Morgunblaðið - 27.07.1965, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 27. júlí 1965
Ovænt frammistaða ísl. unglinga-
landsliðs í leiknum gegn Rússum
Jafntefli í hálfleik en leiknum
lauk með sigri Rússa 2:1
AP: — Halmstad, 24. júlí: —
ÍSLENZKA unglingalandsliðið
kom sannarlega á óvart i leikn
um gegn Rússum, sem fram fór
hér í Halmstad á laugardag sl.
Máttu þeir þakka sínum sæla
fyrir að fara með sigur af hólmi,
Eyleifur — skoraði mark
fslands.
' því þeir skoruðu sigurmarkið, er
aðeins tæplega 15 mínútur voru
til leiksloka. íslenzka liðið sýndi
nú allt annan og betri leik, en á
móti Dönum á fimmtudag sl., er
þeir töpu&u með fimm mörkum
gegn engu, því nú börðust þeir
allan leikinn út í gegn. Uppskera
erfiðisins varð 2—1 Rússum í
vil, en það verður að teljast
mjög góður árangur hjá piltun
um, þegar þess er gætt, að Rússar
eru ein af helztu knattspyrnu-
þjóðum heimsins í dag.
Það hafði rignt skommu áður
en leikurinn hófst og var völlur-
inn því mjög háll. íslendingar
léku varnarleik og lá því heldur
meira á þeim allan leikinn. Af og
til gerðu þeir skyndiáhlaup á
rússneska markið og rétt fyrir
miðjan fyrri hálfleik náði Eyleif
ur Hafsteinsson að skora mark
íslands. Þetta tóku Rússarnir
■ heldur óstinnt upp og gerðu nú
harða hríð að íslenzka- markinu
og tókst að jafna örskömmu síð-
ar. Hélzt leikurínn nokkúð jafn
það sem eftir var hálfleiksins og
voru fleiri mörk ekki skoruð í
honum.
f seinni hálfleik endurtók
sama sagan sig, íslendingar
mynduðu sterkan vamarvegg,
sem rússnesku framherjunum
tókst ekki að rjúfa. íslenzku
framherjarnir gerðu svo öðru
hverju skyndiáhlaup á mark
Rússanna, og um miðjan síðari
hálfleikinn varð mikil
hætta við rússneska markið, þeg
ar einn íslenzku framherjanna
komst í þauðafæri, en honum
mistókst skotið. Svona hélt leik j
urinn áfram og voru menn hálft
í hvoru búnir að ganga út frá því j
sem vísu að hann endaði með j
jafntefli, er Vladimir Naomow j
skoraði sigurmarkið með faliegu i
skoti, þegar tæplega 15 mínútur
voru til leiksloka.
Eins og áður segir, sýndu fs-
lendingar mjög góðan varnarleik
en Rússar höfðu þó alltaf undir-
tökin í leiknum, þrátt fyrir frek
ar slakan leik af þeirra hálfu.
Með ósigri sínum gegn Rússum
hefur islenzka liðið misst alla
möguleika á sigri í mótinu en í
þessum riðli keppa Danir og
Rússar til úrslita. í hinum riðl-
inum hefur Finnland misst alla
möguleika á sigri í mótinu en
þar leika Norðmenn og Svíar til1
úrslita. Sigurliðin í hvorum riðli
munu svo leika til úrslita í mót-
inu.
Akureyri jafnar reikn-
inginn viö Val
Hörkuspennandi barátfuleikur
VEÐUR var ekki gott til knatt-
spyrnu á Akureyri sl. sunnudag,
bvass norðaustan og kalt og völl-
urinn blautur og háll eftir mikla
rigningu. Það var því að vonum
ekki mikið um fína knattspyrnu
Valsstúlka skorar bjá ÍBA.
(Ljósm. Bj. Bj.)
Valsstúlkurnar urðu
Islandsmeistarar 1965
Á SUNNUDAG lauk á Ak-
ureyri íslandsmeistaramóti í
ihandknattleik kvenna utan-
húss, í mfl. og 2. aldursflokki.
Vals stúlkurnar sigruðu í
Mfl. en Keflavík sigraði í 2,
fl. Mótið þótti takasi ved, en
mótsstjóri var Svavar Otte-
sen.
Vals stúlkurnar sigruðu
F.H. í fyrsta leiknum 8:7 og
Í.B.A. sigruðu Valsstúlkurn-
ar einnig og nokkuð auðveld-
lega méð 9:3 Valur á nú báða
titlana í handknattleik
kvenna, utanhúss og innan, í
Mfl.
Keflavíkur sbúlkurnar urðu
meistarar í 2. fl. og voru vel
að sigrinum komnar. Á með
fylgjandi mynd er ein Vals-
stúlkan að skora.
eða nákvæman samleik, en þeim
mun meira af liörkubaráttu og
spennandi augnablikum, þegar ingnum, og ekki voru liðnar
endur býsna margir. Dómari var
Magnús Pétursson.
Akureyringar unnu hlutkestið
og kusu að leika undan strekk-
tækifæri sköpuðust á báða bóga.
Þrátt fyrir kalsann voru áhorf-
nema svo sem tvær mínútur, þeg-
ar þeim tókst að skora. Einar kast
ar frá marki langt fram á völl,
Valsvörnin missir boltann yfir
sig, Kári brunar upp og skorar
með fallegu skoti, sem hinn á-
gæti markmaður Vals réð ekki
við. Síðan er stórtíðindalítið um
sinn, Valsmenn fá ítrekað tæki-
Staðan í
1. deild
KR
Akranes
Valur
Akureyri
Keflavík
Fram
Staðan í
2. deild
A-riðill
Þróttur 6
Siglufj. 6
Haukar 6
Reynir 6
B-riðill
ÍBV 7
ÍBÍ 8
Breiðablik 8
FH
Víkingur
Úr leik Akureyrar og Vals. Þrír fætur á lofti. (Ljósm.: (Bj. Bj.)
I færi, þegar 18 mín. eru af leik,
I en ekkert verður úr. Akureyring-
ar eru mun meira í sókn, og eftir
hálftíma taka þeir fimmta horn-
ið, en hornspyrnurnar nýtast
þeim ekki. Tveim mínútum síðar
kemur fyrsta horn Val. Nokkrum
mín. síðar ver Sigurður ágætlega
hættulegt skot frá Kára og undir
lok hálfleiksins hörkuskot frá
Magnúsi með enn meiri glæsi-
brag. 1:0 í hálfleik, og þykir
mönnum sem sigurmöguleikar
Akureyringa séu ekki meiri en
svo með svo litlu forskoti við
þessar aðstæður.
Valsmenn halda uppi nær lát-
lausri sókn fyrsta þriðjung síðari
hálfleiks, og eftir 10 mín. mun-
aði minnstu, að þeim tækist að
jafna. Þeir fá hornspyrnu — eina
af fjölmörgum í hálfleiknum —•
Hermann skallar vel, og boltinn
sleikir ofanverða þverslána. f
þessari hryðju ver Einar oft vel
mark ÍBA.
Nú ná Akureyringar frum-
kvæðinu og nokkrum sóknarlot-
um. í einu upphlaupinu er Kári
hindraður innan vítateigs. Magn-
ús dæmir vítaspyrnu, og Skúli
skorar örugglega. Miðjuna úr
hálfleiknum eiga svo Akureyring
ar, en þegar síðasti þriðjungur-
inn er eftir, tekst Einari ekki sem
bezt í útkasti, Bergsveinn Alfons-
son nær boltanum og sendir
þrumuskot í markið, áður en Ein
ari hefur haft ráðrúm til að bú-
ast til varnar. Valsmenn tvíeflast
Framhald á bls. 27