Morgunblaðið - 21.03.1965, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.03.1965, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 21. mara 196» Jlfaragpiitlplfifrtfe Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Auglýsingar: Ritstjóm: Auglýsingar og afgreiðsla: Áskriftargjald kr. 90.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti ð. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. HA GSTÆÐ UTANRÍKIS VIÐSKIPTI ¥ grein, sem Þorvarður Jón *■ Júlíusson, framkvæmda- stjóri Verzlunarráðs, ritar í Morgunblaðið í gær, ræðir hann utanríkisviðskiptin 1964. Útflutningur á því ári jókst um 18% og telur greinarhöf- undur, að rúmlega 10% af aukningunni sé fólgin í verð- hækkunum á erlendum mörk jiðum, en til samanburðar sé þess að geta, að meðalverð innflutningsins hafi varla hækkað nema um 3—4%. Hin bættu viðskiptakjör hafa þannig reynzt þjóðarbú- skapnum mjög mikils virði. Á árinu 1964 námu afborg- anir af opinberum lánum hærri upphæð en nýjar lán- tökur. í afborganir voru greiddar 230 milljónir króna á móti 140 milljón krónum nýjum lánum, svo að útistand andi lán lækkuðu um 90 milljónir króna. Gjaldeyris- staða bankanna batnaði um 281 milljón króna á árinu, og í heild má segja að utanríkis- viðskiptin hafi verið okkur hagstæð, þrátt fyrir smávægi legan greiðsluhalla, sem staf- aði af því, að innflutningur skipa og flugvéla jókst úr 380 milljónum 1963, í hvorki meira né minna en 950 mill- jónir 1964. Útflutningur okkar á síð- asta ári jókst mest til Vestur- Evrópulanda, eða um 25%, og er sérstaklega áberandi auk- inn útflutningur til Norður- landa, sem nam 65%. Þá jókst útflutningur til Miðjarðar- hafslanda einnig verulega, en útflutningur til landanna í Efnahagsbandalagi Evrópu var aðeins minni á síðast- liðnu ári en 1963, en aftur á móti stórum meiri til land- anna í Fríverzlunarbandalag- inu. Útflutningur til Bandaríkj- anna jókst um 22%, en aftur á móti var heldur minna flutt til Iandanna í Austur-Evrópu en árið á undan. Hinsvegar er athyglisvert, að síðastliðið ár jókst inn- flutningur frá jafnvirðis- kaupalöndunum í Austur- Evrópu verulega, enda er nú svo komið, að við íslendingar erum komnir í skuld, t.d. við Austur-Þjóðverja, en frá Aust ur-Þýzkalandi fluttum við inn vörur á síðastliðnu ári fyrir 104 milljónir króna en út fyrir 15 Vz milljón. Sýnir þetta, að vandamálið viðvikjandi viðskiptunum við kommúnistaríkin, þ.e.a.s. að við gætum keypt þaðan nægi- legt magn til að geta selt þang að þær afurðir, sem við þurf- um að losna við, er ekki leng- ur jafn brýnt og áður, enda eru ýmis Austur-Evrópuríki áð taka upp frjálsari við- skiptahætti. Þannig reka t.d. Pólverjar viðskipti á frjáls- um grundvelli við flestar þjóð ir, og fyllsta ástæða til að ætla, að þeir séu til viðræðu um að afnema vöruskipta- verzlun við okkur og taka í staðinn upp frjálsa verzlun. Það er heldur enginn vafi á því, að það er hagkvæmara öllum aðilum að geta verzlað á frjálsum grundvelii, og það eru ríkisstjórnir Austur-Ev- rópulandanna að gera sér ljóst. Þessvegna eigum við ekki að þurfa að hafa áhyggj- ur af því, að við getum ekki selt útflutningsafurðir okkar, enda eru markaðir fyrir þær stöðugt vaxandi í Vesturlönd um. LÆKKUN TOLLA T niðurlagi greinar um við- A skiptamál, sem Þorvarður Jón Júlíusson ritar hér í blað ið, fjallar hann um niður- greiðslur og hugsanlega tolla- lækkun. Hann segir m.a.: „Niðurgreiðslur ríkissjóðs á innlendu vöruverði eru orðn- ar óeðlilega miklar. Ásamt öðrum fjárframlögum stuðla þær að framleiðsluaukningu, sem að nokkrum hluta verð- ur að selja til útlanda fyrir mjög óhagstætt verð, er ríkis- sjóður bætir upp. Með því eru skertir möguleikar ríkis- sjóðs til lækkunar á tollum, sem styrkja mundu aðstöðu íslenzkra útflutningsafurða á erlendum mörkuðum, jafn- framt því, að verð innfluttr- ar vöru lækkaði. Sú lækkun gæti verið meiri kjarabót en samsvarandi niðurgreiðslur, þótt hún kæmi ekki eins vel fram í vísitölu framfærslu- kostnaðar vegna þess, hve grundvöllur hennar er orðinn úreltur“. Vissulega er ástæða til að athuga hvort unnt væri að draga nokkuð úr niðurgreiðsl um, þótt það yrði til þess að verð sumra landbúnaðaraf- urða hækkaði nokkuð, ef í staðinn væri unnt að lækka einhverja tolla eins og Þor- varður Jón Júlísson víkur að. Þetta er þó mjög vandasamt verkefni, en engu að síður er ástæða til að athuga hvað unnt væri í þessu að gera. UTAN ÚR HEIMI ÉLzSk Hún stal til að geta lifað ríkmannlega Þriggja dra fangelsi fyrir 700 þús. norskra króna þjófnað 10. marz, 1965. Á MÁNUDAGINN var lauk máli, sem rúmfrekt hefur ver- ið á forsíðum norsku blað- anna undanfarið. sakamálinu gegn Anne M. Rischamann, fyrrum gjaldkera í karl- mannafataverzlun H. Mehren í Osló. Hún var fundin sek um að hafa dregið sér 700—800 þús. norskar krónur frá firm- anu á undanförnum árum og dæmd til að greiða firmanu 700.000 kr. innan 14 daga, og ennfremur í 3 ára fangelsi, en frá því dragast 190 dagar, sem hún hefur setið í gæzluvarð- haldi, síðan rannsókn málsins hófst, Hún tók umhugsunar- frest er hún var spurð um hvort hún vildi skjóta málinu til æðri réttar. Sjálf hefur hún ekki játað, að hún hafi dregið sér nema 70,000 kr. En rannsókn lög- reglunnar hefur leitt í ljós, að hún hefur notað til eigin þarfa að minnsta kosti 700,000 kr. umfram það sem tekjur henn- ar leyfðu. Hvaðan fenguð þér þær? spurði lögreglan. Fyrir rétti hefur hún gef- ið þá skýringu, að hún hafi erft 200 þúsund eftir frænku í Bergen, unnið stórfé í „tipp- ing“ oig loks fengið nokk- ur hundruð þúsund frá út- lendri vinkonu sinni, sem hún megi ekki nefna. Lögreglan telur sannað að hún hafi ekki fengið nema 15—20 þús. frá frænkunni í Bergen og að „útlenda ríka vinkonan" sé aðeins heilaspuni. Ennfrem- ur hefur ekki tekizt að færa sönnur á, að frú Rischmann hafi nokkurntíma unnið eyris- virði í getraunakeppni. -— En hinsvegar hefur það sannazt að frúin fann aðferð til að stimpla rangar tölur á kassa-vélina. Ef einhver viðskiptavinur keypti t.d. hlut fyrir 252 krónur og borgaði frú Rischmann, gat hún með brellum kvittað fyrir upphæð- inni með miða, sem sýndi rétta upphæð, en á ræmunni í kassanum, sem notuð var við uppgjör að kvöldi, stóðu að- eins 52 eða stundum aðeins 2 kr. Á þennan hátt stakk frúin ýmist 90 eða 99% í sinn vasa, en Herman Mehren fékk 10 eða 1 %! — Annar gjaldkeri, sem var í verzluninni og starfaði sam- tímis frúnni, sagði upp stöðu sinni í firmanu vegna þess að hana grunaði að frú R. væri ekki öll þar sem hún væri séð. Firmað sjálft vildi líka ganga úr skugga um þetta, og réð til sín unigan mann (19 ára með verzlunarskólaprófi) til.að bera saman sölulistana sem verzlunarþjónarnir skila Það kannast margir við Hildegarde Knef, þýzku leik- konuna, sem frægust varð af frammistöðu sinni á Broad- way New York-borgar forð- um daga og margir spáðu glæstri framtið í kvikmyndum vestra. En Hildegarde ílentist ekki í Bandarikjunum heldur sneri aftur heim til Þýzkalands. Þar átti hún framan af við ýmsa erfiðleika að etja og tókst lengi vel ekki að finna verk- gjaldkeranum á hverju kvöldi saman við kassalistana. En þessi unglingur hefur ekki reynzt vaxinn starfi því, sem hann átti að gegna. Þegar lög- reglan fór að grúska í málimi, kom það á daginn, að frú R. hafði breytt sölulistanum til þess að samræma þá við ræm- urnar úr „kassa-registrinu". — Þannig bárust að henni böndin jafnt og þétt, en samt meðgekk hún ekki nema þessar 70 þúsund, sem hún játaði á siig strax. Þegar lög- reglufulltrúinn, sem var sækj- andi málsins bar á hana sak- irnar og sagði: „Þér hafíð logið.......(þessu og þessu, sem hún tíndi til) hallaði hún sér upp að súlunni til hliðar við sætið hennar og svaraði 1 brosandi: „Það er ókurteisi t| að tala svona við kvenfólk"! Ekki roðnaði hún, svo séð yrði, ð Framhald á bls. 30 efnl sér við hæfi, en er nú 7i sögð á uppleið aftur. 1 Hún er nú á ferðalagi um V Vestur-Þýzkaland með leik- U flokki frá Miinchen, „Miin- í chen Schaubúhne“, er sýnir J bandariska sjónleikinn „Mrs. I Dally“, eftir William Hanley. k Hildegarde leikur aðalhlut- il verkið en leikstjóri er maður 7 hennar, David Cameroon, og | myndinni fylgdi sú skýring á Í tónlistariðkun þeirra hjóna, að | það væri David að þakka, að (, Hildegarde hefði nú „náð | réttum tóni“ á ný. I SÖLUMIÐST ÖÐ í LONDON CMns og skýrt hefur verið frá í fréttum, hefur nú verið stofnað hlutafélag, sem nefnist íslenzka matvælastöð in, eða „Iceland Food Center“, og standa að því ríkissjóður, Samband ísl. samvinnufélaga, Framleiðsluráð landbúnaðar- ins og Loftleiðir. Tilgangur þessa félags er að kynna íslenzkar afurðir, og þó sérstaklega lambakjötið, á heimsmarkaðinum og kynna ísland sem ferðamannaland. í þeim tilgangi er ætlunin að opna kynningar- og sölustöð í London í haust, og er nú unn- ið að undirbúningi þess máls. Hafa ágætir menn valizt til forustu í þessu félagi og er Ólafur Johnson stjórnarfor- maður þess. Félagið hefur nú nýlega ráðið einn menntaðasta og hæfasta veitingamann lands- ins, Halldór Gröndal, sem framkvæmdastjóra þessa fé- lags, og mun hann vinna að uppbyggingu miðstöðvarinn- ar í London. Er vissulega vonandi að vel takizt til með þessa tilraun og unnt verði í senn að kynna rækilega íslenzkar fram- leiðsluvörur og landið sem ferðamannaland, enda enginn efi á því, að við getum haft stórfelldar tekjur af ferða- mönnum, ef rétt er á málum haldið og röggsamlega unnið að því að bæta aðstöðuna um allt land til móttöku ferða- manna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.