Morgunblaðið - 18.03.1965, Qupperneq 19
Fimmtudagur 18. marz 1965
MORGUNBLAÐID
19
Talið er að Churchill hafi í fyrsta sinn beitt hinu heimsfræga V-merki sínu (V fyrir Victory, þ.e.
sigur) er hann heinisotti Keykjavík eftir Atlantshafsfund sinn með Roosevelt forseta. Merkið
gerði hann með því að glenna sundur visifingur og löngutöng hægri handar. Fór þetta sem eldur
um sinu í hernumdu löndunum jafnt sem löndum bandamánna. Hér sézt Churchill bregða upp
merkinu í Reykjavíkurhöfn, líklega í fyrsta sinn í styrjöldinni. í baksýn má kenna Eimskipafé-
tagshúsið (t.v.) og Hafnarhúsið, fyrir miðju.
Sýningar hefjast á merkri
mynd um Winsfon Churchill
— byggðri á endurminningum hans
NÆSTKOMANDI föstudag hefj-,
ast í Stjörnubíói sýningar á
merkri heimildarkvikmynd |
(documentary) um Sir Winston
Churchill, byggðri að mestu leyti
á hinu mikla ritverki Churchills
csjálfs, Styrjaldarendurminning-
unum, en fyrir það hlaut hann
Stórholti 1. Sími 21630.
Fyrirliggjandi
Perform hárlagningarvökvi,
Pestex skordýraeitur, spray
OKO skordýraeitur, spray.
Tru-Gel hárkrem.
Veet háreyðingarkrem.
Tannburstar, ódýrir.
Tannburstahylki, ódýr.
Naglaburstar, 2 gerðir, ódýrir.
Dömubindi - Lilju.
Dömubindi _ Silkesept.
Dömubindi - Reni.
Bómull í plastpokum 20 gr.,
25 gr., 50 gr., 100 gr. og
200 gr.
Plastlím í glösum.
Air Flush lykteyðir.
bókmenntaverðlaun Nóbels.
Þungamiðja kvikmyndarinnar
fjallar um hlutverk Churchills á
árum siðari heimstyrjaldarinnar,'
en ferill hans til þess tima er íj
upphafi rakinn allítarlcga, o>g
myndum brugðið upp af fæðing-
arstað hans o.fl.
Myndin, sem ber nafnið „The
Finest Hours“ (á íslenzku hefur
heitir hún „Hetja á örlagastund"),
er framleidd af Bandaríkjamann-
inum Jaok Le Vien, en hann var
sjálfur foringi í liði Bandaríkja-
anna í styrjöldinni, stjórnaði
fréttaþjónustu og tók þátt í fjór-
um innrásum í hernumin lönd.
Við gerð myndarinnar um
Churohill þótti Le Vien þörf á að
nota myndir, sem nazistar tóku
sjálfir á styrjaldarárunum og
igeymdar hafa verið í myndasafni
þýzka ríkisins. Var honum gefinn
kostur á að fá myndir þaðan gegn
hárri greiðslu.
Þar sem þess er kostur, er það
rödd sir Winstons sjálfs, sem
heyrist 1 myndinni. Að öðru
leyti er það leikarinn PJatrick
Wymark, sem mælir fyrir munn
hans, Þulur I myndinni er hinn
kunni kvikmyndaleikari Orson
Welles.
Blaðamönnum gafst kostur á
að sjá myndina í gær. Er hún í
litum, þ.e. ýmis atriði hennar, en
gamlar heimildarkvikmyndir í
svarthvítu eru fléttaðar inn í.
Bar öllum saman um að myndin
væri sérlega vel úr garði gerð að
öllu leyti, bæði frá tæknilegum
og listrænum sjónarmiðum.
Myndin hefur enda fengið mjög
góða dóma hjá kvikmyndagagn-
rýnendum um heim allan.
í efniságripi að myndinni seg-
ir m.a. svo:
„Þetta er myndin um manninn,
sem gnæfði öllum hærra í hafróti
heimsstyrjaldarinnar síðari mann
inn, sem öllum öðrum fremur
klauf á sér stormana og boðaföll-
in, manninn, sem í lifanda lífi
varð þjóðsagnahetja á heimsmæli
kvarða, manninn, sem á örlaga
stundu skar úr og lýsti lífsvon
og vilja allra frelsiselskandi
manna og þjóða með þesum orð-
um: „Vér gefumst aldrei upp.“
Þetta er mynd um Winston Chur-
chill.“
Nýkomið!
Danskur
unglingabarnafatnaður
Mikið af fallegum
sængurgjöfum
Barnafatabúðin
Hafnarstræti 19. - Sími 17392.
— Utan úr heimi
Framh. af bls. 14
mikið að segja varðandi end-
urskoðun hinnar nýju sænsku
stjórnarskrár, sem nú er til
endurskoðunar og umræðu, og
væntanlega tekur gildi innan
fárra ára. Hún mun breyta
stjórnarfari í Svíþjóð úr þing-
bundinni konungsstjórn í
þinglýðræði, þannig að hlut-
verk konungs verður ’þá lítið
annað en að vera hálfgildinigs
siðameistari ríkisins.
Þetta eru undarleg örlög
búin afkomendum eins af
marskálkum Napóleons. Hin
núverandi konungsfjölskylda
í Svíþjóð er af Bernadottum
komin. Forfaðir hennar var
Bernadotte marskálkur, sem
boðið var að setjast í hásæti
Svía eftir að veðveikum kon-
ungi hafði verið steypt af
stóli. Á undan konungi þess-
um höfðu rí'kt mikilhæfir kon-
ungar af Vasa-ætt. Ættfaðir-
inn, Gústaf-Vasa — sem líkt-
ist Hinrik VIII Bretakonungi
í útliti — lagði grundvöllinn
að nútímaþjóðfélagi í Svíþjóð.
Minning hans er þó í dag eink-
um tengd skíðaíþróttinni, en
hin mikla Vasa-skíðaganga í
Svíþjóð er við hann kennd, og
til hennar var upphaflega
stofnað til að minnast liðlega
70 km. vetrarferðar Gústafs
konungs fyrir 400 árum.
Gústaf Adolf, studdur
finnskum her, varð til þess að
leggja þunigt lóð á metaskál-
ar mótmælenda í 30 ára stríð-
inu. Hann var mikilhæfur
hershöfðingi, og leiddi hér
sinn nær alla leið til Vínar-
borgar, og féll í orustunni við
Lútzen. Á hans dögum var
Svíþjóð stórveldi, og réði
löndum við Eystrasalt. Starf
hans var að miklu leyti lagt
í auðn áf Karli 12., sem var
góður hershöfðingi og vann
mangra sigra á Rússum, en
var jafnframt lélegur stjórn
málamaður.
Ýmsir aðrir sænskir kon-
ungar voru mikilmenni með
gott stjórnmálaskyn og á und-
an samtíð sinni. Þeir komu
m.a. á fót fyrsta aðalbanka
heimi. Hinsvegar er svo að
sjá að Svíar gefi þessu lítinn
gaum í dag, og að að því stefni
að konungdómur þar í landi
verði allur.
Fráfall Louise drottningar
er harmað sem persónulegur
missir. Hún var systir Mount-
batten lávarðar, oig vann sér
almenna hylli með andúð
sinni á öllu tízkutildri, ást
sinni á stórum panamahöttum
og starfi sínu fyrir Rauða
Krossinn. Konungssinnar
vona, að starf hennar og sú
velvild, sem almenningur ber
til konungsins, verði til þess
að bjarga konungdómnum
sænska — í a.m.k. eina eða
tvær kynslóðir.
(Observer — öll réttindi
áskilin)
— Útvarpið
Framhald af bls. 6
snart við hendi. Jafnvel forpoks-
aða munka gæðir hann því lífi,
sem brýtur af sér allar siðferði-
legar hömlur og drekkir sér 1
brennivíni og kvenfólki. — Þeir
hefðu haft gott af að hlusta á
Hannes félagsfræðing, piltarnir
þeir.
Sveinn Krstinsson.
BUiLHllFli#
Nýkomið!
frá DOROTHY CRAY
Satura Moisture Cream
Secret of the Sea
Texture Lotion
Quick Cleanser
Z Minute Magic
Special Dry Skin Mixture
Extra Rich Night Cream
Salon Cold Cream
Royal
Aðalfundur Fjallumannu
verður að Hótel Skjaldbreið nk. fimmtudag þana
25. marz kl. 8:30 e.h.
Venjuleg aðalfundarstörf.
FJALLAMENN.
mzmii wu'eiis
mr VV£fGHT 4 02, m GR.
Með heslihnetukremi og dökkri
súkkulaðihúð.
Fyrir 13 árum fluttist OP-súkku-
laðikex fyrst til landsins. Náði
það strax vinsældum um land
allt, sem bezta súkkulaðikexið.
Loksins fæst OP-súkkulaðikex
hér aftur, en í nýjum búningL
Betra en nokkru sinni fyrr, og
betra en nokkurt annað súkku-
laðikex.
Með kremi og rjómasúkkulaðihúð.
Einkainnflytjendur n íslandi: V. SigurSsson & Snæbjörnson hf. Sími 13425