Morgunblaðið - 28.01.1966, Page 2
2
MORGU N BLAÐIÐ
Föstudagur 28. Janðar 1968
i
Guðmundur H. Garffarsson, for maður V.R. (í miðju) ásamt
ii. n nýkjörnu heiffursfélögum , Guffrúnu Árnadóttur og Niel-
johmusi Ólafssyni.
V.R. fær lóö í
fyrirhuguöum miöbæ
f TILEFNI af 75 ára afmæli
Verzlunarmannafélags Reykja-
víkur, hélt félagið veglegt af-
mælishóf í Þjóðleikhúskjallaran-
um í gær. Voru þar margar ræff-
ur fluttar, og m.a. töluffu Guff-
mundur H. Garðarsson, formaður
V.R., Hannibal Valdimarsson,
forseti A.S.Í. og Geir Hallgríms-
son, borgarstjóri.
Borgarstjóri las m.a. upp í
ræðu sinni eftirfarandi bréf,
dagsett 26. janúar:
„í tilefni af 75 ára afmæli
Verzlunarmannafélags Reykjavík
ur, samþykkti borgarráð á fundi
sínum í gær að gefa félaginu
fyrirheit um lóð fyrir félagsstarf
semina í fyrirhuguðum Miðbæ
við Krnglumýrarbraut, sam-
kvæmt nánara samkomulagi.“
Síðan árnaði borgarstjóri, Geir
Hallgrímsson, félaginu allra
heilla á komandi árum.
Verzlunarmannafélagið gerffi
í tilefni 75 ára afmælisin-s, þau
Guðrúnu Árnadóttur og Nieljo-
hníus Ólafsson, að heiðursfélög-
um. Tíu manns hlutu gulimerki
félagsins, þau Baldur Pálmason,
Björgúlf Sigurðsson, Böðvar
Pétursson, Eyjólf Guðmunds-
son, Gunnlaug J. Briem, Gyðu
Halldórsdóttur, Hannes Þ. Sig-
urðsson, Jónu Þorláksdóttur,
Pétur Sæmundsen og Sverri
Hermannsson.
Hádegisfundur
Varðbergs á morgun
Á MORGUN, laugardag 29. janú-
ar, efna Varðberg og Samt ..n
vestræna samvinnu til hádegis-
fundar í Þjóðleikhúskjallaranum
V-þýzkir mála-
liðar til Kongá
Leopoldville, 27. jan. — NTB'
MOISE Tshomhe, fyrrum forsæt-
isráffherra í Kongó safnar nú aff
sér hvítum málaliðum í V-Þýzka
landi, aff því er sagt var í útvarpi
í Leopoldviile í gærkvöldi.
Hafði Leopoldvilleútvarpið
þetta eftir fréttaritara sínum í
París en hann aftur fréttina úr
v-þýzku dagblaði.
Sagði í fréttinni að utanríkisráð
herra Kongó, Justin Bomboko,
sem nú væri staddur í Brússel
hefði ákveðið að dveljast leng
ur í Evrópu til þess að kanna
málfð. Sagði útvarpið að fyrstu
80 hermennirnir hefðu komið
flugleiðis frá Brússel til Afríku
á sunnudag og að útsendarar
Tshombes væru önnum kafnir
við öflun manna í Brússel, Köln
og Hamborg.
í v-þýzka blaðinu, sem Parísar
fréttaritari útvarpsins bar fyrir
fréttinni sagði ennfremur að lög
reglan í Köln vissi til þess að ver
ið væri að fala mennina til starfa,
en hefði ekki fest hönd á neinu
er sakhæft gæti talizt.
FÉLAGSHEIMILI
Föstudagur:
Kvikmyndasýning.
HEIMDALLAR
og hefst hann, að venju, kl. 12.30.
Dr. Charles O. Lerche, forseti
Alþjóðamáladeildar American
Unriversity í Washington D.C.,
sem hér dvelst í stuttri heimsókn,
mun flytja erindi, sem nefnist:
Charles O. Lerch
„Ástand alþjóffamála I dag —
meff sérstöku tilliti til Víetnam".
Að erindinu loknu mun pró-
fessorinn svara fyrirspurnum.
Leiðrétting
SÚ MISSÖGN varð í blaðinu sl.
miðvikudag, að Flosi Ólafsson er
talinn leikstjóri beggja einþátt-
unganna, sem nú eru sýndir í
Lindarbæ. Flosi Ólafsson er leik-
stjóri „Hrólfs“, en Baldvin Hall-
dórsson er leikstjóri pólska ein-
þáttungsins „Á rúmsjó“. Eru hlut
aðeigendur beðnir velvirðingar
á þessurn mistökum.
„Hvað á barnið að heita"?
fsafirði, 24. jan.
„HVAÐ á barnið að heita?“
var hin hefðbundna spurning
sr. Sigurðar Kristjánssonar
prófasts á ísafirði fyrir
skömmu. Og svarið var held-
ur óvenjulegt hér á íslandi.
„Nadia Liza,“ svaraði guð-
móðirin, Helga Sveinbjarnar-
dóttir, sem hélt barninu undir
skím á heimili prófastshjón-
anna að viðstaddri fjölskyldu
hans og foreldrum sínum.
Nadia Liza er tveggja ára
gömul og er dóttir listahjón-
anna Þórunnar Jóhannsdóttur
og Vladimir Askenazy, hins
heimskunna rússneska píanó-
snillings.
— Ég var ráðin sem barn-
fóstra til þeirra hjóna í haust
í gegnum vinkonu frú Þór-
unnar, segir Helga þegar við
hittum hana að máli. — Ég
fór héðan að heiman 1. okt.
til Reykjavíkur, þar sem þau
hjón voru, og til New York
fórum við 11. okt., en þá var
Askenazy farinn á undan. Við
dvöldum í mánaðartíma í
New York og síðan hefi ég
verið í Washington, en þau
hjónin hafa verið á ferðalagi
víða um Bandaríkin og Aske-
nazy haldið hljómleika, m.a.
í New York og víðar.
— Þau hjónin eiga tvö
börn, fjögurra ára dreng, sem
heitir Vladimir Stefán og svo
litlu Nadiu, sem varð tveggja
ára í haust. Ég er barnfóstra
og hugsa um börnin og heim-
ilið, ef svo mætti segja, þegar
þau hjónin eru ekki heima, en
Þórunn er alltaf með manni
sínum á ferðalögunum.
— Þau hjónin buðu mér að
fara heim til íslands áður en
við færum til London, og ég
hefi verið hérna heima á ísa-
firði síðan 16. jan., en er nú
að fara suður, því að þau
hjónin eru komin til landsins
og við förum til London á
föstudag.
— Af hverju var barnið
skírt á ísafirði?
— Ja, hvað skal segja. Þór-
unn var eitthvað að tala um
það að telpan væri óskírð,
þó hún hafi alltaf verið köll-
uð Nadia, og þá sagði ég að
það væri bezt að ég léti skíra
hana á meðan ég væri heima.
Þau fóru svo að tala um þetta
nánar og leizt ágætlega á að
barnið væri skírt hér heima
Þegar Nadia Liza var skírff.
á Islandi, og það varð úr, að
Nadia Jitla var skírð á af-
mælisdaginn minn 19. janúr-
ar, en þá varð ég 19 ára, svo
að við héldum skírnarveizlu
og afmælisveizlu á eftir.
— Hvernig hefur þér líkað
þetta starf?
— Alveg ágætlega, og þetta
er alveg draumafólk. Þetta er
í fyrsta skipti, sem ég fer til
útlanda og mér finnst alveg
dásamlegt að ferðast. Ég var
svolítið að koma til í ensk-
unni cn þau hjónin tala sam-
an á ensku, Vladimir litli
kann ensku og Nadia líka og
Vladimir skilur líka rússn-
ensku og svolítið í íslenzku.
— Ég var alveg hræðilega
taugaóstyrk þegar ég fór fyrst
út að verzla í New York.
Ég var alveg eins og aum-
ingi. Fyrst ætlaði ég ekki að
— Lj ósm.: Jón A. Hjarnason. !
vilja fara, en Þórunn stappaði j
í mig stálinu og skrifaði upp ,
á miða fyrir mig og bar það j
fram, og ég varð að lofa að
láta þá ekki fá miðann í
verzluninni. Svo harkaði ég j
af mér og lét þá ekki fá mið- !
ann, heldur bara las upp af t
honum. Það gekk al.lt vel,
það eru allir svo hjálpsamir 1
þarna úti. I
— Nú förum við til London j
og Askenazy mun spila þar
og síðan á Norðurlöndum og |
víðar. Ég er ráðin til eins árs, I
og mér finnst þetta alveg ,
dásamleg lífsreynsla og
ánægja í alla staði. *
Helga er dóttir hjónanna I
Sveinbjarnar Sveinbjarnar- i
sonar og Jónínu Kristjáns-
dóttur á ísafirði. 1
— H. T. I
Kvikmyndasýning Geimnníu
Hollir og riddarabargir
í Þýzbolondi
FRÉTTA- og fræðslumyndir
verða sýndar á morgun, laugar-
dag, á vegum félagsins Germ-
aníu.
Fréttamyndirnar eru frá
helztu viðburðum í Þýzkalandi
undanfarnar vikur, m.a. frá
heimsókn konungsins í Marokkó
og viðræðum hans við dr. Er-
hard, kanzlara. Þar er einnig
sagt frá aðstoð Vestur-Þýzka-
lands við hin vanþróuðu lönd í
Afríku, Asíu og Suður-Ameríku.
Fræðslumyndirnar eru tvær.
Er önnur um Kielarskurðinn svo
nefnda, sem tengir Norðursjó-
inn Eystrasalti og mikið er not-
um. Hin fræðslumyndin er um
hallir og riddaraborgir í Þýzka-
landi. Hefur Þýzkaland löngum
verið víðtrægt fyrir hallir, sem
þar eru frá ýmsum tímum og á
ýmsum stöðum, margar hverjar
skrautlegar. Frá miðöldum eru
þar einnig margar riddaraborg-
ir, sem haldið hefur verið við
fram á þenna dag, þótt aðrar séu
reistar. Sögusvið sumra af okk-
ar skemmtilegu riddarasögum
var einmitt á þessum slóðum.
Sýningin er í Nýja Bíó og hefst
kl. 2 e.h. Öllum er heimill að-
gangur, börnum þó einungis í
fylgd með fullorðnum.
Frá íslenzk -
ameríska
félaginu
ÍSLENZK-ameríska félagið held-
ur hádegisverðarfund í Þjóðleik-
húskjallaranum föstudaginn 28.
þ. m. og hefst hann kl. 12.00
stundvíslega.
Erindi flytur prófessor Charles
O. Lerche, forseti Alþjóðadeildar
American University í Washing-
ton D.C., og fjallar það um ástand
og horfur i alþjóðamálum í dag.
Er þetta frábær fyrirlesari og
mun hann svara fyrirspurnum að
erindi loknu
Indónesía:
Ungtung og
iXljono fyrir
herrétt
Djakarta, 27. jan. — NTB. \
TVEIR menn munu dregnir fyrir
lög og dóm innan tíffar í Djakárta
og látnir svara til saka fyrir hina
misheppnuðu byltingartilraun,
sem gerð var í Indónesíu í októ-
ber í fyrra og varff aff bana um
87.000 manna aff því er taliff er.
Eru þetta þeir Ungtung ofursti,
yfirmaður einnar lífvarðarsveit-
ar Súkarnos forseta og Njono,
formaður landssamtaka verka-
manna, sem kommúnistar réðu
lögum og lofum í. Ungtung og
Njono voru báðir handteknir í
október sl. skömmu eftir að bylt-
ingartilraunin hafði verið bæld
niður. Að því er hermálaráð-
herra indónesísku stjórnarinnar,
Suharto hershöfðingi, tilkynnti í
dag munu tveir herdómstólar
skipaðir til að fjalla um mál
þeirra, sinn um hvort.
Akranesi 27. jan.
í Rhódesíu vantar þá olíu og
benzín, en hér í bænum vantaði
vatn nýverið í 3 sólarhringa sam
fleytt. Þetta var komið í lag,
„en“, eins og íþróttaþulurinn
segir, það fór af fyrir hádegið
í dag. __ oddur.