Morgunblaðið - 04.01.1966, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 04.01.1966, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 4. janúar 1966 Kínverjar og smyglaö áfengi gert upptækt APFARANÓTT nýjársdags var brotizt inn í sundlaug Vest- urbæjar og stolið þaðan 3 karl- mannsúrum, sem voru í geymslu skáp fyrir óskilamuni og í skúffu í afgreiðslu. Rétt fyrir áramótin var lög- reglubifreið á ferð um höfn- ina, þegar lögreglumennirnir veittu því athygli, að verið var að bera kassa í land úr ms. Selá. Við athugun kom í ljós, að í kassanum voru 12 flöskur af genever, smygluðu áfengi. Toll- gæzlan hóf leit í skipinu og fann til viðbótar 38 flöskur af smygluðu áfengi, genever, viskí gini og romm. Tveir af skipverjum viður- kenndu að eiga áfengið og hafa ætlað sér að koma því í land hér. Á nýjársdag tók götulögregl- an þrjá drengi, sem voru með — 232 stiga hiti Framhald af bls. 32. sem fyrir hendi var. f>ar hefir hiti mælzt 232 gráður, en úr hol- unni rennur ekkert vatn og er hún algerlega lokuð. Nú síðast var unnið við þess- ar borholur milli jóla og nýárs, en borun var hætt fyrri hluta desembermánaðar. Á næstunni verður haldið á- fram mælingum á holunum og fylgzt með þeim, en á þessu stigi málsins er ekki hægt að segja um frekari framkvæmdir á Nesja- völlum, en þar verða að sjálf- sögðu meiriháttar boranir, þegar fé og frekari athuganir liggja fyr- ir, sagði hitaveitustjóri. talsvert mikið magn af kínverj- um, svokölluðum bandittum. Drengirnir kváðust hafa farið heim til manns eins á gamlárs- kvöld til að kaupa af honum kínverja, hann hefði verið fús á að selja þeim, en jafnframt beðið þá að selja fyrir sig sex karton, eða 120 pakka, af kín- verjum. f>eir tóku þetta að sér og voru búnir að selja nokkurt magn, en voru á leið til manns- ins til að skila afganginum, þeg- ar lögreglan handtók þá. Viðkomandi maður var kall- aður til yfirheyrslu hjá rann- sóknarlögreglunni og viður- kenndi, að drengirnir hefðu skýrt rétt frá og kvaðst hafa keypt kínverjana í byrjun des- ember í íslenzkum togara í Reykjavíkurhöfn. Kvaðst hann hafa keypt 20 karton alls, en ekki þekkja þann er seldi eða nafn togarans. FELAGSHEIMILI Opið hús 1 kvöld ☆ Fjölmennið í Félagsheimilið HEIMDALLAR Þór liggur á hliðinni í Slippnum síðdegis i gær. — Varbskipib Þór Framhald af bls. 32. um, að skorðurnar hafa fest dráttarsleðann svo, að honum varð ekki bifað. Sjónarvottar a'J óhappinu segja að skipið hafi hallað lítið eitt á bakborða, er það var dregið inn, en ekki var hægt að fá það stað- fest í gærdag, að sá halli hafi valdið því að skorðurnar brotn- uðu eða runnu undan. Vildi raun- ar enginn af starfsmönnum Slipp félagsins, er blaðið hafði tal af, láta neitt hafa eftir sér um mál- ið, enda var þá tvísýnt um að- draganda þess og menn ekki á eitt sáttir hverriig það hefði bor- ið að. Á fjöru í gærkvöldi hallaðist skipið örlítið meira en í gærdag, enda þá þurrt undir því. Talið var í gærkvöldi, að reynt verði. að ná skipinu á flot á flóði kl. 3 í nótt og þá með aðstoð dráttarbátsins Magna og stórrar jarðýtu. Varðskipið Þór átti að fara til viðgerðar og botnhreinsunar hjá Slippfélagi Reykjavíkur, eftir viðureign þess við hafísinn við norðurstrendur landsins síðast- liðið vor. VerSákvörðun á holiiski irestað YFIRNEFND Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur að und- anförnu unnið að ákvörðun lág- marksverðs á bolfiski fyrir árið 1966. Stefnt var að því að ljúka verðákvörðun fyrri áramót, eins og ráð er fyrir gert í reglugerð. Þar sem ný sjónarmið varð- andi væntanlega verðákvörðun hafa komið fram og þarfnast frekari athugunar samþykkti yf- írnefndin að fara þess á leit við sjávarútvegsmálaráðuneytið, að veitt yrði heimild til að fresta verðákvörðun í nokkra daga, en þó ekki lengur en til 6. janúar n.k. Á gamlársdag veitti sjávarút- vegsmálaráðherra yfirnefndinni heimild til frestunar verðá- kvörðunar. Yfirnefndin er daglega á fund um og hefur verið að undan- förnu að nýjársdag undanskild- um. í yfirnefndinni eiga sæti Jón- as Haralz, formaður, Bjarni V. Magnússon, Helgi G. Þórðarson, Kristján Ragnafsson og Tryggvi Helgason. Hér sést, hvernig bíllinn hefi r brotið utan úr horninu á Hafnarstræti 92. Síðan rann hann á Eimskipafélagshúsið (lengst t. v. á myndinni og lo ks fram af bryggjunni, þar sem kraninn er. Tepptust í bifreið næturlangt Vík í Mýrdal, 3. janúar. ÞAÐ bar til hér á aðfaranótt þess 29. desember að hörkubyl gerði. Fjórir menri voru þá staddir í bifreið um 3 km vega- lengd frá kauptúninu, og teppt- ust þeir þar. Morguninn eftir fór vegavinnuverkstjórinn hér á snjóbíl Vegagerðarinnar tii þess að leita mannanna, og fann hann þá. þar sem þeir höfðu teppzt vegna veðurs. Höfðu þeir þá dvalizt í bifreiðinni alla nótt- ina, eða frá því kl. 18 kvöldið áður. — Steinþór. Akranesi 3. jan. HLEMMIVEGUR er nú frá Reykjavík fyrir Hvalfjörð hing- að til Akraness eins og hann getur beztur orðið’; skotvegur á bílstjóramáli. — Oddur. Bíll stakkst fram af Torfu- nefsbryggju Ökumaður drukknaði Akureyri 3. janúar. BANASLYS varð hér að morgni gamlársdags, er vöru- bíll rann fram af Torfunefs- bryggju. í bílnum var einn maður, Heimir Baldvinsson frá Arnarstöðum í Bárðardal, til heimilis að Ásbyrgi, Gler- árhverfi. Heimir heitinn var starfsmaður Olíuverzlunar ís- lands hf., þrítugur að aldri. Talið er víst, að hann hafi fengið aðsvif og bíllinn því verið stjórnlaus. Heimir hafði k»mið til vinnu kl. 8 um morguninn og var þá beðinn að fara í viðgerðarferð upp á Brekku. Hann var þá við beztu hei'lsu og kenndi sér einskis meins. Kl. tæplega 8.30 var hann á leið niður Kaupvangsstræti í bílnuim A-79, sem er eign BP. Einhvers staðar í Grófargili mun Heiii ir hafi misst meðvitund, því að atarfsmaður í Elfnagerðinni Flóru, sem er neðarlega í gilinu heyrði allt i einu hvin mikinn og hávaða úti á götunni, hljóp út og sýndist þá hjóil og bílpallur hverfa fram af bryiggjunni. Hann sá þetta þó óglöggt, þar sem ekiki var farið að birta af degi og fjar lægð aLlmikil. Hljóp hann nú niður á bryggju tii að aðgæta þetta nánar, en þá höfðu startsmenn Eimskips þegar gert lögreglunni viðvart, en þeir höfðu einnig orðið hávaðans var ir. Bíllinn hafði sýnilega runnið á mjög mikilli ferð niður Kaup vangsstræti, þvert yfir Hafnar stræti, lent á húsinu nr. 92 (VerzJl Hebu) og tvístrað þar skyggni við aðaldyrnar. Síðan rann hann áfraim niður götuna og sveigði norður yfir, þar til hann lenti sunnan á húsi Eimskips, sem dældaðist nokkuð við höggið, enda bárujárnstolætt timiburhús Þaðan hefir bíllinn enn sveigt til suðurs, unz hann staikkst fram af brygigjunni. Talið er, að bíllinn hafi fengið mikla benzíngjöf all- an tímann, ökumaður sennilega faLlið fram á benzínifótstigið öngvitinu. Margir menn heyrðu hvininn og hávaðann að þessari slysaför bílsins, en enginn var svo nærri sitaddur, að hann sæi glöggrt, hvað gerðist. Lögregilan gerði þegar í stað Heimir Baldvinsson. ráðstafanir til þess að fá frosk- mann til að kafa við bryggjuna, og kom Jóhann Gauti Gestsson kaií'ari von bráðar á staðinn. Mjög erfitt var um vik, bæði vegna þess að sjóinn hafði laigt í frositunum um jólin, myrkur var mikið og benzín úr bilnum gerði einnig erfitt fyrir. Jóhann fann bilinn fljótlega á réttum kili og tókst að opna stýr ishúsið vinstra megin, en fann engan mann í fyrstu tiiraun. 1 annarri atrennu fannst svo Heim ir heitinn á góifinu undir mæla- borði bílsins og var nú dreginn upp á bryggjuna. Var þá ekkert lífsmark sjáanlegt með honum, enda um kluikkustund liðin, frá því að slysið varð. Lífgunartil- raunir voru þó gerðar á leiðinni í sjúkrahús en þar var hann úr- sikurðaður látinn. Siðar um daginn var bíllinn dreginn upp með öflugum krana. Við skoðun reyndust bæði heml- ar og stýrisú'tbúnaður í fudil- komnu lagi. Heimir heitinn Baldvinssón var nýlega orðinn þrítugur, óikvæntur, en bjó með móður sinni. Hann hafði verið starfs- maður Oláuverzlunar íslands h.f. síðan í maí í vor. Hann fékk sérlega gott orð allra sem honum kynnbust, og var mjög traustur og góður starfsmaður. — Sv.P. BiUinn dreginn upp ur sjonum. — Ljósm. Sv! P,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.