Morgunblaðið - 18.12.1965, Page 14

Morgunblaðið - 18.12.1965, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 18. des. 1965 Halldór Jónsson, verkfræðingur: ÞAÐ er einkenni á íhaldssömuim ■þjóðfélögum, að þau halda gjarn- an í gildi ýmsum reglum, sem forsendur eru fallnar undan fyrir löngu. Jafnvel getur þarna birzt hið ómenigaða afturhald, sem þykir heldur ófínt nú á dögum. Að vísu er mannskeppnunni í blóð borin einihver beygur við breytingar á þolanlegu ástandi. Þetta fær einnig stjórnendur til þess að skjóta sér undan því að talka afstöðu til gamals vana. Menn fara síðan að umgangast reglurnar sem óumflýjanlega hluti. Þaer eru þarna segjum við, og llklega fæx enginn gert við þvi Þannig var það hjá Bretum. Það eru aðeins fá ár síðan, að niður var felld fjárveiting til embættis, sem skyldi sjá um, að fjall ei'tt væri klifið á hverjum diegi, til þess að hafa auga með toomu spánska flotans. Sá floti hefur nú legið á hafsbotni í nokk ur hundruð ár. En hvað um það, reglugerð og þeim er ekki auð- velt að breyta. Á fslandi höldum við þessari sögu hátt á lofti, sem dæmi upp á það, hversu Bretinn sé nú aldeil- is dæmalaus í íhaldinu. Það er nú einihver munur en hin stór- huga íslenzka þjóð. Eða hvort eru ekki öll blöð okkar uppfull af allstoonar lofi, sem meira og minna heimsfrægir útlendingar hafa ausið yfir okkur? En lítum okkur nær. 1 hversu miklu sam- ræmi við nútómann eru reglur okkar um áfengismál? Gengur okkur nokkuð betur að endur- skoða þær en Bretum gekk við sir.a fjallgöngureglu? Einhvernveginn hef ég aldrei rekizt á hrósyrði útlendinga um ástandið í áfengismálum á ís- landi. Miklu fremur hefur mér skilist af ummælum þeirra, að við Íslendingar egum allt að því hemsmet í brennivínagleði og drykkjulátum. Og ekki læitur æskan sibt eftir liggja. Sér til uppörvunar hella menn gjarnan í sig allt að potti af brennivíni. Þar af verða menn gjarna ljóð- rænir, gáfaðir, söngelskir, hug- aðir og steíkir. Vegna þess síð- asttalda getur því verið vara- samt að vera nærri, þegar land- inn fyllir sig. Þvi þá vilja menn gjarnan „sparka með fótunum og fljúga með höndunum“ eins og Jón Vídalín lýsti reiðinni. Og svíði einhvem í trýni að morgni og telji það óverðskuldað, þá segja menn gjarnan við hann, þegar hann vill upphefja ákærur: „Ja, en hann var nú fullur grey- ið, þetta er annars hreinasta góð- menni og óþanfi að vera að erfa 'þetta við hann.“ Þó svo að sekt- ardómar séu íelldir, þá er jafn- vel húsnæðislaust í Steininum, eða viðkomandi.„góðmenni“ þarf Halldór Jónsson á öllum sínum aurum að halda, og hvern furðar á því eftir sið- ustu hækkun á brennivínL En hvað gera landsins feður til þess að firra spillingu hins vangefna múgs, sem breytist að vísu í háttvirta kjósendur með árvissu bili. Jú, sett eru lög um það, að stofnaðar skiuli áfengis- varnanefndir í hverri sveit. Þann ig má láta sljákka nókkuð í þeim kjósendum, sem halda því fram, að brennivín sé í raun réttri bölvaður óþverri. Sjálfisagt er að hafa vit fyrir óvi'tunum, sem munu þó vera nær 90% þeirra ís- lendinga, sem drukkið geta af líkamsástæðum, með því að taka það af þeim með einu banni og basta. Áfengisvarnaráði eru svo veittir styrkir, þó varla viti nokkur lifandi maður hvað það gerir við þá. Mestu mál skiptir, að nú gefst góður friður til þess að plokka eins margar krónur af þrautsköttuðum borguTunum og unnt er, með þvi að selja þeim brennivín með hæztu álangn- að skynsemin verði þorstamum yfirsterkari. Þessu til stuðnings vildi ég mega nefna nokkur atriði, sem mér virðast blasa við í þjóðlífinu: IINiDVERSKU HELGILJODIN BHAGAVAD-GITA eru komin út í nýrri þýðingu Sörens Sörenssonar. Bdkin er gefin út ■ aðeins 299 tölusettum eintökum. Fæst aðeins hjá bóksölum ■ Rvík og útgefanda Prentsmiðja Guðm. Jóhannssonar. 1) Rlkið þarf alla þá pen- ir.ga, sem það getur með mokkru móti náð af þegnum sínum, eigi það að geta framkvæmt eitthvað af því sem þegnarnir heimta af því. 2) FÖl'kið vill drekika. Allt tal um áfengisvarnir og það, að almenningur vilji bann eða hölft, virðist því vera úti í hött. 3) Markmið ríkisins virðist þvi vera, skv. lið 1), að þegnar þess drekki sem alilra meist á sem hæstu verði. Þvi beri að upp- ræta smygi. Því er mér spurn: Séu þetta forsendurnar fyrir „vínmenn- ingu“ okkar, eigum við kjósend- ur og drykkjumenn ekki heimt- ingu á því ,að Áfemgisverzlun- in reyni að örva okkur til frek- ari viðskiptia með því að hafa á boðstólum eins sterkt öl og hiver vill? Lofa ökkur að velja um framleiðslu alílra beztu brugg húsa í heimi, svo sem hún vand- ar úrval annars áfengis. Og selja það eins dýrt og mögulegt er. Það er staðreynd, að tekjur rikisins af áfengissölu eru einn aif þeim póstum, sem sízt má án vera við samningu fjárlaga. Persónulegar skoðanir á áfengi breyta þar engu um. Þessa fjár- hæð verður að ná inn, og hætt er við, að ekki yrði því tekið þegj- andi ef hennar yrði að afla með beinum sköttum. Það er vissu- lega illt tjl þess að vita, að þessi liður skuli vera svona mikill 'hlut ríkisteknanna. Þar sjáum við glöggt, hversu mikilla átaka er þörf til þess að afla rí'kinu nýrra tekjustofna, þó aðrar leiðir megi fara en hina gamalreyndu, sem sé, að fara beint í vasa al- mennings. Má benda á þáttitöku ríkisins í arðbærum stórfram- kvæmdum. Þegar svo ríkið er fjárhagslega öháðara tekjum af brennivínssölu er hægt að tala í alvöru um leiðir til þess að bæta „vínmenningu“ okkar, en ýmsa þætti hennar má rekja til bannlaganna sálugu. Það er staðreynd, hvað svo sem heimaaldir sérfræðingar okk ar í bindindismálum hafa fundið upp, að gott öl er drykkur, sem veykar betur á fólk heldur en brennivín. Ö1 haflur róandi á’hrif á menn og dregur úr bardaga- fýsn. Ö1 er einnig fæða, fljó'tandi brauð eins og Þjóðverjar kalla það, þó að þeir hafi ef til vill minna vit á ölmálum heldur en gúttemplarar ökkar. Samt er það miklu erfiðara að verða eins full- ur af öli eins og brennivíni. En þetta segjast gúttemplarar vita betur en ég og þeir ráða eða hafa gert það hingað til, þó svo óg tali af reynzlu. Um hitt erum við gúttemplarar svo aftur sam- mála, að ekki ber að óska ís- lenZku þjóðinni þess, að hér upp- hefjist ölkrárlíf eins og t.d. er algengt í fátækrahverfum í Þýzkalandi og Englandi. En ölkrá er ekki nauðsynlega það sama og það, að öl sé fáanlegt, jafn- framt öðrum áfengum drykkjum, í landiniu. Það veit óg en varla margir gúttemplarar. En hví tregðast forsjármenn okkar við að leyfa ölið. Hví virð ast gúttemplarar ráða þessum málum, þó vitað sé að þeir eru mitoki færri en hinir sem áhuga hafa á öhnálium. Yið skuium reyna að gera okkur í hugar- lund ástæðuna með þvi að hafa hliðsjón af lið 3), þess er að framan greinir. 1 brennivínsflaska kostar í fraimleiðslu innan við 20 kr. Þar af er glerið um helmingur verðs. í útsölu er flaskan seld á 270 kr. eða með 1350% álagi. 1 flaska af innlendu öli kostar lítolega í framleiðslu um 3 kr. Glerflaska uitanium er seld á 4 kr. Samtals er þetta um 7 kr. Farmenn, lagar og lofts, hafa einir landsmanna heimild til þess að flytja inn sterkt öl. Þetta er með leyfi Tollgæzlunnar, hvað- an sem hún fær heimild til þess að leyfa slíkt. Þessir sömu selja svo almenningi síðan ölflöskuna á yfir 15 kr. og virðast færri fá en vilja á því verði. Ef Áfengisverzlunin ætlaði að selja öl á svipuðu verði, næði hún aðeirns um 200% álagi. Sé gert ráð fyrir, að menn eyði svip- uðum hundraðshluta tekna sinna til áfengiskaupa, sést glöggt hvert stefnir með tekjur rí'kisins af áfengissölu, ef ölið útrýmdi brennivininu að einhverju leyti. Hinsvegar er hægt að verða fyllri fyrir sama verð í brennivíni en öli. Og það er einmitt það, sem margir ætla sér að verða, þegar þeir leggja leið sína í vínibúð. Því ætti brennivínssala að við- haldast að töluverðu leyti, þó svo að öl væri fáanilegt. Auk þess kæra sig ekki alilir um öl og vilja heldur aðra áfenga drykki. Hins- vegar veit ég, að margur ung- lingurinn verður fyllri en hann ætlar í upphafi, þegar han>n sezt að brennivínsblandaðri gos- dirykkju. Kennir hann ’ þar reynsluleysis síns, því brennivín út í gosdryklk getur verið meS göióttari drykkjum. Alla vega er öl drykkur, sem hefur stórum vægari afleiðingar í flestum til- fellum. Ég hef al'ltaf átt dlálítið erfitt með að skilja það, að drykkju- skapur unglinga þurfi endilega að fara í vöxt, þó selt sé í land- inu sterbt öl með öðru áfengi. Ekki yrði unglingunum auðVeld- ara að ná í öl úr áfengisverzlun- unum heldur en brennivíin. Eða finnst mönnum þeim ganga nokk uð illa að veröa sér úti um hið síðarnefnda? Það er staðreynd, að sá sem vill dreikika, hamn drekkur hvað svo sem bann og boð segir. Menn minnist aðeins bannsins hór og bruggsins. Eða iþá bansins í Bandaríkjunum og þeirri skálm- og skeggöld, sem af því leiddi. Er því ekki skyn- samlegra að reyna heldur að hafa áhrif á það, hvað umigling- arnir drekka ef þeir endilega vilja finna á sér. Væri t.d. etoki hugsanlegt að leyfa ölkaup við 18 ára aldur ,en brennivin fyrst 21 áris? Það er ekki að vita nema ölvun unglinganna yrði minna áberandi ef þessi leið yrði farin. IVIÓDEL IMÓDEL MJÖG FJÖLB REYTT ÚRVAL AF MÖDELUM, BÍLABRAUTUM SPORTVAL Laugavegi 48. — Strandgötu 33, Hafnarfirði. J

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.