Morgunblaðið - 04.01.1966, Side 24

Morgunblaðið - 04.01.1966, Side 24
24 MORC U N B LADID Þriðjudagur 4. janúar 1966 TILKYNNING frá Seðlabankanum um vexti við inn- lánsstofnanir Með tilvísun til 13. gr. laga nr. 10 1961 ákveður banka- stjórnin, að höföu samráði við bankaráðið, að vextir við innlánsstofnanir skuli verða sem hér segir frá og með 1. janúar 1966: I. Innlánsvextir: 1) Almennar sparisjóðsbækur 7% á ári 2) Sparisjóðsbækur með 6 mánaða uppsögn 8% á ári 3) Sparisjóðsbækur með 12 mánaða uppsögn 9% á ári 9%% á ári 4% á ári a an á ári á ári á ári 3% á ári 4) 10 ára sparisjóðsbækur 5) Sparisjóðávísanabækur 6) Innstæður á hlaupareikningi, reiknings- og viðskiptalánum 3% 7) Vísitölubækur barna: til 5 ára 7% til 10 ára 8% Innlánsvextir þessir eru fastir, og er innlánsstofnunum óheimilt að greiða aðra vexti af viðkomandi innlánsform- um án samþykkis Se’ðlabankans. Vextir af öðrum innláns- formum eru háðir ákvörðun Seðlabankans. Innlánsvextirn- ir eru dagvextir og miðast við vaxtareikning einu sinni á ári eftir á. Þetta á þó ekki við um vexti af tékkareikning- um, en af þeim reiknast tilgreindir vextir af lægstu inn- stæðu á hverjum tíu dögum með útborgun í einu lagi eftir árið. II. Útlánsvextir: 1) Vextir af víxlum: a) víxlar, er eiga a'ð greiðast upp innan 90 daga 9% b) framlengingarvíxlar og víxlar, sem samið er um til lengri tíma en 90 daga 914 % á ári Heimilt er að taka allt að 14 % hærri vexti á ári en að of an greinir, þegar samið er um lengri lánstíma _ en 360 daga, víxill fer í vanskil eða greiðist ekki samkvæmt samningi. Framanskráðir vextir eiga einnig við um sýningarvíxla méð eftir á greiddum vöxtum, í samræmi við raunveru- legan lánstíma. 2) Hlaupareikningsvextir: _ Af skuldum á hlaupareikningum, reikn- ings- og viðskiptalánum reiknist fast við- skiptagjald (þóknun) af upphæð láns- heimildar Gjaldið skal tekið fyrir fram fyrir hvern almanaksmánuð meðan heimild er í gildi. Af skuldarheimildum til takmarkaðs tíma, þ.e.a.s. allt að sex mánuðum, má þó taka allt gjaldið fyrir fram. Auk viðskiptagjaldsins skal reikna dag- vexti mánaðarlega eftir á 3) Afurðalánavextir. a) víxlar endurseljanlegir Se’ðlabankan- um með veði í útflutningsvörum b) aðrir endurseljanlegir víxlar c) víxlar með 2. veðrétti í útflutningsaf- urðum, er nema hæst 30% af endurselj- anlegu láni, svo og víxlar veittir með veði í væntanlegum afla (útgerðar- lán) sömu lán, en í hlaupareikningsformi (me'ð eftir á greiddum vöxtum) Seðlabankinn endurkaupir víxla skv. a. og b. lið með %% lægri vöxtum á ári en viðskiptabankarnir taka. 4) Vextir af öðrum lánum, þar með talin afborgunar- lán og skuldabréfalán: a) lán með fyrsta flokks fasteignaveðs- tryggingu að mati lánsstofnunar éða sjálfsskuldarábyrgð ríkissjóðs b) öll önnur lán, þar með talin fasteigna- veðslán, handveðslán og lán tryggð með ábyrgð 5) Vanskilavextir (dráttarvextir): a) af víxlum og tékkum 1% á mánúði eða fyrir brot úr mánúði, en aðrir vextir (og fyrri þóknun 14 %) falla niður frá gjalddaga b) af öðrum lánum 1% á mánuði eða fyrir brot úr mánuði af gjaldfallinni upphæð (en samnings- vextir falla niður frá gjalddaga). Gildir þessi regla um öll lán í vanskilum, þar me'ð taldar skuldir, er myndast á hlaupareikningi eða öðrum viðskiptareikningi umfram skuldarheimild. Með mánuði í sambandi við vanskilavexti er átt við hvert 30 daga tímabil. Ofanskráðir útlánsvextir eru hámarksvextir. Óheimilt er að taka a'ðra þóknun eða vexti en um getur hér að ofan fyrir utan þóknanir og gjöld, sem heimiluð eru í gjaldskrá við innlánsstofnanir, sem birt var í Lögbirtingarblaði, dags. 29. júlí 1964. Framangreindar ákvarðanir um vexti af lánum og van- skilavexti gilda einnig í lánsviðskiptum utan innláns- stofnana, sbr. lög nr. 58/1960. Fyrri vaxtaákvarðanir Seðlabankans um vexti við inn- lánsstofnanir falla jafnframt úr gildi. 30. desember 1965. SEÐLABANKI 7% á ári 6% á ári 7%% á ári 8% a arx 8íé% á ári 914% á ári 10% ISLANDS Sextugur 3. janúan Ágúst Böðvarsson ÍSLENDINGAR gera sér flestir ljóst, að stærð landsins og smæð þjóðarinnar orsaka hærri útgjöld fyrir livern einstakling til þjóð- arbúsins en í löndum, þar sem fleiri sameinast um hvern spotta vegar eða önnur atriði almennr- ar þjónustu. Flestir þeir útlend- ingar, sem kynnast íslenzkum staðháttum, undrast, hve vel hef- ur tekizt, að byggja fjölþætt og virkt þjóðfélagskerfi með svo fá- mennri þjóð, kerfi, sem í flestum aðalatriðum fullnægir þeim kröf- um, sem gera verður til sjálf- stæðra menningarþjóða. Sköpun þessa kerfis hefur tekið langan tíma og enn eigum við langt í land að geta borið okk ur saman við þjóðir sem okkur eru skyldastar. Þó er svo komið, að flest eða öll störf, sem lúta að almennri þjónustu eru nú unn in innanlands á stofnunum, sem hafa risið, oftast fyrir atbeina einstaklinga, sem sáu þörf fyrir þjónustu á einhverju sérsviði og höfðu metnað til að byggja upp skipulagða innlenda starfsemi. Gott dæmi um slíka þjónustu- starfsemi er íslenzk kortagerð. Kortagerðastofnunin danska vann mikið þrekvirki með korta- lagningu íslands á fyrra helm- ingi þessarar aldar, og skapaði þar með grundyöll að öllum frek ari rannsóknum á landinu. Korta gerð er hins vegar ekki unnin í eitt skifti fyrir öll, og sízt á íslandi, þar sem virk náttúru- öfl valda stöðugum breytingum á landinu, og atorkusöm þjóð byggir vegi, orkúver og borgir. Kortin þurfa stöðugrar endur- nýjunar við, og ný tækni skap- ar möguleika á betri og nákvæm ari vinnu. Það hlaut að vera nauðsyn og jafnvel metnaðarmál sjálfstæðrar þjóðar að kortaþjón ustan yrði framkvæmd af inn- lendum aðila. Með hernámi Danmerkur í byrjun heimsstyrjaldarinnar síð- ari lögðust niður ferðir danskra mælingamarma til íslands og þeir hlutar miðhálendisins sem sumir voru ókortlagðir voru teikn aðir eftir misgóðum loftmynd- um. Heima á Islandi var þó einn aðili, sem hafði umboð fyrir dönsku stofnunina og hélt áfram mælingum, einkum varðandi leið réttingu þeirra korta, sem höfðu verið mæld upp úr aldamótun- um og voru úrelt orðin. Þessi aðili var Geir Zöega, vegamálastjóri, og á skrifstofu hans starfaði ungur mælingamað ur, Ágúst Böðvarsson, sem hlot- ið hafði þjálfun hjá Geodetisk Institut í Kaupmannahöfn. Þess- ir rnenn gerðu sér grein fyrir, að áhugi Dana mundi ekki endr ast til fullkominnar kortaþjón- ustu, sízt eftir lýðveldisstofnun- ina 1944. Eina leiðin til þess að tryggja nauðsynlegt áframhald þessarar þýðingarmiklu þjón- ustu var að byggja upp innlenda stofnun, sem gæti gegnt því hlut verki að hafa ætið ný og vönduð kort á boðstólum. Island hefur stLtndum átt því lánj að fagna að eiga rétta menn á réttum stað, þegar- slíkra var þörf. Það sem úrslitum ræður er ekki prófvottorð og tilheyr- andi stimpill stéttarfélags heldur raunveruleg áunnin þekking og hæfni. að viðbættri skapgerð, sem gerir manninum kleift að leiða hvert vandamál .til farsælla lykta. Slíkur maður er Ágúst Böðvarsson. Þegar undirritaður komst fyrst í kynni við Land- mælingar íslands voru þær eins manns stofnun, sem réði til sín einn eða tvo aðstoðarmenn í sumarvinnu. Um þessar mundir voru Landmælingar staðsettar í einu herbergi í húsakynnum Vegamálaskrifstofunnar í Arnar- hvoli, en í kjallara þess húss voru tvær herbergiskytrur, sem notaðar voru fyrir ljósmynda- vinnu. Vafalítið hafa fáar ljós- myndastofur, sem framleiddu passamyndir, haft lélegra hús- næði til umráða, en hér voru framleiddar feiknastórar prent- aðar eftir löftljósmyndum, margar myndir teknar og stækk- aðar i réttan mælikvarða og skeyttar saman í kort. Tækin voru samansafn gamalla hluta, sem höfðu fengizt fyrir lítið verð úr ýmsum áttum. Uppsetningin bar þess vitni, að vírspotti og límband geta gengt þörfu hlut- verki, ef hagleikur og hugvit er annars vegar. Af meiri háttar verkefnum frá þessum tíma minnist ég ljós- myndakorta af Reykjavík og Akureyri, sem bæði voru frábær lega vel unnin og falleg í öllum frágangi. Við fráfall Geirs Zöega, vega- málastjóra, slitnaði samband Vegamálaskrifstofunnar og Land mælinga íslands sem gerðar voru af sjálfstæðri stofnun und- ir stjóm Ágústs Böðvarssonar. Smám saman hafa gömlu tækin vikið fyrir nýrri og fullkomnari útbúnaði eftir því sem þessari ungu stofnun hefur vaxið fiskur um hrygg. Nýir menn hafa bæzt við til að sinna þjónustu, sem verður sífellt umfangsmeiri með aukinni eftirspurn eftir ljósmynd un úr lofti, útgáfu endurbættra landabréfa og frágang sérkorta svo sem gróðurkorta í samvinnu við Ranrxsóknarstofnun Landbún aðarins og jarðfræðikorta í sam- vinnu við Náttúrufræðistofnun- ina og Menningarsjóð. Fjölmarg ir aðilar og stofnanir ganga að því sem sjálfsögðum hlut, að Landmælingar íslands vatti margþæbta og vandaða þjónustu. Fæstir gera sér grein fyrir því, að á bak við þá stofnun liggur frumkvæði eins manns, sem sá ■þörfina fyrir og hafði þraut- seigju, hugvit og þekkingu til að yfirstíga tálmanir, sem í byrjun virtust tprfærar. KÓPAVOGliR Kópavog vantar blaðburðarfólk Hafið samband við afgreiðslu Mbl. í Kópavogi — sími 40748. Hainarfjörður Blaðburðarfólk vantar í vesturbæinn . Afgreiðslan, Arnarhrauni 14, sími 50374. Ágúst er glaðvær maður, sem auðvelt er að umgangast, en við sem unnum undir hans stjórn bárum fyrir honum þá einlægu virðingu, sem fáir stjórnendur kunna að skapa með samverka- mönnum sínum. Honum er ekki lagið að ausa úr skálum reiði sinnar, en breiðir yfir mistökin með þeim hætti að viðkomandi heitir því með sjálfum sér að verða ekki aftur á í messunnú Ég minnist ótal samverustunda með Ágústi, við mælingar á Heklutindi, í tjaldi við Tungna- fellsjökul, á ótal ferðum um ýmsa landshluta við kortaleið- réttingar, í loftlausri kjallara- kyrtunni í Arnarhvoli Og á heim ili þeirra hjóna. Skapgerð manna kemur hvergi betur fram en við slíkar aðstæður og fáum mönn- um hefi ég kynnst, sem kunnu eins vel að bregðast við óvænt- um vanda og Ágúst. Skapgerðin er ofin þráðum og í þann vef hefur eiginkonan lagt til æði drjúgan skerf. Sigríður Svein- björnsdóttir á ekki hvað síztan þátt í því, að Ágústi hefur tek- izt að koma áhugamálum sínum í framkvæmd, og heimili þeirra hjóna ber þess vitni, að þar hef- ur góð kona um sýslað. Margir hafa notið gestrisni Ágústs og Sigríðar og ég minnist þess, að þegar stór leiðangur danskra mælingamanna dvaldi hér heima sumarið 1955 og 1956, var heim- ili þeirra sem gistihús, þar sem daglega voru gestir í öllum mál- tíðum og sofið í hverju horni. Nú veit ég, að fátt veitir meiii ánægju en sonarsynir tveir, og ef til vill er ekki fjarri lagi að óska þeim til handa, að þeir fái sem lengst að njóta góðs afa og góðrar ömmu, og að lokum vil ég fyrir hönd okkar hjónanna og allra gamalla aðstoðarmanna óska Ágústi til hamingju með af- mælið og vona að Landmælingar íslands fái að vaxa og eflast und- ir hans stjórn um langa hríð. Guðmundur E. Sigvaldason. Irskir listomenm í Þjóðleikhúsinu AÐ morgni hins 5. þessa mán- aðar kemur hingað til landsina 20 manna hópur írskra lista- manna og heldur listafólkið eina sýningu á vegum Þjóðleikhúss- ins, en hún verður n.k. mið- vikudagskvöld kl. 20. Flokkur þessi nefnist ,,Feis Eireann" og kemur listafólkið hingað frá Dublin og er förinni héðan heit- íð til Bandaríkjanna og Kanada en þar mun listafólkið sýna í nær því 40-50 borgum á næstu 4 mánuðum. Á efnisskránni eru mestmegru is írsk þjóðlög og þjóðdansar, en listafólkið er allt klætt írsk- um litríkum þjóðbúningum, írsku þjóðlögin eru mjög fögur og sérstæð og eru þekkt í flest- um menningarlöndum heims. í þeim speglast írsk menning og þjóðarandi í þúsund ár. Hin sterka ættjarðarást og ríka skopgáfa íranna tvinnast þar saman og mörg þjóðvísan býr yfir djúpum og sárum trega, sem er svo snar þáttur í írskri þjóðarsál. Fararstjóri og stjórnandi lista fólksins er Albert Morine.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.