Morgunblaðið - 28.01.1966, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 28.01.1966, Qupperneq 14
14 MORGU N BLAÐIÐ Föstudagur 28. janúar 1966 1 Útgefandi: Framkvæmdastj óri: Ritstjórar: Ritst j órnarf ulltrúi: Auglýsingar: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Áskriftargjald kr. 95.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfus Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sínii 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. FRJALS INNFL UTNINGUR „Hvíta dúfan“ Hinn nýi foringi Peronista í Argentínu ÞEGAR Juan Peron var ein- ræðisherra í Argentínu, naut hann mjög vinsælda vegna konu sinnar, Evu Peron. En Eva, eða Evita eins og hún var kölluð, lézt árið 1952, og þrem ur árum síðar hrakti herinn einræðisherrann úr landi. En margir Peronistar tigna enn Evitu sem dýrling. Sjálfur hefur Peron aldrei gefið upp vonina um að kom- ast aftur heim til Argentínu, en hann hefur undanfarin ár Framhald á bls. 16 Isabel Peron við komuna til Buenos Aires. CJú ákvörðun ríkisstjórnar- ^ innar, að stækka frílist- ann verulega, er stærsta spor, sem stigið hefur verið til aukins frjálsræðis í innflutn- ingi, síðan núverandi ríkis- stjórn gjörbreytti stefnunni í innflutningsmálum lands- manna 1960. Vörutegundir þær, sem nú eru gefnar frjáls- ar námu 7% af heildarinn- flutningi ársins 1964, og er nú yfir 86% heildarinnflutn- ings landsmanna orðinn frjáls. Á hinum nýja frílista eru mikilvægar vörutegundir, svo sem timbur og járn, eldhús- innréttingar og skápar, gólf- teppi og fleira. Væntanlega verður frjáls innflutningur þessara vörutegunda til þess að hagkvæmari innkaup ná- ist nú en áður, og ekki er útilokað, að byggingar- kostnaður í landinu geti eitt- hvað lækkað af þeim sökum. Mikilvægt spor í þá átt mundi þó vera tollalækkun á inn- fluttum eldhúsinnréttingum og skápum. Stefna ríkisstjórnarinnar í innflutningsmálum hefir nú leitt til þess, að vöruúrval í verzlunum hér á landi er geysimikið og neytendur geta nú valið á milli vöru- tegunda af ýmsum gæðum og gerðum, en áður áttu þeir ekki annan kost en kaupa eina ákveðna vöru og stundum var hún alls ekki til. Það er raunar harla ótrú- legt, að ekki er nema rúm- lega hálfur áratugur frá því að hafta- og skömmtunar- stefnan ríkti enn hér á landi. Þá var vöruúrval í verzlun- um mjög lítið og smyglstarf- semi og svartur markaður blómgaðist. Ýmsar nauðsyn- legar vörur var ekki hægt að fá nema eftir óvenjulegum leiðum, og þá fyrir okurverð. Breytingin í þessum efnum í tíð núverandi ríkisstjórnar hefur orðið svo stórkostleg, að búast hefði mátt við að engum hefði komið til hugar að hverfa aftur til hinnar fyrri hafta- og skömmtunar- stefnu. Samt sem áður er það stað- reynd, að formaður Fram- sóknarflokksins og málgagn hans hafa undanfarna mán- uði stöðugt prédikað aftur- hvarf til hafta- og skömmt- unarstefnunnar, þegar engar vörur var að fá, og kaupmenn upp á náð innflutningsyfir- valda komnir með innflutn- ingsleyfi. Framsóknarmenn vilja snúa aftur til þess tíma- bils. Þeir þola ekki það frelsi sem nú ríkir í verzlun og við- skiptum manna á milli. „Hin leiðin“ felst einmitt í því að taka hér á ný upp höft og bönn og innflutningshöft af því tagi, sem ríkti hér fyrir aðeins rúmum hálfum ára- tug. Viðskiptamálaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason, sagði í fréttaauka í útvarpinu síðast- liðið miðvikudagskvöld um stækkun frílistans: „Þessar ráðstafanir, sem nú hefur verið lýst, eru liðir í þeirri stefnu ríkisstjórnarinn- ar að veita neytendum kost á æ fjölbreyttara vöruúrvali og stuðlað að aukinni samkeppni í verzluninni. Aukið vöruúr- val gerir neytendum auðveld- ara að fullnægja þörfum sín- um, og aukin samkeppni ætti smám saman að hafa í för með sér stöðugra verðlag. Á hinn bóginn hefur ríkisstjórn- in viljað gæta þess vandlega, að aukinn vöruinnflutningur frá jafnkeypislöndum stofn- aði ekki útflutningsmörkuð- um þjóðarinnar í jafnkeypis- löndum í hættu. En á síðari árum hafa viðskipti okkar við jafnkeypislöndin, og þá eink- um löndin í Austur-Evrópu smám saman verið að breyt- ast, þannig að kaup þeirra á íslenzkum afurðum hafa minnkað meira en kaup okk- ar á þeirra vörum.“ Og viðskiptamálaráðherra sagði ennfremur: „í kjölfar þessara ráðstaf- ana í viðskiptamálum, mun á næstunni sigla aukið vöru- framboð á ýmsum sviðum og aukin samkeppni í viðskipta- lífinu. Það er skoðun ríkis- stjórnarinnar, að með þessu sé stefnt í rétta átt. Það sem fyrst og fremst hefur gert kleyft að gera þessar ráð- stafanir er sú staðreynd, að afkoma þjóðarinnar út á við er mjög góð. Á síðastliðnu ári hélt gjaldeyrisvarasjóður þjóðarinnar áfram að aukast, hann jókst úr 1600 milljónum króna í ársbyrjun í 1900 millj. króna í árslok. Án þessarar þróunar hefði hvorki verið unnt né ráðlegt að stíga þau spor í viðskiptamálum, sem nú hafa verið stigin.“ FRESTUR TIL L MARZ Díkisskattstjóri, Sigurbjörn Þorbjörnsson, ávarpaði skattborgara landsins í frétta auka ríkisútvarpsins síðastlið- ið miðvikudagskvöld, og skýrði þar m.a. frá starfsemi skattaeftirlitsins. Sagði ríkis- skattstjóri, að ríkisskatta- nefnd hefði nú lokið af- greiðslu á 19 málum, sem til hennar hefði verið vísað vegna brota á skattalögum og söluskattslögum, og hefðu gjöld þessara 19 aðila verið hækkuð í heild í rétt yfir 5,8 milljónir króna, en skatt- sektir þessara aðila næmu 3 milljónum og 90 þúsundum króna. Auk þess hefðu fram- talsnefndir hækkað útsvör þessara gjaldenda í heild rétt yfir 3,6 milljónir króna, en 3 mál lægju til afgreiðslu hjá framtalsnefnd. í framhaldi af þessu vakti ríkisskattstjóri sérstaka at- hygli á því, að lögum sam- kvæmt væri heimilt að fella niður skattsektir, ef skatt- þegn hefur fyrir 1. marz 1966 af sjálfsdáðum gefið réttar skýrslur um þau atriði er máli skipta um tekjuskatt hans og eignaskatt. Sagði rík- isskattstjóri, að ákveðið hefði verið að nota þessa heimild til fulls. Greinilegt er því, að miklu máli skiptir fyrir þá skatt- þegna, sem af einhverjum ástæðum hafa ekki talið rétt fram til skatts á undanförn- um árum, að gera nú hreint fyrir sínum dyrum fyrir 1. marz n.k. Þeir munu þá losna við hinar þungu skattsektir og einnig það, að eiga rann- sókn skattaeftirlitsins yfir- vofandi. Þess vegna væri það vafalaust hyggileg ráðstöfun hjá öllum þeim, sem hér eiga hlut að máli, að nota sér þann frest, sem gefinn hefur verið og út rennur þann 1. marz n.k. Það mundi verða öllum til hagsbóta. RYKIÐ DUSTAÐ AF GÖMLU GOÐI jóðviljinn fer allt í einu í gær að dusta rykið a-f Kristni E. Andréssyni. Eins og kunnugt er, gegndi Krist- inn á sínum tíma í kommún- istaflokknum hér á landi svip uðu hlutverki og þeir, sem ákváðu að Pasternak skyldi vera landrækur gerr úr Sovét ríkjunum, ef hann tæki við Nóbelsverðlaununum, Og þeir, sem nú hafa handtekið rithöfundana Terzt og Arz- hak og látið þá svara fyrir „andkommúnískar“ tilhneig- ingar hafa svipað mat á til- gangi bókmennta og forstjóri Máls og menningar. Sem betur fer brugðust draumsýnir Kristins Andrés- sonar og annarra kommúnista um algjör yfirráð yfir ís- lenzkum rithöfundum og lista mönnum. Síðan hefur Krist- inn verið geymdur í komm- óðuskúffu Flokksins, og eng- um dottið í hug að stilla hon- um upp aftur — fyrr en í gær. Kveður þá aftur við gamla tóninn og virðist hann halda að einhverjir rithöf- undar séu enn ginkeyptir fyr- ir bragðinu sem reynt var að nota í gamla daga — með litlum árangri þó. Munurinn nú og áður kem- ur glögglega fram í Þjóðvilj- anum. Kristinn segir ekki að- eins kolsvarta kommúnista- höfunda lofsverða eins og í gamla daga, heldur lætur hann sér það nægja, ef hann telur að ýringur af vinstri til- hneigingu sé í viðkomandi rithöfundarsál. Nú er tjaldað því sem til er, enda komm- únistar illa á vegi staddir, ef miðað er við gömlu draum- sýnirnar. Sá tími er liðinn, að þeir geti hrætt höfunda með slæmum ritdómum eða illu umtali um verk þeirra. Slíkur áróður fer nú fyrir of- an garð og neðan. íslenzkir rithöfundar vilja vera frjálsir og óháðir. Þeir neita að láta binda sig á klafa, þeir kjósa sízt af öllu ein- hvern Kristin E. Andrésson til að breyta frjálsu þjóðfé- lagi í fangabúðir Abram Tertz. Þeir vilja fá að vera óánægðir í lýðræðislegu um- hverfi sínu, án þess að vera dregnir fyrir dómstóla. Þeir vilja ekki láta meta verk sín eftir pólitískri forskrift. Póli- tískur lofsöngur nægir engum rithöfundi til lengdar. Hann stendur og fellur með verk- um sínum einum. Engin ávís- un, hvorki frá kommúnistum né öðrum, gerir höfund að góðum listamanni, ef þær heil brigðu forsendur skortir. Sum ir ungir rithöfundar virðast þó ekki enn gera sér grein fyrir þeirri staðreynd. Þann- ig er ekki heldur hægt að svipta höfunda réttmætum orðstír með pólitískum áróðri. Ekki í lýðræðisþjóð- félagi. Rödd manna eins og Krist- ins E. Andréssonar verkar eins og hljómandi málmur og hvellandi bjalla. Það mun lengi í minnum haft, að hann vann það „afrek“ í þágu hins alþjóðlega kommúnisma á sín um tíma að skrifa bókmennta sögu, sem lengi verður minnzt fyrir sakir hlutdrægni. Þar var hálfníð um skáld eins og Davíð Stefánsson og Guð- mund Hagalín. Þau tök höfðu kommúnistar á sínum tíma, að margir sakleysingjar héldu að hér væri um bókmennta- yfirlitsverk að ræða. Sumum þótti lofið gott og héldu að þeir gætu orðið ágætir af því, hvað sem liði.verkum þeirra. En þó pólitískar uppskriftir henti stjórnmálaritum fara þær illa sem forsendur bók- menntalegra ritverka. Komm únistar ættu því ekki að eyða kröftum á Kristin — heldur geyma hann áfram í komm- óðuskúffunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.