Morgunblaðið - 02.11.1965, Síða 31
ÞriðjucFagUr 2. nóvember 1965
MORCUNBLAÐIÐ
31 ’
FJÓRIB harðir árekstrar urðu
um helgina, allir utan Reykjavík-
ur. í þeim urðu slys á fólki og
tjónið á bifreiðunum nemur
hundruðum þúsunda.
Fyrst af þessum slysum varð
um kl. 8 á laugardagskvöld á
hinum malbikaða kafla Kefla-
víkurvegarins milli Ytri- og Innri
Njarðvíkur. Þar hafði leigubíll
af Taunus-gerð úr Keflavík num
ið staðar til að hleypa farþega
út, en í því bar að Skoda-bíl, sem
einnig var úr Kefiavík. Steig
ökumaður hans á hemlana, én við
það sveigði bíllinn til hægri
inn á veginn, en þar sem áætl-
unarbíll kom á móti, reyndi öku-
ma'ður að sveigja bílinn aftur til
vinstri, en vegna hálku snerist
híllinn, lenti með hægri aftur-
enda á leigubílnum og kastaðist
á nokkurri ferð út af veginum.
Tvær systur, 13 og 14 ára, sem
voru í Skodabílnum, köstuðust
út úr honum við höggið og hlutu
áverka á höfði. Þær voru fluttar
til skoðunar í sjúkrahúsið í Kefla
vík.
Báðir bílarnir skemmdust tals
vert.
Árekstur austan við
Skíðaskálann
Skömmu eftir kl. 10 á laugar-
dagskvöld var tilkynnt til lög-
reglunnar á Selfossi og í Reykja-
vík um árekstur, sem hefði orðið
í brekku og beygju rétt austan
við Skfðaskálann-í Hveradölum.
Þar rákust saman útleigubíll
úr Reykjavík,- sem hefur ein-
kennisstafina E-605, og bíll úr
Borgarfirði, M-489. í Reykjavík-
urbílnum voru maður og kona.
Meiddist maðurinn í andliti, hönd
um og fótum, en konan hlaut
mikið höfuðhögg. Voru þau bæði
flutt á Slysavarðstofuna í Reykja
vík. Engann sakaði í Borgarfjarð
arbílnum. Báðir bílarnir skemmd
ust mikið.
Árekstur á brú í Holtum
Undir miðnætti á laugardags-
kvöld rákust saman bíll úr Hafn-
arfirði og bíll úr Reykjavík á
mjórri brú á Steinslæk í Ása-
hreppi í Holtum.
í þeim báðum var ungt fólk,
sem hafði farið austur vegna
dansleiks á Hvolsvelli. í ö'ðrum
Murville og Kos-
ygin ræðast vi&
— gagnrýni á sfefnu Banda-
rikjaima í Vietnam, en ekki
miimzt á Berlín
Moskvu, 1. nóv. — NTB I
UTANRIKISRÁÐHERRA Frakka
Couve de Murville, átti í dag við
ræður við aðalritara kommúnista
flokks Sovétríkjanna, Leonid
Breshnev. Stóð samtalið í hálfa
aðra klukkustund.
Murville, sem verið hefur í
nokkurra daga opinberri heim-
sókn í Sovétríkjunum, átti, að
sögn fransks talsmanns, viðræð-
ur við Breshnev um sameiginleg
hagsmunamál Frakklands og Sov
étríkjanna.
Breshnev lýsti áhyggjum Sovét
stjórnarinnar yfir áætlunum um
kjarnorkuflota Atlantshafsríkj-
anna, og aðild Bandarikjanna að
styrjöldinni í Vietnam.
I viðræðunum í dag, var mest
rætt um Þýzkalandsmálið, sér-
staklega vopnabúnað Þjóðverja.
| Ekki mun þó Breshnev hafa farið
þess á leit, að Frakkland viður-
kenndi A-Þýzkaland. Hins vegar
minntist Breshnev ekki á Berlín-
armálið.
Hann lagði mikla áherzlu á það
við Murville,að ástandið í al-
þjóðamálum sé ótryggt, fyrst og
fremst vegna styrjaldarinnar í
Vietnam. Hann ásakaði banda-
rísku stjórnina fyrir að standa i
vegi fyrir eðlilegri þróun mála
þar í landi.
Murville kom í dag frá Sochi,
við Svartahaf, þar sem hann átti
viðræður við Kosygin, forsætis-
ráðherra, og Mikoyan, forseta.
Haft er eftir talsmanni franska
utanríkisráðherrans, að yfirlýs-
ing um viðræðurnar verði gefin
út á morgun, þriðjudag.
bílnum voru fjórir piltar, en
þrjár stúlkur og þrír piltar í hin-
um.
Brúin er um 20 metra löng með
járnhandriðum og er innanmál
hennar um 3,5 metrar, svo von-
laust var fyrir bílana að mætast.
Annar ökumaðurinn ber, að báð-
ir bílarnir hafi lækkað ljósin, en
hann kváðst ekki hafa gert sér
grein fyrir að þarna var brú,
fyrr en um það bil, sem árekst-
urinn varð.
f báðum bílunum slösuðust sex
manns meira eða minna, hlutu
beinbrot, höfuðhögg og fleiri
mei'ðsli. Var fólkið flutt á sjúkra
húsið á Selfossi fyrst í stað, en
þaðan í Slysavarðstofuna í
Reykjavík.
Báðir bílarnir eru mikið
skemmdir, en litlu munaði að
þeir færu út af brúnni. Hékk aft
urendi annars út af henni, en
I það sem bjargaði því að bíllinn
i hélzt á brúnni var að afturendi
I hins bílsins lá ofan á frgmenda
I hans.
Árekstur skammt frá
Staupasteini
Um hádegisbilið á sunnudag
var árekstur á þjóðveginum inn-
arlega í Hvalfirði, nálægt Staupa
steini, þar sem er blindbeygja og
blindhæð. Var mikil ísing á veg-
inum.
Þrjár konur voru í bíl á leið
frá Reykjavík til Akraness, en
bíllinn, sem á móti kom var með
fjóra farþega auk ökumanns.
Við áreksturinn hlaut konan,
sem ók fyrrnefnda bílnum, högg
á höfuðið og marðist á hand-
legg. Hinar meiddust lítið.
í síðarnefnda bílnum meiddist
enginn, nema kona, sem marðist
nokkuð á fótleggjum.
Báðir bílarnir skemmdust svo
að flytja varð þá af áreksturs-
stað. Báðir voru frá Akranesi, en
þeir voru á lítilli ferð er árekst
urinn varð.
Bagdad. 1. nóv. NTB.
• Dablaðið „A1 Balad“ í
Bagdad skýrði svo frá í gær,
að upp hefði komizt um sam-
særi gegn stjórn landsins.
Bonn, 1. nóv. NTB.
• Um það bil 150 manns hafa
verið settir í sóttkví í Vestur-
Þýzkalandi vegna bólusóttar-
tilfellis,' sem vart varð fyrir
helgina; Var þar um að ræða
þýzkan verkfræðing, sem var
að koma frá Tanzaniu.
Borgarstjórakosn-
ingar í New York
baráilan miðði Lindsey* *
©g lieaine
New York, 1. nóvember.
— AP — NTB —
UM tvær og hálf milljón
manna munu á morgun ganga
að kjörborði í New York, er
kosinn verður nýr borgar-
stjóri. Er talið, að úrslit borg-
arstjórakosninganna nú séu
tvísýnni en verið hefur um
langt skeið.
Tveir höfuðandstæðingarn-
ir eru fulltrúi republikana,
John Lindsey, og Abraham
Beame, fulltrúi demókrata.
Síðustu athuganir benda til
þess, að atkvæði 200.000
manna muni ráða úrslitum.
Þriðji frambjóðandinn er úr
flokki demókrata, William Buck-
ley, en hann er almennt talinn
mjög íhaldssajnur. Flestir stjórn-
Háskólafyrir-
lesliir í kvöld
UM þessar mundir er staddur
hér þekktur sovéakur fræðimað-
ur á sviði alþjóðamála, German
Míkhailovítsj Sverdlof. Hann
starfar við þá stofnun Vísinda-
akademíu Sovétríkjanna, sem
fæst við rannsóknir á sviði efna-
hagsmála og alþjóðlegra sam-
skipta. G. M. Sverdlof hefur
skrifað fjölmar.gar greinar um
alþjóðamál í sovézk vísindarit,
og í fyrra kom út eftir hann
bók er nefnist „London and
Bonn“. Hann hefnr farið i
fyrirlestraferðir um mörg lönd,
þ. á m. Bandaríkin, Austurríki,
Sviss, Júgóslavíu og Norður-
lönd.
G. M. Sverdlof heldur fyrir-
lestur í boði Háskóla Islands um
efni úr fræðigrein sinni miðviku-
daginn 3. nóv. kl. 5.30 e.h. í
1. kennslustofu Háskólans. Fyrir-
lesturinn verður fluttur á ensku.
Öllum er heimill aðgangur.
Guatamala, 1. nóv. NTB.
• Mario Mandea Montenegro,
einn af helztu frambjóðend-
um til forsetakosninga í
Guatamala fannst sl. sunnu-
dag látinn af skotsári. Af op-
inberri hálfu segir, að hann
hafi sjálfur ráðið sér bana,
en margir eru þeirrar skoðun-
ar að hann hafi verið myrtur.
Montenegro, sem var 55 ára að
aldri var talinn liklegastur tii
sigurs í forsetakosningunum,
sem fram eiga að fara í marz
nk.
, demckr.
málafréttaritarar eru þeirfar
skoðunar, að Buckley hafi enga
möguleika á að verða kjörinn, en
muni hins vegar að öllum líkind-
um taka mörg atkvæði frá Be-
ame.
Síðasta skoðanakönnun í New
York sýnir,að 18% kjósenda
styðja Buckley, en um 40% hvorn.
hinna frambjóðendanná.
„New York Herald Tribune"
heldur því hins vegar fram í dag,
að Beame njóti stuðnings fleiri
en Lindsey.
Nelson Rockefeller, ríkisstjóri,
sem hafði áhuga á að vera í fram
boði, sneri blaðinu við, og dró sig
til baka, vegna tilmæla Lindseys.
Lindsey er 43ára, og á sæti í
fulltrúadeild bandaríska þings-
ins. Nái hann nú kosningu, er
gert ráð fyrir, að vegur hans inn-
an Repúblikanaflokksins muni
mjög aukast, og kunni hann jafn-
vel að verða i framboði til
næstu forsetakosninga fyrir
flokk sinn. Lindsey var einn af
hörðustu andstæðingum Barrys
Goldwaters, í síðustu forsetakosn
ingum vestra.
— Alsir
Framhald af bls. 1
að þurfa að snúa heim aftur,
þar eð Alþýðulýðveldið Kína
og nokkur önnur ríki hafi á-
kveðið að kollvarpa fundin-
um.
Stjórnmálafréttaritarar í Al-
geirsborg segja, að meginástæð-
an fyrir því, að tilkynning utan-
ríkisráðherrFrma hefur ekki enn
verið birt, sé sú, að í dag hafi
verið minnzt 11 ára afmælis
alsírsku byltingarinnar, sem
leiddi til aðskilnaðar Frakklands
og Alsír.
Að lokinni hersýningu í Al-
geirsborg í dag, hélt Houari Boue
dienne, forsætisráðherra, ræðu,
þar sem hann bað almenning að
herða mittisólina, og taka hönd-
um saman um uppbyggingu efna-
hagskerfis landsins.
Á hersýningunni voru sýnd
margs konar nýtízku vopn, m.a.
sovézkar eldflaugar, sem beita
má gegn flugvélum, og skotmörk
um á jörðu niðri. Flugvélar þær,
sem sýndar voru í dag, voru
einnig allar sovézkar.
Boumedienne lagði á það á-
herzlu, að efnahagsörðugleikar
þjóðarinnar væru arfur frá stjóra
artíð Ben Bella, fyrrum forseta.
Boðaði Boumedienne strang-
ara eftirlit með sjálfseignarbænd
um, en öðrum bændum myndi
gefinn kostur á að taka í sinn
hlut ágóða af landbúnaðarfram-
leiðslu.
HÉR var vetrarlegt í gær, en fjörðum. í Frakklandi var
hiti var þó víðar yfir frost- um 15 st. hiti, nálægt 10 st.
marki en undir um miðjan hiti á Bretlandseyjum og á
daginn. Fyrir norðan voru Norðurlöndum. Væntanlega
smáél einkum þó á NA-landi hefur hiti verið um frostmark
en bjart veður sunnan lands í NeW York í nótt.
og vestan og einnig á Aust-