Morgunblaðið - 27.07.1965, Side 17

Morgunblaðið - 27.07.1965, Side 17
ÞriSjudagur 2T fðií 1965 MORGUNBLAÐIÐ 17 Hfagiiús Víglundsson rædismaÖur: Menntun og menning er sitt hvaö MAGNÚS Víglundsson, ræðis- xnaður, flutti eftirfarandi ræðu á Skálholtshátíðinni hinn 18. júlí 1965: „Á hillunni er bók. Hún boð- ar trú, sem blessar og reisir þjóðir“. Biskup íslands, herra Sigur- björn Einarsson, kæru sveitungar og aðrir háttvirtir áheyrendur! f minnisstæðri smásögu segir Guðmundur Friðjónsson rauna- sögu, sem gerist á afskekktum bóndabæ á eyðilegri sjávarströnd. Þegar sagan gerist, var ekki ann- að fólk á bænum, en bóndinn og dóttir hans, 10 ára gömul. Skæð landfarsótt herjaði á þessum slóðum, og þar kom, að bóndinn tók sóttina. Þegar honum varð Ijóst að hverju stefndi, tók hann að búa litlu stúlkuna undir hinn óumflýjanlega skapadóm, og mælti að síðustu: „Og svo skaltu lesa faðir vor og þessa vísU, sem ég hefi kennt þér, og einkanlega er gott að hafa hana y" á glugg- ann: Marísusonur, mér er „an,; mjöll af skjánum taktu; yfir mér alltaf vaktu. Lánið bæði og lífið er valt; Ijós og myrkur vega salt. í lágu koti á ljósstýrunni haltu". Og með þennan föðurarf að kjölfestu fékk litla stúlkan hald- ið fleyi sinu á réttum kili, þar til hjálpin barst um síðir. Þessi saga skal ekki lengra eða frekar rakin hér, en ljóst er, að skáldið segir þarna fyrst og fremst sögu þjóðar sinnar á veg- ferð um myrkan og grýttan veg um aldabil, greinir frá raunum hennar og raunabót. Við vitum fullvel, að þegar líf þjóðarinnar blakti sem á skari, var það ein- mitt sá sannleikur, er á bækur var skráður, sem varðveitti lífs- Xieistann og glæddi. Lærdómar trúar og sögu voru íslendingum leiðarljós þegar syrti í álinn, sólin sem jafnan ljómaði þeim að skýjabaki á tím- um hinnar þyngstu lífsreynslu. Ljósið í lágreistu bæjunum slökknaði aldrei, og að lokum rann dagur. — ★ — Það er bjartara um að litast á íslandi nú, en í þann tíma sem saga Guðmundar á Sandi gerist. Margir eru þeir, sem hafa greitt okkur veg til þeirrar farsældar og hagsældar, sem virðist vera hlutskipti okkar nú. Ég hygg þó, að í þessum efnum eigum við fá- um stærri skuld að gjalda, en Jóni biskupi Vídalín. Af öruggri 6annfæringu og frábærri mál- snilld boðaði hann þjóð sinni jöfn um höndum trúna á Guð, trú á sjálfa sig, land sitt o- framtíð. — Olnbogabörn þjóðfélagsins áttu vissulega hauk í horni þar sem Vídalín var, og „enginn íslenzkur prédikari hefur sem hann náð að gera prédikunarstólinn að skjólgarði fyrir munaðarlausa og íátæka“, eins og segir í merkri ritgerð séra Páls Þorleifssonar prófasts á Skinnastað, um Meist- ara Jón og Postilluna. Á sama etað eru tilgreind eftirfarandi ummæli úr erlendri bókmennta- sögu, og réttilega talið, að þau gætu átt við Meistara Jón: „Út úr raunverulegu listaverki á að vera hægt að lesa eitthvað. Það er ekki nóg, að það blasi við augum í tign sinni og tómlæti og geri kröfu til þess eins, að teljast fagurt. Það verður að benda út yfir takmörk síns sjálfs, á gátur, sem hægt er að leysa, dauða hluti, sem vaktir verða til lífs, drauma, sem hægt er að ráða. Lífið sjálft á að speglast í því, seðasláttur þess að heyrast að baki því. Hvenær sem er, og und- ir öllum kringumstæðum á að vera hægt að leggja eyrað við og hlusta. Sérhvert listaverk stefnir að vissu marki. í því liggur raun- verulegt gildi þess, eða með öðr- um orðum: Það stendur maður að baki því, maður með spurn- ingar og svör, hugmyndir og ást- ríður“. Með þessar ströngu kröfur í huga ritaði Jón Vídalín Postillu sína, og hann uppfyllti þessar kröfur. Það er vissulega heill og sannur maður að baki orða hans. — ★ — Á næsta ári eru liðin 300 ár frá fæðingu Jóns Vídalíns; hann fæddist að Görðom á Álftanesi hinn 21. marz árið 1668. Sjálf- gert má telja, að þessa afmælis verði minnzt á eftirminnilegan. hátt; svo mikið á ísland Meistara Jóni að þakka, svo ótrauð fylgdi þjóðin í slóð þessa óskeikula leið- toga um aldabil. Ég vil nú í örfáum orðum ræða þær leiðir, sem mér virðast helzt færar í þessu sambandi, þótt ég geti ekki gert þessu efni full skil í því stutta erindi, sem ég flyt hér í dag. í fyrsta lagi lít ég svo á, að rétt. væri, að gefa út úrval úr Vídalins postillu, handhæga og aðgengi- lega bók, sýnisbók er gæfi glögga mynda af orðlist og lífsskoðun höfundarins. Jónsbók var ís- lenzku þjóðinni hjartfólgnari en nokkar önnur guðsorðabók, að Passíusálmum Hallgríms Péturs- sonar einum undanteknum. Traustar kirkjulegar heimildir greina frá því, að Postilla Vída- líns hafi verið til svo að segja á hverju einasta íslenzku heimili ennþá á ofanverðri 19. öld. Orð Meistara Jóns voru því sæðið, sem sáð var í hjarta og huga alda mótakynslóðarinnar. Vissulega bar sú sáning ríkulegan ávöxt. Nú er hér orðin breyting á: Jóns- bók er yfirleitt ekki lengur í bókahillunni á heimilum þjóðar- innar. Þjóðskáldið Einar Benedikts- son hefur kveðið stórbrotið snilld arkvæði um Meistara Jón, orð hans, lífsskoðun og áhrif á þjóð- ina. í þessu kvæði standa þau orð, sem ég vitnaði til við upp- haf þessara orða: „Á hillunni er bók. Hún boðar trú, sem blessar og reisir þjóðir. Þessi orð staðfesta einmitt það, sem nú var sagt um útbreiðslu Jónsbókar hér á landi. Skáldið minnist bernskudaganna, þegar prédikanir Vídalíns voru vígður þáttur í líftaug þjóðar hans. Freistandi væri, að ræða nánar það sterka svipmót, sem er með þessum tveim höfuðsnillingum ís lenzkrar tungu, Meistara Jóni og Einari Benediktssyni, þótt ekki gefist að þessu sinni tækifæri til þess. Ég geri mér Ijóst, að mikill vándi yrði þeim á höndum, sem tæki að sér að velja kafla úr prédikunum og e.t.v. öðrum rit- um Jóns Vídalíns, þannig að orð meistarans njóti sín fyllilega í smækkaðri umgerð. Engum myndi ég treysta eins vel til að leysa þennan vanda og biskupi íslands, herra Sigurbirni Einars- syni, og ber þar margt til. Ég vona, að þessi hugmynd komist í framkvæmd, þjóðin má ekki glata leiðsögu Meistara Jóns. Ég held, að þessari sýnisbók yrði tekið opnum örmum. Bókin, sem boðar þá trú, sem „blessar og reisir“ á ennþá brýnt erindi við Islendinga, sem munu sannfær- ast um, að meistaraorðin „eiga þann eld og það vald, sem eilíft varir í gildi“. unnið stöðugt að þessum málum síðan, með þeirri atorku og ein- lægni, sem eru svo _ einkennandi fyrir störf hans öll. Ég vil í þessu sambandi minna á, að biskup gaf út timarit, Víðförla, um 10 ára skeið. Tilgangur þessa læsilega tímarits var fyrst og fremst sá, að vekja athygli þjóðarinnar á málefnum og málstað Skálholts. Ýmsum þeim málum, sem hreyft var í Víðförla, þessum góðvini margra okkar, héfur nú verið hrundið í framkvæmd, en oðrum þokað vel á veg. Ég veit, að við óskum þess öll af heilúm huga, að fá að njóta forystu bisk- upsins okkar. um málefni Skál- holts um mörg ókomin ár, og að við munum þar skipa okkur fast um merki hans. — ★ — Tímar harðréttis, þjáninga og einangrunar heyra nú góðu heilli sögunni til. Margir geta nú upp- fyllt óskir sínar eins og hugur stendur til. Vonandi er, að þetta tímabil auðsældar og ytra ör- yggis megi lengi standa. Hætt er þó við að flest okkar fái, eins og forfeður okkar, fyrr eða síðar að reyna sannleik Hávamála, þann „að svo er auður sem augabragílj hann er valtastur vina“. Við slíkar kringumstæðu* verður okkur ef til vill fyrsÉ ljóst, að við eigum frjálsan að- gang að einum sjóði, sem aldreá tæmist: hinn dýrmæti arfur trú- ar, menningar og-bókmennta. ViS skulum um fram allt varðveita og styrkja þann sjóð, svo við 'get- um sótt í hann farareyri' til hverrar háskaferðar, sem atvik og örlög kunna að hafa hverjuna okkar búna. — ★ — Vitur og mikilsvirtur Árnes- ingur sagði einhverju sinni þessi athyglisverðu orð: „Menntun og menning er sibt hvað, þótt oft fari saman, sem betur fer... Vinnum saman að eflingu Skál holts, með helgi staðarins og sögu að leiðarljósi, þannig að heilsteypt íslenzk menning skipi þar öndvegi. Þá getur Skálholt átt sinn rika þátt í, að mennt- un og menning haldist jafnan i hendur á ókomnum tímum. Magnús Víglundsson. Mót fyrir fiskmatsmenn haldið á Sauðárkróki Magnús Viglundsson. Þá skal í öðru lagi á það minnt, að íslendingar hafa ekki ritað samfellda ævisögu Jóns biskups Vídalíns. Við svo búið má tæp- lega lengi standa, svo víða kom biskup við sögu þjóðar sinnar, svo mjög gætti áhrifa hafls á mörgum sviðum þjóðlífsins, einnig utan þess kirkjulega. í þessu sambandi skal þess getið, að Jón Vídalín hafði Hug á að koma fram fjölmörgum umbót- um í atvinnulífi þjóðarinnar, þótt hið sviplega fráfall biskups, fyrir aldur fram, bindi skjótan enda á þau áform. Hinsvegar er engan veginn ólíklegt að skoðanir hans í þessum efnum hafi nokkuð mótað afstöðu Skúla Magnússon- ar landfógeta, Eggerts Ólafsson- ar, Bjöms í Sauðlauksdal og ann- arra, sem hófu viðreisnarbarátt- una er skammar stundir liðu fram. Ég er þess fullviss, að vel rituð ævisaga Jóns biskups Vídalíns myndi ' verða uppbyggileg bók, líkleg til áhrifa og langlífis í land inu. — ★ — Þá kem ég að þriðja og síðasta atriðinu í sambandi við þriggja alda afmælið. Mér finndist vel til fallið og maklegt að reisa Meistara Jóni minnismerki hér í Skálholti. Mætti sú mynd verða stöðug áminning .um að fylgja fordæmi hans, nema orð meist- arans og læra af þeim. Ég veit fullvel, að slík framkvæmd þarf mikinn og margvíslegan undir- búning; beztu listamenn þjóðar- innar þurfa þar, ásamt mörgum öðrum, að leggja hönd að verki, ef vel á að fara. Ánægjulegt ‘væri ef Árnesingar, jafnt í hér- aði sem annarsstaðar á landinu, myndu með sameiginlegu átaki reisa Jóni Vídalín slíkan bauta- stein, og þakka þannig þessum rismesta kennimanni íslenzkrar kirkju frá upphafi vega. Hér í Skálholti féllu orð hans „með afli og hljóm" ævistarf hans er upphaf glæsilegs tímabils í sögu íslands, og sterkur hlekkur í við- burðaríkri sögu Skálholtsstaðar. — ★ — Þá hefur verið drepið á þau verkefni, sem mér virðast koma til álits er heiðra skal minningu Jóns Vídalíns í tilefni þriggja alda afmælis. í þessum efnum mun forystan falla í hlut biskups Islands, svo sem í öðrum þeim efnum, er tengd eru málefnum Skálholts. Það eru nú senn liðnir tveir áratugir síðan, er biskupinn, herra Sigurbjörn Einarsson, hóf markvissa baráttu fyrir endur- reisn Skálholts, og hann hefur Sauðárkróki, 23. júlí — ÞRIÐJ UDAGINN 22. júní var haldið á Sauðárkróki, n.ót fyrir fiskmatsmenn á svæðinu frá Hólmavík til Húsavíkur. Fram- kvæmdastjórar Ferskfiskeftirlits ins mættu ásamt ferskfiskmats- mönnum starfandj á þessu svæði. Frá Fiskmati ríkisins mætti yfir- fiskmatsmaðurinn í vesturhluta Norðurlands og forstöðumenn eft irlitsdeilda Sölumiðstöðvarinnar og Sjávarafurðadeildar SÍS, enn- fremur allmargir matsmenn frystihúsa og framkvæmdastjór- ar þeirra. Aðal verkefni ráðstefnunnar var að samræma gæðamat á flat- fiski í byrjun dragnótavertíðar innar og kynna viðhorf sölusam-. taka frystihúsanna og erlendra kaupenda, svo og að ræða fisk- gæðamatið almennt, og meðferð matvörunnar. Þetta er fyrsta matsmannamót sinnar tegundar sem haldið hef- ur verið siðan Ferskfiskeftirlitið tók til starfa og telja viðkomandi aðilar að það hafi tekizt mjög vel í alla staði og orðið til gagns. — Jón Húsmæðraskólinn aS Löngumýri í Skagafirði. Miklar framkvæmdir á Sauðárkróki Fréttapistill úr Skagafirði Sauðárkróki, 14. júlí. MIKTL veðurblíða heifir verið hér um slóðir það sem af er sumr inu, og enda þótt vorið þætti kalt, er grasspretta orðin góð yfirleitt. Margir bændur hafa þegar hirt tún sín af fyrri slætti. Sauðburður gekk mjög vel, og lítið hefir borið á kvillum í bú- peningi. Meira mjólkurmagn hef- ir borizt til mjólkursamlagsins heldur en noklkru sinni fyrr. Er hér um að ræða 9% aukning frá áramótum til 1. júlí miðað við sama tíma sl. árs. Fiskafli Fiskafli var bókstaflega eng- inn frá áramótum þar til drag- nótaveiðin hófst um miðjan júní- mánuð, en 7 bátar ‘stunda þær veiðar, en afli verið rýr. Gatnagerð Verið er að undirbúa malbik- un Aðalgötu, en það er 360 m. kafli. Auk þess verður sett s>lit— lag á Skagfirðingabraut að Báru- stíg undir yfirumsjón Leifs Hann- essonar verkfr. Verkstjóri er Jó- hann Guðjónsson. Borun Nú í sumar var borað eftir heitu vatni við Áshildarholts- vatn í landi Sjávarborgar. — Boruð var 380 m. djúp hola sem gefur um 20 sekúndulítra af rúm- lega 70° heitu vatni; og síðan hafin borun á annarri holu i landi Sauðárkróks. — Borunin fór fram á vegum Jarðborunar- deildar ríkisins. Byggingar Allmiklar byggingarfram- Framhald á bls. 18 iijiyH' $$$$

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.