Morgunblaðið - 22.10.1965, Side 19

Morgunblaðið - 22.10.1965, Side 19
Föstudagur 22. oktöber 1965 MORGU N BLAÐIÐ 19 Frá umræðum á mótmæla- fundinum í Keflavik SL. þriöjudag var sem kunnugt er, lialdinn mótmælafunidur í Keflavík gegn hinum fyrirhug- aða vegatolli á Reykjanesbraut. Var fundurinn afar fjölmennur og umraeður miklar. Fundarboð- endur voru Félag ísl. bifreiða- eigenda. Margt athyglisvert kom ifram í ræðum hinna ýmsu ræðu- tnanma, en það sem einkum vakti furðu manna, voru umæli séra Björns Jónssonar í Keflavík um ivegatollskýlið. Hér fer á eftir stutt frásögn af umræðum á fund inum. Ingvar Guðmundsson, kennari, var framsögumaður á fundinum. Hann gat þess í upphafi, að til fundarins hefði fyrst og fremst verið boðað til þess að ræða rétt mæti vegaskatts þess, sem á- kveðið hefði verði að leggja á Reykjanesbraut. Rakti hann síð- an sögu Reykjanesbrautar, hvern ig hún hefði verið fáfarin þjóð- braut, unz erlent herlið hefði komið hingað samkvæmt beiðni stórnarvaldanna. í>á hefðu flutn ingar um veginn orðið stórkost- legir, en vegurinn hefði hins veg ar ekki notið þess að sama skapi og hefði þá hlotið nafnið Ódáða hraun íslenzkra vega. ‘ Loks eftir 20 ár hefði verið Skveðið að gera steypta akbraut. Sú framkvæmd hefði fyrst og fremst verið gerð til þess að stytta leiðina milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar. í lok ræðu sinnar dró Ingvar saman helztu niðurstöður úr ræðu sinni þannig: 1. Vegfarendur um Reykjanes braut hafa vart um annað að velja en greiða umræddan toll, en fá dæmi eru um slíkar hlið- stæður, þar sem tollvegir tíðk- ast. i 2. Af fjárhagslegum ástæðum eru ekki haldbær rök fyrir því eð skattleggja Keflavíkurveg fremur en suma aðra dýra vegi á landinu. • 3. Þessi vegur hefur fyrst og fremst verið byggður til þess eð tengja Keflavíkurflugvöll við Reykjavík og sparað þannig rík Inu útgjöld við byggingu nýs flugvallar. 4. Bifreiðaeigendur hafa lagt fram meir en nóg fé á undanförn um árum til að byggja þennan veg. 1 Arinbjörn Kolbelnsson, læknir, formaður Félags íslenzkra bif- reiðaeigenda talaði næstur. — Skýrði hann afstöðu F. í. B. til vegatollsins og sagði m.a., að fé það, sem bifreiðaeigendur hefðu lagt til vegamála undanfarin ár, myndi hafa nægt til þess .að gera ella vegi ryklausa og slétta, enda þótt þeir hefðu þá ekki verið steinsteyptir. Gæta yrði að þvl, ef farið yrði inn á þessa leið að leggja á vega- toll, að þá yrði vegurinn gífur- leg peningamylla fyrir ríkið á komandi árum. f þessum málum væri um tvær leiðir að ræða, annað hvort að láta þá miklu skatta, sem bifreiðaeigendur greiða, renna óskipta til vega- mála eða að taka erlend lán til langs tíma og þá byggðir vandað- ir vegir á hinum fjölförnu leið- um og innheimtur tollur af um- ferð um þá. Las hann síðan upp tvær tillögur frá fundarboðend- um, þar sem fagnað var þeirri samgöngubót, sem Reykjanes- braut væri en vegatollinum mót- mælt, en í síðari tillögunni mót- mælt 'þeirri fyrirætlun að fella niður hið fasta framlag ríkisins /til vegamála og gerð sú ályktun að vegafé, sem aflað er með benz ínskatti, verði varið hlutfallslega Jóhann Ragnarsson héraðsdómslögmaður. Málflutningsskrifstofa Vonarstræti 4. — Sími 19085. til endurbyggingar vega á þeim svæðum, sem hans er aflað. Næstir töluðu Guðmundur Einarsson framkvstj., Ragnar Haraldsson, verkfræðingur, Dan íel Einarsson, tæknifræðingur og Páll Jónsson, gjaldkeri. Mælti Guðmundur með vegaskattinum, en hinir gegn. Matthías Á. Mathiesen, alþm. tók síðan til máls og rifjaði upp gang þessa máls frá upphafi og sagði, að 1952 hefði fyrst verið rætt um varanlega gatnagerð hér á landi. 1958 kom fram tillaga um steinsteyptan veg frá Hafn arfirði suður til Keflavíkur og Sandgerðis um Garð og var hún flutt af Ólafi Thors, fyrrverandi forsætisráðherra. Þessi tillaga hlaut afgeiðslu og hefði hún markað tímamót. Ekki hefði ver ið neinn ágreiningur um hana á þingi. Flutningsmaður tillögunnar hefði m.a. bent á nýjar fjáröfl- unarleiðir þ.e. vegartoll vegna þess að hér væri um sérstaklega fjárfreka framkvæmd að ræða. Aftuí hefði málið verið á dag- skrá Alþingis er þeir Jón Skafta son og Geir Gunnarsson fluttu frumvarp til laga um Reykja- nesbraut. Hefðu þeir og bent á sömu fjáröflunarleiðir í sinni greinargerð. Þegar vegalögin svo voru rædd og samþykkt á Alþingi, hefði ver ið í 95. gr. þeirra heimild til þess að taka gjald af umferð á sér- stökum vegum og brúm. Allt frá upphafi hafi engin ágreiningur komið fram um þær fjáröflunarleiðir, sem á hefði verið bent og þegar Alþingi gerði samþykkt í málinu, hefði það verið gert með samhljóða atkvæð um allra alþingismanna. Aldrei hefðu komið fram nein motmæli. Vegatollurinn væri einn þátt- urinn í þessu máli. Margt mætti deila um í sambandi við hann. Ef mótmæla ætti vegatollinum hefði átt að gera það miklu fyrr. Vegatollurinn væri sjálfsagt ekki vinsælli en aðrar tegundir skatta, en með honum hefði ver- ið reiknað frá upphafi og því væri miðað við hann nú. Það sem um væri að ræða með þessari framkvæmd, væri það, að með henni væri mörkuð tímamót í sögu vegamála hér á Xandi með lagningu steinsteyptrar hrað- brautar. Jón Skaptason, alþm., rakti líkt og Matthías Á. Mathiesen sögu þessa máls. Kvaðst hann vera þeirrar skoðunar, að bíla- og bifhjólafjöldinn í landinu ætti einungis að standa undir vegagerðinni Nýju vegalögin hefðu í upphafi virzt ganga í þessa átt, en nú hefði það snúizt við. Nú tæki ríkissjóður miklu meira til sín í sköttum af farar- tækjum en það, sem varið væri til vegamála í landinu og hefði það farið vaxandi ár frá ári. Skipting vegafjárins undan- farin ár á milli hraðbrauta og annarra hluta- vegakerfisins hefði verið mjög óréttlát og hefðu hraðbrautirnar hlotið miklu minna en þeim l>ar. Sagði ræðumaður, að miða bæri að því, að allir sérskattar af farar- tækjum rynnu til vegamála og enn fremur yrði að miða skipt- ingu vegafjárins við umferð við komandi vega. Jón kvaðst hafa talið, að ef heimildin um vegatoll yrði not- uð, þá yrði hún notuð um alla steinsteypta vegi og mætti þar engin mismunun koma til. Um það mætti deila, hvort rétt hefði verið að veita ríkisstjórninni þá víðtæku heimild, sem gert hefði verið. „Ég vil ekki skorast und- an þeirri ábyrgð“, sagði ræðu- maður, „sem ég átti að því en fyrir mér lá málið þannig við, að þetta væri einasta leiðin til þess að Já steypta aðalvegina í landinu og að notendur þeirra yrðu að sætta sig við hóflegt skattgjald, sem gengi jafnt yfir alla, þar sem aðstæður væru svip aðar“. Kvaðst Jón hafa rætt við nokkra menn á Suðurnesjum um þetta atriði þá, og hefðu þeir ekki hreyft mótmælum. Valtýr Guðjónsson, útibússtj. Hákon Heimir Kristjánsson lögfr. Kristján Pétursson, ráðn- ingarstj.,. Sveinn Torfi Sveins- son verkfr., ólafur L. Jóhanns- son, Sigfús Kristjánsson tollv. og Ragnar Guðleifsson bæjarftr. töluðu næstir og mæltu allir gegn vegatollinum. Alfreð Gíslason forseti bæjar- stjórnar Keflavikur sagði m.a., að aðferðin við að innheimta vegtollinn væri ekki Tétt. Kvað hann rétt að mótmæla vegatoll- inum, eins og margir hefðu gert á undan honum. Réttast væri að mótmæla öllum vegatolli í fram tíðinni. Séra Björn Jónsson sagði m.a., að ekki hefði komið fram næg mótmælaalda á fundinum gegn vegatollinum. Héfðu flestir fund armenn aðrir en frummælandi svo að segja lofsungið vegaskatt- inn hver á fætur öðrum, eins og hann komst að orði, og spurði síðan, hvort þeir væru sendi- menn einhvers æðri máttar. Sagði hann, að það væri skylda Suðurnesinga að mótmæla vega- tollinum fram á síðustu stundu. Séra Björn sagðj síðan sögu. af bílstjóra, sem æki um Reykja- nesbraut á hverjum degi og sem nokkrum dögum áður hefði kom ið að vegatollsskýlinu, þar sem innheimta ætti skattinn. Hefði bílstjórinn komizt að raun um, að skýlið væri ekki reist á steinsteyptum grunni. og er hann kom að máli vi’ð menn þá, sem voru að vinna við skýlið, hefði það komið fram í umræ'ðum þeirra, að ekki myndi vera mikil vandkvæði á því, að rífa skýlisfjárann upp, eins og séra Björn komst að orði og flytja skýlið til Keflavíkur. Að lokum tóku aftur til méls þeir alþingismennirnir Jón Skaptason og Matthías Á. Mathiesen. Svaráði Mathias nokkrum fyrirspurnum, sem til hans hafði verið beint á fundin- um, en Jón sagði, að vegaskattur sem legðist jafnt á alla steypta vegi í landinu og talinn yrði hóf legur, ætti rétt á -sér, ef þannig mætti flýta vegagerð. SÍÐASTLIÐNA miðvikudags- nótt rann mannlaus 7 tonna vöru bíll á húsið Sæunnargötu 4 í Borgarnesi og braut stórt gat á kjallaríbúð hússins og olli skemmdum á innanstokksmun- um. í samtali við blaðið sagði Her- mann Jóhannesson, trésmiður, að hann hefði hrokkið upp úr fasta svefni. er grjót og steinflísar sáldruðust yfir hann, þar sem hann svaf innan við vegginn. Vörubíllinn mun hafa staðið efst í bröttum halla, en. eigandi bíls ins kveðst hafa skilið við hann kl. 10 um kvöldið í gír og hand- bremsu, eins og lög gera ráð fyrir en stormur og stórviðri geisaði þá um kvöldið. Fór bíllinn ekki af stað fyrr en um tvöleytið um nóttina. Á leið sinni niður brekk una lenti vörubíllinn á nýjum Volvo stationbíl og reif af hon- ÞESSI tvö litlu börn komu I gærdag á skrifstofu Morg- unblaðsins með sparibauk- ana. Þau vildu leggja pening ana, sem þau höfðu safnað saman, í fjársöfnun þá, er nú fer fram vegna bruna á bænum Gilsbakka í Eyja- SJóPRÓF vegna ■ bátsins Stráks, sem fórst út af Grindavík s. mánudag, fór fram hjá bæjar- fógeta í Hafnarfirði. Komu þar fyrir skipstjóri, vélstjóri og stýrimaður á Strák. Sögðu þeir frá sjóslysinu og hefur það að mestu komið fram í blöðum. Skipið fékk, á sig brotsjó, mun hafa slegi’ð úr sér og komið að því leki. Vélstjórinn kvaðst hafa farið niður skömmu eftir að brotsjór- inn kom á bátinn og sá þá að óeðlilega mikill sjór var í vélar- rúmi. Var svinghjólið fari’ð að taka sjó. Var ljósavéladælan þá sett í samiband, en hin dælan var þegar í gangi. Þrátt fyrir það smáhækkaði sjórinn í bátnum. Voru menn þá strax settir í að dæla Hka með þilfarsdælunni. Það kom fram í þessu sjóprófi, um annað brettið, og má af því marka ferðina á bílnum! Gatið, sem á húsið kom, var meira en fermeter að. innan, og auk þess setti grjóthríðin gat á gólfteppi og skemmdi bæði sófa borð og sófa. Hermann sagði, að svo einkennilega hefði viljað til, að kona hans var fjarverandi með barn þeirra hjóna, en vöru- bíllinn kom einmitt’ á þann stað, sem barnið sefur og kvað Her- mann steinana, sem hefðú lent á barnarúminu hafa verið svo þunga, að hann hefði tæplega valdið þeim einn. Matsmaður tryggingarfélag- anna kom á staðinn daginn eftir og mat hann skemmdir á innan stokksmunum og gat á vegg á 11.500 krónur, en þess má geta að veggurinn mun hafa kross- sprungið af högginu og getur far- ið að leka þá og þegar. firði. Bömin heita Hildur Runólfsdóttir og Jón Runólfs son, Öldugötu 50 hér í borg. Hildur er fjögurra ára göm- ul, en Jón átta ára. Systkin- in höfðu safnað alls 428 kr. í sparibaukana. hversu slæmt það getur verfð. þegar verið er að vinna í báturn. að ekki eru hreinsaðir nægilega vel upp hefilspænir og annað drasil á eftir. En það mun vera algengur trassaskapur. Þá vill spónarusli’ð fara í síurnar, sem eru fyr'ir lensidælunum, og þær vilja stíflast. Strákur hafði ver- ið í slipp í september og var þá eitfhvað verið að smíða niðri I bátnum og þa’ð fór í kjalsogið. Þegar sjórinn hækkar í vélar- rúminu, er ekki lengur hægt að komast að því að hreinsa þetta úr síunum. Af þeim sökum dældu lensidælurnar á Strák ekki eina vel og þær áttu--að gera. Og er þetta gott dæmi um hversu slæm ur ósiður það er-að hreinsa ekki eftir vi'ðgerðir. Þegar sjór var kominn í ökla á gólfinu var vélin stöðvuð og var hugmyndin að reyna að nota hana, ef mögulegt reyndist að gera tilraun til að ná inn I Grindavíkurhöfn. Var hún sett snöggvast í gang aftur, skipinu snúið fyrir vind og sett upp segk Skipi'ð hafði svolitla ferð og lét sæmilega að stjórn og var því siglt. Ljósavélin gekk allan tím- ann þangað til eftir að allir voru farnir frá borði. Frá björgun skip verja hefur ýtarlega verið sagt áður. Bátinn rak svo vestan við Selatanga, en tveir gúmmibátar komu áð landi við ísólfsskála. Voru það báturinn sem skipverj- arnir 7 fóru í um borð í togar- ann, en hinn var bátur brezka togarans, sem búið var að setja út og slitnaði aftan úr hjá þeim. Var farið suðureftir í gær til að atfhuga hvort hann væri heill. Rakst á strætisvagn UM 11 leytið varð harður árekstur vfð Múla milli fólks og strætisvagns. Strætisvagninn var kyrrstæður og lenti fólksbillinn framan á honum. Ökumaður var færður í blóðrannsókn. Hann hafði slasazt eitthvað og einnig farþegi í bíl hans. Þeir voru á Slysavarðstofunni er bláðið fór í prentun. Mannlaus vörubíll brýtur hús í Borgarnesi Einskær mildi að ekki hlau zt slys af Frá sjóprófi hjá Strák Rusl eftir viðgerðir sezt í dælusigtin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.