Morgunblaðið - 18.12.1965, Síða 19

Morgunblaðið - 18.12.1965, Síða 19
Laugardagur 18. ftes. 1965 MORCUNBLADIÐ 19 Símaraunir Hríseyinga MÖRGUM verður það á, þegar símaskuldir eru greiddar, að stynja þungan yfir -dýrtíðinni. En landsiminn hlýtur að þurfa á miklu fjármagni að halda, ekki síður en aðrar mannfrekar ríkisstofnanir og þar að auki stendur hann í mikilvægum framkvæmdum víðsvegar um landið. Þessar ástæður ættu að vera viðhlítandi rök fyrir háu afnotagjaldi. Við, sem höfum fengið loforð um sjálfvirkan síma, kvörtum ekki, þó að heit- strengingar ha.fi. brugðizt, enda í mörg horn að líta hjá forráða- mönnum síma. Sjálfvirk stöð átti víst að koma hingað á sl. vori, ef til vill fyrr. I>á skyldi hafizt handa í haust, en það er ekki farið að grafa fyrir grunn- inum ennþá (í byrjun desember), enda óhægt fyrir símamálaráð- herra að taka fyrstu skóflu- stungu í umbrotafærð og engin lúðrasveit er á staðnum. Þess vegna fyrirgefum við Hríseying- ar landssímanum, þótt hann gefi okkur ekki símaskífur í jólagjöf á þessu ári. Vera má að haldin verði sameiginleg vígsluhátíð sjálfvirka símans og fyrstu sjón- varpstækjanna í Hrisey. Hag- sýni er góðra gjalda verð. Hingað út í eyjuna hefur ver- ið lagður vandaður símastrengur með verkfræðilegri viðhöfn. En á öndverðu hausti bar það til tið- inda að svart og draugalegt skip kom af hafi og lagðist við festar á Hríseyjarsundi. Ekki höfðu stýrimenn tal af neinum heima- manna, en er þeir bjuggust til brottferðar, þá festu þeir akkeri í sæstrenginn góða og brast hann þegar. En það vsir ekki unnt að BÓKAFORLAGSBÓK NÝ SKÁLDSAGA EFTIR INGIBJÖRGU SIGURÐARDÓTTUR VerS kr. 140.00 (án solusk.) FecTOarnir hafa hendur í hári þessara sima- spilla, þar eð okkur skorti vopn og hraðskreið skip. Þótti okkur sneypa mikil' af þeim málalykt- um, sem von var. Nú er þar til að taka, er fyrr var frá horfið, að gamall strengur lá í sjó milli lands og eyjar. Var nú gripið til hans, enda þótt það kostaði lengri biðtima fyrir hvern þann eyjarskeggja, sem hugðist hafa samband við meginlandið. Marg- ir bjartir góðviðrisdagar liðu við Eyjafjörð, en samt var ekki hug- að að áverkum nýja strengsins, enda ekki ástæða til, þar sem fátt er um höndlara hér, sem krefjast skjótra viðskiptasam- tala. En er á leið nóvember tóku veður að gerast válynd, og um sl. helgi lágu skip í vari við Hrísey. Hvort sem veðri eða legufærum vstr um að kenna, þá tókst svo illa til, að gamli sæ símastrengurinn hrökk í sundur. A mánudag þurfti ég að ná tali af héraðslækninum á Dalvík vegna áríðandi skýrslugerðar og þá var mér tjáð, að til hans næðist ekki með hægu móti, Landssíminn hefur ekki séð sér fært að setja hér upp talstöð í eyjuna, enda er það, að sjálf- sögðu, of dýr munaður fyrir um- komulítið sjávarpláss, þrátt fyrir andvökunætur sjómannskonunn- ar, sem veit af manni sínum úti á rúmsjó í misjöfnum veðrum. — En við eigum hér ágæta ferju, sem rekin er af traustum dugn- aðarmanni. Hefur hann talstöð bátnum, er oft kemur í góðar þarfir Þegar sambandið rofnaði við umheiminn, þá bauðst ferju. maðurinn, Hilmar Símonarson, til þess að hafa bát sinn við hafnargarðinn og standa vörð, ef sambandi þyrfti að ná, annað hvort til lands eða frá landi. Landssíminn sá ekki ástæðu til að anza því tilboði, enda hefði þá sjálfsagt þurft að hækka af- notagjöld símans, ef ráðinn hefði verið maður til slíkra starfa. Rétt er að taka það fram að báta er ekki hægt að hafa mannlausa hér við hafnarbakk- ann ef veður ér vont og þar að auki býr ferjumaðurinn fjarri höfninni. Senn er liðin vika síð an við eyjarskeggjar höfum get að talað yfir sundið. Fyrir hand' an það er læknirinn, þar eru lyfin, en hér er allténd prestur, ef inhver kynni að deyja, vegna þess að ekki náðist í lækninn. Hrísey, 3. desember 1965 Bolli Gústavsson. A FREMRA-NUPI BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR . STOFNSETT 189T Ódýrt — Ódýrt TERYLENEBUXUR á drengi Verð frá kr. 395.— Herrastærðir kr. 698.— Hvítar DRENGJASKYRTUR á kr. 45.— o. m. fl. á mjög góðu verði. VERZLUNIN, Njálsgötu 49. ISAFOLD Ahar bceh lóhamarhah eraar aœmir a amarteaömam 1965 Vilhjálmur Stefánsson: SJÁLFSÆFISAGA 372 blaðsiður. Verð kr. 425.00 Vilhjálmur var landkön.iuður á borð við Frið- þjóf Nansen og Roald Amundsen, en hann var einnig snjall rithöfundur og skrifáði marg- arbækur. Sjálfsævisaga hans ber þó tvímæla- laust af öllum bókum hans, en Vilhjálmur lauk við hana skömmu áður en hann lézt. Enginn vafi er á því, að Vilhjálmur er viðkunnastur íslendinga, sem uppi hafa verið. Þjóð í öim Þættir og viðtöl eftir Guðinund Daníelsson 291 blaðsíða. Verð kr. 340.00 Þetta er mikil bók og stór, 291 bls. með mörgum myndum. Þættirnir eru 31 talsins og fjalla m. a. um biskupinn, herra Sigurbjörn Einarsson, list- málarann Jón Engilberts, Egil G. TKorarensen kaupfélagsstjóra, Helga Sæmundsson ritstjóra, Ólöfu í Simbakoti, Teit frá Eyvindartungu og Martin Larsen, lektor. Einn þátturinn heitir „Hjá sex ættliðum", og annar „Þangað sem þarinn er gull“. Helgi á Hrafnkelsstöðum segir: „Það var Snorri, sem skrifaði Njálu“, og Jónas Kristjánsson læknir segir: „Fyrstu læknisár mín lifði ég og starfaði eins og óviti“. 1 bókarlok er nafnaskrá með um 1600 nöfnum, en þessi nöfn koma fyrir i bókum Guðmundar: „1 húsi náungans“, „Verkamenn í víngarði" og „Þjóð í önn“. Samtalabækur Guðmundar geyma sannar þjóðlífs- lýsingar. 1 þeim segir þjóð í önn frá háttum sín- um, hugsunum og hugarheimum. lOKCiverz íun óisa^oidar IU0RSKU borðstofurnar komnar íein sett OPIfi til kl. 10 í kvnld Urvalið er hjá okkur UJIi rt Laugavegi 26 — Sími 22900.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.