Morgunblaðið - 22.10.1965, Blaðsíða 31
Föstudagur 22. oktöber 1965
MORGU N BLAÐJÐ
31
Nýtt leikrit eftir
Jökul Jakobssoa
fruansýnt hjá Leikféiaginu
LEIKFÉLAG Reykjavíkur frum-| Um íeikritið sagði hiifundur,
sýnir nýtt leikrit eftir Jökul Jökull Jakobsson. við þetta tæki-
Jakobsson n.k. þriðjudagskvöld. færi' að Það 8«ðist í Reykjavik
á síðustu árum. Hann sagðist
Hefur hið nýja leikrit hlotið hafa byrjað að semja leik"itijf
Þessi mynd er tekin fyrir skömmu og sýnir vegatollskýlið eins og það leit þá út — ekki full-
smiðað.
— Keflav'ikurvegur
Framhald af bls. 32.
+ ÞRÍR BRÚSAR
Mbl. hafði samband við Magn
ús Eggertsson hjá rannsóknarlög-
reglunni og sagði hann að allt
það er skýlinu tilheyrði hefðí
verið á staðnum og benti ekkert
til þess, að um stuld hafi verið
að ræða. Hins vegar hefðu verið
á staðnum þrir brúsar, sem eng-
inn kannaðist við. Ekki væri unnt
að sjá að svo komnu máli, hvað
í þeim hefði verið, þar eð þeir
hefðu verið í eldinum sjálfum.
Það væri mjög líklegt að i þeim
hafi verið einhver eldfimur
vökvi. Brúsar þessir munu nú
vera til rannsóknar hjá rann-
sóknarlögreglunni.
» ÍKVEIKJA?
Þá hafði Mbl. samband við
Vegamálaskrifstofuna í gær. Þar
var blaðinu sagt að taka hefði
átt skýlið í notkun upp úr næstu
helgi og hefði verið búið að
leggja rafmagnsleiðslur í skýlið,
en rafmagn ekki komið á. —
Fimmtíu metra frá skýlinu hafi
verið annað skýli með díselraf-
stöð og hefðu geymar hennar
verið fullir af olíu. Við þetta
skýli var allt með felldu og er
það óskemmt. Útilokað er, að
rafmagn hafi valdið eldinum.
Skýlið var 16 fermetrar að stærð,
úr timbri og klætt krossviði. Það
var ómálað að innan. Kostaði það
hátt á annað hundrað þúsund
krónur. Taldi vegamálaskrifstof-
an að um íkveikju hafi verið að
ræða.
I VEGURINN OPNAÐUR
Á ÞRIÐJUDAG
Mbl. fékk þær upplýsingar
hjá . samgöngumálaráðuneytinu
að í fyrradag hefði verið ákveðið
nafnið „Sjóleiðin til Bagdad“ og fyrir þremur árum og hefði
erþriðja leikrit Jökuls, sem Leik-j handritið verið tilbúið sl. vor.
félagið sýnir, en hin fyrri voru i Ýmsar breytingar hefðu verið
„Pókók“ (1961) og
sem sýnt var 2Ó5
metaðsókn.
Svertingi handtekinn
á heimili í Reykjavik
að opna veginn fyrir umferð
næstkomandi þriðjudag, en það
gat ekki orðið fyrr vegna þess að
óveður í vikunni tafði lokafram-
kvæmdir við skýlið. Þetta breyt-
ist ekki, þó að skýlið sé nú brunn
ið, því að sett verður upp bráða-
birgðaskýli og vegurinn opnað-
ur á þriðjudag.
Stálbátur
lengdur
AKR-ANESI, 2il. okt. — í dag
var tekinn hér upp í dráttar-
brautina bátur frá Vestmanna-
eyjum, Ófeigur III. Á að lengja
hann um meira en 3 metra. Þetta
er stálibátur. Verður hann brennd
ur í sundur í miðju með log-
suðutækjum, plötu bætt í og
báturinn soðinn saman aftnr.
— Oddur.
gerðar á því á æfingunum, en
, ar i a , hann sagðist hafa verið við-
sinnum v*ð . staddur .flestar æfingar.
Auk „Sjóleiðarinnar til Bag-
Á fundi með blaðamönnum dad“ hafa að undanförnu staðið
sagði Sveinn Einarsson, leikhús- yfir, æfingar ^ barnaleikriUnu
,. , • „ - ...... I „Gramann’* eftir Stefan Jcmsson,
Stjor1, að æfmgar a leikntxnu j rithöfund. Sagði Sveinn, að sýö.
„Sjóleiðin til Bagdad’1, hefðu ■ ingar á leikritinu hæfust vænt-
hafizt sl. vor og verið teknar
upp aftur í septemberbyrjun.
Tónlist við leikritið hefur Jón
Nordal samið, en leikmynd hefur
Steinþór Sigurðsson gert. Leik-
stjóri er Sveinn Einarsson, en
þetta er í fyrsta skipti, sem hann
stjórnar l'eikriti á sviði hérlend-
is, en hann hefur stjórnað út-
varpsleikritum hér og verið að-
stoðarleikstjóri hér og erlendis.
Leikendur í „Sjóleiðinni til
Bagdad“ eru 7 að tölu, en það eru
þau Guðrún Ásmundsdóttir, Inga
Þórðardóttir, Valgerður Dan,
Steindór Hjörleifsson, Helgi
Skúlason, Gestur Pálsson og
Brynjólfur Jóhannesson. Allt eru
þetta þekktir leikarar, nema e.tv.
Valgerður Dan, sem útskrifaðist
úr leikskóla Leikfélagsins sl. vor.
Hún hefur fjórum sinnum áður
komið fram á sviði hjá Leik-
félaginu, en leikur nú sitt fyrsta
stóra hlutverk.
anlega
nóvember. Leikstjóri
barnaleikritsins er Helga Baeb
rnann.
— Mestu
í fyrrakvöld handtók lögregl-
an ungan svertingja, sem ruðzt
hafði inn á heimili Agnars
Bogasonar, ritstjóra, og klórað
hann, er hann ætlaði að koma
honum út.
Mbl. fékk þær upplýsingar
hjá rannsóknarlögreglunni í
gær, að piltur þessi væri amer-
ískur, hefði komið hér í ágúst-
mánuði, litt fjáður og ekki unn-
ið síðan. Hefði verið leitað til
lögreglunnar fyrr, svo hótel og
fólk gæti losnað við hann. Ætl-
I aði pilturinn að fara af landi
burt næstkomandi miðvikudag
og verður hann geymdur í vörsl
um lögreglunnar þangað til.
Svertingi þessi hitti son Agn-
ars, 14 ára, og gaf sig á tal við
hann. Elti hann drenginn heim
og kom inn með honum. Vegna
ummæla er svertinginn viðhafði
vísaði Agnar honum á dyr og
ætlaði að henda honum út, er
það dugði ekki. Rauk hann þá
á hann og klóraði hann, en Agn
ar hringdi á lögregluna.
1,6 sekl. af vatni
í borholunni
í Eyjum
Vestmannaeyjum, 21. okt.
UM HÁDEGI í dag, þegar búið
var að dæla í 2 sólarhringa úr
borholunni, var dælt úr henni
um 1.6 sekúndulitrum af vatni.
Þetta er ekki hreint ferskvatn,
heldur saltiblandað, saltmagnið
helmingurinn miðað við venju-
legan sjó. Þessar upplýsingar
hafði verkfræðingurinn, Sveinn
Sigmundsson gefið bæjarstjóra.
Rétt er að geta þess, að áætlað er
að vatnsþörfin fyrir bæinn sé 24
sekúndulítrar og er þetta einn
fimmtándi af því eða innan við
6 tonn.
í fyrra var borað þarna niður
á 1560 m. dýpi og er það einhver
dýpsta hola, sem boruð hefur
S- og SA-áttin var allföst
í sessi í gær og bar með sér
hlýtt þokuloft til landsins.
Sunnan lands Var nokkur rign
ing eða súld, en fyrir norðan
var þurrt og allt að 13 stiga
hiti. -
VEÐURHORFUR i gærkvöldi
Suðvesturland, miðin og Faxa
loft og rigning. Faxaflói til
Vestfjarða og Breiðafjarðar-
flóamið: Allhvöss S-átt, þoku
mið: SA-kaldi eða stinnings-
kaldi, rigning með köflum.
Vestfjarðamið: A og NA-
kaldi, rigning með köflum.
Norðurland, Norðausturland
og miðin: S-og SA-gola eða
kaldi, bjartviðri. Austfirðir,
Suðausturland og miðin: S-
kaldi, þokuloft og dálítil rign-
ing. Austurdjúp: S-kaldi og
skýja’ð, þokuslæðingur.
Veðurhorfur á laugardag:
S- og SA-átt, þurrt og hlýtt
fyrir norðan, dálítil rigning
vestanlands, þoka eða rign-
ing með suðurströndinni til
Austfjarða.
Þeir hæstu með
90 rjúpur
HÚSAVÍK, 21. okt. — Bliðviðri
hefur verið hér undanfarna daga,
suðlæg átt og óvanaleg hlýindi
um þennan tíma árs. Snjóföl það
sem kom til heiða fyrir sl. helgi,
er allt horfið, svo að rjúpan á
nú verr með að leyna sér. En
veiðimenn telja mikið af henni.
Margir hafa notað góða veðrið
til rjúpnaveiða og veit ég þessa
veiði mesta.
Magnús Andrésson skaut 84
rjúpur í fyrradag og 90 í gær.
Og Guðmundur Halldórsson fékk
einnig 90 rjúpur í gær. Veiðin
var all misjöfn, enda rjúpna-
mennirnir ekki allir vanar skytt-
ur. — Frét.taritarL
verið í leit að köldu vatni. En
það bar ekki árangur. í holuna
safnaðist vatn. Og til að fá Úr
því skorið hvort holan með tím-
anum gæfi vatn, var ákveðið að
dæla úr henni. Dælan er nú loks
komin og búið að dæla úr hol-
unni í tvo sólarhringa með fyrr-
greindri útkomu. Koma 1.6 sek-
úndulítrar af vatni úr henni,
eins og er. Vatnið er nú 40 stiga
heitt, en var í byrjun 38 stig.
Hitinn hefur hækkað um 2 stig.
Var vatnsborðið 10—15 m. niðri
þegar byx-jað var að bora, en
eftir þessa 2 sólarhringa eru
orðnir 70 m. niður að því.
— Fréttaritari.
Háskólahátíð
á laugardag
HÁSKÓLAHÁTÍÐ verður hald-
in fyrsta vetrardag, laugardág
23. október. kl. 2 e.h. í Háskóla-
bíói.
Þar leikur strengjahljómsveit
undir forystu Björns Ólafssonar.
Guðmundur Jónsson óperusöngv
ari syngúr einsöng. Háskólarekt-
or, prófessor Ármann Snævarr
flytur ræðu. Kór háskólastúdenta
syngur stúdentalög undir stjórn
Jóns Þórarinssonar tónskálds.
Háskólarektor ávarpar nýstúd-
enta, og veita þeir viðtöku há-
skólaþorgarabréfum. Einn úr
hópi nýstúdenta flytur stutt
ávarp, og nýstúdentar syngja
stúdentalag.
Háskólastúdentar og háskóla-
menntaðir menn eru velkomnir
á háskólahátíðina, svo og foreldr
ar
Framhald af bls. 32.
hefur verið stórhrun á Bolung
axvíkurvegi alveg síðan í síð
ustu viku. Víða hafa líka orð
ið minniháttar skemmdir, þar
sem ár hafa flætt á vegi.
— Hvenær reiknið þið með
að vera búnir að koma vegun
um í ökufært ástand?
— Við gerum ráð fyrir, að
umferð verði beint á vegina
á Vesturlandi í dag eða á
morgun, þótt fullnaðar viðgerð
verði ekki lokið strax. Það
mun aftur á móti dragast leng
ur, þar til bráðabirgðaviðgerð
verði lokið á brúnni yfir Jök
ulsá á Sólheimasandi, því að
eins og ástandið var í morgttn,
er ekki viðlit að hefja neinar
framkvæmdir þar fyrr em
lækkað hefur í ánni. Tækán
verða komin að ánni í dag eða
í kvöld, og mun strax verða
hafizt handa, þegar vatnið
sjatnar í ánni.
-— Hvaða skemmdir urðu á
brúnni?
— Brúin, sem er 220 metra
löng, er í tíu höfum og er vest
asta hafið alveg sigið í ann-
an endann og liggur hann
undir vatnsflauminum.
— Og hvernig fer svo við-
gerðin á brúnni fram?
— Um það er ekki hægt að
segja fyrr en athuguð hafa
verið öll verksummerki. Ef
bxúin er ekki þeim mun meka
löskuð og snúin, verður reynt
að lyfta henni með því að
setja trékálf undir annan end
ann. Sé hafið hins vegar
mjög illa farið, getur farið
svo að stytta þurfi brúnna,
sem því nemur. En þetta verð
ur aðeins bráðabirgðaviðgerð,
því að fullnaðarviðgerð getur
ekki fari fram fyrr en ein-
hverntíma næsta vor.
— Hafið þið nokkrar tölur
um það, hvað kostnaðurinn
við lagfæringuna á brúnni
komi til með að verða mikill.
— Nei, það höfum við ekki,
en hann skiptir eflaust hundr
uðum þúsunda. Kostnaðurimn
bara við stöpulinn og við það
að lyfta brúnni og gera nýja
varnargarða. getur hæglega
farið upp í hálfa millón. Þar
við bætist svo kostnaðurinn
við að koma umferðinni á og
allt tjónið sem Vestur-Skaft-
fellingar hafa orðið fyrir af
þessum sökum.
— En hvað um kostnaðinn
við að lagfæra alla þá vegi,
sem urðu fyrir skemmdum?
— Við höfum heldur ekki
tölur um það, en þegar altt
þetta, sem hér er að framan
nefnt, að viðbættum kostnaði
við ýmsar smærri viðgerði r,
er lagt saman, er ekki avo
fjarri lagi að ætla, að heildar
kostnaðurinn geti orðið um
ein til tví»r 11