Morgunblaðið - 18.12.1965, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.12.1965, Blaðsíða 8
8 MORGU N B LAÐIÐ Laugardagur 18. des. 1965 GULLBRÚÐKAUP Þórhalla Oddsdóttir og Guðmundur Kr. Guðmundsson Kvígindisíelli í Tdlknaíirði ÞANN 18. des. 1915 fór fram hjónavígsla í kirkjunni í Stóra- Laugardal í Tálknafirði. Þar voru gefin saman í hjónaband Þórhalla Oddsdóttir í Stóra- Laugardal, sextán ára gömul heimasæta, og bóndinn á Kvíg- indisfelli, Guðmundur Kr. Guð- mundsson, 25 ára gamall. Foreldrar Þórhöllu voru hjónin í Stóra-Laugardal, Þuríður Guð- mundsdóttir og Oddur Magnús- son, er þangað höfðu flutzt frá Brekku í Gufudalssveit, þegar Þórhalla var barn að aldri. Foreldrar Guðmundar voru hjónin Svanborg Einarsdóttir og Guðmundur J. Guðmundsson, er búið höfðu í Stóra-Laugardal, en þá voru jarðir þar tvær. Þegar Guðmundur eldri hafði misst heilsuna, keypti Guðmund- ur sonur hans jörðina Kvígindis- fell. Þar hóf hann búskap með móður sinni, þótt hann væri þá aðeins 24 ára að aldri, en faðir hans lifði þar alllengi hjá þeim sem sjúklingur. Það var ekki hversdagslegur viðburður fyrir 50 árum, að 24 ára gamall bóndasonur festi kaup á landnámsjörð. Að sjálfsögðu var Guðmundur enginn efnamað- ur þá, en hann mun hafa notið þess, að þá þegar hafði hann á- unnið sér traust góðra manna. Og miklu mun hér hafa ráðið, að mikið var í manninn spunnið þótt ungur væri. Áræðinn og kjarkgóður hefur hann verið, stórhuga, framsýnn og hygginn. Hann hefur séð að jörðin var bú- in nokkrum kostum, sem lofuðu góðu, ef bóndinn var bújörðinni samboðinn. Fimmtíu ára reynsla sýnir nú að þar yfirsást honum ekki. En meira þarf til myndarlegs búskapar, en sæmilega bújörð og dugandi bónda. Ekki skiptir minna máli, hvernig sæti hús- freyjunnar er skipað. Hlutverk sveitakonunnar hefur fram á þennan dag verið vandasamt, en þýðingarmikið í íslenzkum land- búnaði. Það þarf góða hæfileika til þess, að það verði leyst af hendi með sæmd. Þetta gerði Guðmundur sér ljóst. Hann kaus sér beztu kon- una, sem hann þekkti, 16 ára gömlu stúlkuna í Stóra-Laugar- dal, sem hann hafði svo að segja alizt upp með um skeið. Ef til vill hefur einhverjum fundizt brúðurin helzt til ung, en ekki er það sennilegt að Guðmundur hafi litið svo á. Reynslan hefur líka sýnt að einnig í þessu var hann framsýnn. Ung var ég gefin Njáli, sagði Bergþóra, og kvaðst myndu láta eitt yfir þau bæði ganga. Ung var Þórhalla gefin Guðmundi og traustinu brást hún ekki frekar en Bergþóra. Guðmundur reyndist fljótt dugandi bóndi og mikill athafna- maður. Fjölskyldan stækkaði ört og jörðin ein nægði honum ekki. Stundaði hann þá sjóinn, hvenær sem bústörfin gáfu hlé til þess. Ekki reyndist hann eftirbátur annarra við sjósóknina, fremur en bústörfin, enda- var hann henni vanur. Þetta kom sér vel fyrir fjölskylduna á Kvígindis- felli. Jörðin var ekkert stórbýli, Hjónin á Kvígindisfelli með börnunum sínum sautján. Neðri röð frá vinstri: Unnur, Fjóla, Svava, hjónin frú Þórhalla og Guðmundur, Þuríður, Svanborg. Efri röð frá vinstri: Karl, Helgi, Hörður, Reynir, Guðmundur, Guðbjartur, Rafn, Oddur, Haukur, Óskar, Magnús, Víðir. þegar hann hóf þar búskap og möguleikar til ræktunar og hvers konar umbóta voru allt aðrir þá, en þeir eru nú. En Guðmundur hófst þegar handa að bæta jörð- ina með ræktun og byggingum. Þegar býlið Vindheimar fór í eyði, keypti hann þá jörð og sam- einaði báðar í eina jörð, enda lágu túnin saman. Nú eru tún beggja jarðanna fyrir löngu orð- in ein samfelld slétta. Ágætt íbúðarhús byggði hann svo og öll gripahús. Og nú má segja að Kvígindisfell sé orðið stórt býli á mælikvarða þeirrar sveitar. En ekki lét Guðmundur við þetta sitja. Lítil á rann til sjávar skammt frá bænum. Þessa á virkj aði hann til framleiðslu rafmagns og svo vel hagnýtti hann sér þetta litla vatnsfall, að raforkan fullnægir heimilinu til ljósa, eld- unar og upphitunar. Þannig gerði hann heimilið, hið ytra sem innra, að fögrum, gagnlegum, hlýjum og björtum reit. En þetta allt fékkst ekki með sitjandi sælunni. Mikið varð hús- bóndinn á sig að leggja, ekki sízt á þeim tímabilum, er fiskafli brást. En þá leitaði hann fanga til annarra staða, einkum til Pat- reksfjarðar, en þar var þá blóm- leg togaraútgerð. Varð hann þá jafnvel að vera langdvölum að heiman. Þarfir heimilisins gáfu ekki grið, enda voru börnin orð- in átta eftir tíu ára hjúskap. Hann var þó öruggur um afkom- una heima fyrir. Hann vissi hver gætti bús og barna. Þáð sem hér hefur verið nefnt, mætti ætla að verið hefði ærið verkefni fyrir barnmarga bónd* ann. En fleiri urðu viðfangsefni TAKIfí INNIMYNDIR Á JÓLUNUM Allir geta tekið góðar myndir með KODAK INSTAMATIC — l'afnt lit sem svart hvítar. Æ& ft I mvmmmá Vélin hlaðin á augnabliki... tilbúin til notkunar. |KODAK INSTAMATIC 200 KR. 1058- KODAK INSTAMATIC 100 KR. 864.' ígjafakassa — 983.* með filmu.og fl Allar vélarnar eru með innbyggðum flashlampa og taka jafnt lit, sem svart hvítar myndir - ................ HANS PETERSENf SiMi 20313 BANKASTRJETl 4 220 KODAK INSTAMATIC iaJc hans en þetta. Sveitungar hans og samferðamenn kunnu að meta hæfileika hans og farsæla for- ystu. Þessvegna kvöddu þeir hann til hvers trúnaðarstarfsins á fætur öðru, í stjórn kaupfélags- ins, búnaðarfélagsins, í fræðslu- nefnd, hreppsnefnd, sýslunefnd, sóknarnefnd, skattanefnd og hreppstjóri var hann í mörg ár. Það merkasta af öllu í fimmtíu ára hjúskaparlífi hjónanna á Kvígindisfelli tel ég vera það, að þau eignuðust og ólu upp sautján börn, sem öll náðu hinum bezta þroska og eru hin mannvænleg- ustu. Og nú kann einhver að spyrja: Hvernig má það vera að Guðmundi skyldi takast að af- kasta því ævistarfi, sem hér hef- ur lauslega verið drepið á? Ég held að þessu sé auðsvarað. Stúlk an frá Stóra-Laugardal, sem sextán ára gömul gerðist önnur hönd hins unga bónda, reyndist sú húsmóðir og móðir, að fáum myndi fært að feta í sporin henn- ar. Ég ætla mér ekki þá dul, að fara að lýsa þeim verkefnum, sem frú Þórhalla hefur leyst af hendi sem húsmóðir í hálfa öld. En sautján börn og störfum hlað- inn eiginmaður, er næg vitneskja til þess, að menn sjái hvert afrek hér hefur verið unnið. Menn geta kannske gert sér grein fyrir annríki og erfiði bóndans en geta menn gert sér ljóst, hverju þar var afrekað innanhúss? Hvaða umhyggju þar þurfti að hafa? Þeir einir geta um það dæmt, sem eru nógu kunnugir og sáu, að þar voru móðurskyldurnar ekki vanræktar, þar voru hús- móðurstörfin unnin af snilld og með glæsibrag. Trjálundurinn sem hún ræktaði í hlíðinni ofan við bæinn er táknrænn um græð- andi hendur hennar. Fimmtíu ár eru liðin. Búskap hjónanna er lokið og sonur þeirra er tekinn við jörð og búi. Þar dvelja þau hjónin í skjóli sonar og tengdadóttur. Börnin þeirra sautján eru flest gift og öllum hefur þeim farnazt veL Nú líta þau hjónin, frú Þórhalla og Guðmundur, til baka yfir far- inn veg. Margir munu gleðjast yfir fimmtíu ára farsælu ævi- starfi þeirra. En ég held þó að enginn geti verið glaðari en þau sjálf. Þau eru auðugri, en séð verður hið ytra. Þau hafa unnið af trúmennsku fyrir börn sín, byggðarlag og þjóð. Þau hafa fært þjóð sinni heilan hóp dug^ andi manna og kvenna. Þjóðfé- lagið skuldar þeim dýrmæta eign. Það var gaman að koma að Kvígindisfelli. Þar var alltaf hlítt og bjart. En það var fyrst og fremst gaman vegna þess, að hún frú Þórhalla var þar húsmóðir og hann Guðmundur húsbóndi. Ég sendi þeim hjónum heilla- óskir mínar á þessum hátíðisdegi þeirra og árna þeim blessunar á komandi árum. Sigurvin Einarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.