Morgunblaðið - 20.10.1965, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.10.1965, Blaðsíða 31
MiðvikucfagW 20. október 1965 MORGU N BLAÐIÐ 31 Forsætisráðherrar Horðurlanda hittast Helsingfors, 19. okt. — NTB — * DAGANA 29. og 30. októ- ber koma forsætisráðherrar Norðurlanda og forsetar Norð urlandaráðs sáman til fundar í smábænum Imatra í Finn- landi — en hann er aðeins 10 kílómetra frá sovézku landa- mærunum. Verða þar rædd ýmis hagsmunamál Norður- landanna og undirbúinn næsti fundur Norðurlandaráðs, sem halda á í Kaupmannahöfn í janúar nk. Á fundinum hit'tir hinn nýkjörni forsætisráð- herra Noregs, Per Borten, for- sætisráðherra hinna Norður- landanna í fyrsta sinn frá því hann tók við embætti. ^ Eitt helzta umræðuefni þessa fundar verður efnahags samvinna Norðurlandanna. — Verður þá nýlokið í Kaup- mannahöfn ráðherrafundi Frí verzlunarsvæðisins — EFTA — og munu viðræðurnar væntanlega snúast um niður- stöður þess fundar og fram- tíðarsamvinnu Norðurland- anna innan ramma EFTA. Enn óljós skipan stjórnarinnar - Gerstenmeier forseti v-þýzka þingsins 1 Bonn, 19. okt. — NTB-AP: HIB NÝKJÖRNA þing Vestur- Fýzkalands kom saman til íund ar i dag og var Eugen Gersten- meier endurkjörinn þingforseti með 384 atkvæðum gegn 123. — Gerstenmeier er 59 ára að aldri og hefur verið þingforseti í ell- efu ár. Ludwig Erhard, kanzlara, tókst ®ð komast að samkomulagi við Frjálsa Demókrata um stjórnar- myndun seint í gær, en ekki var enn ljóst í kvöld, er síðast frétt ist á hverju samkomulagið hefði byggzt. Haft var þó fyrir víst, að Erich Mende hefði fengið fram- — Burundi Framhald af bls. 1 AP-fréttastofan segir eftir tals manni stjórnarinnar, að ekki sé ennþá Ijóst, hverjir staðið hafi að baki byltingunni. Ennfrem- ur, að landvarnaráðherrann, Michael Micomboro sé horfinn 6porlaust. Burundi sem liggur milli Kongó og Tanganayika er eitt af þéttbýlustu löndum Afríku, tel- ur 2.7 milljónir íbúa, Landið var eitt sinn þýzk nýlenda. Frá 1919 þar til það hlaut sjálf- stæði 1962 taldist það til rikis- ins Ruanda — Urundi. Ættbálka erjur hafa lengst af einkennt stjórnmálalífið, — einkum hafa verið hörð átök milli hinna há- vöxnu Watutsi-manna, sem áð- ur fyrr réðu þar lögum og lof- um þótt þeir teldust aðeins um 15% þjóðarinnar og Hutu- manna, sem eru miklu smærri, en fjölmennir. 1 landinu er einnig dvergsmár ættflokkur, kallaður TWA, en þar fyrir utan eru þar búsettir um tvö þúsund manns frá Asiu og 3.500 Evrópu búar. Burundi hefur að undanförnu einkum komið við sögu í heims fréttunum vegna þess, að kín- verskir kommúnistar höfðu kom ið þar upp bækistöð fyrir undir róðursstarfsemi sína í Afríku. Höfðu þeir þar sendiráð og ó- hemju fjölmennt starfslið og fór svo, að konungur skipaði að því yrði lokað og ' sendiherrann kínverski kallaður heim Var það í janúar sl., en í sama mán uði var nýskipaður forsætisráð- herra landsins, Ngendandumwe, 6kotinn til bana. Rétt áður en landið hlaut sjálfstæði var drep inn annar forsætisráðherra, Rwagasore, prins sonur Mwam- butsa konungs. Sem fyrr segir, er Burundi þriðja minnsta ríki Afríku. Hin minnstu eru ná- grannaríkið Rwanda og Gambia. gengt kröfu sinni um að halda embætti ráðhei'ra, er fjallar um málefni Þýzkalands alls og einnig talið vist að Franz Josef Strauss, fyrrum landvarnarráðherra taki ekki sæti í stjórninni. í NTB-frétt í kvöld segir, að Strauss hafi þó síðdegis í dag gert nýjar kröfur um aukin áhrif í stjórninni. Krefjist hann og fylgismenn hans þess,' að sér- fræðingur þeirra í utanríkismál- um, Guttenberg barón taki við embætti ráðherra, er fjallar um aðstoð við vanþróuð ríki, en því hefur gegnt Walter Scheel, úr flokki Frjálsra demókrata. í. þeirri fregn segir ennfremur, að Strauss hafi fengið því fram- gengt, að Frjálsir demókratar aft urkalii yfirlýsingu sína um, að þeir taki ekki þátt í stjórnarsam starfi, fái Strauss sæti í stjórn- inni. Sé þetta eins konar mála- miðlun, er feli í sér, að hann fái ekki ráðherraembætti nú, en ef til vill síðar, án þess að upp úr stjórnarsamstaríinu þurfi að slitna. Erhard á að leggja ráð- herralista sinn fyrir þingið nk. föstudag og þá munu flokkarnir, sem að stjórninni standa birta sameiginlega stefnuyfirlýsingu. Slysahættðn eykst Barnaverndarnefnd Reykjavík- ur vill, sem undanfarin haust, beita sér fyrir því að reglum um útivist barna sé fylgt og skorar á foreldra og aðra, sem að upp- eldismálum og hverskonar æsku- lýðsstarfsemi starfa, að gera sitt til þess að kenna börnum að virða lög og reglur. Skammdeg- ið fer nú í hönd og hefur reynslan kennt okkur, að þá eykst slysa- hættan og mörg óheilla spor eru stigin í skjóli myrkurs. Útivist barna er þannig skv. lögreglusamþykkt Reykjavíkur: Börn yngri en 12 ára til kl. 20. 12—14 ára til kl. 22. Börnum og unglingum innan 16 ára er óheimill aðgangur að veitinga- og dans- og sölustöðum eftir kl. 20. (Barnaverndarnefnd) — Ungverskur Framh. af bis. 1. Szabo og veit að hann er góður Ungverj i“, sagði hann. Szabo hvarf frá heimili sínu sl. laugar- dag og var sagt síðast í gær af hálfu brezkra yfirvalda, að leyni- þjónustan leitaði hans. Mynd þessi var tekín í Brighton nú um helgina, í fagnaði herzka íhaldsflokksins, sem hélt lands fund sinn þar í horg. Leiðtogi flokksins, Edward Heath, er þarna að dansa við unga hjúkrunar- konu frá London, Su Caseley að nafni. Heildaraflinn fyrir norðan og austan 2,8 millj. mál og tunnur HEILDARSÍLDARAFLINN norð an lands og austan var orðinn 2.847.066 mál og tunnur á mið- nætti sl. laugardags og 724.545 uppmældar tunnur sunnanlands. Alls höfðu 15 skip fengið yfir 30 þúsund mál og tunnur. í skýrslu Fiskifélags Islands segir: Sæmileg síldveiði var fyrri hluta vikunnar sem leið, en eng- in veiði var síðustu tvo daga vikunnar vegna brælu, er gerði á miðunum. Aðalveiðin var á sömu slóðum og vikuna áður 50—1>0 sjómílur SA af Dalatanga og í Glettinga- nesflaki. Vikuaflinn nam 166.521 mál og — Sænska Framhald af bls. 1. undanförnu og bætt fjárhag sinn mjög. Talið er, að um tvö liundruð þúsund Svíar taki reglulega þátt í Bingó-spili, á végum hinna ýmsu félaga og klúbba. Bingó-spilið fellur undir happdrættislögin sænsku, það er að segja að eingöngu félaga samtök geta fengið leyfi til þess að halda Bingó-skemmt- __anir. Hefur félagatala klúbba og félaga ýmisskonar snar- hækkað að undanförnu vegna Bingósins. Verðlaun hafa ver ið veitt sigurvegurum, allt frá kaffipokum upp í utanlands- ferðir, loðskinn, vélar o. s. frv. og nú hefur fjármálaráðu- neytið ákveðið að leggja 43% skatt á alla Bingó-vinninga, sem eru hærri að verðgildi en 100 krónur sænskar. Væntir ríkið þess að fá þar fimm milljónir krónur sænskar á ári, eða sem nemur rúmlega 40 milljónum íslenzkum. tunnur, en nokkuð af þessu magni mun vera frá vikunni áð- ur, því ekki tókst þá að landa öllum þeim afla vegna löndunar- erfiðleika. Heiidaraflamagnið á miðnætti sl. laugardags var orðið 2.847.066 mál og tunnur. Síldaraflinn í sömu viku í fyrra var 142.438 mál og tunnur og var heildaraflinn þá orðinn 2.737.244 mál og tunnur. Heildarsíldaraflinn sunnan- lands til miðnættis sl. laugardags nemur nú 724.54.5 uppmældum tunnum, sem nær eingöngu hef- ur farið í bræðslu. Aflinn norðanlands og austan hefur verið hagnýttur þannig: í salt - uppsaltaðar tn. 393.103. 1 fyrra 353.348. í frystingu - uppmældar tn. 23.409. í fyrra 41.062. I bræðslu - mál 2.430.554. í fyrra 2.342.834. 224 skip hafa fengið afla og af þeim hafa 218 skip aflað 1000 LÆGÐIN, sem var í fyrra- dag vestur af Reykjanesi, hafði í gær grynnzt mikið og var norðvestur af Jan Mayen. Tvær aðrar lægðarmiðjur sjást á kortinu, um 250 og 1400 km SSV af Reykjanesi. mál og tunnur eða meira. M skip stunduðu veiðar bæði austan- ag sunnanlands og af þeim hafa 13 skip eingöngu verið sunnanlands. Listi yfir afla einstakra áfcipa er birtur á bls. 19. — Ólafsvik Framhald af bls. 32. bjarga peningaskáp úr rústunam. Auk allra verzlunartækja fyrir kjötverzlun og nýlenduvsrur voru kæliklefar í húsinu og vél- ar í sambandi við þá svo og kæliklefar fyrir mjólkurbúð. Er eldurinn kom upp var veð- ur gott í Ólafsvík, en áður hafði verið kæla. Var það lán, því stutt er í næstu hús frá kaupfélags- byggingunni. í Ólafsvík er fyrir önnur verzl- un, sem afgreiðir matvörur. Er það verzlunin Skemman. Hefir mjólkurafgreiðslan nú verið flutt þangað. Um skeið var kaupfé- lagið eina matvöruverzlunin í Ólafsvík. Hreyfast þær báðar NNA með svipuðum hraða og sú fyrsta. Má gera ráð fyrir hvassri suð- lægri átt þar til sú síðasta í röðinni er komin norður fyrir land.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.