Morgunblaðið - 03.10.1965, Blaðsíða 11
Sunnudagur 3. dlrt6ber 1965
MORGUNBLADID
11
Sími 1-30-76.
Luxus einbýlishús
á bezta stað í Laugarási til sölu. Mikil útborgun. Til
boð sendist Morgunblaðinu fyrir 5. október, merkt:
„Stórt — 2439“.
Radio Corporation
of America
Hin eftirsóttu RCA-sjónvarpstœki fyrirliggjandi
af ýmsum gerðum.
Að gefnu tilefni, skal það tekið fram, að RCA-
sjónvarpstækin eru framleidd í Ameríku en fyrir
bæði kerfin — það ameríska og hið evrópska. Vænt-
anlegir kaupendur geri sér þess vegna grein fyrir
því, að RCA-sjónvarpstækin eru fyrir bæði kerfin,
220 volt, 50 rið.
Hverju sjónvarpstæki fylgir ábyrgðarskírteini, þar
sem tekið er fram. að tækin séu gerð fyrir bæði
kerfin, og að ábyrgðin gildi í heilt ár.
RCA-sjónvarpstækin eru seld með greiðsluskilmálum.
Verzlunin Ratsjá hf.
Laugavegi 47. — Sími 16031.
BALLETT JAZZBALLETT
LEIKFIIVfl FRlJALEIKFIMI
Amerískir og enskir BÚNINGAR, bolir,
sokkabuxur og dansbelti frá DANSKIN og
LASTONET.
Enskir BALLETTSKÓR, sefingasaui' og
táskór frá FREED og GAMBA.
ALLAR STÆRÐIR. — PÓSTSENDUM.
Bentína
Stefáns-
dóttir
Á M O R G U N verður gerð frá
Dómkirkjunni útför Bentínu
Stefánsdóttur, Grjótagötu 4.
Hún lézt í Landsspítalanum
undir miðnætti 27. f. m. eftir
fullra tveggja mánaða meðvitund
arleysi vegna heilablæðingar. Bar
veikindi hennar að með snöggum
hætti, er hún var stödd í sumar-
leyfi hjá systursyni sínum, Páli
Þórhallssyni lækni á Raufarhöfn.
Var sem einhver hulin hönd
stýrði ferð hennar þangað norð-
ur, því að oft hafði hún á orði,
að hún vildi að Páll frændi henn-
ar væri henni nærri, ef eitthvað
kæmi fyrir hana. Samdægurs og
sjúkdóm hennar bar að var hún
flutt í Landsspítalann, þar sem
hún beið síns viðskilnaðar. Óska
systkini hennar eftir að mega
þakka læknum og hjúkrunar-
fólki spítalans fyrir frábæra nær-
gætni og hjúkrun henni til handa
og biðja öllu því góða fólki gæfu
og blessunar á óförnum leiðum.
Bentína var dóttir Stefáns Ei-
ríkssonar, myndskurðarmeistara,
og frú Sigrúnar Gestsdóttur.
Eignuðust þau hjón 9 börn er
náðu þroskaaldri, hverfur hér
hið fyrsta þeirra af sjónarsvið-
inu.
Fullu nafni hét hún Friðrika
Bentína og var heitin eftir vina-
fólki foreldra sinna, séra Friðriki
Hallgrímssyni og konu hans
Bentínu. Á öðru aldursári fór
hún í fóstur til móður-móður
sinnar, Aðalbjargar Methúsal-
emsdóttur, að Fossi í Vopnafirði.
Þar dvaldi hún til sextán ára ald-
urs, og hvarf þá aftur til foreldra
sinna og systkina í Grjótagötu,
og skipti aldrei um heimilisfang
eftir það.
A uppvaxtarárum sínum kynnt
ist Bentína við næðing og harð-
rétti sveitalífsins, þó að ástúð
ömmu hennar brygðist aldrei.
(Að Fossi gerðist Heiðarhamur
Gunnars Gunnarssonar, og mörg
önnur sorg, er nú liggur gleymd
undir grónum tóftum).
Er Bentína kom síðast á
bernskuslóðir sínar sá hún glitra
á eitthvað í bæjarlæknum gamla,
sem nú var hættur að gegna
nokkru hlutverki á þessum stað.
Fann hún þar blað af matskeið
ömmu sinnar, sem hún tók með
sér og geymdi sem helgan dóm.
Svo dýrmætir geta verðlausir
hlutir verið. ef þeir minna ein-
hvern á góða konu.
Þegar suður kom var æska
Bentínu senn liðin, og upphófst
nú hennar raunverulega ævi-
starf, samfara skyldum og um-
hyggju fyrir foreldrum og yngri
systkinum. Var henni bæði ljúft
og eiginlegt að vinna öðrum allt
Og gleyma sínum eigin þörfum.
Þannig leið ævi þessarar heil-
steyptu konu, sem ávallt mætti
erfiðleikum annarra með því að
ieggja ögn meira að sér. Fyrst
runnu 29 ár út í sandinn í Fé-
lagsbókbandinu, en að þeim tíma
loknum stofnsetti hún sína eigin
bókbandsstofu í félagi við systur
sína Unni, en þær tvær hafa
ávallt átt heimili saman og höfðu
Framhald á bls. 22.
Fiskbúð — Fiskbúð
Hef opnað nýja fiskbúð að Kambsvegi 18
(hjá Kamskjöri).
Reynt verður að hafa þann bezta fisk og fiskvörur
sem fáanlegar eru á hverjum tíma.
HALLGRÍMUR JÓNSSON.
Nýkomið
glsésilegt úrval af hvítu og mislitu
Vestur-Þýzku
sængurveradamaski
Gæðavara.
Austurstræti 9.
Þetta er vinsæla borðstofusettið, sem teiknað er af
hinum stórbrotna arkitekt Sigvalda Thordarsyni, og
eingöngu er framleitt á húsgagnaverkstæði Helga
Einarssonar.
Kaupendum er bent á að forðast eftirlíkingar, sem
nú eru komnar á markaðinn, og leita eftir merki
framleiðanda á húsgögnum.
Húsgagnaverzlun HELGA EINARSSONAR
Laugavegi 168 — Sími 23855.
Lockheed Avery
Háþrýstislöngur og fittings.
Lockheed Avery er heimsþekkt úrvalsvara.
Vér bjóðum frá Lockheed Avery háþrýstislöngur
og fittings Ya”—2” fyrir:
KRAFTBLAKKIR — FRYSTIHÚS
SKURÐGRÖFUR — LANOBÚNAÐAR-
DRÁTTARVÉLAR OG TÆKI —
VÖKVASPIL — STURTUR O. FL.
Vér munum fúslega veita yður allar nánari
upplýsingar.
Dzáttarvéljr hf.
Suðurlandsbraut 6. — Sími 38-540.