Morgunblaðið - 04.01.1966, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 04.01.1966, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ Þrið.iudagur 4. janúar 1966 Frá vinstri: Jökull Jakobsson, Þórarinn Jónsson og Agnar Þórðarson. Karl O. Runólfsson gat ekki verið viðstaddur athöfnina. Styrkir úr Tónlistar- og Rithöf- Alls sottu 14 um yfirlög- reglu- og aðstoðaryfirlög- regluþjönsstöðurnar UM MIÐJAN desember s.l. voru auglýstar stöður yfirlög- regluþjóns almennrar löggæzlu, yfirlögregluþjóns umferðamála og þriggja aðstoðaryfirlögreglu- þjóna hér í Reykjavík. Umsókn- arfrestur var til 1. janúar 1966. Um yfirlögregluþjónsstöðurn- ar tvær sóttu alls 9 menn og sumir þeirra til vara um aðstoð- aryf irlögregluþj ónsstöðurnar þrjár, en auk þess sóttu 5 menn eingöngu um aðstoðaryfirlög- regluþjónsstöðurnar. Umsækj- endur voru því 14 talsins. Þessir sóttu um yfirlögreglu- þjónsstöðurnar: Axel Kvaran lögregluvarðstjóri, Reykjavík Benedikt Þórarinsson yfirlög- regluþj. Keflavíkurflugv. 3jarki Elíasson, aðalvarðstjóri, Reykja- vík; Guðmundur Hermannsson, aðalvarðstj., Reykjavík, Hall- grímur Jónsson frv. yfirlögreglu þj., Vestmannaeyjum; Kristján Sigurðsson, rannsóknarlögregiu- þj. Rvík.; Leifur Jónsson, rann- sóknarlögregluþj., Rvík; Óskar Ólason, aðalvarðstjóri, Rvík; Sigurður M. Þorsteinsson, aðal- varðstjóri, Rvík. Um aðstoðaryfirlögregluþjóns stöðurnar sóttu: Björn E. Kristj- ánsson, aðstoðaraðalvarðstj. Rvík; Gísli Guðmundsson, rann- sóknarlögregluþj. Rvík; Magnús Sörensen, lögregluþjónn Rvík; Ragnar Bergsveinsson, lögreglu- flokkstj., Rvík; Sverrir Guð- mundsson, aðalvarðstjóri, Rvík. Fyrrgreindar stöður veitir borgarstjórn Reykjavíkur að fengnum tillögum lögreglu- stjóra. Leynifél agsskap ur upprœttur undasjóði Ríkisútvarpsins Á GAMLÁRSDAG var úthlutað styrkjum úr RithöfundasjóSi Rík isútvarpsins og er þetta í 9. sinn, sem sjóðurinn veitir slíka styrki. Að þessu sinni hlutu styrkinm 2 leikritahöfundar; þeir Jökull Jakobsson og Agnar Þórðarson. Styrkurinn nam kr. 25.000,00, en var árið þar áður kr. 20.000,00. Formaður Rithöfundasjóðs Ríkis útvarpsins dr. Kristján Eldjárn, úthlutaði styrkjunum, að við- stöddum menntamálaráðherra, útvarpsstjóra, rithöfundum og fleiri gestum. Við sama tækifæri afhenti út- varpsstjóri, Vilhjálmur Þ. Gísla- son, tveimur tónskáldum verð- laun úr Tónlistarsjóði Ríkisút- varpsins, kr. 25.000,00 hvorum. Að þessu sinni hlutu verðlaunin tónskáldin Þórarinn Jónsson og Karl O. Runólfsson. Alls hafa nú 17 rithöfundar hlotið styrki úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins; þeir eru auk fyrrgreindra höfunda: Snorri Hjartarson, Guðmundur Frí- mann, Loftur Guðmundsson, Jónas Árnason, Hannes Sigfús- sön, Guðmundur Ingi Kristjáns- son, Ólafur Jóhann Sigurðsson, Stefán Júlíusson, Jón úr Vör, Matthias Johannessen, Guðmund ur Daníelsson, Jón Óskar og Þorsteinn frá Hamri. Stjórn rithöfundasjóðsins skipa tveir menn frá Rikisútvarpinu, | inu, og formaðurinn, sem skipað einn frá hvoru rithöfundafélag- | ur er af menntamálaráðherra. Moskvu, 3. jan. (NTB) ÁREIÐANLEGAR heimildir í Moskvu upplýstu á mánudag, að hópur af ungu fólki hafi í nóvem ber siðastliðnum hlotið þunga fangelsisdóma fyrir að hafa gef- Dr. Kristján Eldjárn flytur ávarp við úthlutun styrkjanna. Fremst á myndinni frá vinstri sjást þeir: Vilhjálmur Þ. Gislason útvarpsstjóri, Gylfi Þ. Gíslason m enntamálaráðherra og Sigurður Bjarnasoni, ritstjóri. — Grlma (Framhald af bls. 14). máli. Hefur ritgerð þessi tvímæla laus orðfð til þess að auka skiln- ing fjölmargra á bókmenntalegu gildi þjóðsagna og þjóðfræða, enda sá um þær fjallað, sem unnað hefur þessari bókmennta- grein heilshugar langa ævi og veitt þjóðfræ'ðum og þjóðsagna- útgáfum höfðinglegri þjónustu en nokkur annar íslendingur, sem enn er ofan moldar. Prófarkir af Grímu hinni nýju hefur Jón Þórarinsson, tónskáld, lesið. Hann hefur einnig samið mjög ýtarlegar nafna- og atriða- skrár. Hvort tveggja mikið verk og ærið vandasamt. Þetta starf hefur hann leyst af hendi með stakri kostgæfni. Mér er margt betur gefið, en leita uppi prent- villur í bókum, og í þessu til- felli unnizt naumur tími til yfir- lestrar þessa ritverks. En enga villu hef ég fundið, og væri þó ekki að undra, þótt þær leyndust mér í þessu stórverki. En tvær villur, annars eðlis, fann ég, sem sennilega hafa verið í handriti. Þær eru báðar á bls. 364, IV. bindi. Þar er Sigvaldi frændi minn á Skeggstöðum í Svartár- dal talinn Bjarnason, en var talinn Björnsson, þar er einnig Sauðanes talið í Þistilfirði, en var á Langanesi, þegar ég kom þar s.l. sumar, enda er svo talið í Stáðanafnaskránni. Grímu hina nýju tileinkar Þor steihn M. Jónsson sínum aldna vini og samstarfsmanni, Jónasi J. Rafnar, lækni. Fer vel á því. Enginn á þá tileinkum fremur skilið en þessi mæti björgunar- maður, sem langa og merka starfsævi hefur staðið, ef svo mætti að orði kveða, með annan fótinn í akri þjóðlegra fræða, en hinn þar innan dyra, sem dauð- inn hefur haslað sér völl. Jónas bjargaði frá glötun, dró á fjörur Grímu einnar 42 sögur, en vafa- lítið hefur hann bjargað mörgum sinnum fleiri mannslífum úr klóm hvíta dauðans. Slíks manns er verðugt að minnast í upphafi bókar. 4 Hvað er að lokum að segja um útgáfu og frágang Grímu hinnar nýju? Hvernig er hlutur hins nýja útgefanda, Hafsteins í Hólum? Það er ósköp fljótsagt; hans hlutur er forkunnar góður og samboðinn slíku merkisriti. Það er undurnotalegt fyrir hvern bókamann að handfjalla annan eins kjörgrip og Grímu hina nýju, eins og raunar allar bækur, sem Hafsteinn í Hólum héfur fjallað um. Þess eru nokkur dæmi, að íslendingar titli þá, sem skara fram úr á sínu sviði, meistara, sbr. meistari Kjarval og meistari Þórbergur. Hvert sinn, er mér hafa borizt í hendur bækur úr prentverki Hafsteins, hef ég eins og ósjálfrátt bætt við nafn hans í huganum þessum fornfræga titlý meistari. Þa'ð er alveg vafalaust, að hann á einn giftudrýgstan þátt í að hefja ís- lenzka prentun og bókagerð úr þeirri niðurlægingu, sem hún óneitanlega var í, með fáum undantekningum, svo áratugum skipti. Enginn þarf að óttast, að bækur frá Hólaprentsmiðju hinni nýju gangi úr bandi eftir fyrsta lestur, á líkan hátt og rollur úr reifi á vordegi. Og frá þeirri stundu, er ég leit augum prentlistarinnar 500 ára og sá þar handskreytingu Hafsteins, hef ég harmáð, að hann skuli ein- hverra orsaka vegna ekki hafa getað gefið sér tóm til slíkrar listiðju. Að síðustu þetta. Þeir þremenn ingar, sem mestan þátt eiga í veglegri útgáfu Grímu hinnar nýju, eiga skildar miklar þakkir, og einkum og sér í lagi Þorstenin M. Jónsson. Það er alkunna, að hann er í hópi merkustu skóla- manna þessa lands; en það er frami, sem af eðlilegum ástæðum mun fyrnast með árum og öldum. En með afskiptum sínum og út- gáfum á þjóðlegum fræðum hef- ur Þorsteinn reist sér þann varða, sem standa mun meðan íslenzk bókmenning er að nokkru metin. Guðmundur Frímann. ið út tvö eintök af leynilegu frjálslyndu timariti. Forsprakk- inn hlaut 7 ár, en átta aðrir, þeirra á meðal tvær ungar konur, hlutu frá tveggja til fimm ára fangelsisdóma. Flesitir unglingana leggja stund á efnaifræði við Háskólann í Len ir.grad, og munu hafa myndað leynilegan félagsskap með um það bil 250 meðlimum og átti prentsmiðju. Það kemur í Ijós af skrifum þeirra, að þau eru ekki andvíg kommúnisma í grundvall aratriðum heldur þeirri stefnu sem ríkir í Sovétríkjunum í dag og hafa krafizt aukins hugsana- og miálfrelsis. Þau hafa byggt starfsemi sína á huigmyndum hins þekkta rússneska byltingar sinna Alexanders- Herzan, sem var uppi á oíðustu öld. Tímarit- ið heitir Kolokol (KLukkan) og ber sama nafn og tímarit sem Herzen gaf út í London og dreifði í Rússlandi þrátt fyrir lögreglu- barm. —Kragh skorar Framhald af bls. 1 Prófessor Hurwitz hefur hinsvegar ekki getað verið á skrifstcfu sinni til þess að svara simanum, því um nýárs helgina var hann tepptur í N- Jótlandi vegna snjókomu. Skrifstofustjóri hans sat hins vegar við símann um áramót- in og sl. helgi oig tóik við upp- lýsingum frá um 50 aiilum, en þær upplýsingar hafa ekiki orð ið til þess að neitt upplýstist frekar um hið dularfulla hvarf barnsins. Lögreglan hefur nú fengið um 3,500 tilkynningar frá ýmsum aðilum vegna Tinu- málsins, og yfirheyrt Um 10.000 manns án árangurs. Fyrir helgina hófu allir póst burðarmenn Danmerkur, 8.000 talsins, virka þátttöiku í leit- inni, eftir að póstþjónustan hafði samþykkt málaileitan þess efnis frá lögreglunni. Póstmenn eiga að tilikynna taf arlaust ef þeir taika ef'tir ein- hverju óvenjulgu er þeir bera út póstinn. Samningur lög- reglu og pósts um þetta á sér enga hliðstæðu í sögu Dan- merkur, og er svo óvenjuleg- ur, að póst- og símamálastjóri Danimerkur sneri sér til sam- taka póstmanna, áður en hann svaraði málaleitun iögreglunn ar. Áður höfðu leigubílsitjórar í Kaupmannahöfn boðizt til að taka þátt í leitinni að Tinu litlu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.