Morgunblaðið - 06.10.1965, Qupperneq 14
14
MORGU N BLAÐIÐ
Miðvikudagur 6. október 1965
(ítgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 90.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 5.00 eintakið.
SÍLDIN, TÆKNIN
OG VÍSINDIN
Cíldaraflinn fyrir Norðaust-
^ ur- og Austurlandi á þessu
sumri er þegar þetta er rit-
að orðinn um 2,5 milljónir
mála. Síldaraflinn sunnan-
larids mun hins vegar nema
tæplega 800 þúsund málum.
Engum, sem eitthvað þekk-
ir til þessara mála, blandast
hugúr um að þessi mikla síld-
veiði er fyrst og fremst árang-
ur stóraukinnar tækni, full-
kominna veiðiskipa og mikils
dugnaðar og kunnáttu sjó-
mannanna í að beita hinum
nýju tækjum. Á þessu sumri
hefur síld naumast nokkru
sinni sézt vaða, þannig að
hægt hefði verið að kasta nót
á vaðandi síld. Miðað við þau
veiðarfæri og tækni, sem
þekktist fyrir aðeins örfáum
árum, hefði þess vegna sára-
litla eða enga síld verið hægt
að veiða í sumar.
En annað kemur hér einn-
ig til. Það er þáttur vísind-
anna, fiskifræðinganna og
tækja þeirra og aðstoðar-
manna. Vísindamennirnir
segja nú fyrir um göngu síld-
arinnar með miklu meira ör-
yggi en áður. Er óhætt að
fullyrða að aðstoð þeirra og
leiðbeiningar í þágu síldveið-
anna séu ómetanlegar.
Allt ber þetta að sama
brunni. Tæknin og vísiridin
verða að haldast í hendur, og
þau eru þegar í dag orðin
frumskilyrði þess að íslenzkir
bjargræðisvegir verði stund-
aðir með góðum árangri, sem
tryggi fólkinu góð og þroska-
vænleg lífskjör.
Engin ríkisstjórn á íslandi
hefur haft eins glöggan skiln-
ing á þessum grundvallar-
atriðum og Viðreisnarstjórn-
in. Undir hennar forustu hef-
ur hvers konar rannsóknar-
starfsemi og vísindastarf ver-
ið stórlega eflt. Skipulag
rannsóknanna hefur verið
bætt, og auknu fjármagni
varið til þeirra. Vitanlega má
segja, að ennþá meira fjár-
magn hefði þurft og ennþá
stærri skref hefði þurft að
stíga til uppbyggingar vís-
inda- og rannsóknarstofn-
ana í þágu bjargræðisveg-
anna. En allir heilvita menn
vita, að þessi litla þjóð hefur
yfir takmörkuðu fjármagni
að ráða. Hún hefur í ótal horn
að líta, og þarf að sinna upp-
byggingu á fjölmörgum svið-
um þjóðlífs síns. Kjarni máls-
ins er, að stjórn landsins og
forráðamenn bjargræðisveg-
anna hafa fullan skilning á
gildi vísinda og tækni og
vinna ötullegar en nokkru
sinni fyrr að hagnýtingu
beirra.
FJÖLGUN MANN-
KYNSINS OG
MATVÆLA-
FRAMLEIÐSLAN
Fhtt mesta vandamál jarðar-
^ búa í dag er hin gífur-
lega hraða fjölgun mann-
kynsins. Á þessu ári er talið
að íbúar jarðarinnar séu um
3,3 milljarðar talsins. Af þeim
búa 214 milljónir í Norður-
Ameríku, 245 milljónir í Suð-
ur-Ameríku, 678 milljónir í
Evrópu, 309 milljónir í Af-
ríku, 1800 milljónir í Asíu og
18 milljónir í Ástralíu.
Árið 2000, eða eftir 35 ár er
hins vegar gert ráð fyrir að
jarðarbúar verði orðnir um
6 milljarðar. íbúum Norður-
Ameríku mun þá hafa fjölg-
að um 64%, íbúum Suður-
Ameríku um 157%, íbúum
Evrópu um 15%, íbúum Af-
ríku um 151%, íbúum Asíu
um 89% og íbúum Ástralíu
um 68%.
Tölur þessar eru byggðar á
upplýsingum frá Sameinuðu
þjóðunum.
Sú staðreynd blasir þess
vegna við, að íbúar jarðar-
innar muni allt að því tvö-
faldast á næstu 35 árum. Það
þýðir að þörfin fyrir matvæli
mun jafnframt tvöfaldast á
þessum sama tíma.
Þá rís sú spurning, hvort
það sé mögulegt að auka mat-
vælaframleiðsluna svo stór-
kostlega, og ef þeir möguleik-
ar eru ekki fyrir hendi, hvort
þá sé hungursneyð framund-
an?
Alvarlegasta staðreyndin í
sambandi við hina gífurlegu
fólksfjölgun er, að. fólkinu
fjölgar langsamlega mest
meðal fátækustu og frum-
stæðustu þjóðanna, þ.e.a.s.
meðal þjóða Suður-Ameríku,
Afríku og Asíu. Stór hluti
þessara þjóða býr við tilfinn-
anlegan matvælaskort.
Þjóðjx Norður-Ameríku,
Evróþu og Ástralíu geta auð-
veldlega aukið matvælafram-
leiðslu sína stórkostlega og
fullnægt þar með sínum eigin
þörfum.
-Allt veltur á því að nægi-
leg samvinna takist milli
þeirra og hinna frumstæðari
þjóða í baráttúnni gegn
hungrinu. Því miður virðist
fjölmennasta þjóð heimsins,
Kínverjar, enga samvinnu
vilja við vestrænar þjóðir,
hvorki á sviði matvælafram-
leiðslu, heilbrigðismála eða
80 milljónaborgir á jöröinni
ManiikYninu íjölgar um þriðjung
á mannsaldri
JARÐARBÚUM fjölgaði um
þriðjung á einum mannsaldri,
þ.e. frá 1930 til 1963. Rúmur
helmingur þessarar fjölgun-
ar átti sér stað í Asíu. í>ar
fæddust rúmlega 63 nýir
íbúar á hvern ferkílómetra.
Aðeins á fyrstu þremur ár-
um þessa áratugs fæddust í
heiminum 170 milljónir
barna, segir í yfirliti yfir síð-
ustu rannsóknir Sameinuðu
þjóðanna á þessum vett-
vangi.
Árbók Sameinuðu þjóð-
anna 1964 um fólksfjölda í
heiminum hefur að geyma
skýrslur frá 140 löndum og
80 landsvæðum um land-
rými, fólksfjölda, fæðingar,
dánartölu, brúðkaup, hjóna-
skilnaði og efnahagskjör
íbúanna.
80 milljónaborgir
í heiminum eru nú 80
milljónarborgir. Fyrir 20 ár-
um var tala þeirra aðeins 30.
Sextán borgir hafa meira en
3 milljónir íbúa. í Kína eru
14 milljónarborgir, en í
Evrópu eru þær samtals 17.
Borgir með meira en 3
milljónir íbúa eru: Tókíó,
New York, Sjanghai, Moskva,
Chicago, Lundúnir, Bombay,
Peking, Kaíró, Rio de Jan-
eiro, Tíentsin, Sao Paulo,
Osaka, Mexíkóborg og Kal-
kútta.
Kaíró er nú stærsta borg
Afríku með 3,5 milljónir
íbúa. Tókíó er enn stærsta
borg heims, með 8,7 milljónir
íbúa. París hefur enn ekki
náð þriggja milljóna mark-
inu, en þar búa nú 2,7 millj-
ónir manna.
Barnadauði minnstur
í Svíþjóð
Á síðustu árum hefur tala
fæðinga aukizt í 15 Evrópu-
löndum, m.a. í Danmörku,
Noregi og Sviþjóð. Barna-
dauði hefur minnkað í 113 af
180 löndum og landsvæðum.
>ó deyja enn um 200 af
hverjum 1000 nýfæddum
börnum í löndum eins og
Malí, Miðafríkulýðveldinu,
Kongó (Brazzaville) og Níg-
er.
f Svíþjóð er dánartala
barna lægst, )5 á hver 1000
nýfædd börn.
Konan lifir lengur
í öllum löndum nema fjór-
um — Ceylon, Kamibódju,
Indlandi og Efri-Volta — get
ur konan vænzt lengri líf-
daga en karlmaðurinn. I
Bandaríkjunum á nýfætt
stúlkubarn að jafnaði 73 ævi-
ár fyrir höndum, en svein-
barn 67 æviár.
. í Indlandi getur nýfætt
stúlkubarn hins vegar vænzt
þess að lifa aðeins um 41 ár,
en sveinbarn 42 ár. Hins ber
þó að gæta, að hinn mikli
barnadauði lækkar meðalald-
urinn til muna. Þannig er
t.d. meðalaldur karlmanna í
E1 Salvador 45 ár, en sé
reiknað með þeim sem lifa
fyrsta æviárið hækkar meðal
aldurinn upp í 52 ár.
Færri brúðkaup
Hæsta tala brúðkaupa á
hverja 1000 íbúa er í Evrópu
og Sovétríkjunum. í 75 lönd-
um hefur hlutfallstala brúð-
kaupa lækkað síðan 1960, t.d.
í nálega öllum löndum Mið-
og Suður-Ameríku. í Banda-
ríkjunum og Kanada hefur
talan aftur á móti hækkað.
Tala hjónaskilnaða í Evrópu
sveiflast milli 2 og 10 á
hverja 5000 íbúa. í Banda-
ríkjunum koma 11 hjóna-
skilnaðir á hverja 5000 íbúa,
en í Mið- og Suður-Ameríku
aðeins 1—2 skilnaðir.
1000 milljónir jarðar-
búa ólæsar
Um 40 riki áttu fulltrúa á
alþjóðaráðstefnu menntamála
ráðherra sem UNESCO
gekkst fyrir í Teheran dag-
ana 8.—19. sept. að frum-
kvæði Íranskeisara. Sam-
kvæmt síðustu skýrslum
UNESCO eru nú 700 milljón-
ir jarðarbúa ólæsar, en séu
hinir hálfólæsu teknir með
verður talan 1000 milljónir.
Ráðstefnan fjallaði um
vandamál ólæsis í heiminum.
i
i
i
i
Kynþáttaóeirðir hafa staðið a ð undanförnu í bænum Crawf ordville í Georgiufylkl i Banda
ríkjunum. Þessi mynd var tekin þar fyrir fáeinum dögum, og sýnir hún lögreglumenn
skilja hvítan ungling (t. h.) og mannréttindabaráttumann e inn.
menningarmála. Það er hinn
ofstækisfulli boðskapur hins
alþjóðlega kommúnisma, sem
er erfiðasti þröskuldurinn í
baráttunni gegn skorti og
vannæringu meðal hundruð
milljóna manna í heiminum í
dag.
ÓPÓLITÍSK
ÚTGÁFUSTARF-
SEMI
fpíminn í gær fárast yfir því
að Almenna bókafélagið
hefur gefið út rit Bjarna
Benediktssonar „Land og lýð-
veldi“ og segir m.a. að bein-
ast lægi við „að Almenna
bókafélagið gæfi út í.bók ræð-
ur Hermanns Jónassonar“. —
Þetta er mjög athyglisverð og
góð hugmynd hjá Tímanum
og mundi Mbl. fyrir sitt leyti
stuðla að því, að ræður Her-
manns yrðu gefnar út á veg-
um Almenna bókafélagsins
eða einhvers annars útgáfu-
fyrirtækis — auðvitað að því
tilskildu að Hermann Jónas-
son tæki saman eftir sig í
slíka bók efni, sem honum
fyndist sér samboðið. Að því
leyti getur Mbl. tekið undir
ummæli Tímans.
Almenna bókafélagið er
ópólitískt útgáfufélag og
sitja í bókmenntaráði þess,
Stjórn og fulltrúaráði menn
úr ýmsum flokkum, með ólík-
ar skoðanir, þ. á m. Fram-
sóknarmenn. Útgáfustarfsem-
in mótast af ýmsum sjónar-
miðum, en auðvitað leggja
forráðamenn fyrirtækisins á-
herzlu á að gefa út þær bæk-
ur sem erindi eiga á markað,
án tillits til þess hvort stjórn-
málamenn eiga í hlut eða
aðrir.