Morgunblaðið - 03.10.1965, Blaðsíða 30
MORCUNBLAÐIÐ
I. DEILD
LAU G ARD ALS V ÖLLUR:
Síðasti leikur ársins á Laugardalsvelli fer
fram í dag kl. 3 þá keppa til úrslita
Akranes — KR.
Verð aðgöngumiða: Stúkusæti kr. 75,
Stceði kr. 50, Barnamiðar kr. 15.
Komið og sjáið mest spennandi leik ársins.
HVOR SIGRAR.
Mótanefnd.
Innheimtudeild Útvegsbanka íslands
er flutt í ný húsakynni á 2. hæð húss
bankans við Austurstræti.
* t
Utvegsbanki Islands
Stúlkur óskast
Verksmiðjan Föt hf.
Hverfisgötu 56. — Sími 10510.
Fasteign — Eignarlóð
Fasteign á eignarlóð í miðbænum til sölu. Þeir sem
hafa áhuga sendi nafn og símanúmer á afgr. Mbl.
fyrir fimmtudag merkt: „Fasteign — 2698“.
Atvinna óskast
Nýstúdent, vanan skrifstofustörfum, vantar vinnu
hálfan daginn eða á kvöldin. Margt annað kemur
til greina. — Upplýsingar milli kL 6—9 í síma
35562.
/
Rafvélavirki óskast
Rafvélaverkstæði S. IUelsteð
Síðumúla 19 — Sími 40526
Byggingortæhniíræðingur
Njnrðvíkurhreppur
Óskum að ráða byggingatæknifræðing. Skriflegar
umsóknir sendist undirrituðum fyrir 5. okt. næst-
komandi. — Upplýsingar 1 símum 1202 og 1473.
Sveitarstjóri Njarðvíkurhrepps.
Jón Ásgeirsson.
Afgreiðslustúlkur
'oskast i lyfjabúð
Skriflegar umsóknir skulu hafa borist fyrir
6. október.
Aðalstræti 4, Reykjavík.
. • —........... (
Sunnudagur 3. október 1965
— -
— Hungursneyð
Framh. af bls. 10.
um næga næringu. Þar er
vandamálið að finna nægan
mat handa þeim 1.600 milljón-
um, sem bætast við íbúafjöld-
ann næstu 35 áur.
Eða tökum Afríku, þar sem
búast má við 151% fólksfjölg-
un á þessari öld. Af öllu þessu
i gífurlega landsvæði er það að-
elns Suður-Afríka, sem talin er
hafa næga næringu i dag að
bjóða ibúum sínum. En Afrika
1 heild, sem í dag verður að
flytja inn matvæli, verður að
ráða fram úr þeim vanda að
finna mat hnda 466 milljónum,
sem bætast við íbúatöiluna fram
til ársins 2000.
1 stuttu máli má segja að
„hungur“-löndin — þau lönd,
sem sérfræðingar álíta að hafi
ekki næga næringu að bjóða
fbúum sínum — hafi innan
landamæra sinna um tvo þriðju
ailra íbúa jarðar, en framleiði
aðeins þriðjung matvælanna.
Og það er einmitt í flestum
þessara landa, sem fólksfjölg-
unin verður mest á komandi
árum.
STRAUMHVÖRF
Það, sem gerir matvælaskort
inn enn alvarlegri, er hvað mat
vælaframleiðsla í vanþróuðu
ríkjunum hefur dregizt saman.
Fyrir aðeins einum mannsaldri
var um offramleiðslu matvæla
að ræða í Asíu, Afriku og Suð-
ur-Ameríku. Flutt voru út mat-
væli frá þessum heimshlutum
til þróaðri landa, einkum til Ev
rópu. Nú hefur matvæ’astraum
urinn snúið við. Vanþróuðu
ríkin, sem áður framleiddu
meiri mat :eli en þau gátu not
að, verða að flytja inn mat frá
þróuðu löndunum.
Ástæðan er sú, að matvæla-
framleiðsla þessara hungruðu,
vanþróuðu landa eykst ekki
jafn ört og íbúatalan. Og í raun
inni var það svo á árunum
1953-1963 að miðað við fólks-
fjölda varð samdráttur í fram-
leiðslunni á þessum svæðum.
VESTRÆNT VANDAMÁL
í samþandi við þessa fólks-
fjölgun skapast enn eitt vanda-
mál, en það er að fólksfjölgun-
in verður minni í kommúnista-
ríkjunum en í hinum frjálsa
heimi. Telja sérfræðingar að
fjölgunin í kommúnistaríkjun-
um muni nema 49% á þessum
tíma, en í frjálsu löndunum
98%. Afleiðingin gæti orðið sú
að matvælaskortur ýtti undir
byltingar í löndum, sem ekki
fylgja kommúnistum í dag.
SKORTUR LANDRÝMIS
Fólksfjölgunin, sem fram-
undan er, skapar ekki eingöngu
matarskort, heldur einni? skort
á landrými. Þegar í dag er víða
of þéttbýlt. Eftirfarandi tölur
sýna íbúafjölda á ferkílómetra
í dag og eins og áætlað er að
hann verði árið 2000:
1965 2000
Asía .............. 280 523
Afríka ............. 67 168
Evrópa ............ 433 497
Suður-Ameríka ...... 80 202
Norður-Ameríka .... 67 106
Ástralía & eyjarnar .. 13 26
Eins og af þessum tölum má
sjá,. verður Norður-Ameríka
áfram einn þeirra heimshluta,
sem býður íbúum sínum hvað
mest landrými. En jafnvel þar
tekur að gæta þrengsla.
ÁLIT SÉRFRÆÐINGA
Er til nokkur lausn á þessu
mesta heimsvandamáli? Tvennt
verður að gera, segja sérfræð-
ingarnir:
1. Auka stórlega matvæla-
framleiðsluna.
2. Takmarka barneignir í
heiminum.
„Þegar til lengdar lætur“,
segir dr. Butz, til dærnis fyrir
lok þessarar aldar, er takmörk-
un barneigna eina lausnin."
En dr. Shiroshi Nasu frá há-
skólanum í Tókió telur að ekki
megi um of treysta á takmörk-
un barneigna á næstu árum.
Segir hann að skilyrði fyrir
þeirri takmörkun sé betri
menntun Vamþróaðra þjóða og
bætt lífskjör, en hvort tveggja
taki langan tíma Og á meðan
verður lítt ráðið við fólksfjölg-
unina. Telur dr. Nasu því frum
skilyrðið að auka sem mest mat
vælaframleiðsluna.
HLUTVERK
BANDARÍKJANNA
Gera má ráð fyrir því að
Bandaríkin verði að taka að sér
veigamikið hlutverk í framtíð-
inni á sviði matvælafram-
leiðslu. En þar hefur framleiðsl
an i undanförnum árum verið
svo mikil að stjórnin hefur
þurft að takmarka komræktun.
Nú virðist þessi stefna stjórn-
arinnar vera að breytast. Hinn
23. sept. sl. flutti Öldungadeild-
aiþingmaðurinn George Mc
Govern frá Suður-Dakota til-
lögu á Bandaríkjaþingi þess
efnis að ríkisstjóminni væri
heimilt að kaupa matvæli þar
í landi og selja þau hungruð-
um þjóðum á undirverði. „ÞaS
er ein mesta þverstæða okkar
tíma að láta helming mann-
kyns svelta meðan við berjumst
við að draga úr offramleiðsl-
unni“, sagði þingmaðurinn. „Ég
álít að við eigum að segja
hungrinu stríð á hendur.......
Við eigum að lýsa því yfir I
dag ,svo allur heimurinn viti.
að við höfum möguleika til auk
innar matvælaíramleiðslu, sem
við erum reiðubúnir að nýta
til fulinustu.*
Vitað er að Johnson forseti
hefur hug á þessu málL Hann
hefur lýst yfir þeirri skoðun
sinni að Bandarikin geti ekki
verið nein „eyja allsnægta14 1
heimi sveltandi þjóða.
Sá tími mun koma að bænd-
ur í Bandaríkjunum verða
beðnir að auka matvæJafram-
leiðslu sína — í stað þess að
takmarka hana.
Borgarness Apotek auglýsir
VÖRUÚRVAL í SÉRVERZLUN.
Dömubindi (margar gerðir, bómull í plastpokum og
„steril“-bómull. INNOXA-snyrtivörur í miklu úr-
vali. — Hárlakk, hárlagningarvökvi, shampoo, —
margar gerðir. — Allt úrvalsvörur.
Önnumst sendingar um nærliggjandi sveitir.
KJARTAN GUNNARSSON, apotekari.
Saumastúlkur
Stúlkur óskast í verksmiðju vora í saumaskap
og frágang. — Upplýsingar hjá verkstjóra.
LADY H.F., Laugavegi 26.
Tösku og Hanskabúðin
Regnhlífar nýkomnar, fínir tízkulitir.
Kuldahanzkar fyrir börn og fullorðna, margar teg.
Skinnhanzkar á góðu verði.
3 tegundir HUDSON stíkkar.
Tösku og Hanskabúðin
við Skólavörðustíg.
H eimasaumur
Kona vön karlmannabuxnasaumi óskast strax.
Tilboð merkt: „Vandvirk — 2694“ sendist afgr.
MbL yfrir 7. október.
PETER SCOTT hrósar
Animals
-HINU HEIMSÞEKKTA TÍMARITI UM
PETER SCOTT, náttúrufræðingurinn
heimskunni, sem m.a. hefur verið við
rannsóknir hér á landi, segir svo um
ANIMALS:
„Þau tvö ár, sem ANIMALS hefur
verið gefið út, hefur það getið sér
ágætt orð meðal náttúrufræðinga og
talsmanna náttúruverndar um allan
heim. Mér er einnig kunnugt, að það
er mikið notað í bókasöfnum, skólum
og dýrafræðideildum háskóla, því að
það birtir allar nýjustu fregnir um
breytingar og nýjungar á sviði dýra-
fræði“.
ANIMALS birtir vikulega greinar og
myndir um margvíslegar hliðar dýra-
lífs um allan heim, Breytingar þess
og þróun, margbreytileika þess og
fegurð. 1 hverju hefti eru 16 lit-
myndasíður, og a.m.k. jafn margar
svarthvítar.
ANIMALS er áreiðanlegt heimildar-
rit, því að viðurkenndir dýrafræðing-
ar og náttúruunnendur um allan
heim sjá því fyrir efni.
Kaupið hefti af Animals strax í dag.
Fæst hjá bóksölum um land allt.
Verð kr. 21,50