Morgunblaðið - 20.10.1965, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 20. október 1965
Ný glæsileg niöursuöuverk-
smiðja í Hafnarfirði
Selur framleiðslu sína undír merki norsku BjeSIandsverksmiðjanna,
46King Oscar4% og kemst þannig inn á Bandaríkjamarkað
vegar hefði verksmiðjan kost-
að rúmlega 30 milljónir
króna. Þá sagði Andrés,
að starfsfólk verksmiðjunnar
væri nú tæplega 50 manns en
yrði, er full afköst næðust um
90 manns.
Aðspurður um það, hvort
'það svaraði kostnaði að flytja
síld að austan til verknmiðj-
unnar, kvað hann flutningana
of dýra. Flutningskostnaður
væri ekki undir 2 kr. á hvert
kg og því enginn grundvöllur
fyrir slíka flutninga.
í stjórn Norðurstjörnunnar
í Hafnarfirði eru: Árni
Kristjánsson, stjórnarformað-
ur, ólafur Johnson, Pétur
Pétursson, en framkvæmdar-
stjóri verksmiðjunnar er eins
og áður er getið Andrés Pét-
í HAFNARFIRÐI er ný og
glæsileg niðursuðuverksmiðja,
er ber nafnið Norðurstjarnan.
Þar er niðursoðin síld undir
vörumerkinu King Oscar, en
það vörumerki er eign norska
fyrirtækisins Chr. Bjelland &
Co. a/s í Stavanger.
Fyrir nokkru fór Árni
Kristjánsson, stjórnarformað-
ur Norðurstjörnunnar til
Stavanger og ræddi við for-
ráðamenn Chr. Bjelland & Co.
og sarrtdist þeim svo, að Norð-
urstjarnan framleildi niður-
soðna síld, undir merki norska
fyrirtækisins, sem síðan tæki
að sér að selja framleiðslu-
vöruna á mörkuðum sinum.
Chr. Bjelland & Co. er elzt
allra niðursuðufyrirtækja á
Norðurlönlum, 80 ára gamalt
og því reynsluríkt óg áhrifa-
mikið á bandarískum mark-
aði. Aðalskrifstofa þess í
Bandaríkjunúm er í New
York, en umboðsmenn þess
eru í öllum helztu borgum
Bandaríkjanna og hafa þeir
sér til aðstoðar um 650 sölu-
menn.
Til tæknilegrar aðstoðar við
uppsetningu verksmiðjunnar í
Hafnarfirði hafa verið hér að
undanförnu frá Chr. Bjelland
& Co. þeir Christian Bjelland,
sonarsonur stofnanda fyrir-
tækisins og núverandi for-
stjóri þess og stjórnarformað-
ur, Douglas H. Fraser, sölu-
stjóri í Bandaríkjunum, Odd
Danielsen, yfirverkfræðingur,
R. Jörgensen, framkvæmdar-
stjóri rannsóknarstofu verk-
smiðjanna og O. Halleland
verkstjóri. Er reynsla þessara
manna að sjálfsögðu Norður-
stjörnunni ómetanleg eins og
Árni Kristjánsson stjórnar-
formaður komst að orði.
Andrés Pétursson fram-
kvæmdarstjóri sýnir okkur
verksmiðjuna. Fyrst komum
við í stóran móttökusal, þar
sem unnt er að taka á móti
600 tunnum síldar. Síldin fer
síðan í flökunarvélar, þar sem
hún er afhreistruð og þvegin.
Berist meira magn að en verk-
smiðjan getur annað eru flök-
■ in, sem umfram eru djúpfryst
og er geymslurými fyrir 750
tonn af flökum í stórum
frysti og er þar 23 stiga frost.
Flökunarvélarnar afkasta 20
tunnum síldar á klst. hver
Stúlkan heldur á framleiðsluvörunni fullunninni.
Fremst á myndinni eru dósalokunarvélarnar. Fjær, rétt hægra megin við miðju m.yndar-
innar, eru stúlkur, er setja síldina í dósir. Stóri ferstrendi kassinm, sem nær upp til lofts í
salnum er reykofn, þar sem síldin er reykt og soðin í gufu.
og eru vélarnar þrjár. Andrés
sagði, að bezta síldin væri
250 g síid og væri afkasta-
geta vélanna þá fullnýtt. Úr
flökunarvélunum fer svo síld-
in í svokallaðan saltpækil og
þaðan í reykofn, þar sem hún
er jafnframt soðin í gufu. Er
hún um 30 til 40 mínútur í
ofninum, eftir stærð og fitu-
magni. Þegar síldin kemur úr
ofninum er hún sett í dós og
fara að meðaltali 105 g í dós-
ina. Þegar rétt vigt er
komin á hverja dós fer hún
í eina af fjórum lokunarvél-
um, sem hver getur lokað
20000 dósum á dag miðað við
10 klukkustunda vinnu. Úr
lokunarvélunum fer dósin í
gerilsneyðingu, þar sem hún
er soðin í 80 mínútur við 120
stiga hita. Síðan er dósin kæld
og sett í fallegar umbúðir. Er
pökkunin framkvæmd í vél-
um.
Dósirnar eru framleiddar í
verksmiðjunni sjálfri. Efnið í
þær, sem er alúmín er flutt
inn og geta' dósavélarnar fram
leitt 40000 dósir á dag, séu
þær í gangi í 10 klukkustund-
ir.
Aðspurður sagði Andrés, að
heildarverðmæti verksmiðj-
unnar verði, er hún er komin
í fullan gang á milli 40 og 50
milljónir króna á ári. Hins
Dósunum pakkað inn.
Stjórn Norðurstjórnunn.ar ásamt fulltrúum Bjellandsverksmiðjanna taldir frá vinstri: ÓlafurJohnson, Pétur Pétursson,
Danielsen, yfirverkfræðingur, Arni Krlstjánsson, stjórnarformaður, Christian Bjelland, Douglas H. Fraser, sölustjóri í Banda
rikjunum, O. Halleland, verkstjóri og R. Jörgensen, yfirmaður rannsóknarstofu Bjellandsverksmiðjanna,
(Ljósmyndirnar tók Ól. K. Magnússon).
ursson.
Christian Bjelland sagði, að
erfitt væri að hefja starfsemi
slíkrar verksmiðju, þar eð allt
starfsfólk væri óæft. Hins'
vegar kvað hann æfinguna
koma fljótt og ýkjust þá af-
köst verksmiðjunnar stórum.
Hann kvað þessa verksmiðju
einhverja hina nýtízkulegustu
í heimi af þessum stærðar-
flokki. Hann kvaðst vona, að
samvinna sú, er nú hefði haf-
izt myndi blómgast þannig, að
unnt yrði að hefja framleiðslu
fleiri vörutegunda í framtíð-
inni.
Bjelland verksmiðjurnar í
Noregi eru 10 talsins og á veg-
um fyrirtækisins vinna um
1300 verkamenn. Velta Bjel-
landsverksmiðjanna er um 60
miiljónir norskra króna. Sölu-
Framhald á bls. 14