Morgunblaðið - 27.07.1965, Page 6

Morgunblaðið - 27.07.1965, Page 6
6 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 27. júlí 1965 ívu Guðmnmdsson ylirmuður upplýsingumiðst&ðvur SÞ í Kuupmunnuhöfn U Thant, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur skip að ívar Guðmundsson yfirmann upplýsingamiðstöðvar samtak- anna í Kaupmannahöfn, en það- an er séð um dreitingu efnis tii allra Norðurlandanna. ívar tek- ur við af Hugh Williams, sem sagði embættina iausu frá og með 31. júlí. Hann hefur verið yfirmaður upplýsingamiðstöðvar innar í 19 ár, en heldur nú til föðurlands síns Nýja Sjálands til starfa þar. ívar Guðmundsson, sem fædd- ur er í Reykjavík 1912, hlaut menntun sína héi á landi og í Danmörku. 1934 gerðist hann blaðamaður við Morgunblaðið og starfaði þar til 1951, síðustu árin sem fréttastjóri. 1951 réðst hann til Sameinuðu þjóðanna og starfaði sem Dlaðafulltrúi við upplýsingadeild samtakanna. Frá 1955-60 var hann aðstoðar- yfirmaður upplýsingamiðstöðvar innar í Kaupmannahöfn, en hélt þá til aðaistöðva samtakanna, þar sem liann var blaðafulltrúi Ivar Guðmundsson þáverandi forseta Allsherjar- þingsins. Fredericks H. Boland. Ári síðar for hann til Karachi í Pakistan og hefur starfað þar síðan, sem yfirmaður upplýsinga miðstöðvar SÞ í fcorginni. Tollar standa íslenzkri bókaútgáfu fyrir þrifum Frá aðalíundi Bókafélags Islands NÝLEGA var haldinn aðalfund- ur Bóksalafélags íslands, sem er samtök íslenzkra bókaútgefenda. Formaður félagsins, Olíver Steinn Jóhannesson, flutti ýtarlega skýrslu stjórnar, en gjaldkeri, Steinar Þórðarson, lagði fram endurskoðaða reikninga. Á fundinum var rætt um þá kvöð á íslenzkum bókaútgefend- um að verða lögum samkvæmt að afhenda Landsbókasafninu endurgjaldslaust 12 eintök af hverri útgefinni bók. Var þessi lagaskylda talin í hæsta máta ósanngjörn, en til samanburðar var upplýst, að bókaútgefendum í Noregi er gert að skyldu að afhenda aðeins 3 eintök, í Banda- ríkjunum 2 Svíþjóð 6, Englandi 6 og í Danmörku 3 eintök af hverri bók. Vakin var athygli á því, að með því að gera íslenzk- um bókaútgefendum að skyldu að afhenda 12 eintök af hverri nýútkominni bók, væri þessi aukaskattur á meðalstóru bóka- forlagi um 30 þús. kr. Mótmæltu fundarmenn þessari einstæðu of- sköttun, þar sem bókaútgefend- um er gert að afhenda íslenzka ríkinu hluta af framleiðslu sinni endurgjaldslaust, og töldu áríð- andi, að þessum skyldueintökum yrði fækkað stórlega til sam- ræmis við hin Norðurlöndin. Fundurinn samþykkti einróma eftirfarandi tillögu: „Aðalfundur Bóksalafélags ís- lasds leyfir sér að vekja athygli á hinni ranglátu skipan tolla- mála, sem íslenzkir útgefendur þurfa að búa við. Á sama tíma og erlendar bækur og blöð eru algjörlega tollfrjáls, er íslenzk- Framhald á bls. 19 Um Geysi og alla hina Ungur franskur styrkþegi skrifar um islenzka hveri HÉR á landi er nú staddur ungur Frakki, René Rupert, ættaður frá Lyon, styrkþegi Zellidja-stofnunarinnar og hefur í hyggju að skrifa rit- gerð um íslenzka hveri. René kom hingað 5. júlí, flugleiðis til þess að spara sér tíma, og fer heim aftur 3. ágúst. Hann hefur þegar ferðazt víða um landið, komið á Snæfellsnes — sem Frakkar þekkja flestir af sögu Jules Vernes — til Hvalfjarðar að skoða hvalveiðistöðina, til ÍAkureyrar og til Mývatns og suður yfir Kaldadal. Hann hefur líka skoðað Gullfoss og Geysi og við hinn síðarnefnda byrjaði hann athuganir sínar á íslenzkum hverum. Hann I hyggst halda þeim áfram í Hveragerði og fara svo til Hveravalla, en notar þessa dagana sem hann dvelst í Reykjavík til þess að viða að sér fróðleik og lesefni um hver ina og ræða við kunnáttu- menn í þessum efnum. Aðspurður nánar um styrk- inn sem hann fékk til íslands ferðarinnar kom upp úr kaf- inu eftirfarandi saga: Einu sinni fyrir töluvert mörgum árum var ungur mað ur með mikinn áhuga á jarð- fræði og framandi þjóðum, en lítið fjármuna, sem lét skort á hinu síðarnefnda ekki aftra sér frá því að sinna hvorum tveggja fyrrnefndra áhuga- mála sinna. Hann lagði upp frá Frakklandi á reiðhjólinu sínu — og komst alla leið til Tyrklands og yfir til Litlu- Asíu. Seinna, þegar téður reið- hjólameistari var orðinn ögn eldri og farinn að praktisera sína sérgrein, jarðfræðina, fyrir alvöru, fann hann blý- námur einar allmiklar við þorpið Zellidja í Marokkó. Svo liðu ár og dagar og hann var orðinn efnaður maður, reiðhjólið eflaust löngu ryðg- að — en áhugi hans á fram- andi löndum og þjóðum og jarðfræðinni samur sem fyrr. Honum varð hugsað til allra hinna mörgu æskumanna sem langaði til að leggja land und- ir fót eins og sjálfan hann áður, en áttu hvorki fé né for- stönduga leiðbeinendur sér til fulltingis. Og M. Jean Walter (sem látinn er nú fyrir nokkr- um árum) var ekki einn þeirra, sem bara hugsa um hlutina — hann tók sig til og setti á stofn sjóð einn mikinn og kallaði Zellidja-sjóðinn, etfir þorpinu sem námurnar góðu voru við og veitti úr honum ferðastyrki til handa fróðleikssjúkum og ferða- gjörnum löndum sínum undir tvítugsaldri. Styrkirnir eru að upphæð 400 frankar, styrktími a.m.k. einn mánuður og styrkþegar valdir með keppni sem fram fer árlega í skólum í Frakk- landi. Eru fyrst valdir 1000 beztu nemendur skólanna, sem svo keppa sín á milli með því að gera áætlun um fyrirhug- að ferðalag sitt, ef þeim hlotn- ist styrkurinn, og eru þá vald ir úr 300 af þessum 1000 og gerðir út af örkinni þangað sem þeir sjálfir kjósa — en þeir fá ekki eyri fram yfir þessa 400 franka og verða að vera a.m.k. mánuð í ferðalag- inu, eins og áður sagði og standast áætlun eftir fremsta megni. Styrkþegar eiga svo að skila ritgerðum að lokinni reisunni og fá þá 50 beztu ritgerðasmið irnir annan ferðastyrk að laun um, 450 franka, og þá með sömu skilyrðum og hið fyrra skiptið, en loks hlotnast 15 þeirra er fram úr skara hið René Rupert síðara skiptið sérstök heiðurs verðlaun og fylgir nokkuð fé. — Ég fór til Kiruna í Sví- þjóð í hitteðfyrra, segir René, var þar í einn og hálfan mán- uð og vann í námunum nokk uð af tímanum, því það mega Zellidja-styrkþegar gera, ef þeir vilja og geta. Fyrir rit- gerðina sem ég skrifaði um námurnar í Kiruna fékk ég svo styrkinn öðru sinni og kaus þá að koma hingað og skrifa um hverina. — En það verð ég að játa, segir René og brosir, — að það var töluvert hægara um vik að safna efni til ritgerðar innar um námurnar, en fróð- leik um hverina hér. í Kiruna var þetta allt á sama stað, en hér verð ég að eltast við upp- lýsingar og uppsprettur út um hvippinn og hvappinn. Mér leizt satt að segja ekki á blik- una í fyrradag — en í dag horfir þetta allt öðru vísi við og ég er orðinn vongóður um að vel takizt, með hjálp góðra manna. — Mig langar til að biðja fyrir mínar beztu þakkir til allra þeirra sem lagt hafa mér lið á einn eða annan hátt, segir René að lokum, — mér er þröngt skorinn stakkurinn meðan ég er hér núna og mér finnst tíminn allt af naumur til þess sem ég vildi skoða og athuga nánar — en koma tím ar, koma ráð og ég vona að ég eigi afturkvæmt hingað áður en langt um líður. • F YRIRGREIÐ SL A FYRIR FERÐAFÓLK A AKUREYRI Eins og ferðamönnum er kunnugt, hefur Akureyrarbær búið ferðafólki ágæta aðstöðu, gert tjaldstæði o.fl., í bæjar- landinu, en eitthvað virðist skorta á umgengnismenningu hjá ýmsum gestum eftir bréf- inu hér á eftir að dæma. „Kæri Velvakandi! Á leið í sumarleyfi nor&ur og austur í land kom ég og kona mín við á Akureyri. Að kvýld 14. júlí tjölduðum við á tjaldstæðinu þar. Þarna er komin mikil og góð aðstaða fyrir ferðafólk. Byggt hefur verið nýtt og vandað hús fyr- ir umsjónarmenn og gesti, með heitu og köldu vatni, handlaug- um, tveimur salernum og stóru og góðu herbergi með síma fyr ir umsjónarmennina, sem eru á svæðinu frá kl. 8 á morgnana til kl. 11 á kv.öldin. • SKRlLSLÆTI RASKA NÆTURRÓ Nóttin fór nú í hönd, og svefninn sótti á fólk í tjöldun- um, en svefnfriður var ekki langur, því að milli kl. 2 og 3 um nóttina vöknuðum við hjón in við hlátrasköll og söng. Lét- um við þetta lengi vel afskipta laust, en urðum svo þreytt á látimum og fórum að athuga, hverju þetta sætti. Þarna voru þá á ferð karlmaður og kven- maður, og var kvenmaðurinn verr á sig kominn en karlmað- urinn. Þau virtust vera á aldr- inum 30-35 ára, og eftir klæða- burðinum að dæma voru þau að koma af dansleik. Voru þau að valsa á milli salerna í hinu nýja húsi, og er kvenmaðurinn fór að fletta sig klæðum, fannst mér keyra um þverbak. Síðan veltist hún um tjald- stæði milli tjaldanna á bikini baðfötum einum klæða og söng við raust. Mér var þá nóg boðið, fór í föt og hélt niður í l>æinn til þess að ná í einhverja aðstoð við að fjarlæga fólkið af staðn- um. Þegar ég kom aftur upp eftir í fylgd lögregluþjóna, höfðu skötuhjúin komið sér í burtu og horfið upp í hin nýju og myndarlegu hverfi ofan til í kaupstaðnum. Eftir þetta var rólegt til morguns. Dvöldumst við þarna aðra nótt, og bar ekkert til tíðinda. Héldum við svo áfram ferð okkar austur í Hallormsstaðar- skóg og gistum í Atlavík. Var þar gott að vera. Til Akureyr- ar komum við svo aftur 19. júlí og tjölduðum á tjaldstæðinu. Keyrðu skrílslæti unglinga á svæðinu þá langt úr hófi, til dæmis var þá ekið á tjald og mesta mildi, að ekki hlauzt slys af. • DRYKKJULÆTI OG ÁFLOG UNGLíNGA Aðfaranótt 21. júlí vorum við þar einnig, og var það okk- ar versta nótt. Hefði ég ekkl trúað því að óreyndu, að slíkt gæti átt sér stað, sem þarna fór fram. Get ég ekki skilið, hvað unglingar eru að gera 1 svona ferðalög. Drykkjulæfin voru yfirgengileg, og þeim fylgdu meðal annars hótanir um að aka tjöldin niður. Þegar áflogin keyrðu um þverbak, fóru þrír menn úr tjöldunurn og sóttu lögreglu, en hún gerði heldur lítið, þegar á staðinn kom. Tvívegis komu lögreglu- þjónar upp eftir og sussuðu á unglingana, eins og smábörn. Ég sagði eftirlitsmanninum, að ég vonaðist til þess að eiga eftir að fara margar ferðir til Norðurlands, en ég mundi aldrei gista á tjaldstæði á Ak- ureyri oftar. — Sigurður Jónsson", Það er leiðinlegt, ef skríls- læti ferðalanga eyðileggja þessa ágætu þjónustu Akureyr- arbæjar, og er ekki annað sýnna en þarna þurfi að vera gæzlumaður allan sólarhring- inn, sem vísi óæskilegum gest- um burtu af tjaldstæðinu. Nýtt símanúmer: 38820 BRÆÐURNIR ORMSSON h.f. Vesturgötu 3. — Lágmúla 9.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.