Morgunblaðið - 22.10.1965, Side 30
30
MORGU N B LAÐIÐ
FÖstudagur 22. október 1965
ÍBK og Akranes
mætast á morgun
Og nú fást örugglega úrslit
„Aul^aleikur“ Keflvíkinga og
Akurnesinga í Bikarkeppni KSt
hefur nú verið ákveðinn á laug-
ardag og hefst kl. 3 siðdegis á
Melavellinum. Þessi lið skildu
sem kunnugt er jöfn s.l. sunnu-
dag eftir tveggja tíma viðureign.
En nú fást örugglega úrslit því
reglur mæla svo fyrir, að verði
jafntefli að venjulegum leik-
tíma loknum í slíkum „auka-
leik“, skuli fram fara víta-
spyrnukeppni, 5 spyrnur á hvort
mark, og verði enn jafnt. af
þeim loknum, skuli hlutkesti
ráða úrslitum.
helgi úr, því nauðsyn væri á að
ljúka keppnistímabilinu vegna
þess að ailra veðra er nú von
og einun.gis hægt að leika um
helgar.
je Hvor sigrar?
Engu skal spáð um úrslit I
þessum leik. Eftir hinum fyrri
verður þó að telja Kefivíkinga
öllu sigurstranglegri, þó þeir
hafi sýnt að liðinu gengur illa
að skora mörk, þrátt fyrir ótal
tækifæri.
Frá sýningunni í Keflavík.
jf Óstöðugt veður «*.
Jón Magnússon form. móta-
nefndar KSÍ sagði í gær að á-
kvörðunin um að hafa leikinn á
laugardag væri tekin vegna
hættunnar á slæmu veðri á þess
um árstíma. Verði vitlaust veð-
ur á laugardag hefur mótanefnd
in upp á sunnudaginn að hlaupa.
Sagði Jón að nefndin gæti ekki
átt það á hættu, að missa þessa
Fiúarleikfimi
ó vegum
Ármanns
í VETUR verður frúarleik-
fimi hjá Ármanni og verða æf-
ingar í íþróttahúsi Jóns Þor-
steinssonar. Verður kennt á
þriðjudögum og föstudögum
frá kl. 9-10. Kennsla hófSt 15.
október. Kennari er Ragnheið-
ur Benney Ólafsdóttir.
Einnig verður frúarleikfimi á
vegum Ármanns í Breiðagerð-
isskóla og eru æfingar þar á
mánudögum og miðvikudögum
kl. 8.30 til 9.20. Kennsla þar
hefst næstkomandi miðvikudag.
Kennari verður Halldóra Ama-
dóttir.
Glæsileg glímusýning Ármenninga
IVIær 30 glímumenn í sýningarferð
meðan 50 voru á æfingu
UM HELGINA síðustu fór 26
manna. flokkur úr Glímudeild Ár
manns til Keflavíkur og efndi
til sýningar á glimu og fornum
leikjum í Félagsbíói fyrir nær
fullu húsi áhorfenda. Sýningar-
stjóri var Hörður Gunnarsson,
formaður Glímudeildar Ár-
manns.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá hefur þátttaka unglinga og
drengja í starfi Glímudeildar Ár
manns verið með mesta móit í
haust og eru nú skráðir á annað
hundrað drengir, sem taka þátt
í æfingum deildarinnar, þar af
létu um 70 skrá sig þegar á
fyrstu æfingunni, sem var í októ
berbyrjun. Varð að endurskipu-
leggja æfingatíma deildarinnar
vegna þessarrar miklu þátttöku
og æfa nú drengir á aldrinum
6—16 ára 5 tíma í viku. Þá hef-
ur þátttaka glímumanna eldri en
16 ára aukizt einnig en þjálfari
þeirra er hinn góðkunni glímu-
maður Gísli Guðmundsson, en
kennari drengja Hörður Gunnars
son.
Vegna hins vaxandi áhuga á
glímu, sem í ljós hefur komið í ár
ákvað stjórn glímudeildarinnar
að efna til kynningar- og sýning
arferðar til Keflavíkur um síð-
ustu helgi, eins og fyrr er sagt.
Hafa slíkar ferðir áður verið farn
ar á vegum deildarinnar, t.d. til
Akranes, og víðar. Tóku alls 26
Austurríkí -
Englund 3-2
Austurríkismenn og Eng-
lendingar léku landsleik í
knattspyrnu á miðvikudags-
kvöldið og fór leikurinn fram
á Wembley leikvanginum í
London.
Austurríkismenn sigruðu
með 3 mörkum gegn 2. Kom
* sigur þeirra mjög á óvart því
allir höfðu búizt við fremur
auðveldum sigri Englend-
inga.
1 hálfleik var staðan 1—0
Englendingum í vil.
Stangastökkvurum og hástökkv-
urum settur tímafrestur í keppni
Keppni milli Evrópuliðs og
Bandaríkjanna ákveðin næsta ár
Ákveðið hefur verið að
stofna til frjálsíþróttakeppni
milli sameinaðs liðs Evrópu
gegn liði Bandaríkjanna. Verð-
ur keppnin háð í sambandi við
Evrópumótið í Budapest á
næsta ári eða 7. og 8. október.
Munu úrslit Evrópumótsins ráða
vali liðs'manna Evrópuliðsins.
Keppnin mun fara fram í ein-
hverri þýzkri borg. Jafnframt er
samið um aðra samskonar
keppni 1967 og fer hún fram
í Montreal í Kanada.
Þessi samskipti milli Evrópu
og Bandaríkjanna voru ákveðin
á stjórnarfundi alþjóða frjáls-
íþróttasambandsins sem nýlokið
er í New York. Á sama fundi
var felld tillaga Rússa um að
tekin verði upp heimsmeistara-
keppni í frjálsum íþróttum, svo
enn verða það Olympíuleikarn-
ir sem verða höfuðkeppni
frjálsíþróttamanna heimsins.
Á fundinum voru gerðar sam-
þykktir um tæknileg mál. T. d.
var samþykkt að þyngja spjót
sem notuð eru í frjálsíþrótta-
keppni. Verður oddur þeirra
þyngdur um 20 grömm. Er þetta
tilraun til að koma í veg fyrir
hin mörgu ólöglegu köst sem
orsakast af því að spjótið kem-
ur flatt niður, en reglur mæla
svo fyrir um að kastið sé ekki
gilt nema að oddur spjótsins
marki far í völlinn.
Þá var og gerð samþykkt til
að koma í veg fyrir að stangar-
stökkskeppni og hástökkskeppni
tefji ekki kappmót svo lengi
sem verið hefur. Var ákveðið að
hver keppandi í stangarstökki
fái ekki meira en 3 minútur til
að gera stökktilraun og hver
keppandi í hástökki fái 2 mín-
útur til hverrar tilraunar. Ljúki
menn sér ekki af á þessum tíma
telst tilraunin gerð eigi að síð-
ur.
glímumenn þátt í förinni, bæði
eldri og yngri, auk stjórnandans
Harðar Gunnarssonar.
Tókst ferðin mjög vel og var
sýnt í Félagsbíói fyrir nær fullu
húsi. í upphafi ávarpaði glímu-
stjórinn gesti og ræddi gildi glím
unnar sem íþróttar og uppeldis-
þáttar í íslenzku menningarþjóð-
félagi í dag. Þá gat hann hins
ábyrgðarmikla hlutverks, sem
æskunni væri sett á herðar um
varðveizlu og iðkun glímunnar
á komandi tímum og hét á þá
yngstu að sameinast um viðgang
þjóðaríþróttarinnar, glímunnar.
Síðafi voru sýnd brögð og varnir,
léttar glímur og nokkrar kapp-
glímur, auk þess að nokkrir fora
ir leíkir voru leiknir, m.a. hrá-
skinnsleikur, sem þykir skemmti
legur enda gefur að líta hinar
snörpustu viðureignir knárra
manna. Að lokum fór fram
bændaglíma. Bændur voru bræð
urnir Guðmundur Freyr og Val-
geir Halldórssynir en hinn fyrr
nefndi er Keflvíkingur. Glímt
var af miklu fjöri enda spenning
ur meðal áhorfenda. Laúk svo
viðureigninni, að heimamenn
urðu hlutskarpari og hlutu í sig
urlaun fagran silfurbikar, sem
glímt var um.
Oílufft stari Ské&a-
ráÖsins si. starisár
Ellen Sighvatsson endur-
kjörinn formaður
Aðalfundur Skíðaráðs Reykja-
víkur var haldinn s.l. mánu-
dagskvöld og sóttu hann 22" full
trúar Reykjavíkurfélaganna.
Fundarstjóri var kjörinn Sigur-
jón Þórðarson form. skíðadeild-
ar fR en fundarritari Guðjón
Valgeirsson úr skíðadeild Ár-
manns.
Formaður ráðsins, Ellen Sig-
hvatsson, las skýrslu stjórnar-
innar sem sýndi góðan árang-
ur á s.l. starfsári.
Auk þátttöku í skíðamótum í
grennd við Reykjavík mættu
reykvískir skíðamenn til keppni
á landsmótinu á Akureyri,
Skarðsmótinu á Siglufirði og
Vestfjarðamótinu á ísafirði,
sumarmóti í Kerlingafjöllum og
enn fremur fóru reykvískir
skíðamenn til keppni í Voss í
Noregi í marz s.l.
Form. minntist Jóhanns Sig-
urjónssonar, KR sem lézt á s.l.
starfsári.
Stefán Kristjánsson form. SK
í mætti á fundinum og minntist
á nauðsyn góðrar þjálfunar
skíðamanna frá blautu barns-
beini. Ennfremur tilkynnti hann
um skíðanámskeið á vegum SKÍ
sem haldið verður í Siglufjarð-
arskarði í nóvemiber n.k.
Gjaldkeri Skíðaráðsins, Þor-
bergur Eysteinsson, las upp
reikninga ráðsins, sem sýna góð
an fjárhag ráðsins á síðasta
starfsári. Kosning fulltrúa í
stjórn fyrir næsta starfsár fór
þannig:
Form. Ellen Sighvatsson ÍK,
ritari Jens Kristjánsson KR,
gjaldkeri Þorbergur Eysteins-
son, ÍR, æfingastjóri Sig. R.
Guðjónsson Á og áhaldavörður
Björn Ólafsson Víking.
Leiðrétting
Sá misskilningur átti sér stað
hér í blaðinu 1 gær, er greint
var frá væntanlegum landsleikj
um í vetur, að sagt var að áríð.
andi væri að svarbréf hefði bor.
izt frá pólska handknattleiks.
sambandinu fyrir 12. desember.
Þar átti að vera, að áríðandi
væri, að íþróttahöllin yrði til.
búin- ekki seinna en 12. des.
emfoer til þess að undirbúning.
ur undir leikina við Pólverja
gæti gengið að óskum, því að
nauðsynlegt er fyrir liðið að
æfa í sal af löglegri stærð.
Ennfremur var sagt í grein-
inni, að íslenzku stúlkurnar
hefðu sigrað þær dönsku en,
eins og flestum mun í fersku
minni, lauk þeirra leik með
jafntefli, þótt íslenzku stúlkum-
ar færu aftur á móti með sig-
ur úr býtum á Norðurlanda-
meistaramótinu.