Morgunblaðið - 22.10.1965, Side 2
MORGUNBLADI®
Föstudagur 22. október 1965
Banvæn leikföng — en blýeitrun
óþekkt hér á landi
f SÍÐASXA tölublaði „Frétta- j Á fimm ára tímabili 1958 til
bréfs um heilbrigðismál“, sem 1962 er talið a'ó 310 börn
út er gefið af Krabbameinsfé- undir 15 ára aldri hafi verið lög'ð
lagri íslands, ritar Bjarni Bjarna á ensk sjúkrahús vegna blýeitr-
son læknir, sem jafnframt er unar. ískyggilegast þykir þó, að
ritstjóri blaðsins, mjög athyglis-: 201 af þessum eitranatilfellúm
verða grein um blýeitranir í áttu sér stað á árinu 1962, á
börnum. Skýrir Bjarni m.a. frá móti 40—50 að meðaltali öll hin
því, að mánaðarrit brezka heil- ] árin. Dauðsföll af völdum blý-
brigðismálaráðuneytiísins hefði ! eitrunar á þessu tímabili voru
nýlega skýrt frá alvarlegum 9. Af 3 tilfellum sem voru til-
vanda, sem komið hefur upp í I kynnt nefndinni, sem rannsak-
Englandi og er þar mörgum á- | ar vofeifleg dauðsföli og siys í
hyggjuefni, og ekki ólíklegt að heimahúsum, var eitt banvænt,
hann skjóti einnig upp kollinum en orsök eitrunarinnar ekki til-
hér á landi. | greind, en hin tvö stöfúðu af
miklu blýmagni í málmagni 8
málningunni á rúmum barnanna.
Síðastliðið ár kom ýmislegt f
ljós, sem skýrði málið frá fieiri
hliðum.
.Plástleikföng, sem inn voru
Framh. á bls. 23.
Afmælíshól Sjómaiinalélagsins
verður haldið í kvöld
BORGARBUAR, ungir og
aldnir, virðast einhuga þessa
dagana, að hylla meistara
KJARVAL. Gífurleg að-
sókn hefur verið að afmælis-
sýningu hans í Listamanna-
skálanum og þúsundir manna
skrifað sig í Kjarvalsbókina.
Nú eru aðeins 3 dagar
þangað til sýningunni lýkur
og hver síðastur að taka þátt
i fjársöfnun, helgaða afmæli
listamannsins, vegna nýs
Listamannaskála í höfuðborg
inni, en það er nú hjartans
mál listamannsins.
Allir borgarbúar og unn-
endur listar Kjarvals munu
nú taka höndum saman og
létta listamanninum Grettis-
takið og kaupa happdrættis-
miða í Kjarvalshappdrætt-
SJÓMANNAFÉLAG Reykjavík-
ur á 50 ára afmæli n.k. laugar-
dag, en það var stofnað 23. októ-
ber 1915.
Félagið minnist afmælisins með
hófi í Súlnasal Hótel Sögu í
kvöld og hefst það með sam-
eiginlegu borðhaldi kl. 7. Að-
göngumiða má fá á skrifstofu
félagsins í dag.
í hófinu verður veizlustjóri
Guðmundur Hallvarðsson. Kl. 8
leikur hljómsveit létt sjómanna-
lög, kl. 9 syngur Guðmundur
Guðjónsson einsöng við undirleik
Skúla Halldórssonar. Kl. 9.30
flytur formaður félagsins, tión
Sigurðsson ræðu, og heiðrar eldri
félaga, kl. 10.30 verða lesin
heillaskeyti og dans hefst kl. 11,
en kl. 11.30 flytja þeir Bessi
Bjarnason og Gunnar Eyjólfsson
skemmtiþátt.
Hófið stendur til kl. 2 eftii
miðnætti.
Á sjálfan afmælisdaginn, á
morgun, mun stjórn félagsins
taka á móti gestum milli kl.
2—5 í húsi þess að Lindargötu.
Tjdn mjdlkurbænda í V.-Skaft.
70-80
. kr. á dag
Korrici ekki frá sér nærri 10 þús. litrum af mjólk
BÆNDUR í allri Vestur-Skafta-
fellssýslu sitja nú uppi með
mjóik sína allt að 10 þús. lítra
á dag og koma henni ekki með
í mjókurbú, síðan sýslan varð
einangrúð vegna eyðileggingar
brúarinnar á Jökulsá á Sólheima
sandi. Skv. upplýsingum frá
Guðmundi Böðvarssyni, kaup-
félagsstjóra í Vík mun tjónið
vera um 70—80 þús. kr. á dag.
Mbl. ræddi við hann í síma
um þessi vandræði, svo og Einar
Oddson, sýslumann og fara sam-
töl vfð þá hér á eftir ásamt frétt
um frá fréttariturum blaðsins í
Vík og á Kirkjubæjarklaustri og
upplýsingum frá vegaverkstjór-
anum við Markarfljótsbrú.
Bændur bíða átekta.
Lilla Hvammi, 21. .okt. — Tölu
vert hafði minnkað vatnsmagnið
í Jökulsá á Sóiheimasandi í nótt
og skemmdir ekkert aukizt frá
því í gær að sfðast sást til henn-
ar. En í dag mun vatnið hafa
haldizt óbreytt. Tvær ýtur voru
væntanlegar á staðinn í kvöld
og munu hefja aðgerðir strax og
fært þykir.
í dag kom sífnaviðgerðarflokk-
ur frá Selfossi og gerði við þær
skemmdir, sem orðið höfðu á
landsímalínunni yfir ána.
Mikil vandræði hafa skapast
hjá bændum að koma ekki mjólk
inni til Mjólkurbús Flóamanna.
Og hélt stjórn Kaupfélags Skaft
fetlinga fund með fulltrúum
sínum varðandi mjólkurflutnig-
ana yfir Jökulsá í dag og var
ákveðið að bíða átekta Vega-
gerðar ríkisins að svo komnu
máli.
Engar verulegar skemjmdir
hafa orðið á brúnni hjé Múla-
kvísl. Net, sem liggja að land-
stöpli austan megin, hafa sigið
áðeins og mjög mikið hafði graf
ið frá einum stöpli undir brúnni.
Ekki talið það mikið að stöðva
þyrfti umfer'ð um hana.
Bíll frá Sláturfélagi Suðurlands
kom með kjöt frá Sláturfélagi
Suðurlands í gær og ætlaði til
Reykjavíkur. Fór til baka í dag.
Nú er hér austan átt og hlýtt
í veðri og rigning. Útlit er því
allt anna'ð en gott. — Sigþór.
Mjög óskemmtilegt og bagalegt.
Guðmundur Böðvarsson, kaup-
félagsstjóri í Vík, sagði að þetta
lægi allt mjög óskemmtilega fyr
ir. Mjólkin úr sýslunni væri upp
undir 10 þús. lítrar á dag og
væri hún öll flutt í Mjólkurbú
Flóamanna á Selfossi. Aðspurtí-
ur kvaðst hann geta hugsað sér
að þessir 10 þús. lítrar væru
70—80 þús. kr. virði. Hann gæti
litlu spéð um hvað yr’ði tekið
fyrir. Vegagerðin væri nú á leið
inni austur með sín tæki.
Mest af vörum er flutt austur
eftir hendinni, en ekki taldi
Guðmundur hættu á a'ð skortur
yrði á neinum nauðsynjavörum
fyrst um sinn. Svo slæmt væri
það nú ekki. En fólk er vant að
fá með mjólkurbílunum smjör
og áðra mjólkurvörur, og nú
ættu margir ekki lengur tæki til
að gera smjör eða annað á bæj-
unum, auk þess sem fámenni
væri og fólk kæmist ekki yfir
slík verk.
Það var bíll með sláturafurðir,
sem fyrstur vahð var við að
brúarendinn á Jökulsá var far-
inn. Hann kom að austan eld-
snemma morguns í myrkri og sé
allt í einu ólögulegt ræsi fyrir
framan sig og var þar heldur
mikið fljót, sagði Guðmundur.
Hann bakkaði hið snarasta aft-
ur af þessari „endalausu" brú.
★
Einar Oddsson, sýslumaður,
sagði að nú væru engar sam-
Bar tvisvar á sama árinu
Eyrarbakka, 21. okt.: —
SÁ ALLSÉRSTÆÐI atburð-
ur skeði hér á Eyrarbakka i
bær, að ær bar fullburða
hrútlambi, sem væri ekki í
frásögur færandi, ef þessi
sama ær hefði ekki borið
hrútlambi í marz sl., en fall
þungi þess lambs var þá 40
pund. Þorleifúr Halldórsson í
Einkofa, eigandi ærinnar seg-
ir að slíkt hefði aldrei skeð á
sínum búskaparferli né annars
staðar sér vitanlega, en Þor-
leifur er áttræður á þessu ári.
Mun burðurinn hafa gengið
vel þrátt fyrir stórviðri og
rigningar og heilsast' móður
og iambi ágætlega.
— Fréttaritari.
göngur við alla Vestur-Skafta-
felLssýslu. Aðspurður hvort hugs
anlegt væri að fara Fjallabaks-
lei'ð, taldi hann tormerki á því,
enginn vissi hvernig slóðin væri
eftir þessar rigningar. En hann
hafði heyrt minnst á þann mögu-
leika að koma ferju fyrir mjolk-
ina á Jökulsá, meðan viðgei'ð
færi fram. Ef það væri hægt,
mundi það bæta mikið úr .Enn
væri áðeins sólarhringur liðinn
frá því brúin fór, en brátt hlyti
að koma að því að hella yrði
allri þessari mjólk.
Aðrir erffðleikar vegna sam-
gönguleysis eru sláturflutningar.
Slátrun var langt komin í Vík,
en eftir var að slátra af austustu
bæjum í Fljótshverfi á Kirkju-
bæjarklaustri. Hefur orðið að
hætta slátrun.
Nú og í þri'ðja lagi þarf fólk að
komast ferða sinna, til og frá
sýslunni og samgönguleysið því
mjög bagalegt.
Brúin á Múlakvísl úr hættu.
Kirkjubæjarklaustri, 21. okt.
— Góðar samgöngur eru nú við
Vík á ný, en brúin við Múla-
kvisl loka'ðist í gær, sökum þess
að grafizt hafði frá einu horni
hennar. I nótt hefur sópast að
horninu aftur og er brúin í engri
hættu nú, t.d. fór 10 tonna bíll
yfir hana í morgun. Stórrigning
er nú komin aftur og óhemju
flóð í öllum vötnum.
Þrír til fjórir dagar voru eftir
af slátrun, en hún fellur nú nið-
ur um stundarsakir vegna sam-
göngutruflana. — Siggeir.
Markarfljót að lækka.
Eysteinn vegaverkstjóri við
Markarfljótsbrú sagði í símtali
við blaðið að komið væri áægtt
veður og vatnið færi því minnk-
andi í Markarfljóti. Það hefði
þegar iækkað um rúman meter
síðdegis í gær. Fyrirhleðslurnar
við ána hefðu staðið af sér og
éngar skemmdir or’ðið þar.
Við Skógá, þar sem vatnið
hefði rofið veginn, væri nú búið
að gera við og söm.ulei’ðis við
LandeyjakvisL
Ródesía
Framh. af bis. 1.
að reyna að finna lausn á þessu
vandamáli, og reyna að komast
hjá þeim sorglegu afleiðingum,
sem annars verða ekki umflún-
ar“..
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum í London, að Wilson
og Bottomley muni halda til Saliss
bury á sunnudag eða mánudag.
Munu þeir óska eftir því að fá
jafnframt að ræða við foringja
afrísku þj óðfrelsishreyfingarinn-
ar, Garfield Todd, fyrrum for-
sætisráðherra Ródesíu. Smitb
hefur þegar lýst bví ýfir, að Wil-
son megi ræða við hvern þann
stjórnmálaforingja í landinu, sem
hann hafi hug á að hitta að máli.
Síðasta tillaga Smith ser sú, að
stjórn landsins tryggi sérstak-
lega réttindi blökkumanna, er
sjálfstæði Ródesíu verði lýst yfir.
— Reikistjarna
Framh. af bls. 1.
séð reikistjörnuna, er hún fór
fram hjá sólu. Þeir komu fyrst
auga á hana, er hún tók að
fjarlægjast sólina, og tóku þá a£
henni myndir.
Einn stjarnfræðinganna sov-
ézku, Andrei Severnij, sagði, að
greinilegt væri, að reikistjarnan
hefði mjög dregizt saman. Sagð-
ist hann vonast til, að myndir
þær, sem teknar voru, gætu orðið
til að varpa Ijósi á, hvaða efni
mynduðu kjarna hennar.
Talsmenn Radcliffe-rannsókn-
arstöðvarinnar í S-Afríku segja,
að í kjarnanum sé að finna
natríum, járn og kalsíum. Einn
sérfræðinga stofnunarinnar seg-
ir, að Ikeya-Seki sé bezta sönn-
un, sem enn hafi fengizt, fyrir
því, að málma sé að finna í reiki-
stjörnum.
— Nóbelsverðlaun
Framhald af bls. 1.
ir að verða grundvöllur mik-
illa framfara á þessu sviði.
Woodward, sem hlaut verð-
launin í efnafræði, fékk þau,
að sögn akademíunnar, fyrir
rannsóknir sínar á blaðgrænu.
Prófessor Tomonaga starfar
við háskólann í Tokíó. Hann
hefur ekki haft beint samstarf
við Bandaríkjamennina tvo,
Schwinger og Feynman. Þeir
eru báðir 47 ára, en Tomon-
aga er 59 ára. Schwinger starf
ar við Harvard-háskóla, en
Feynman við tækniháskólann
í Pasadena, Kaliforníu.
Skemmdir á
kirkjugðrði
og túni
á Reynivöllum
VALDASTÖÐUM, 20. okt.
Undanfarna daga hefur verið
hér óhemju úrkoma. í nótt urðu
talsverðar skemmdir á kirkju-
garðinum á Reynivöllum. Svo
hagar til, að gil eitt er nálægt
garðinum, með á sem alloftast er
vatnslítil. í nótt hafði komið í
gilið stífla af aur, sem fallið
hafði úr bökkum þess. Varð
þetta til þess að allmikil aurleðja
hefur runnið inn í garðinn.
Einnig hefur fallið nokkur
skriða á Reynivallatúnið. Gil það
sem hér um ræðir hefur áður
valdið tjóni, sem kunnugt er.
Ekki hefi ég heyrt um aðrar
skemmdir hér um sióðir. — St.
c