Morgunblaðið - 27.07.1965, Síða 15

Morgunblaðið - 27.07.1965, Síða 15
Þriðjudagur 27. Júlí 1965 MORGUNBLAÐID 15 75 ára í dag: Skúli Skúlason riístjdri Skúli Skúlason, ritstjóri, á 75 ára afmæli í dag. Skúli er les- endum Morgunblaðsins að góðu kunnur fyrir fjölmargar grein- ; ar, sem hann hefur skrifað í blaðið á undanförnum áratugum, | og má raunar segja að hann ; hafi aldrei miðlað lesendum eins ríkulega af blaðamennskuhæfi- leikum sínum og hin síðustu ár. Skúli Skúlason er í hópi elztu og virtustu blaðamanna ís- lenzkra, og er óhætt að fullyrða að hann hafi með starfi sínu og ^ persónuleika varpað ljóma á ; stétt sína og þau margvíslegu j störf, sem hún innir af hendi í , þjóðlífinu. Enda þótt Skúli Skúlason hafi dvalizt langdvöl- [ um erlendis, hefur hann ávallt . haldið trúnað við íslenzka | tungu, og reynt að iðka hana af þeirri ást og virðingu, sem hon- um er í blóð borin. Fyrir þenn an mikla og mikilvæga þátt hans í menningarlífi samtíðarinnar voru honúm nú ekki alls fyrir löngu veitt verðlaun úr Móður- málssjóði Björns Jónssonar, fyrr um ritstjóra og ráðherra. Hefur Skúli komizt svo að orði, að fátt hafi glatt sig eins og sá heiður. Þá má ennfremur geta þess, að Skúli Skúlason hefur fyrir starf sitt i þágu íslenzkra blaðamanna verið gerður heiðursfélagi í Blaðamannafélagi íslands. Hann hefur lengistum haft góð og heilla drjúg afskipti af félaginu og fylgzt með störfum þess, þó löngum hafi það orðið að vera úr fjarlægð. Skúli Skúlason hef- ur ekki verið blaðamaður „til að hafa ofan af fyrir sér“, hann hefur verið blaðamaður af köll- un. Skúli Skúlason hóf blaða- mennsku árið 1912, og tók þá við af Jóni Sigurðssyni frá Kaldað- arnesi að skrifa frá Höfn yf- irlit erlendra frétta í ísafold. Hann hugðist leggja stund á jarðfræði, en hvarf frá námi, og tók að rita í Morgunblaðið að staðaldri. Var hann starfsmaður blaðsins að mestu leyti næstu 10 ár. Þá var Morgunblaðið ungt að árum, og ekki fjölskipuð sú fylking, sem vann að því að koma blaðinu út hvern morgun. >á varð blaðamaðurinn að kunna skil á mörgum efnum og ólíkum, og kom það í hlut Skúla að skrifa bæði um hljómleika, knattspyrnu, málverkasýningar, innlendar fréttir og önnur efni,- Vorið 192S stofnáði Skúli viku blaðið Fálkann méð Vilhjálmi Finsen og Svavari Hjaltested. Var Skúli um margra ára bil rit ítjóri blaðsins að mestu leyti, en áður hafði hann um þriggja ára skeið dvalizt í Noregi og skrifað um íslandsmál í ýmis hglzju blöð Norðurlanda. 1 nálega 20 ár skrifaði hann foruStUgreinar í Fálkann undir fyrirsögninni „Skraddaraþank- *r“. >ar ræddi hann yið les- endur sína um landsins gagn og nauð,synjar frá sínu sjónarmiði. Lýsti því sem afjaga fór og benti á margt sem betur mætti fara. IComu þar oft frám sjónar- fnið., sem nýlunda var að. En óvgljt yar penni Skúla Skúla- ■onar laus við nöldrið, sem oft sétúr leiðinlegan svip á slíka dálka. Drengskapur fylgdi þar einurð, og stíll og efni fóru sam ah á þann hátt, að hlaut að vekja athygli, Hann þurfti ekki £ð hrópa. Skúli hefur ávallt verið prúður riddari á brösóttum vettvángi blaðamennskunnar. ;>ár hefur hann aldrei farið með ópum ' eða ; illum látum til að vekja. á sér athygli. Honum er kurteisi og drengskapur runnin { merg og blóð. '' Skú'li1 1 Skúláson var búsettur hér í Heykjavik á árunum 1927- *36. Hann hvarf þó aftur til Nor'egS, ög settist að í Nesbyen í Hallingdal, en þaðan er teona hans ættuð. Hún heitir Nelly, fædd Mjölid, hámenntuð ágæt- is kona. Hafði Skúli enn sem fyrr ritstjórn Fálkans á hendi, en kom heim með hinni nafn- toguðu Petsamoferð Esju haust- ið 1940. Fluttist hann síðan aftur til Nesbyen að stríðinu loknu, og hefur verið búsettur þar síðan. Hefur hann allan tímann verið fréttaritari Morgunblaðsins í Noregi og skrifað fjölda frétta og greina, bæði þaðan og víðar að úr heiminum. Hafa greinar Skúla hér í blaðinu ávallt notið mikilla vinsælda, enda er al- kunna að hann er traustur blaða maður og vandur að heimildum. >á hefur hann einnig ritað fjöl- margar greinar um íslenzk efni í blöð á Norðurlöndum og hafa þær verið góð landkynning fyr- ir ísland. Væri betur að allir þeir, sem því ábyrgðarmikla starfi sinna, að rita um íslenzk hún hefur freistað hans frá fyrstu tíð, eða frá því hann ungur drengur sleit barns- skónum á heimili foreldra sinna á prestsetrinu Odda, Rangár- völlum. Hekla hefur einnig veitt honum margar un- aðsstundir, ekki aðeins þar sem hún rís úr blárri móðu fjarlægð- arinnar, heldur einnig þegar hann hefur staðið á tindi Heklu hám og horft yfir landið fríða. Og nú freistar hún Skúla enn. Hann hefur ekki verið einn um það. Vonandi verður honum enn einu sinni að ósk sinni, að sjá yfir víðáttumiklar sveitir æsku sinnar, horfa yfir sagnarík hér- uð, þangað sem hann dró að sér veganestið, áður en hann lagði út í lífið. Þetta veganesti hefur á vallt komið sér vel. Að Skúla standa góðar ættir og menning- arlegur bakhjarl. Mímisbrunn æsku sinnar hefur hann notað Nelly og Skúli Skúlason. efni 1 erlend blöð, væru jafn hlutlausar og traustar heimildir og Skúli Skúlason hefur ávallt reynzt. Með þessu starfi sínu hefur Skúli unnið landi og þjóð ómetanlegt gagn, sem við mun- um lengi að búi. Valtýr Stefánsson, ritstjóri, skrifaði grein um Skúla Skúla- son sextugan, og segir þar m.a.: „Á fjarvistarárum hans héðán hefur hann kynnzt fjölda fólks víðsvegar á Norðurlöndum. Var ég sérstaklega var við það á nor ræna blaðamótinu í fyrra mán- uði, hve ákaflega vinsæll og vin- margur Skúli or meðal ritstjóra og annarra starfsmanna biaða á Norðurlöndum. Að heita mátti allir sem mótið sóttu, þekkiu Skúla Skúlason af góðu einu. Þekktu góðvild hans og fram- úrskarandi greiðvikni, og þekktu áhuga hans við að kynna Norð- urlandaþjóðunum það sem mestu máli skipíi um hag ís- lands". Skúli Skúlason er fróður máð- ur um lönd óg sögu, ög hefur ferðazt mikið. Hann er einn þeirra manna, sem ávallt notar hvert tækifæri til að auka við fróðleik sinn. Hann hefur alla tíð verið mikill ferðagarpu.r, gengið á mörg fjöll og firnindi — ekki til að geta sagt: Sjáið tind- inn, þarna fór ég, heldur til að tala við náttúruna, anda að sér sögu og landi. Þegar hann kpm hingað niður á Morgunblað til okkar ekki alls fyrir löngu, barst þessi fjallaþrá Skúla í tál. Þá Sagði hann okkur, að hann vonaðist til að geta öðru hvoru megin . við 75 ára, gfmæli kbfið Heklu í 23. sinn, en eins og sönnum Oddaverja sæm- ir: látið fólkið í landinu fá hlut- deild í arfinum með því að sam- tvinna hann nútímafrásögnum úr lífi samtímans — og ávallt tekizt að gera lesendur sína að áhugasömum þátttakendum störfum sínum. Valtýr Stefánsson lýkur fyrr- nefndri grein sinni með því að segja, að Skúli hafi lengst allra núlifandi íslendinga, eða sam fleytt í 38 ár, unnið að blaða mennsku. Nú má bæta 15 árum við þá tölu. Á þeirri leið sem framundan er, á hann að vega- nesti óskipta vináttu allra stétt arbræðra sinna, og annarra sem til hans þekkja. Morgunt laðið hefur sérstaka ástæðu til að senda honum hlýjar fri.aðar óskir á þessum merku tíma- mptum í ævi hans, ög þakkar honum langt og heilladrjúgt starf í þágu blaðsins og léséhda þess. Með orðum Yaltýs Stefáns- sonar, sem eru enn í fullu gildi, sendir Morgunblaðið þess.um á- gæta starfsmanni sínum hugheil- ar afmæliskveðjur. /altýr seg- ir: | „Ég hef fáum mönnum kynnzt sem á jafnlöngum tima hafa breytzt eins lítið og hann. Hvar eða hvenær sem maður hittir I hann, hefur hann alltaf sama glaðlega og hlýlega viðmótið og yerður aldrei ánægðari, en þegar hann getur leyst einhvers manns erfiðleika eða g'reitt götu ná ungans“. Morgunblaðið veit, að það mæl- ir fyrir munn ailra íslenzkra blaðamanna, þegar það óskar [ Skúla Skúlasyni gæfu og geng- is í framtíðihníj llla gengur að dæla gamalli síld ÍSiglufirði, 18. júlí 1965. STÓR og mikil síldardæla hefur verið sett upp hjá SR á Siglufirði. Áætlað var að hún dældi 1200—1400 málum síldar á klukkustund. Og ætl- unin var að nota þessa dælu til að landa upp úr síldar- flutningaskipum. Uppsetningu dælunnar stjórnaði norskur tæknifræðingur. Síðastliðinn fimmtudag kom svo flutningaskipið Westberg með tæp 4000 mál bræðslu- síldar frá Seyðisfirði. Þá þegar var gerð tilraun til að dæla upp úr flutningaskip- inu, og var það Svisslending- urinn sjálfur hugvitsmaður- inn að þessari dæluaðferð, sem stjórnaði dælunni. á 2—3 klukkustundum, en sá galli er á að blanda þarf svo miklu vatni saman við síld- ina að ekki er viðunandi. Ekki 1 er hægt að losna við vatnið úr henni aftur, því síldin úr flutningaskipinu er yfirleitt það meyr, að vatn samlagast henni að meir eða minna leyti, og þá er þetta orðin mjög léleg vara. Hætt var að dæla að svo komnu máli, og skipið losað á venjulegan hátt. 1 morgun fóru svo hinir er- lendu menn áleiðis til Noregs til að ná í viðbótar útbúnað, sem þeir telja að verði til fullkominna úrbóta, svo hægt verði að dæla þessari gömlu síld. ☆ Fyrstu 10—15 mínúturnar, sem dælan snerist, var af- kastageta hennar mjög mikil, á að gizka 300 tonn á klukku- stund en svo var eins og drægi úr þrótti hennar og af- köstin minnkuðu niður í lítið sem ekki neitt, sennilega vegna þess að gömul og illa farin síldin úr skipinu mynd- aði of mikla mótstöðu vegna „límkenndra" eiginleika, En hvað sem þeirri ágizkun líður fór alltaf að sömu leið. Eftir hvert start gekk vel, en dró síðan úr. Til gamáns má geta þess, að eftir eitt startið „lyft- ist“ skipið á sjónum um 5 tommur á um 10 mínútum. Þegar dælt hafði verið um 2000 málum úr skipinu, var hætt að dæla og skipið losað á venjulegan hátt, undir krana. Ekki þótti árangur dælunn- ar eins og ætlazt var til, Voru gerðar á dælubúnaðinum smá- breytingar, og í liótt sem leið kom annað flutningsskip að austan, Westby. Hófust nú til- raunir á ný, sem sýndu að sennilega mætti losa skipið Þessi dælutegund mun vera sú fyrsta, sem sett er upp í 7 Evrópu, en þær reynast mjög 4 vel á ansjósur í Perú og telur í sá svissneski að hún muni einnig skila 1200—1400 mál- um í afköst á ferskri síld. Svipuð dæla var sett um , borð í sildarflutningaskipið „Gulla“, nú á dögunum á vegum „Raúðku", en það mun vera stærsta síldárdæla, sem sett hefur verið um borð í síldarflutningaskip, áætluð um 1000 mála dæla. ☆ Sl. fimmtudag fengu Rauðkú menn að „æfa“ sig með því að dæla upp úr síldarflutn- ingaskipinu Westberg, og má segja að það hafi gengið vel, svo langt sem það náði, því ekki er gott að dæma um af- kastagetu, þar sem dælt var aðeins stutta stund. En von- andi gengur þetta að lokum allt að óskum, því þessi lönd- unaraðferð er það sem koma skal, þrátt fyrir alla byrjunar örðugleika.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.