Morgunblaðið - 27.07.1965, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐID
Þriðjuctafíur 27. júlí 1965
Bjarni á Laugarvatni, Ingólfur Jónsson, landbúnaðarráðherra, Jensína, skólastjóri, Jónas írá
Hrifiu og Þorvaldur arkitekt s kólans.
Byrjað að graffa grunn nýs
Húsmæðraskóla Suðurlands
Landbúnaðaráðherra tók fyrstu skóflustunguna
Laugarvatni, 26. júlí.
FÁNAR voru við hún við Hús-
mæðraskóla Suðurlands, hér á
Laugarvatni, á laugardí inn, —
því laugardagur er til lukku, —
og taka skyldi fyrstu skóflustung
una að hinum nýja Húsmæðra-
skóla Suðurlands. Skólanum hef-
ur vérið ákveðinn staður skammt
frá þar sem hann er nú og hefur
verið síðan á árinu 1942.
Laust fyrir klukkan 11 söfn-
uðust nemendur Húsmæðraskól-
ans saman við hinn væntanlega
grunn skólans, og með þeim
námsmeyjahópur, sem er þar á
námskeiði. Voru þær í bláum
kjólum, með hvítar svuntur og
hvíta kappa á höfði. — Fánar
blöktu þar yfir. — Nokkrir gest-
ir voru komnir til að vera við
athöfnina og skal þar fyrst nefna
Ingólf Jónsson, landbúnaðar-
málaráðherra, og frú, Sigurð Óia
Ólafsson, alþingismann, og frú,
þá Jónas Jónsson frá Hriflu,
■Bjarna Bjarnason og arkitekt
hins nýja skóla Þorvald Þorvalds
son frá Hafnarfirði, en hann starf
ar nú hjá Húsameistara ríkisins.
Formaður skólanefndar Þórar-
inn Stefánsspn flutti stutt ávarp,
og lýsti þeirri athöfn er nú skyldi
fram fara og bað síðan Ingólf
ráðherra ao taka fyrstu skóflu-
stunguna fyrir hinum nýja Hús-
mæðraskóla Suðurlands. Tók Ing-
ólfur vænan hnaus, en strax á
eftir fór stór jarðýta af stað til
að taka grunn að hinu nýja skóla
húsi. Þetta verður heimavistar-
skóli sem rúma á 48 nemendur.
Grunnflöturinn er um 1100 fer-
metrar og er áætlað að hann
muni kosta um 20 milljónir
króna. — I þessum fyrsta áfanga
verksins verður lokið við grunn
hússins. Skólinn verður 2 uæðir
á kjallara.
Að lokinni þessari stuttu at-
Fáninn á stöng þar
höfn, en sögulegu, bauð skóla-
stjóri Húsmæðraskólans, Jensína
Halldórsdóttir, og skólanefnd
gestum til hádegisverðar. Voru
þar margar ræður fluttar um
hið mikilvæga hlutverk Hús-
mæðraskóla Suðurlands og þær
vonir sem við hann eru tengdar
í hinu nýja skólahúsi.
— Benjamín.
.■■■■?.yS'-.'.y.- ..... .... ... ....... ...
m skólinn á að rísa.
66,66% gengisf elling í Júgóslaviu
og um leið 24% hækkun vöruverðs
Belgrad, 26. júlí (AP)
% STJÓRN Júgóslavíu hef-
ur lækkað gengi júgóslav-
nesku myntarinnar, dinars-
ins, um 66,66%, og boðað
breytingu á gjaldmiðlinum,
en samkvæmt henni verða
hverjir 100 dinarar að einum.
Einnig hefur stjórnin hækkað
vöruverð um 24% og boðað
frekari ráðstafanir, sem sagð-
ar eru miða að því að bæta
ástandið í efnahagsmálum
landsins.
t Fram að gengisfellingunni
jafngilti hver dinar um 6
aurum íslenzkum.
Stjórnin hefur kunngjört, að 1.
janúar nk. verði gefnir út nýir
bankaseðlar og jafngildi einn nýr
dinar 100 gömlum, en gömlu
bankaseðlarnir verða áfram í
gildi næstu fjögur til fimm árin.
Um leið og tilkynningin var
birt í Beigrad, var skýrt frá því
af hálfu Alþjóðagjaldeyrissjóðs- j
ins, að hann hefði gert eins árs
samning um aðstoð við Júgó-
slaviu, og nemur hún um 3,5
milljörðum isl. kr. Verður aðstoð
inni varið til að endurbæta efna-
hagskerfi landsins. í tilkynningu
sjóðsins sagði m.a., að stjórn
Júgóslavíu hygðist létta nær öll-
um hömlum af innflutningi hrá-
efna og varahluta, fella niður
útflutningsuppbætur, takmarka
útlán og draga úr afskiptum
stjómarstofnana af fjárfestingar-
málum. Þessar aðgerðir miða að
aukinni samkeppni í iðnaði og
lækkun framleiðslukostnaðarins.
Einnig segir sjóðurinn, að stjórn
Júgóslavíu vilji reyna að vinna
bug á verðbólguþróun og búa
þannig um hnútana, að tekjur
hækki í réttu hlutfalli við fram-
leiðsluaukningu á hinum ýmsu
sviðum.
Boris Krajger, aðstoðarfor-
sætisráðherra, skýrði frá því í
júgóslavneska þinginu á laugar-
ardaginn, að verðhækkanir
myndu að meðaltali nema 24%.
Hann sagði, að við framkvæmd
gengislækkunarinnar treystu
Júgóslavar eingöngu á sjálfa sig,
en bætti þó við, að nýgerður
samningur við Sovétríkin myndi
þó bæta gjaldeyrisafstöðuna. —
Hann skýrði þetta ekki nánar, en
talið er að Sovétríkin hafi fallizt
á að veita Júgóslövum greiðslu-
frest á lánum, sem eru um það
bil að falla í gjalddaga og ýmis
önnur hlunnindi innan ramma
verzlunarsamnings.
Krajger sagði, að Júgóslavar
hefðu nú samband við Banda-
ríkjamenn, Breta, ítali og
Frakka vegna efnahagsaðgerð-
anna, og herma áreiðanlegar
heimildir að þeir ætli að fara
fram á greiðslufrest á gömlum
lánum og biðja um ný.
í sambandi við hinar nýju
efnahagsráðstafanir verða með-
lög með börnum hækkuð um 23%
og laun hækka í samræmi við
framleiðsluaukningu.
Féll ofan í skips-
lest og sakaði ekki
ÞAÐ ÓHAPP vildi til um
borð í Goðafossi, þar sem
hann var staddur á ísafirði,
á þriðjudaginn var, að 18 ára
gamall háseti á skipinu, Einar
Bjarnason, Hjallavegi 5,
Reykjavík, féll niður í lest
skipsins, sem var tóm, en sak-
aði ekki. Fall þetta mun vera
rúmir 8 metrar.
Óhapp þetta vildi til um kl.
8 að kvöldi. Einar var að
vinna við lestaropið, þegar
hann skyndilega datt í lest-
ina. Búið var að leggja alla
stokka niður á botn, en svo
nefnast þverbitar í lestinni.
Einar féll alla leið niður án
þess að snerta stokkzna í fall
inu. Niðri á botni voru spýt-
ur og tunnur og féll Einar á
eina spýtuna og vó salt við
tunnuna, er hann kom niður,
þannig að tunnan og spýtan
tóku af honum fallið. Ekki seg
ist Einar muna eftir sér í
fyrstu, en vaknaði við það, að
læknir var kominn á stað-
inn. Hann hafi síðan verið
Einar Bjarnason
fluttur á sjúkrahús, þar sem í
hann dvaldist í tvo daga. — é
Goðafoss fór frá ísafirði \
seinna um kvöldið, en Einar
náði skipinu á Akranesi og J
sigldi utan með því í dag. Hon i
um varð ekki meint af, nema
hvað hann fékk glóðarauga.
Islendingur ver doktors-
ritgerð í þfóðhagfræði
GÍSLI BLÖNDAL varði hinn 7.
júlí sl. doktorsritgerð í þjóðhag-
fræði við London School of
Ecomomics í EngLudi. Gísi.i tók
stúdentspróf frá Menntaskólan-
um í Reykjavík, 1955, próf í við-
skiptafræðum frá Háskóla ís-
lands vorið 1959, starfaði um
skeið í Seðlabanka íslands, og
hélt síðan til framhaldsnáms í
hagfræði í London. Doktorsrit-
gerðin nefnc-lct á ensku: DevwLp
ment of Public Expenditure in
Relation to National Income in
Iceland" eða þróun rikisútgjalda í
hiutfa-lli við þjóðartekjur á ís-
landi. Til námsins í Englandi
hlaut Gísli styrki úr Vísinda-
sjóði og frá Vísinda og framfara-
stofnun Sameinuðu þjóðanna í
París.
Gísli er sonur hjónanna Sig-
riðar og Lárusar Þ. Blöndal
Góðar heyskap-
arhorfur við
Djúp
Þúfum, 24. júlí: —
GÓÐ GRASSPRETTA hefur ver
ið undanfarð og hiti í lofti. Gras-
hefur þotið upp og er víðast orð
ið ágætlega sprottið. Þerrir er nú
síðustu daga og lítur vel út með
heyskap, ef svona viðrar. Óvíða
er búið að hirða nokkuð að ráði,
því sláttur hófst með seinna
móti.
Bryggjugerðinni í Ögri verður
lokið eftir fáa daga. Miki.ll ferða
mannastraumur er nú í héraðinu
og bílaumferð. — P. P.
kaupmanns í Reykjavík. Hann
er kvæntur Ragnheiði Jónsdótt-
ur og eiga þau einn son.
Gísli Blöndal
Bíllinn fannsf
og þjófurinn
Keflavik, 26. júlf.
í GÆR var auglýst eftir jeppa
bifreið, G-2221, er stolið var í
Njarðvíkum. Hafði frétzt til ferða
bílsins austanfjalls og leitaði lög
reglan þar að bílnum. Jeppinn
fannst svo í dag fyrir utan húa
í Þverholti og hafði þá þe,gar
fallið grunur á mann nokkurn og
reyndist hann á. rökum reistur,
Var sá áður þekktur af lögregL
unni. Bíllinn vár óskemmdur.
— hsj.
Bjart og svalt var um allt ast 2.7'* í lofti, en —
land í gær, og í íyrnnótt var 0.80 á grasi. Þó munu kart-
hiti sums staðar við frost- öflugrös ekki hafa skemmzt.
mark. í Reykjavík var kald-