Morgunblaðið - 18.03.1965, Blaðsíða 2
2
MORGUNSLAÐIÐ
Fimmtudagur 18- marz 1965
m
*
A
Aiaknlng TollgæzSimnar:
10
Iveröi vaníar
Samial v/ð Unnsfe'n Beck
TOLLGÆZLAN í Reykjavík
jfékk heimild á þessa árs fjár-
lögum til að' baeta við 10 toll-
vörðum. Hefur verið augtýst eftir
mmsóknum um stöður þessar.
Frestur er til 20. marz. í tilefni
af þessu átti Morgunblaðið í gæc
samtal við Unnstein Beck, sem
«r yfirmaður tollgæzlunmr úti
ium land og hér í Reykjavík, sem
fuiltrúi tollstjóra.
— Tala tollvarða hefur aldrei
fylgt þörfinni' sagði Unnsteinn.
— Síðast er fjölgað var, árið
1957, vorum við komnir í algjört
mannahrak. Þá voru tollverðir
48. og hefur sú tala haldizt til
þessa dags, enda þótt verkefnin
hafi aukizt geysilega. Þá hefur
aukningin 1957 ekki komið að
miklu haldi við beina tollgæzlu,
a.m.k. ekki nema fyrst í stað.
Astæðan er sú, að flestir þeirra,
sem þá bættust í hc<pinn, hafa
þurft að sinna alls krnar af-
greiðslustörfum, sem mjög hafa
orðið umfangsmeiri á síðustu ár-
um. Þremur mönnum hefur orðið
að bæta við í flugfragtinni ,tveim
ur á tollpóststofuna og þrír til
fjórir eru bundnir við eftirlit í
Tollvörugeymslunum. Af þessu
leiðir. að ekki vinna nema ein-
um til tveimur mönnum fleira
nú við almennu störfin, þ.e.a.s.
skipa- og vörueftirlit en fyrir
1957. Einnig hefur mikill vinnu-
kraftur bundizt er nýja tollskrá-
in kom, þar sem þá voru tekin
upp miklu nákvæmari vinnu-
brögð við tollflokkun.
A árunum 1957 til 1954 jókst
tala kaupskipa, sem komu frá er
lendum höfnum til Reykjavíkur,
úr 270 í 424, koma íslenzkra fiski
skipa frá erlendum höfnum úr
39 í 180, og lendingar millilanda
flugvéla á Reykjavíkurflugvelli
jukust úr 876 í 1023. Árið áður
höfðu lendingar verið 1301, þar
sem Loftleiðir notuðu þá enn
Reykjavíkurflugvöll.
— Annað vandamál, sem við
höfum við að glíma. er það, að
meðalaldur tollvarða er að
verða alltof hár, þar sem um-
sækjendur um þær stöður, sem
losnað hafa á undanförnum ár-
um, hafa verið langt yfir þeim
aidri, sem æskilegt væri. Mjög
fáir tollverðir eru nú undir fer-
tugu og veldur það því, að erfitt
er oft og tíðum að færa mennina
til í starfi og láta þá læra nýja
starfshætti ,þar sem þeir hafa
vaxið inn í sérstaka þætti starf-
seminnar.
—Hefur taka smyglvamings
aukizt að undanförnu?
— A þeim 14 árum, sem ég hef
gengt þessari stöðu, var mest um
töku smyglvarnings 1958 til 1960,
sem sagt eftir aukninguna og áð
ur en þurfti að binda menn meira
við sérstörf. Fyrst eftir aukn-
inguna komum við upp sérstök-
um gengjum til að starfa, þar
sem afgreiðsluvakt þraut og með
henni. Þá gátu þau gengi fórnað
I degi eða dögum við leit í sama
skipi, ef ástæða þótti til að ganga
rækilega til verks. Þess á milM
fylgdust þau með affermingu í
lestum, skrifuðu upp vörurnar
og reyndu að sjá um það, að ekk
ert væri falið í farmi skipanna.
Síðar neyddumst við að leggja
niður þessi gengi, vegna mann-
eklu.
— Við höfum einnig tekið
nokkru meira af smyglvarningi
í skipum á síðastliðnu ári en ár-
in þar á undan. Ástæðan er sú,
að slakað hafði á eftirlitinu af
áðurgreindum orsökum og á-
fngissmygl farið mjög í vöxt. Tók
um við því að leggja í aukinn
kostnað og boða menn á auka-
vaktir til að leita í þeim skipum,
sem við höfum ástæðu til að bú-
ast við slíkum farmi L
— Hefur lögreglan ekki komið
ykkur nokkuð oft á sporið upp
á síðkastið?
— Jú, það hefur borið við
nokkrum sinnum, að lögreglu-
menn hafi fundið smyglvarning
í bifreiðum ,sem þeir hafa stöðv-
að einhverra hluta vegna hér við
höfnina eða annarsstaðar. Þá höf
um við framkvæmt leit í þvi
skipi, sem vörurnar komu úr, og
oft fundið talsvert magn, eink-
um af áfengi.
MJÖG harður árekstur varð á
veginum frá IngólfsfjaJli niður að
Selfossi um 9 leytið í gærkvöldi.
Þar ók stór 6 manna Ford bifrcið
aftan á Volga-bifreið með þeim
afleiðingum að a.m.k. þrennt slas
aði.st nokkuð og þurfti að flytjast
á sjúkrahúsið á Selfossi til rann-
sóknar.
Tildrög árekstursins voru þau,
að lögreglan á Selfossi hafði feng
ið fréttir af ökuþór nokkrum og
vissi að hann var á þjóðveginum
við Ingólfsfjall og hélt því þang-
að.
— Sjálfir höfum við mjög
slæma aðstöðu til að grípa menn,
er þeir eru á leið í land mpð
smyglvarning á hafnarbakkan-
um. Við höfum aðeins einn bíl,
og sökum mannfæðar verðum víð
iðulega að senda alla vaktina í
einu um borð í skip eða út á flug
völl. Það er tiltölulega auðvelt
fyrir þann, sem ætlar sér að
koma einhverju í land, að reikna
út, hvenær þessar eyður eru í
gæzlunni. Það eru ekki sizt þess
ar eyður, sem við hyggjumst
fylla með aukningunni nú. Lög-
reglan stendur þarna betur að
vígi, þar sem þeir hafa bíla í
eftirlitsferðum um höfnina öðru
hverju. Hins vegar er oft heppi-
legur tírni til að gera leit í skipi,
er menn eru farnir að koma varn
ingnum í land, þar sem þeir eru
þá venjulega búnir að grafa hann
upp úr felustöðum, sem erfitt eða
næstum ógerlegt hefði verið að
finna ella.
— Áfengi og tóbak eru lang-
algengustu vörutegundirnar og
þar næst koma sjónvarps- og út-
varpstæki og hverskonar heimilis
tæki. Sennilega er miklu minna
smyglað af fatnaði og ýmsum
smávarningi, síðan tollarnir voru
lækkaðir.
— Nægir það, að bæta 10 mönn
um við Tollgæzluna?
— Nei, líklega ekki. Starfs-
mannafjölgunin, sem nú er í
vændum leysir væntanlega ekki
þarfir okkar að fullu, eins og þær
eru í dag og alls ekki til langrar
framtíðar. Jafnvel þótt takist að
fá alla þá menn sem heimild er
fyrir, en eins og sakir standa er
mjög tvísýnt að við fáum fulla
tölu hæfra umsækjenda.
Þegar lögreglan var komin
nokkurn spöl út fyrir þorpið sá
hún Volga-bifreið koma á móti á
fremur hæigri ferð en og Ford-
bifreið á eftir á ofsahraða.
Lögreglan gaf stöðvunarmerki
með ljósum og hægði Volga-bif-
reiðin ferðina og hugðist stanza,
en í þeim svifum lenti Ford-bif-
reiðin aftan á henni af miklu
afli. Eru báðar bifreiðarnar tald-
ar nær ónýtar. í Ford bifreiðinni
meiddist piltur, sem skall á fram
rúðuna, en í Volgabifreiðinni
meiddist kona og maður einnig.
Mjög harður árekstur
skammt frá Selfossi
t Siníóníuhljómleikai í kvöld
Jörg Demus einleikari
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ís-
lands heldur tónleika í Há-
skólabíói í kvöld og hefjast
þeir kl. 9 e.h. Stjórnandi sveit-
arinnar er Igor Buketoff, en
einleikari verður austurríski
píanóleikarinn Jörg Demus.
Demus hefur hlotið afburða-
góða dóma fyrir píanóleik sinn
aHsstaðar þar sem hann hefur
leikið og er talinn í fremstu
röð yngri píanóleikara í Ev-
rópu. Til íslands kemur Dem-
us úr 9. tónleikaför sinni til
Bandaríkjanna.
Á efnisskránni er Klassíska
sinfónían eftir Prokofieff,
Pianókonsert nr. 28 í Es-dúr,
K 482 eftir Mozart og Sinfó-
nía í D-dúr eftir Arriaga.
heim úr Sváþfé&carf&r
FORSETI Islands, herra Ásgeir
Ásgeirsson, kom heim í fyrrinótt
frá Osló, en hann var viðstaddur
útför Louise Svíadrottningar í
Stokkhóimi si. laugardag. Hefur
forsetinn nú tekið við stjórnar-
störfum á ný.
Á móti honum á Keflavíkur-
flugvelU tóku þeir Gunnar Thor-
oddsen, fjármálaráðherra. Þórður
Eyjólfsson, forseti Hæstaréttar.
og Birgir Finnsson, forseti Sam-
einaðs þings.
Myndina tók Heimir Stígsson.
Fiskskoríur íyrir
norðan og austan
AFLI hefur verið mjög misjafn
undanfarnar vikur, sums staðar
mjög góður eins og t. d. í Ólafs-
vík, en annars staðar hefur
varla sézt fiskur og hefur fólk
fyrir norðan og austan orðið að
reyna að útvega sér nýjan fisk
í soðið úr fjarlægum byggðar-
lögum.
Hér fara á eftir frásagnir
nokkurra fréttaritara blaðsins
um aflabrögðin og fiskileysið:
Keflavík, 17. marz.
x—□—x
FRAM til þessa hefur afli verið
fremur rýr hjá bátum héðan.
Fram til 15. marz voru komin
5.300 lestir hér á land í 765 sjó-
ferðum 43 báta.
Á sama tíma í fyrra voru 9.722
lestir komnar hér á land í 1439
sjóferðum, en allan janúarmánuð
í ár ríkti verkfall á bátaflotan-
um.
Hæstu bátar nú eru Gunnar
Hámundarson með 278 lestir í 38
róðrum, Freyja með 236 lestir í
34 róðrum, en báðir þessir bátar
voru að róðrum í janúar, því
þeir voru skráðir fyrir utan verk-
fallssvæðið. Þriðji báturinn er
Árni Geir með 231 lest í 24 sjó-
ferðum.
Undanfarna daga hefur afli
verið rýr og er aðeins einn bátur
með línu og hefur afli hans verið
lítill, en annars eru allir með net
og nót.
Gæftir sem af er vertíð hafa
verið fremur góðar og var afli
í dag með bezta móti, en var þar
um að ræða tveggja til þriggja
nátta netafisk.
Frá 1.—15. marz nú er aflinn
2.480 lestir í 351 sjóferð, en á
sama tíma í fyrra var aflinn
3.655 lestir í 411 sjóferðum.
Frystihúsin vinna hvergi nærri
af fulium krafti og var engin fisk
vinnsla í dag nema í frystihúsi
Atlantors h.f., sem fékk sendan
fisk frá Þorlákshöfn. — hsj.
x—□—x
ísafrði, 17. marz.
AÐ undanförnu hefur verið treg
ur afli hjá netabátunum, frá 8—•
21 lest, en þeir sækja allir vestur
á Breiðafjörð. Tveir bátar eru
hér á línu og veiða steinbít og
hafa aflað vel, 6—9 lestir L róðri,
enda er mikill steinbítur genginn
hér á miðin, en sjómenn telja
hættu á því, að hann fari að
leggjast vegna þess að óvenju-
mikil loðna er gengin.
Mikill steinbítsafli hefur verið
hjá bátum í Súgandafirði að und
anförnu. — H.T.
x—□—X
Akureyri, 17. marz.
HÉR sézt ekki nýr fiskur á borð-
um og hefur ekki sézt í margar
vikur, nema þá helzt að hann
hafi fengizt frá fjarlægum stöð-
um.
Trillubátar héðan komast ekki
á veiðar sökum lagnaðaríss á
PolUnum og íshroða á innanverð-
um firðinum.
x—□—x
Húsavík, 17. marz.
EKKI er hægt að segja að neitt
hafi verið farið á sjó hér í þess-
um mánuði og það litla sem róið
hefur verið hefur aðeins verið
til matar en ekki framleiðslu.
Þessu hefur valdið ísinn og
ógæftir. Engin vinna hefur verið
í frystihúsinu þennan mánuð, en
atvinna er oft sæmileg þegar
komið er fram í marz.
Hugur er nú í mönnum um
að leggja grásleppunetin og vetð
ur tekið til óspilltra málanna,
þegar norðanáttin hefur gengið
yfir. Fréttaritari.
x—□—x
Neskaupstað, 17. marz.
VIÐ hér á Neskaupstað höCum
ekki séð nýjan fisk síðan í hau.it
Framhald á bls. 27
KALDUR loftstraumur úr vindur hægur. Sunnan iands o
norðaustri liggur yfir landið. var hiti nálægt íroatmarki og '
Nyrzti hluti hans hefur kom- víðast úrkomulaust. Lægðin 1
izt í snertingu við hafísbreið- suð-vestur í hafinu hreyfist í t
una, því að 10 til 11 stiga frost stefnu á Bretiandseyjar, svo L
var á annesjum norðan lands, að búast má við áframhald- /
og þar var hríðarveður, en andi kuldum. 7
I