Morgunblaðið - 27.07.1965, Side 12

Morgunblaðið - 27.07.1965, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Þrtðjudagur 27. júlí 1965 Steindór Steindórssori frá Höðum: Eimveiðin og dr. Valtyr Guðmundsson ÉG var að frétta það um þess- ar mundir, að ein æskuvin- kona mín, og hún ekki af lak- ara taginu, væri sjötug um þetta leyti. Um leið rifjuðust upp fyrir mér ótal minningar frá löngu liðnum árum, um yndislegar samverustundir, og hversu mjög ég þráði fund þessarar vinkonu, og hvernig samvistirnar við hana opnuðu mér nýja heima óendanlega fjarri hversdagsleikanum. — Ekki. varð þess þó dulizt, að nokkur var aldursmunurinn með okkur, því að hún var komin á táningaaldurinn um þær mundir, sem ég var að byrja að skynja lífið í kring- um mig, og á aldri gjafvaxta heimasætu, þegar ég komst í kristinna manna tölu. En ekkert spillti það vináttu okk- ar, né heldur hitf, að margir fleiri en ég, voru álíka heill- aðir af henni. Og þá er bezt að gera nafn hennar kunnugt, en þetta er tímaritið E i m - r e i ð i n . Ég var ekki nema rétt orðinn læs, þegar ég komst í fyrstu kynni við hana. Mamma átti hefti úr fyrstu árgöngunum, og ég stafaði mig fram úr efni þeirra, eftir því sem getan leyfði. Ég kjökraði yfir sögunni um Gunnhildi gömlu, og dreymdi hrollvekjandi drauma eftir að hafa lesið Hryllilega bernsku- minningu, en ég sat líka við og lærði Litla skáld á grænni grein og Elli sækir Grím heim, enda þótt ég áttaði mig varla á því hver þessi Ellikerling væri, sem fús væri að dansa og glíma. Meira að segja reyndi ég að læra Brautina, þótt ég varla skynjaði, hvert þar væri stefnt. Og ekki að gleyma Skeifusögunni um Sankti Pétur og Drottin. Ekkert festist þó ef til vill eins í hug- anum og myndin hans Einars Jónssonar af Dreng á bæn. Og svo var það margt, margt fleira. Það var merkileg bók þessi Eim- reið. Árin liðu hægt og hægt eins og alltaf meðan maður er ungur, og mér varð það smám saman ljóst, að Eimreiðin átti ítök í fleirum en mér. Það var margt talað um efni hennar, og menn hlökkuðu til komu hennar á heimilið. Því var svo háttað, að þau hjónin, Ólöf skáldkona á Hlöðum Og Halldór maður henn- ar, voru kaupendur Eimreiðar- innar og við inni í bænum bið- um venjulega með eftirvæntingu dagana, sem liðu frá því, að heft- in kómu í póstinum, og þau voru búin að lesa þau og léðu okkur þau til lestrar. Þær kvöldvökur, sem. Eimreiðin var lesin hátt, voru hátíðisdagar heima á Hlöð- um. Ef til vill fannst ökkur ritið standa okkur ögn nær en annað prentað mál, af því að þar birt- ust ritverk þeirra Ólafar og Hall- dórs. Hann átti þar einar tvær smásögur, en hún bæði kvæði og ritgerðina Bernskuheimilið mitt. Vissulega var Eimreiðin þá ná- tengdari heimilinu á Hlöðum en nokkurt annað rit. Ég minnist þess enn hvílíkur fengur mér var það, þá komnum undir fermingu, þegar Ólöf bauð mér alla Eimreiðina frá upphafi að láni. Ég beinlínis svalg hana í mig frá orði til orðs, að heita mátti. Efnið var svo fjölbreytt og lifandi, og ekki torskildara en svo, að ég strákurinn' gat lsið megnið gf því mér til nokkurs gagns. Ég hika ekki við að full- yrða, að á þeim árum las ég ekki önnur rit, sem meira voru mennt andi á almenna vísu en Eimreið- in, þegar frá er tekin Saga manns andans eftir Ágúst H. Bjarnason. Hún var að vísu þyngri, og ýms- ir kaflar fóru fyrir ofan garð og neðan við fyrsta lestur. En engu að síður var hún eins og gróðrar- skúr í hugi bókfúsra unglinga úti um byggðir landsins, þegar hún kom fyrst út. Og seint munu þess verða full skil, hversu mikla þakkarskuld íslenzk alþýðumenn ing á að gjalda ritum Ágústs H. Bjarnasonar og Eimreiðinni. Dr. Valtýr Guðmundsson. En hvað var það, sem skapaði Eimreiðinni þessar vinsældir, sem hvarvettna komu fram? Fyrst af öllu var það fjölbreytni efnisins. Hún flutti nýjungar um menn og málefni frá hinum stóra heimi. Þar voru ritgerðir um náttúruvisindi, sem sjaldséð var í íslenzkum ritum. Greinar um landspiál, frásagnir af nýjungum í tækni og læknavísindum og síð- ast en ekki sízt kvæðin og sög- urnar eftir innlenda og erlenda höfunda. Þarna komu þeir fram, margir af stóru spámönnunum í íslenzkum bókmenntum, Matthí- as, Steingrímur, Þorsteinn Erl- ingsson, Einar H. Kvaran og margir fleiri. En þarna áttu líka margir byrjendur í skáldskapn- um sitt fyrsta athvarf, sumir urðu ef til vill aldrei annað en byrjendur, og Eimreiðin ein geymir minninguna um það, en aðrir áttu .eftir að sveifla sér fram í raðir hinna stóru. Víðsýni og smekkvísi ritstjórans gerði Eimreiðina að allsherjar vett- vangi þeirra sem rita kunnu. Þar komu fram lærðir menn, bæði vísindamenn og skáld, en einnig ungir stúdentar, bændur og aðrir alþýðumenn úti um byggðir landsins. Þá má ekki gleyma öll- um bókafregnunum og ritdómun- um, skýrum og afdráttarlausum, sem mörgum reyndust góðar leið- beiningar í vali lestrarefnis, og síðast en ekki sízt íslenzka hring- sjáin um það, sem sagt var og ritað um ísland og íslenzk mál- efni erlendis. Ekkert rit fyrr né síðar hefir gert þeim hlutum jafn góð skil. Og öllu þessu fjöl- breytta efni fylgdi einhver fersk- ur andblær utart úr heimi. Eim- reiðin færði eitthvað af hinni miklu kóngsins Kaupinhöfn heim í íslenzkar sveitir. Mér fannst ég þekkja þá borg í hverjum krók og kima eftir að hafa lesið Hafn- arlíf Jóns Aðils. Og þá varð mað- ur ekki síður kunnugur um lýð- háskólana dönsku eftir að hafa skyggnzt þar um sali undir leið- sögn þeirra Jóns Aðils og Jónas- ar Jónssonar frá Hriflu. Ég efast um, að önnur lesning hafi vakið meiri löngun mína til skóla- göngu, en þær greinar, þótt ég að vísu brygði síðar á aðrar leið- ir en í danska lýðháskóla. „En það þýðir ekki að þylja nöfnin tóm“. í stuttu máli sagt færði Eimreiðin þjóðinni menningu. En ekkert rit verður til af sjálfu sér. Ófrávíkjanlega tengt við Eimreiðna var nafn stofn- anda hennar og fóstra dr. Valtýs Guðmundssonar. Þegar ég komst á legg og hafði bundið tryggðir við Éimreiðina var hina póli- tísku stórsjói, er risu með Val- týzkunni tekið mjög að lægja. En samt var dr. Valtýr enn mjög umtalaður og umdeildur. Og fjarri fór því, allt um vinsældir Eimreiðarinnar, að það væru allt fögur orð, sem um hann féllu í heimasveit minni, hinu örugga kjördæmi og æskusveit Hannesar Hafstein. Ég held næstum, að ýmsum hafi þótt það maklegt, þegar einn stórbóndi sveitarinn- ar, þéttfullur að vísu, jós jir sér illyrðum yfir dr. Valtý, er fund- um þeirra bar saman af hend- ingu, að mig minnir við vígslu Hörgárbrúarinnar. En ég fékk snemma hugboð um að... ekki myndu allar skammirnar, sem dundu á dr. Valtý á rökum reist- ar. Maðurinn, sem gaf út Eimreið ina, hlaut að vera miklu merk- ari en andstæðingur hans lýstu honum. En svo komu Aliþin'gis- rímurnar til sögunnar, en þar segir: Glæsimenni Valtýr var af virðum flestum bar hann. Þótt um hann þytu örvarnar aldrei smeikur var hann. Minnisstæðast úr Alþingisrímun- um var mér þó ríman um það, þegar Benedikt Sveinsson vitjaði Valtýs afturgenginn, og lýsti yfir fylgi sínu við Valtýskuna. Það þótti mér eðlileg niðurstaða, þeg- ar ég kom síðar til vits Og ára. En mikið langaði mig til að sjá þenna umdeilda mann, sem þrisvar á ári sendi okkur Eim- reiðina sína heim í fásinni ís- lenzkra sveita. Lítið óraði mig fyrir því þá, að það mundi fyrir mér liggja að kynnast honum, og sitja langtímum og rabba við hann í stofunni, þar sem Eim- reiðin hafði verið búin til ís- landsferðar árum saman, og þar sem postulínshundurinn úr Al- þingisrímunum sat í háu sæti og sperrti sitt gyllta trýni. Það var þá óendanlega langur vegur heim an úr Hörgárdal og suður að Eyrarsundi. En ekki vissi ég þá, hversu miklu lengri og örðugri vegurinn var, sem dr. Valtýr hafði fetað, frá Heiðarseli í Gönguskörðum upp í prófessors- stól við Hafnarháskóla. En árin liðu, og einn góðan veðurdag stóð ég augliti til aug- litis við dr. Valtý á heimili hans, og naut hinnar ástúðlegu gest- risni hans og samræðna við hann mörgum sinnum. Varla mun nokkur íslendingur hafa verið ausinn auri jafnákaft og dr. Valtýr var um árabil. Og enn er verið að kasta slettum að kumli hans. Það sézt þar sem víða annars staðar, að Hannes Hafstein hafði rétt fyrir sér, „að lakasti gróðurinn ekki þar er, sem ormarnir helzt vilja naga“. Vafalaust hefir dr. Valtý mis- sýnzt um ýmsa hluti, og í hita baráttunnar hefir hann sennilega stundum látið orð falla eða beitt vopnum, sem ekki voru í sam- ræmi við hugsjónir hans, eða eins og honum hefði bezt samað. En hver er sá maður, sem ekki get- ur skjátlazt? Hitt er það, sem víst er, að dr. Valtýr er einn af merkustu mönnum sögu vorrar á síðéiri tímum. Pólitík hans leysti iþann rembihnút, sem islenzk stjórnmál og frelgisbarátta var komin í fyrir ófrjóan einstefnu- akstur á Alþingi árum saman. Dr. Valtýr átti stærri drauma og bjartari hugsjónir um við- reisn og framfarir lands og þjóð- ar andlega og efnalega, en flestir samtíðarmenn hans. Og hann hafði manndóm til að kveðja sér hljóðs um stefnu sína og berjast fyrir henni, þótt svo færi að lok- um, að aðrir skæru upp, það sem hann hafði til sáð. í stjórftmálun- um ruddi hann brautina og benti á nýjar leiðir, með Eimreiðinni vann hans ómetanlegt menningar starf um meira en tvo tugi ára. Og það vita þeir þezt, sem dr. Valtý þekktu gerzt, að torfund- inn verður betri og trúrri ís- lendingur. En þó liggur hann enn óbættur hjá garði, og saga hana óskráð, ,til lítillar sæmdar þeim, sem sískrifandi eru um sögu landsins. Ætlunin með þessum orðum var einungis að ræða um æsku- vinkonu mína Eimreiðina, en slíkt var ekki unnt, nema að geta um leið stofnanda hennar og föð- ur, enda þótt til þess hefði þurft miklu meira og vandaðra mál, en hver veit, nema unnt verði að gera honum betri skil síðar. Vér sem vorum ungir, þegar Eirftreiðin var á æskuskeiði tök- um nú að eldast. Það gerir hún einnig. En ólíkt oss mönnunum kastar hún sífellt ellibelgnum, og lifir í snertingu við samtíð sína og er ung með henni. Vera má, að oss þessum gömlu, sem munum hana unga, þyki hún hafa glatað æskuljómanum, eins og svo margar jafnöldrur okkar hafa gert. En ætli það sé ekki okkar sök. Akureyri á síðasta vetrardag 1965. (Prentað með leyfi höf. ú~ „Heima. er bezt“). Fimmtugur: Baldur Gunnarsson PLEST jarðarinnar börn eyða mestum tíma sínum í brauðstrit, sér og sínum til framdráttar og eru því virðingarverðari sem af- köst þeirra eru meiri. En brauð- stritið eitt er manninum ekki nóg. Han verður að hefja sig upp úr hversdagsleikanum öðru hvoru og svífa á bylgjum gleðinnar, gleyma öllum áhyggjum um stund og ganga síðan léttari til starfa sinna á ný. En það er ekki nóg að leggja peningana á borðið og segja þenn an skammt af gleði vil ég fá. Menn verða að leggja sig sjálfa fram líka. Ean það er ekki öllum gefið. Það þarf oft leiðtoga í því sem öðru. Einn af þeim leiðtog- um er fimmtugur í dag, Baldur Gunnarsson frá Fossvöllum. Hann hefur verið dansstjóri gömlu dansanna hátt á annan tug ára og þeir skipta vafalaust mörgum þúsundum er hafa dans að undir hans stjórn, og þeir eru ekki margir er hafa farið þungir í skapi heim. Baldri hef- ur verið þac sérstaklsga lagið að fá alla til að skemmta sér og það væri rannsóknarefni út af fyrir sig hvers vegna þunglyndi getur alls ekki þrifizt í nálægð hans. — En þótt mörg nóttin hafi lið- ið hjá án þess að Bali i gæí.st tími til hvíldar hefur hann orð- ið að hefja sitt brauðstrit að morgni. Ekki hefur skemmtana- lífið lamandi áhrif á starfsþrek hans og vinnugleði. Hann hefur lagt gvörva hönd á margt og honum hefur verið gefin sú trú- mennska og lagni að margur meistarinn í uppmælingafræðum mætti öfunda hann af. Ekki mun það vera að skapi Baldurs Gunnarssonar að lesa greinar um sjálfan sig og skal það látið bíða að skrifa æviágrip, enda tæpast tímabært um jafn ungan mann, en höfuðtilgangur þessara fátjj^legu orða er að flytja Baldri bæði mínar per- sónulegar þakkir og fjölda ann- arra fyrir margar gleðistundir og höfðingsskap er hann hefur veitt jafnt á skemmti- og vinnustöð- um svo og í heimahúsum. Jafn- framt fylgja einlægar óskir um að hann megi alltaf verða jafn ungur sem hingað til hversu mörg sem árin kunna að verða og ef til vill fylgir því ekki lítil sjálfselska er maður óskar þess a ' hann eigi eftir að stjórna hin- um gömlu góðu dönsum í mörg, mörg ár í viðbót. Ef við flokkum mannsævina 1 tímabil á svipaðan hátt og við skipt.um árinu í mánuði, er hægt að segja að í dag sé jónsmessa 1 lífi Baldurs Gunnarssonar. Jónsmessan er einn fegurstl tími ársins og langt sumar fram- undan. Að þvi loknu er hægt að hugsa sér að haustið komi svíf- andi í léttum vals, skreytt með stjörnum óendanleikans. Vinur. Hópferðir í Þórsmörk um verzlunarmannahelgina EINS og undanfarin sumur verð- ur nú mikið um að vera í Þórs- mörkinni um verzlunarmanna- mannahelgina, sem verður um næstu helgi. — Ferðaskrifstofa Úlfars Jacobsen mun sjá um ferðir þangað nú eins og undan- farnar helgar og verður fyrst far- ið á föstudag og þá kl. 8 um kvöldið og einnig á laugardag og verður þá farið frá því kl. 1—3. Komið verður svo aftur heim á mánudag. í Þórsmörkinni verður upp- lýstur skemmtipallur og afgirt svæði fyrir þá, sem fara með ferðaskrifstofu Úlfars. Far- gjaldið verður 675 krónur og er þar innifalið skemmtanagjald og skógræktargjald. Unglingahljóm- sveitin Solo leikur fyrir dansi á laugardags- og sunnudagskvöld og á 'Skemmtisvæðinu verða einnig varðeldar o. fl. Fyrir þá, sem koma sjálfir á bílum, verður einkabílastæði inn við Krossá og ferðaskrifstofan mun flytja það fólk að skemmti- svæðihu gegn mjög vægu verðL í fyrra flutti ferðaskrifstofa Úlf- ars tæplega 1000 manns í Þórs- mörk og er allt útlit fyrir að ekki verði hópurinn minni núna. )

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.