldarverksmiðjur ríkisins höfðu engar verksmiðjur austar en á Raufarlhöfn. >á urðu þau skip, sem voru á veiðum fyrir Austurlandi, að sigla með aflann í sumum tilfellum alla Xeið til Siglufjarðar, þar sem móttaka á Raufarhöfn var af eðlilegum or- sökum takmörkuð. >etta hafði það í för með sér, að skipin töfðust oft um langan tíma frá veiðum, vegna þess að það tók miklu lengri tíma að koma aflanum að landi, þegar þurfti að fara um svo langan veg en það var óhjákvæmilegt vegna þess, að þó að verksmiðjurými og þróarpláss væri fyrir hendi á Austurlandi, þá höfðu skipin ekki leyfi til þess áð afsetja néitt af aflanum í aðrar síldarverksmiðj- ur og urðu því að leggja í sum- um tilfellum í langar siglingar til þess að afsetja aflann. >etta ákvæði um forgangsréttinn var líka komið á í sambandi við þann rétt, sem viðskiptamena verksmiðjanna öðlúðust í sam- bandi við að leggja aflann sinn upp til vinnslu og máttu þau skip, sem voru þannig í samning um við Síldarversmiðjurnar ekki heldur Leggja aflann sinn upp annars staðar. Eins og frumvarpið bœri með sér, þá er það, sem hér um ræðir einungis í þá átt áð fella niður þetta forganigsákvæði og ekki tal ið nauðsynlégt að halda því leng- ur. Nefndin var á einu máli um að mæla með því, að frumvarpið verði samþykkt óbreytt, eins og það liggur fyrir. Var frumvarpinu síðan vísa’ð til 3. umræðu samhljóða. Frá Búnaðarþingi í gær: Þjóönýting Áburöar- verksmiðjunnar og aðstoð við dýralæScnishéruð BúnaSarþing afgreiddi þrjú mál í gær: I fyrsta lagi var tekið fyrir „Erindi Búnaðarsambands Suður Þingeyinga varðandi þjóðnýtingu Áburðarverksmiðjunnar h.f.“ og eftirfarandi ályktun gerð um það samhljóða, skv. tillögu allsherjar nefndiar: „Búnaðarþing mælir með því, að Alþingi samþykkti „frumvarp til laga um Áburðarverksmiðju ríkisins" er nú liggur fyrir neðri deild þess á þskj. 264“. Eftirfarandi greinargerð fylgdi úr allsherjarnefnd: „Áburðarverksmiðjan h.f. er að langmestu leyti reist fyrir fé, sem ríkisvaldið hefur lagt fram úr ríkissjóði eða útvegað að láni. Verksmiðjan hefur nú einkasölu aðstöðu um alla áburðarverzlun í landinu. >að á jafnt við um framleiðslu hennar sjálfrar sem og sölu erlends áburðar, sem fluttar eru til landsins. Bændur kaupa meginhluta áburðarins og leggja verksmiðjunni því til fé í afskriftir og til endurnýjunar á vélum og öðru. Bændur hafa á undanförnum árum kvartað und- an einhæfni áburðarframleiðsl- unnar og kornasmæð áburðarins, án þess að úr því hafi verið bætt ennþá. Nú er mikið rætt um stækkun verksmiðjunnar, til þess að hún geti mætt stóraukinni áburðar- þörf landbúnaðarins og aukið fjölbreytni framleiðslunnar. Eins og alkunnugt er, hefur bænda- stéttin engan íhlutunarrétt um uppbyggingu eða rekstur hennar, þó slíkt væri eðlilegt, vegna þess að hún ætti fyrst og fremst að vera þjónustufyrirtæki landbún- aðarins. En mjög óeðlilegt er að leggja í vald hlutafélags, sem ekki hefur beinna hagsmuna að gæta gagnvart landbúnaðinúm, að ákveða gerð verksmiðjunnar og hvaða tegund áburðar verður framleidd og láta slíkt fyrirtæki hafa einkasöluaðstöðu í þessari g’rein. Allt annað væri, ef inn- flutningur áburðar væri frjáls. En með tilvísun til þess, sem að framan segir um fjárstuðning ríkisins við stofnun verksmiðj- unnár, telur Búnaðahþing eðlileg ast og réttast, að hún verði eign ríkisins og lúti stjórn, sem er kos in af Alþingi. >ess vegna mælir þingið með samþykkt frumvarps ins. Gunnar Guðbjartsson, Sveinn Jónsson, Jón Gíslason, Ingimundur Ásgeirsson. Tveir nefndarmanna, þeir Bene dikt H. Línlal og Sigurjón Sig- urðsson voru fjarverandi við af- greiðslu málsins“. Þá var í öðru lagi samþykkt samhljóða að mæla með frum- varpi til laga um innflutning, meðhöndlun, framræktun og verzlun með sáðvörur með á- kveðnum breytingum. í þriðja lagi var samþybkt eftir farandi ályktun um „Erindi Búi» aðarsambands Suður-Þingeyinga um ferðakostnað dýralækna og erindi samia um aðstoð við dýra- læknishéruð: „1. Búnaðarþing telur að ennþá sé langt í land að fullnægjandi dýralæknisþjónusta sé fyrir hendi í ýmsum byggðarlögum landsins, enda þótt mikið hafi áunnizt í þessu efni hin síðari ár. Er hér einkum haft í huga, að ekki hafa fengizt dýralæknar í sum þau dýralæknaumdæmi, sem stofnuð hafa verið, og í öðru lagi þurfa mörg sveitarfélög að leita til dýralæknis um langan veg og verður því sú þjónusta mjög kostnaðarsöm. i Búnaðarþing telur sanngjarnt og nauðsyniegt, að hið opinbera komi þessum afskiptu byggðar- lögum til hjálpar og felur stjórn Búnaðarfélags íslands að leita til yfirdýralæknis og landbúnaðar- ráðuneytisins um úrræði til úr- bóta. 2. Búnaðarþing telur, að lyfja- kostnaður landbúnaðarins hafi vaxið óeðlilega síðustu árin bæði vegna hárra tolla og óbilgjarnrar álagningar. Ennfremur hefur lyfseðilsskylda margra algengra dýralyfja skapað í ýmsum tilvik- um margháttaða erfiðleika. Búnaðarþing felur því stjórn Búnaðarfélags íslands að ræða þessi mál við ábyrga aðila eins og tollayfirvöld, yfirdýralækni, lyfjasölunefnd o.fl. og leita eftir réttmætum lagfæringum. Greinargerð: Notkun búfjárlyfja fer nú r ;3 ári hverju ört vaxandi og er orð- inn hár útgjaldaliður á hverjn búi. Hefur þetta að sjálfsögðu meðal annars áhrif til hækkunar á búvöruverð. Tollur á búfjár- lyfjum er nú 15—35% eftir teg- undum lyfja, en var fyrir gildis- töku tollskrár 1963 7—15%. Toll- ur á baðlyfjum er nú 20%, en vörumagnstollur og verðtollur var áður samtals 4%. Á þetta bætist svo allt að 300% álagning lyfsala og auk þess lyfseðilsgjald. Virðist þinginu full ástæða til þess, að þessu máli sé gaumur gefinn og stjórn Búnaðarfélaga íslands vinni að því í samráði við þá aðila, sem um getur I ályktuninni að lækka tolla og á- lagningu á þessum vörum. Má t.d. á það benda sérstaklega, að óeðlilegt er að leggja háan toll á baðlyf, sem bændur eru lögura samkvæmt skyldugir að nota“.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.