Morgunblaðið - 22.10.1965, Blaðsíða 23
Föstudagur 22. október 1965
Fös
MORGUNBLADIÐ
23
™5íi£^mundsdóttirl Guöjón E. Bjarnason
Kveðja frá Kvennadeild Slysa-
varnafélags íslands í Reykjavík,
Lífið horfið hún er orðin nár.
hjartað stanzað, brjóstið
orðið kalt
hún sem kunni að hugga sorg
og tár.
Hún er dáin svona fer það allt.
Ekkert bros á blíðum
móðurvörum,
bleikur dauðinn heldur
uppi svörum.
r < J.J.
í DAG verður til moldar borin,
frú Sigríður Soffía Guðmunds-
dóttir, Fögrubrekku Seltjarnar-
nesi. Hún lézt af slysförum 12.
okt. 1965. Hú,n fæddist í Reykja-
vík 8. okptber 1913, foreldrar
hennar voru hjónin Kristín Hans
dóttir úr Reykjavík og hinn al-
kunni skipstjóri og aflamaður
Guðmundur Jónsson frá Tungu
við Skutulsfjörð.
í ' Soffía eins og hún var oftast
kölluð, giftist 16. ágúst 1938 eftir
lifandi manni sínum Ásgeiri Ás-
geirssyni fyrrverandi skipstjóra
og nú kaupmanni í Reykjavík.
Bjuggu þau allan sinn búskap
hér. í>au eignuðust fjögur mynd-
arbörn. f>au eru Guðmundur
giftur Jakobínu Valmundsdótt-
ur, Baldur Gunnar kvæntur Þór-
unni Ólafsdóftur, Ásgeir Sigurð-
ur og Kristín Unnur bæði ógift
í heimahúsum.
Soffía Guðmundsdóttir var bú-
in að starfa í kvennadeild Slysa
varnafél. í mörg ár. Hún hafði
mjög mikinn áhuga á slysavarn
armálum, og starfaði að þeim
með gleði og áhuga. Hún var ein
þeirra, sem var í flokki innan
deildarinnar, sem kallaður er
„hjálparsveitin", alltaf viðbúin
iþegar á þurfti að halda. Með
prúðri og stillilegri framkomu
sinni, ávann hún sér traust og
vináttu þeirra, sem með henni
unnu, og öllum þótti vænt um
hana. Með miklum söknuði
kveður deildin hana og vandfyllt
verður skarð það er lát hennar
veldur. Slysavarnamálum unni
hún af alhug og með dauða sín-
um, hefur hún fyllt þann hóp,
er varar við slyum. Við syrgjum
með manni hennar og börnum,
en við vitum að Guð huggar
þá sem hryggðin slær.
Eygló Gísladóttir.
Óvænt og hart var höggvinn
þráður sundur
hnípinn og sár er vina
þinna lundur.
Harmleik sem þennap engin
okkar skilur
Alfaðir svör við slíkum
; spurnum dylur.
Fráleitt mun nokkur fylla
rúmið auða.
Fótmálið eitt, er milli
lífs og dauða.
Ástvinásorgin ein þó hafi völdin
allir að lokum hittast
bak við tjöldin.
Auðmýkt í bæn og þökk
ég höfuð hneigi.
Minning
& flfi i-firr
Ms. Skjaldbreið
fer vestur um land til Akur-
eyrar 26. þ. m. Vörumóttaka
á föstudag og árdegis á laug-
ardag til áætlunarhafna við
Húnaflóa og Skagafjörð, Siglu
fjarðar, Ólafsfjarðeir og Dal-
víkur. Farseðlar seldir á
mánudag.
Hamingu lífsins blandast
sorg og tregi.
Margt er að þakka man ég
liðnu árin
minningar bjartar skína
gegnum tárin.
Eyja Kristjánsdóttir.
Kæra Soffía!
;Kynni okkar byrjuðu með
þeim hætti að eiginmenn okkar
voru skólabræður frá Sjómanna
skólanum, og hittumst við á
gleðistundum með þeim. En þeg
ar Kvenfélagið Aldan var stofn
að fyrir tæpum 7 árum lágu
leiðír okkar saman aftur, því við
vorum báðar í stjórn félagsins.
Samvinnan var prýðileg, því þú
tókst félagsstarfið alvarlega og
fannst til ábyrgðar gagnvart því.
Síðustu sámverustundir okkar
voru fyrir rúmri viku, er við
vorum 5 ú,r stjórn félagsins að
undirbúa vetrarstarfið. Allar vor
um við kátar og léttar í lund,
því okkur var hulið það sem
verða vildi og hlökkuðum þá til
vetrarstarfsins sameiginlega. Að
afloknum fundi urðum við allar
samferða áleiðis heim og kvödd
umst við heimili þitt, með ákvörð
un um endurfundi næsta mið-
vikudag, 13. okótber, og ætlaðir
þú og 3 kunningjakonur þínar
að hafa kaffi á fyrsta fundi vetr-
arins.
En sá fundur féll niður, vegna
fráfalls þíns. Hverjir eru valdir
til að þola sorgina, vonleysið,
tómið? Þú í dag, ég á morgun,
þessvegna ættum við að hafa það
hugfast eins og skátarnir „Vertu
ætíð viðbúinn" og það veit ég að
þú hefur verið.
Samverustundir okkar mótuð-
ust alltaf af ánægju og samstillt-
um huga. Þú varst skemmtileg í
félagsskap, hafðir ágætt minni
og sámlögunarhæfileika. Fyrir
mína hönd og Kvenfélagsins Öld
unnar þakka ég þér samstarfið
Eiginmanni þínum, börnum,
tengdabörnum og öðrum ættingj
um sendum við okkar innilégustu
samúðarkveðjur.
Eaufey Halldórsdóttir.
-N-Þing.
Framhald af bls. 6
lega hér norðanlands, og vissu-
lega væri full þörf á fyrirhyggju
og gætni um allan ásetning.
Kartöflur rækta sumir, og
stóð kartöflugras sums staðar
fram á haust, en féll í görðum
sem lágu ver við. Uppskera varð
lítil og má um kenna köldu
sumri.
Jón Sigfússon
Lokað
frá hádegi í dag vegna jarðarfarar.
Soffíu Guðmundsdóttur.
Segull hf.
ENN hefir dauðinn höggvið skarð
í hinn fámenna hóp flugmála-
starfsmanna. Guðjón E. Bjarna-
son, fyrrverandi yfirflugumsjón-
armaður er látinn, og verður til
grafar borinn í dag.
Dauða hans bar snöggt að, og
kom öllum á óvart. Við fyrrver-
andi samstarfsmenn hans og
vinir vissum ekki annað en hann
væri heilsuhraustur enda vann
hann af kappi við eigin íbúð og
var einmitt á leið úr vinnunni,
er hann var hrifinn svo skyndi-
lega á burt.
Guðjón var ennþá ungur mað-
ur. Hann fæddist 9. ágúst 1926
að Víðistöðum við Hafnarfjörð.
Foreldrar hans voru hjónin
Bjarni Erlendsson og Margrét
Magnúsdóttir, sem þar bjuggu og
lifir Bjarni son sinn, en kona
hans er látin.
Guðjón ólst upp hjá foreldr-
um sínum í Hafnarfirði og lauk
gagnfræðaprófi frá Flensborg
vorið 1942.
Hann varð snemma vel að
manni og góður íþróttamaður og
stóðu fáir piltar honum á sporði,
er þeir tóku sprettinn á Hörðu-
völlum, en ekki lagði Guðjón
rækt við íþróttaþjálfun enda köll
uðu önnur áhugamál hann til
sín.
Guðjón lauk prófi frá Loft-
skeytaskóla íslands árið 1946. í
þann mund voru menn þeir frá
brezka flughernum, sem umsjón
höfðu með Reykjavíkurflugvelli
að fara af landi brott, en áður
voru teknir í þjálfun 20 fslend-
ingar, sem hlutu sérþjálfun í hin-
um ýmsu greinum, er lúta að
rekstri flugvalla og flugþjón-
ustu.
Úr þeim hópi voru valdir fimm
piltar til þess að starfa við flug-
umferðastjórn og var Guðjón
einn þeirra.
Á þeim tíma var aðstaða öll og
tæki önnur og verri en nú, og
þurftu þessir frumherjar að vera
hæfileikamenn á mörgum svið-
um, skjótráðir og úrræðagóðir.
Guðjón var búinn þessum kost-
um í ríkum mæli. Hann skipti
sjaldan skapi og rólyndi hans og
öryggi smitaði frá sér svo gott
var að vinna með honum. Þessir
kostir fóru ekki framhjá yfirboð-
urum hans og var hann ásamt
öðrum manni valinn til þess að
læra flugumsjónarstörf fyrstir
manna og fóru þeir félagar í því
skyni til Bandaríkjanna og luku
þaðan prófi haustið 1950. Vann
Guðjón síðan við flugumsjón hjá
Flugmálastjórninni á Keflavík-
urflugvelli og yfirmaður þeirrar
deildar var hann frá árinu 1955,
unz hann lét af þeim störfum, er
flugumsjónardeildin var lögð nið
ur á vegum Flugmálastjórnar-
innar. Sneri hann sér þá að ýms-
um öðrum störfum.
Nú er við kveðjum Guðjón
Bjarnason koma í hugann marg-
ar minningar um ljúfar sam-
verustundir. Hann var góður fé
lagi, hrókur alls fagnaðar og
hafði óvenjulega kýmnigáfu, var
mannglöggur, og fljótur að
skynja kjarnann í hverju máli.
Hann þvingaði ekki skoðanir
sínar fram af hörku, en lét þær
í ljós af hógværð og kurteisi.
Hann hafði sterka siðferðiskennd
— Banvæn leikföng
Framhald af bls. 2*
flutt frá Hong Kong voru blönd-
uð 2600 hlutum af blýi á móti
1 milljón af plasti, e'ða 0,26%.
Samkvæmt niðurstöðum efna-
rannsóknar ríkisins þótti sann-
að að örlítið aí blýi losnaði úr
leikföngunum, þegar börnin
sjúga þau eða sleikja.
Af þessum ástæðum fengu inn
flytjendur fyrirmæli um að gæta
þess að plastleikföng, sem flutt
væru inn í landið, væru sem
allra minnst blýblönduð, og
magnið mætti aldrei fara fram
úr 0,025%, sem er rúmlega 10
sinnum minna en í leikföng-
unum frá Hong Kong. Skömmu
eftir að fyrirmæli þessi voru
birt, kom skýrsla frá Padding-
ton sjúkrahúsinu þess efnis að
þangað hefðu komið 12 börn,
með blýeitrun á aldrinum eins
og hálfs til fimm ára, á síðast-
liðnum þrem árum og ein þeirra
banvæn. Skömmu seinna kom
tilkynning um áð rannsóknir
hefðu leitt í Ijós 10,5% blýmagn
í málingu á leikfangaklúbbum
til að raða saman og byggja úr.
Þegar þetta hafði verið staðfest
af efnarannsóknarstofum ríkisins,
voru gefin út ströng fyrirmæli
um að blýmagn í málningu á
barnaleikföngum mætti aldrei
fara fram úr 1,1% og lögð við
þung viðurlög ef út af væri
brugðið. Áður hafði verið treyst
á samkomulag við málningar-
verksmiðjurnar um hið leyfilega
blýmagn.
í skýrslu ráðuneytisins segir,
að engin vafn leiki á að víta-
verð vanræksla vissra foreldra
eigi m.a. sök á því hversu mörg
börn verði blýeitrun að bráð,
þótt fjöldi fólks sé nú orðið vel
á verði.
Bjarni Bjarnason segir síðan í
grein sinni að blýeitrun sé senni
lega mjög fátíð hér á landi og
engar upplýsingar sé hægt að
fá um slík tilfelli fram að þessu.
Til dæmis hefur ennþá ekki
komið barn með blýeitrun á
barnadeild Landspítalans, og
virtist ekki mikil hætta á eitrun
fhá málu'ðum hlutum eða plast-
vörum sem hér eru framleiddar.
Samkvæmt upplýsingum frá
efnafræðingi málningarverk
smiðjunnar Hörpu, er svo lítið
magn aÆ blýi í þeirri málningu,
sem blönduð er hér á landi, að
hæpið er a'ð hún geti valdið eitr-
unum. Lítið mun flutt inn af
plasflei'kföngum -hér á vegum
verzlana, og þau sem eru fram-
leidd hér eiga að vera algerlega
hættulaus. Hins vegar mun það
algengt að íólk kaupi eða láti
kaupa fyrir sig barnarúm er-
lendis, sem langoftast eru hvít-
máluð. Ættu þeir sem það gera,
að vera vel á verði, því börnin
naga eða sleikja rimlana og rúm
stokkinn, en þannig geta þau
fengið í sig hættulegt magn af
blýi, sé málningin of menguð af
því. Geysilegur fjöldi Islendinga
leggur nú leið sína til útlanda
ár hvert og sennilega kaupir yfir
gnæfandi meirihluti fer'ðalanga
þessara eitbhvað af barnaleikföng
um fyrir börn sín eða annarra
Bjarni Bjarnason læknir segir
síðan orðrétt:
„Plastleikföng eru mjög í
tízku og vegna hins hagstæðáx
verðs sem er á austurlenzkum
vörum, eru þær, nú orði'ð, al-
gengar á evrópumarkaðinum.
Það er því áríðandi að gæta þess
að lenda ekki á hinum illræmdu
plastleikföngum þaðan austanað,
sem áður er sagt frá, og vitan-
lega rennir fólk blint í sjóinn
með hvað það fær í hendurnar
er það kaupir þesskonar vöru
erlendis, nema fengnar séu ör
uggar upplýsingar um ósaknæmi
þeirra, þar sem kaupin fara
fram. Sama máli gegnir um mál-
uðu leikföngin, eins og kubba
til að byggja úr, sem börnum
veitisf auðvelt að naga málning-
una af.
Blýeitrun er mjög alvarlegur
sjúkdómur og í sumum tilfellum
banvænn, enginn skyldi því
bjóða honum heim.“
í framhaldi af þessu, leitaði
blaðið álíts Bjarna Bjarnasonar
á því, að í hádegisútvarpinu í gær
voru auglýst leikföng frá Hong
Kong. Kvaðst hann hafa litlu við
þetta að bæta. nema því að full
ástæða væri til að vera mjög vel
á ve'rði gegn kínverskum og aust
urlenzkum plastleikföngum, að
framangreindum ástæðum.
og var hrekklaus gagnvart náung
anum og ætlaðist til hins sama af
samferðamönnum sínum.
Það er sárt að sjá á bak góð-
um dreng í blóma lifsirís og eft-
irlifandi kona hans, Ólöf Erlends
dóttir á um sárt að binda. Við
vottum henni, börnum þeirra
fjórum, föður hans og systkin-
um og öðrum ættingjum inni-
lega samúð okkar.
Nokkrir samstarfsmenn.
— Utan úr heimi
Framhald af bls. 16
notkun kjarnorkuvopna.
Hvorki Bandaríkjastjórn né
neinn annar aðili í Bandarikj-
unum hefur gert neina áætlun
um að afhenda V-Þjóðverjum,
né neinni annarri þjóð, kjam-
orkuvopn, sem hún geti sjálf
ákveðið að nota.
Bandaríkin vilja hins vegar
afhenda bandamönnum sínum
— ekki kjarnorkuvopn — held
ur upplýsingar um þau, ef svo
skyldi fara, að Sovétríkin, sém
nú geta beitt slíkum vopnum
gegn hvaða borg í Evrópu
sem er, gripu til þeirra í styrj-
öld.
Svo kann vel að fara, að
Bandaríkin geti ekki komizt
að neinu samkomulagi við
bandamenn sína um kjarn-
orkuher Atlantshafsríkjanna.
Frakkar hafa þannig engan
samningsvilja sýnt. Bretar
vilja slá myndun slíks hers á
frest, þar til Ijóst verður til
fulls, hvað samkomulag við
Sovétríkin myndi hafa í för
með sér. Þá eru uppi öfl bæði
í Bretlandi og Frakklandi, svo
ekki sé minnzt á Bandaríkin,
sem krefjast þess, að V-
Þýzkaland verði máttarminni
á varnarsviðinu en Bretland
og Frakkland um alla fram-
tíð.
Skilyrðin rædd
Þyí eru ekki góðar horfur á
myndun kjarnorkuhers At-
lantshafsríkjanna. Hvers
vegna á þó alveg að vísa til-
lögum um hann á bug, fyrr
\ en gerðar hafa verið nýjar til
lögur í staðinn? Bandaríkin
og Sovétríkin gætu vafalaust
fengið aðrar þjóðir til að fall-
ast á að koma sér ekki upp
kjarnorkuvopnum, ef ráða-
menn i Moskvu og Washing-
ton hétu því í staðinn að verja
þær gegn kjarnorkuárás. Eng
ar raunverulegar umræður
hafa þó enn átt sér stað um
þetta mál.
Alþýðulýðveldið Kína mun
vera við viðtals um kjarnorku
vopnasamning, ef Bandaríkin
draga til baka herlið sitt í
Vietnam og á Formósu. Sovét-
ríkin munu undirrita slíkan
samning, ef við berum hags-
muni V-Þýzkalands fyrir borð.
Þess konar samningur mun þó
ekki vekja mikinn fögnuð í
Indlandi, Japan, ftalíu eða V-
Þýzkalandi, og myndi senni-
lega ekki leiða til meira ör-
yggis — heldur þvert á móti
þess gagnstæða.
Benedik* Blöndal
héraðsdómslögmaður
Austurstræti 3. - Sími 10223.