Morgunblaðið - 06.10.1965, Side 28
Helrningi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
\
Lang stærsta og
fjölbreyttasta
blað landsins
Hlýlegar mdttökur í Grimsby
Grimsby, 5. okt. AP.
HINGAÐ kom sendinefnd frá
íslandi undir forystu Geirs Hall-
grímssonar borgarstjóra Reykja
víkur snemma dags í sex daga
vináttu'heimsókn til Grimsby.
Borganstjóri Grimsiby tó'k á
móti sendinefndinni við borgar-
hiiðin ásamt hinni íslenzku konu
sinni Kristínu, en sendinefndin
kom þangað ekki .fyrr en eftir
miðnætti að loknum akstri frá
flugveliinum í London. Heim-
sókn þessi er m.a. til þess gerð
áð sýna að ekkert eimi eftir af
kala þeim er myndaðist í þorska
stríðinu svonefnda, þegar togarar
frá Grimsby og skip íslenzku
Jandhelgisgæzlunnar áttu í á-
tökum.
Kristín borgarstjórafrú Petc-
i heil, sem fædd er á Akranesi
| mun aðstoða mann sinn í kynn-
ingu hinna íslenzku fulltrúa og
| brezkra togaraeigenda í Grims-
by;
Islenzka sendinefndin mun
sitja ýmis boð í Grimsby og skoða
| þar mörg fyrirtæki og stofnanir
j og sitja boð borgarstjórnarinnar.
Togaraeigendur í Grimsby
héidu í kvöld boð fyrir borgar-
stjóra Reykjavíkur og fvlgdarlið-
. hans og flutti borgarstjóri Grims
by, Denyis Petehell við það tæki
færi ræðu og sagði m.a. „brezk-
ur sjávarútvegur á íslandi á
ómietanlegar þakkir að gjalda
fyrir hjálp þeirra við brezka
sjómenn á hættustundum. Við
munum aldrei gleyma þeim fórn
um er íslendingar hafa fært né
því sem þeir á sig hafa lagt til
bjargar brezkum sjómönnum við
mörg tækifæri og á stundum
ekki hirt um eigið Mf þeim til
hjálpar".
Á morgun mun Geir Hallgríms
son borgarstjóri færa borgar-
stjórn Grimsby málverk er sýn-
ir íslenzka sjómenn að verki.
Enn góð veiði fyrir austan
ENN er góður síldarafli fyrir í
austan og mörg skip með yfir
1000 tunnur og mál sl. sólar-
hring. Dalatangi sagði í gær-
kvöldi að sama blíðan væri á
miðunum og skipin farin að
kasta síðari hluta dags í gær
og mikið kastað með kvöld-
inu. Leit út fyrir góðan afla.
Gert er ráð fyrir að með nótt-
inni fari mörg skip norður til
Raufarhafnar til að losna við
aflann þar sem löndunarstöðv
un er á flestum Austfjarða-
höfnum.
Ekki er enn kostur að vita raun
verulega hve mikið er búið að
salta, því síðustu daga hafa stöðv
arnar haft svo mikið að gera að
þær hafa ekki getað gefið síldar-
útvegsnefnd upp tölur. Hitt er
ljóst, að mjög nálgast nú það, að
saltað verði upp í samninga, en
þeir voru allt að 440 þúsundum
tunna. Vitað er að búið er að
salta meira en 350 þúsund tunn-
ur, en markaðsmál síldarkaup-
enda okkar hafa breytzt við til-
komu hins mikla haústafla.
Sóiarhringinn fram að gær-
morgni fengu 52 skip samtais
um 55 þúsund mál og tunnur
og fengu þessi skip yfir 1000
mál og tunnur. Garðar GK 1500
tn., Heimir SU 1400, Gjafar VE
1450, Pétur Sigurðsson RE 1300,
Haustmót TafE-
félagsins
HAUSTMÓT Taflfélags Reykja-
víkur hefst föstudaginn 8. októ-
ber n.k. kl. 8 síðdegis í sam-
komusalnum að Þingholtsstræti
27. Keppt verður í Meistara-, I.
og II. flokki. Sigurvegara móts-
ins mun að öllum líkindum
verða boðin þátttaka í alþjóð-
legu skákmóti, er fram fer í
Reykjavík eftir næstu áramót.
Jörundur II RE 1400, Jörundur
III RE 2000, Bjartur NK 1800,
Huginn II VE 1000, Skagfirðing-
ur OF 1100, Fróðaklettur GK
1600, Guðrún Þorkelsd. SU 1000,
Margrét SI 1000, Ásþór RE 1500,
Viðey RE 1100 mál, Hólmanes
SU 1000, Þórður Jónasson EA
1500, Guðbjartur Kristján IS
1000, -Gullver NS 1400, Barði
NK 1200, Oddgeir ÞH HOO,
Arnar RE 1200, Gullfaxi NK
1300, Ögri RE 1200, Helgi Fló-
ventsson ÞH 1150, Loftur Bald-
vinss. EA 1200, Björgúlfur EA
1100, Ingiber Ólafss. H GK
1500, Sigurborg SI 1350, Sig.
Bjarnason EA 1200, Fagriklett-
ur GK 1000, Halkion VE 1800.
Á Eskifirði hefur verið saltað
í 35.573 tunnur alls, sem skiptist
svo niður á 4 stöðvar: Auðbjörg
15.808, Askja 5.500, Bára 7.500
og Eyri 6.765 tunnur.
Tekið hefii1 verið á móti 183
þúsund málum í bræðslu og nokk
uð hefir farið í frystingu.
Ekkert var tekið til móttöku
í gær nema hvað Guðrún Þorkels
dóttir kom með véibilun og 1000
tunnur síldar, sem reynt verður
að losa úr skipinu.
Á Vopnafirði var heildarsöltun
í gær á einstökum stöðvum þessi:
Hafblik 3.882 tunnur, Austur-
borg 2.683, Auðbjörg 6.024 og
er hætt söltun, og loks söltunar
stöð Kristjáns Gíslasonar með
3.628 tunnur. Á rúmum hálfum
öðrum síðasta sólarhring hafa
komið 26 skip þar inn í höfnina
með bræðslusíld og hafa nokkur
skip beðið löndunar.
Á Bakkafirði er bræðsla hinn
ar litlu bræðslu, sem þar er, í
fullum gangi. Á verksmiðjan nú
6400 mál í þróm og eru þær
fullar, sem þýðir 10 daga
vinnslu fyrir verksmiðjuna. Þar
eru til 6—800 tómtunnur og ætl
unin að taka á móti síld til sölt-
unar.
Skortur er á tómtunnum á
Vopnafirði og er verið að flytja
þær þangað frá Raufarhöfn.
Að ganga
yfir götu
MARGIR halda að það sé eng-
inn vandi að ganga yfir götu,
og margir halda enn, að ekki
þurfi að fara eftir neinum regl
um, þegar gengið er yfir götu.
Hve margir hafa gert sér í
hugarlund öll þau slys, sem
hlotizt hafa af því einu, að
ganga vitlaust yfir götu, eða
ana út á götu, út í umferð,
þar sem bílar koma frá háðum
hliðum, eftir tveimur akrein-
um frá hvorri hlið? Gangandi
fólki er nauðsyn, að gera sér í
hugarlund hverju það kann
að valda í ■ umferðinni. Allir
halda að það séu bilstjórarnir,
sem slysunum valda. En stand
ið við götuljósin, og sjáið
hvernig fólkið álpast yfir á
rauðu ljósi! Sjáið, hversu lít-
ils það metur merktar gang-
brautir yfir götu. — Sjá bls. 3.
Bancsslys i
Ófeigsfirði
ÞAÐ slys varð norður í Ófeigs
firði á Ströndum sl. mánudag
að 16 ára piltur, Guðmundur
Guðmundsson Péturssonar,
bónda í Ófeigsfirði, varð und-
ir bjargi, er féll á hann ofan,
og beið hann bana.
Nánari tildrög slyss þessa eru
þau, að fjórir menn fóru á báti
að huga að reka í Ófeigsfirði fyr
ir bóndann þar, Guðmund Pét-
ursson. Var þetta gert í þann
mund er Guðmundur hugðist
flytjast á brott úr Ófeigsfirði vest
ur til Bolungarvíkur til að setj-
ast þar að.
Flugráð mælir gegn
beiðni Alberts
SVO sem frá hefir verið
skýrt í fréttum hefir Albert
Guðmundsson heildsali sótt
um leyfi til yfirstjórnar flug
mála hér á landi til að hefja
flug með þotum milli íslands
og Bretlands.
Flugráð fjallaði um leyfis-
beiðni þessa á fundi sínum í
fyrradag og hefir blaðið fregn-
að að það hafi mælt gegn
henni. Hinsvegar liggur það f
hendi flugmálaráðherra, hvort
leyfið verður veitt, þar sem ráð-
ið er aðeins ráðgefandi um
slíkar leyfisveitingar.
Mbl. átti í gær tal við flug-
málaráðherra, Ingólf Jónsson,
og innti hann eftir því hvaða
afstöðu ráðuneytið myndi taka
í málinu og vildi hann ekkert
um það segja, þar sem ráðu-
neytinu hefði ekki borizt erind-
ið um afgreiðslu málsins hjá
flugráði.
í hópi rekamanna voru tveir
synir Guðmundar þeir Pétur og
Guðmundur. Komu þeir í vík
eina norður í svonefndum Básúm
í Ófeigsfjarðarlandi. Ætlaði Guð
mundur Guðmundsson að ráðast
til uppgöngu úr víkinni á bakka
nokkurn, sem þar er fyrir ofan,
og ekki er mjög hár. Héldu fé-
lagar hans á brott í sama mund
og hann gekk upp. Þurfti hann
að klifra hjá bjargi einu upp,
sem svaraði rúmri mannhæð. í
þann mund er hann fer með bjarg
inu mun það ^hafa fallið yfir
hann og hann orðið undir því.
Félagar hans voru þá komnir i
aðra vík og heyrði Pétur bróðir
hans skruðninga, er hann átti
ekki von á og kallaði til Guð-
mundar, en hann svaraði ekkn
Skeði það í sama mund og bjarg-
ið féll yfir Guðmund. Sneru
þeir félagar þá þegar til baka
og sáu hvað orðið hafði, en gátu
þar ekki að gert. Fengu þeir
hjálp frá Eyri 1 Ingólfsfirði til
þess að ná bjarginu ofan af Guð
mundi. Tókst það með krafttalí-
um, en járnum varð ekki við
komið. Talið er að bjargið, er
féll ofan á Guðmund, hafi verið
um hálft tonn að þyngd.
Sem fyrr segir var Guðmund-
ur Péturssop að flytja brott úr
Ófeigsfirði og var ,ætlunin að
kanna rekann áður en hann
færi. Guðmupdur og kona hana
áttu 5 syni og 3 dætur. Var Guð-
’mundur yngri næst elztur son-
anna.
Erling Bl. Bengtsson ■
tönleikaferð híngað
arstjórans HannikaineiyS og
ennfremur mun hann halda
tvenna tónleika með Árna
Kristjánssyni við píanóið
og eru öll verk Beet-
hovens fyrir cello og
píanó á efnisskránni, þar
á meðal fimm sónötur. Þá
mun hann einnig halda tón-
leika á ísafirði og á Akur-
eyri. „Ég mun leika á
hverju kvöldi að heita má“
segir hann. — Rytgárd.
CELLOLEIKARINN Erling
^Blöndal Bengtsson, prófessor
við Konunglega tónlistar-
skólann í Kaupmannahöfn,
leggur af stað á laugardag
flugleiðis í hálfsmánaðar
tónleikaferðar til íslands.
Hann mun m. a. leika C-
dur konsert Haydrts fyrir
cello og hljómsveit með Sin-
fóníuhljó'msveit íslands, und-
ir stjóm finnska hljómsveit-
Ársneyzla smjörs
liggur hér í birgðum
HÉR liggja nú smjörbirgðir
sem nema 1200 tonnum og
svarar það til ársneyzlu ís-
lendinga á smjöri, en hún er
11—1200 tonn eftir því sem
Éramleiösluráð hefir gefið
upp.
Talið er að sala jurtasmjör
líkis, sem kom á markaðinn
á þessu ári, hafi haft nokkur
áhrif á smjörneyzluna sam-
fara því að dýrafeiti er af
sumum sérfræðingum ekki
talin heppileg fyrir þá, sem
innivinnu stunda, og hafa
litla líkamshreyfingu. Sala
smjörlíkisins nemur sem
svarar 2—300 tonnum á ári
og veldur því mjög litlu um
smjörbirgðirnar.
Blaðinu er ekki kunnugt
hvort reynt verður að selja
smjörið á erlendum markaði.