Morgunblaðið - 06.10.1965, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.10.1965, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLADID Miðvikudagur 6. október 1965 Fjölsðtt ráðstefna Verkalýðs- ráðs Sjálfstæðisflokksins vebkalýðshAð JTlok ksins efndi til Sjálfstæðls- ráðstefnu á þróun verkalýðsmála á síðari semi féiags síns og flutti Sle ipn- árum, ástand og horf í kaup- isfélögum kveðjur Óðinsmanna. Akureyri um atvinnu- og verka- Hýðsmál um síðustu helgi. Ráð- sstefnan var vel sótt og sátu ihana félagar úr flestum laun- i»egafélögum á Akureyri og við lEyjafjörð og eins frá Siglu- firði. Ráðstefnan hófst kl. 3 sd. á laugardag með setningarræðu Gunnars ’Helgasonar formanns Verkalýðsráðs. Ræddi hann um gjalds- og verðlagsmálum og nýjar leiðir í kjarabaráttu laun þegasamtakanna. I>á tók til máls: Bjarni Bragi Jónsson, hagfr. og flutti erindi er hann nefndi: Samskipti stéttarfélaga og ríkisvalds í efnahags og fé- lagsmálum. Að lokinni ræðu Bjarna talaði Guðmundur Guð- mundsson, form., Málfundafé- lagsins Óðins og sagði frá starf- IMámskeið í sjonvarps- tækni hafið t GÆRKVÖRDI var í fyrsta skipti sett námskeið Iðnskólans í sjónvarpstækni. Á námskeiðinu | verða að þessu sinni 18 nemend- ur, en kennsla fer fram í hús- næði Jóns Sen að Suðurlands- braut 32. Viðstaddir setningu námskeiðs ins voru fiestir þeir, sem unnið hafa að því að koma þessu nám skeiði á fót. Fyrstur tók til máls skólastjóri Iðnskólans, Þór San'dholt. Rakti hann stuttlega sögu Iðnskólans með tilliti til pjtvarpstækni. Sagði hann síðan, að nú væri sjónvarp- ið að verða svo snar þáttur í hinu daglega lífi, að full þörf væri á að mennta menn til þess að halda við þeim sjónvarps- tækjum, sem yrðu í notkun. Þess vegna hefði Iðnskólinn stofnað til þessa námskeiðs og hefði það sýnt sig, að áhugi er mikill á slíku námskeiði, því færri kom- ust að en vildu. Þakkaði skólastjórinn að lok j um öllum þeim, sem stuðlað i hafa að því að koma námskeið- j inu af stað. Sagði hann, að ekki væri hallað á neinn, þó sagt væri, að mestan heiður ætti skilið Jón Sætran, yfirkennari, sem lagt hefði mjög að sér við að efna til námskeiðsins. Sagði skólastjóri síðan nám«keiðið sett. Þá tók'til máls Vilhjálmur Þ. Gíslason, útvarpsstjóri. Þakkaði hann það góða framtak að koma námskeiðinu á fót. Skýrði hann síðan lítillega frá hinu íslenzka sónvarpi, sem hann kvað vera á næstu grösum. Sagði hann, að Ríkisútvarpið vænti góðrar sam vinnu í framtíðinni við sjónvarps virkja, ekki síður en sjónvarps- notendur. Þá tók til máls Sigursteinn Her sveinsson, formaður fræðslu- nefndar Félags íslenzkra útvarps virkja og lýsti ánægju félags- manna með tilkomu þessa nám- skeiðs. Að lokr.um framsöguræðum hófust frjálsar umræður og tóku margir til máls og stóðu umræður fram á kvöld. Fund- arstjóri á þessum fundi var Sig- mundur Magnússon,' vélstjóri Hjalteyri. Ráðstefnunni var svo haldið áfram á sunnudag. Snæddu þátttakendur saman hádegis- verð í Sjálfstæðishúsinu, en fundur hiófst á ný kl. 2 e.h. Flutti þá Jón Þorvaldsson bæj- arfulltrúi ræðu. Ræddi hann m. a. um atvinnumál á Norður- landi og þá miklu erfiðleika, sem skapast hefðu á mörgum stöðum vegna aflaleysis á und- anfornum árum. Að ræðu hans lokinni tók til mál Guðmundur H. Garðarsson form. Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur. Tal- aði hann um þróun atvinnumála hér á landi á liðnum áratugum og hvar þjóðin væri stödd á þessu sviði í dag og hvar telja mætti mesta þörf til úrbóta. Næstur tók til máls: Guðjón Sv. Sigurðsson, form. Iðju í Reykjavík. Ræddi hann m. a. um kjarasamninga og skipulag og starfsemi verkalýðssamtak- anna. Þá talaði Magnús Óskars- son, vinnumálafulltrúi um vinnulöggjöfina. Lýsti setningu laganna og hvað helzt í þeim fælist og hver reynsla hefði orð ið af löggjöf þessari. Þá flutti Halldór Blöndal erindreki ræðu og talaði um atvinnuástandið á Norðurlandi, sem væri víða slaemt. Vék hann síðan að ýms- um tillögum, sem fram hefðu komið til úrbóta í atvinnumál- um. Að framsöguræðum loknum hófust frjálsar umræður er Stóðu til kl. 7 sd., en þá var Norska rlkissfjórnin: Aðeins einn efffSr ráðstefnunni slitið. Fundarstjóri á þessum fundi var Víkingur Guðmundsson, form. Málfunda- félagsins Sleipnis. Á FUNDI þingflokks Hægri- flokksins norska í dag, var ákveðið að Otto Grieg Tidemand, útgerðarmaður í Osló, skyldi verða vamarmálaráðherra í hinni nýju ríkisstjóm Bortens og Sverre W. Rostoft, forstjóri og þinginaður Vestur-Agðabúa, 100 msnns fíirast í járn- brautirs'ysi Durban, S-Afríku, 5. okt. NTB, AP. SEINT í gærkvöldi, mánu- dagskvöld, fór járnbrautarlest út af teinunum skammt frá Durban í S-Afríku og biðu þar bana a.m.k. 81 afríkumað- ur en 130 særðust. Þetta er eitt mesta járnbrautarslys sem orðið hefur í S-Afríku. Einn hvítur maður var far- þegi í þéttsetinni lestinni er slysið varð, og varð vitni að því er æstir Afríkumennirnir irápu vin hans, hvítan braut- irstjóra, sem kom aðvífandi til þess að reyna að aðstoða við björgun hinna slösuðu. Lögreglulið og aðstoðarmenn aðrir unnu alla nóttina og langt fram á dag að björgun- arstörfum Skipuð hefur verið nefnd til þess að kanna orsakir slyss aessa. verði iðnaðarmálaráðherra. Þá cr aðeins eftir að skipa í embætti sjávarútvegsmálaráðherra og er það Miðflokkurinn sem þann mann velur. >á var og kjörinn formaður þingflokksins á fundinum í dag og verður það Svenn Stray. Með- al annarra sem sæti eiga í stjórn þingflokksins er Bernt Ingvald- sen frá Buskerud, sem verða' mun Stórþingsforseti. Hinn nýi varnarmálanáðherra, Otto Grieg Tidemand, er fæddur í Osló, 1921, tók próf frá'verzl- unarskóla Oslóborgar 1941 og herflugpróf ári siðar. Hann gekk ötullega fram í flughernum á stríðsárunum en hefur síðan fengizt við útgerð og skipamiðl- un. Fyrir flokk sinn hefur Tide- mand haft á hendi ýmis trúnað- arstörf og m.a. setið í fjármála- ráði flokksins og miðstjórn hans. Hann hefur verið sæmdur ýms- um heiðursmerkjum. Iðnaðarmálaráðherrann, Sverre Walther Rostoft, verður 53 ára í desember n.k. Hann er fæddur í Glemmen og tók embættispróf í lögfræði 1947 og hefur verið framkvæmdastjóri Kristiansands Mek. Verksted síðan 1945. Hann hefur gegnt fjölda trúnaðar- starfa, og tekið virkan þátt í bæjar- og sveitarstjórnarmálum, og í atvinnulífinu, þá hefur hann látið skipulagsmál mjög til sín taka og m.a. verið formaður sambands norskra iðnrekenda. Hann var fyrst kos- inn á þing 1953 en dró sig í hlé eftir nokkurn tíma. í ár bauð hann sig svo aftur fram og náði kjöri á ný. Kveðja frá Muccio Blaðinu barst í gær eftirfar- andi fréttatilkynning frá Upp- lýsingaþjónustu Bandaríkj- anna: JOHN J. MUCCIO, sem var sendiherra Bandaríkjanna hér á landi frá 1954 til 1959 eða í rúm- lega fimm ár, hefir sent kveðjur i tilefni af því, að þess var minnzt um mánaðamótin, að lið- inn er aldarfjórðungur, síðan á komst stjórnmálasamband milli Bandaríkjanna og íslands. Því miður barst bréf hans of seint til þess að hægt væri að láta kveðjur hans fylgja öðrum orð- sendingum af sama tagi, er send- ar voru blöðunum í sl. viku: „Við fögnum því af heilum hug að geta sent kveðjur til hjartfólginna vina á íslandi þeg- ar þess er minnzt, að stjórn- málasamband íslands og Banda- ríkjanna hefir staðið í aldar- fjórðung. Við Sheila eigum marg ar, dýrmætar minningar um þá innilegu og hlýju vináttu, sem við fengum að njóta meðal ykk- ar. Synir okkar tveir, sem báðir fæddust í Reykjavík, eru sífelld og gleðileg áminning um það einkar ánægjulega tímabil. Við hörmum það mjög að geta ekki verið meðal ykkar til að taka þátt í að halda upp á þessi mikil- vægu tímamót, og einkum að geta ekki farið með drengina, John Patrick og Colum, í heim- sókn til hins stórbrotna lands, þar sem þeir eru fæddir. John J. Muccio“. Max Adenauer lætur af yfirborgarstjórastarfi Dr. Max Adenauer, sem um árabil hefur verið yfirborgar- stjóri í Köln, hefur nú látið af starfi. Ástæðan til þess er hinn algjöri meiri hluti Jafnaðar- manna í borgarstjórninni nú, sem dr. Adenauer hefur orðið að lúta í lægra haldi fyrir, en hann er í flokki Kristilegra demókrata. Það var þó að nokkru leyti fyrir tilstilli Jafn aðarmannaflokksins, að hann i/var kjörinn yfirborgarstjóri ' 1953 en þá veittu þeir honum stuðning sinn. Ættmenn dr. Max Adenauer hafa margir gegnt starfi yfir- borgarstjóra í Köln á þessari öld. Þekktastur þeirra er án. efa faðir hans, dr. Konrad Adehauer, fyrrverandi kanzl- ari V-Þýzkalands, sem enn er formaður stærsta stjórnmála- flokksins þar í landi, Kristi- lega demókrataflokksins. Hann var yfirborgarstjóri í Köln frá 1917—1933. Dr. Max Adenauer er mörg um íslendingum að góðu kunn ur. Hann hefur heimsótt ís- Jand og jafnan haft mikinn Dr. Max- Adenauer áhuga á íslandi og íslenzkum málefnum. Hann -hefur unnið mikið að því að efla teng.sl íslands og V-Þýzkalands, og hann er formaður þýzk-ís- lenzka félagsins í Köln. Hann mun nú taka við stöðu banka stjóra. Surtseyjarmyndin fær enn ein verðlaun SURTSEYJARMYND Osvaldar Knudsens hefur nú enn hlotið verðlaun á alþjóðlegri kvik- myndahátíð erlendis, en hún var fyrir nokkrum dögum sýnd á kvikmyndahátíðinni í Trento á Ítalíu, þar sem sýndar eru land- fræðimyndir víðs vegar að úr heiminum. Osvaldi hefur borizt svohljóð- andi skeyti frá hátíðarnefndinni: „Það gleður mig að tilkynna, að kvikmyndin „Surtur fer sunn- an“ hefur unnið fyrstu verðlaun landkönnunarmynda á mjófilmu. Verðlaunin verða send innan nokkurra daga. Hjartanlegar ham ingjuóskir. — Grassi, ritari fjalla- og landkönnunarkvik- myndahátíðar í Trento á Ítalíu“. Við spurðum Osvald um hver verðlaunin væru, en hann kvaðst ekki vita meira um þetta en stæði í skeytinu. Þessi kvik- myndahátíð hefði verið haldin I Trento í 15 ár í röð og væru þar að jafnaði sýndar fjalla- og land- fræðikvikmyndir víðs vegar að úr heiminum. Hann hefði sjálfur einu sinni áður átt þar mynd, Öskjumyndina, sem sýnd var fyrir 2 árum. Þá voru sýndar þár 28 myndir frá 14 þjóðum. Það er Alpaklúbburinn ítalski, sem stendur að þessari kvik- myndahátíð, en hún er haldin á sama tíma og þing Alpaklifrara. Þangað er ávallt boðið mönnum, sem hafa á árinu aflað sér frægðar fyrir að klífa fjöll og jafnframt eru haldnar sýningar á ljósmyndum og frímerkjum, sem eru í sambandi við fjöll og landslag. Og er þessi kvikmynda- vika í Trento orðin mjög kunn meðal kvikmyndaáhugafólks um heim allan. PAISIAM hefur ferðíá' t!l Khafnar frá Keflaví!; í DAG hefjast fastar áætlunar- ferðir með þotum Pan Ameri- can frá Keflavík til Kaupmanna hafnar um Glasgow. Ferðum félagsins um Island verður nú þannig hagað, að þot- urnar koma hingað á fimmtu- dagsmorgun kl. 06:20 frá New York. Héðan fara þoturnar kl. 07:00 til Glasgow og Kaup- mannahafnar. Samdægurs fara þoturnar frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur um Glasgow og síðan héðan kl. 19:00 til New York. Eingöngu þotur af fullkomn- ustu gerð verða notaðar á þess- um flugleiðum félagsins. Flug- tíminn héðan til Glasgow verð- ur tæpir 2 tímar og frá Glas- gow til Kaupmannahafnar 1% tími. Flugtíminn til New York er 5 !é tími. Á þessum flugleiðum má velja um venjulegt „tourista" farrými og fyrsta farrými. Far- gjöldin til Glasgow og Kaup- mannahafnar verða hin sömu og eru hjá öðrum flugfélögum sem halda uppi ferðum á þess- um flugleiðum, nema hvað fvrsta farrými er lítið eitt dýr- ara. Þess má geta að í október- mánuði býður Pan American sérstök 30 daga fargjöld milli íslands og margra borga á meg- inlandinu. Til Kaupmannahaín- ar er þetta fargjald kr. 6330.00 fyrir báðar leiðir. Til Glasgow kr. 4573.00 sömuleiðis báðar leiðir. Hér við bætist söluskatt- ur eins og hann er á hverjum tíma. Pan American veitir náms fólki afslátt á Evrópuleiðum og býður ýmsa þjónustu eins og t. d. þá, að fargjöld má greióa hér heima og síðan eru farmið- ar afhentir viðkomandi — hvar sem er í heiminum. Pan American heldur nú uppi flugferðum um allan heim. Vélar félagsins lenda í 114 borg um í 86 löndum heims. Aðalumboð Pan American hér í borg upplýsir að auðsætt sé, að íslendingar kunni vel að meta þessa miklu samgöngubat. Hafa þegar borizt fjöldi far- beiðna í næstu ferðir — sérstak- lega til Kaupmannahafnar. Fréttatilkynning frá aðaiumboði Pan Auierican fiugfélagsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.