Morgunblaðið - 18.12.1965, Qupperneq 4
4
MORGU N BLAÐIÐ
Laugardagur 18. des. 1965
STDHARIK STERKIR UTIR
> STEINAR OG STERKIR LIT-
IR, svipmyndir 16 myndlistar-
manna. 262 bls. Skálholt h.f.
STEINAR og sterkir litir er allt
í senn, falleg bók, fróðleg og
skemmtileg. Björn Th. Björnsson
reifar efnið í formála. Fimmtán
rithöfundar, flestir kunnir, skrifa
um jafnmarga málara eða mynd-
höggvara og einum betur. Flestir
þættirnir eru meira eða minna í
viðtalsformi. Og allir virðast þeir
vera byggðir á persónulegum
kynnum höfundar og listamanns.
Höfundarnir gæta yfirelitt hófs
— fæstir þeirra nota tækifærið
til að auglýsa eigin andagift og
verðleika, þannig að réttir aðilar
, njóta sín í bókinni.
Rithöfundar og myndlistar-
menn eiga vel saman; kannski
betur en nokkrir listamenn sömu
igreinar. Samband ritlistar og
myndlistar er í senn dularfullt
og opinbert. Gömlu málararnir
ortu í myndir sínar. Margir rit-
höfundar dútla við myndlist í
tómstundum. Og skáldhneigð mál
ara og myndhöggvara er alkunn.
Myndskreyttar Ijóðabækur eru
einhver þekkilegasti munaður í
þessu lífi. Þar upphefur hvort
annað: myndin og ljóðið. Stund-
um koma rithöfundar á mynd-
sýningar og lesa þar úr verkum
sinum. Það uppvekur klára
stemning.
„Það er eðli listamanns að vera
sjálfhverfur," segir Björn Th. í
formálanum.
Ef þau orð skiljast ekki strax,
þá skýrast þau að minnsta kosti
við lestur bókarinnar. Og raunar
þarf ekki að lesa hana, til að átta
sig á inntaki þeirra. Maður þarf
aðeins að skoða ljósmyndirnar
á síðum bókarinnar, sem sýna
listamanninn niður sokkinn í
starf sitt eða hvílandi á legu-
bekk í vinnustofu, umkringdan
áhöldum sínum og verkefnum.
Listamaðurinn er sjálfhverfur.
Samt er hann alltaf að sýna sig.
Þess vegna er honum hvorki eðli-
legt né mögulegt að fela persónu
sína. Hún birtist hvort eð er í
verkum hans. Ef listamaðurinn
er ekki bóhem að upplagi, eru
sjálfsagt líkur til, að hann verði
að minnsta kosti brot af bóhem
vegna atvinnu sinnar.
Ætli það sé ekki þessi sjálf-
hverfa, útgeislandi persóna lista-
manna, sem gerir marga þeirra
að þjóðsagnapersónum í lifanda
lífi? Flestir þættirnir í Steinum
og sterkum litum (allt of klúðr-
að nafn á svona góðri bók) bera
keim af þjóðsögu. Listamaðurinn
er nefnilega bæði galdramaður
og útilegumaður í samfélaginu.
En lítum aðeins á þættina
sjálfa.
Sigurður A. Magnússon riður
á vaðið og skrifar um Ásmund
Sveinsson. Meginhluti þáttarins
er viðtal, og hygg ég hann nái
meistaranum vel í því viðtali.
Ég minnist þess, að Gunnar
heitinn Rúnar sýndi mér einu
sinni prýðisgóða mynd, sem hann
hafði tekið af Ásmundi, og sagði
um leið: „Er þetta ekki stórkost-
legt sambland af búra og heims-
borgara?"
Ásmundur er einn þeirra
manna, sem bera persónu. Sálu-
félag við hann og Sigurð A.
mun engum spilla.
Næstur er þáttur Baldurs Ósk-
arssonar. Baidur skrifar um Jón
Engilberts. Það er eitthvað forn-
mannslegt, eitthvað vikingslegt,
eitthvað stórbrotið við Egilberts;
eins og hann sé genginn beint út
úr Landnámu. Baldur gerir hon-
um tæpast nógu góð skil, reynir
að vera háfleygur sjálfur og láta
ljós sitt skína, sem ekki tekst.
Og ekki rennir mig grun í, hvað
Baldur á við, þar sem hann seg-
ir, að Jón Engilberts sé „natúral-
SViPMYNDiR 16 MYNDUSTARMANNA
isti að vitund almennings."
Gísli Sigurðsson ritar prýði-
legan þátt um Eirík Smith. Fáir
gera verkefni sínu betri skil í
þessari bók.
Hannes Pétursson situr þrjú
kvöld andspænis Sigurði Sigurðs
syni og rabbar við hann um lífið
og listina. Þar eru tveir Skag-
firðingar, sem skilja hvor annan.
Þægileg, heimspekileg ró hvílir
yfir samræðum þeirra.
Sveinn Einarsson talar við
Nínú Tryggvadóttur. Hann setur
samtalið upp í leikritsformi; auð
vitað, leikhúsmaðurinn. Nína
spilar á harmóníku og segir, að
sér finnist „New York í dag meiri
miðstöð fyrir málara en London
eða París.“
Næstur er Matthías Johannes-
sen og ræðir við Gunnlaug
Scheving. Matthías er hinn mikli
viðtalsmeistari íslenzkra bók-
mennta. Hann hefur fágað það
form svo mjög, að helzt minnir
á smásagnaform, eins og það ger-
ist fullkomnast. Ef íslendingar
V£Mim
ZENITH sjónvarpstæki í miklu úrvali —
Sjónvarpsborð — Sjónvarpsloftnet með öllu
tilheyrandi — ZENITH viðtæki með báta-
bylgju og amatörsviðum, tilvalin fyrir loft-
skeytanema. Tækin eru með bandspread og
Beat Frequency Oscillator. — ZENITH heyrn-
artæki fyrir heyrnardauft fólk eru heimþekkt
fyrir gæði.
í kjóla-
og leikfangadeildinni
Amerískir barna- og kvenkjólar í fjölbreyttu
úrvali — einnig í hálfum númerum. —
Amerískar brúður og bangsar, allt mjög falleg-
ar jólagjafir, sem einungis fást í RADÍÓ-
NAIJST, í Fons, Keflavík, hjá Elís Guðnasyni,
Eskifirði, Fönn, Norðfirði og hjá Sigurði Guð-
mundssyni, Hnífsdal.
ÚTILJÓSAPERUR með lituðum perum.
KINDASKINN í mörgum litum, í gjafakössum.
Teppaz transistorvið-
tæki með plötuspilara.
Tækin hafa bátabylgju
svið. — Teppaz ferða-
plötuspilarar í mörgum
gerðum. Teppaz- stereo
spilarar í úrvali, svo og
magnarar og hátalarar.
SONOLOR
Sonolor transistor viðtæki
hafa náð miklli útbreiðslu á
íslandi, sakir gæða sinna,
fallegs útlits og lágs verðs.
Sonolor tækin hafa báta-
bylgjusvið ásamt öllum öðr-
um algengum bylgjusviðum.
Sonolor tækin er hægt að
hafa í bílum, og eru þar til
gerðar festingar og skúffur
fáanlegar.
Radiónaust h.f.
Laugaveg 133 - Sími 16525