Morgunblaðið - 12.02.1966, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.02.1966, Blaðsíða 3
Laugardagur 12. febrúar 1966 MORGUNBLAÐIÐ 3 ÞEGAR dúnmjúkar snjó. flygsur svífa hægt til jarðar í stillilogni, er líkt og slakni á meginþræði í brjóstum manna, sumir fyllast kyrr- látri gleSi, yfir aðra kemur klökkleiki, fæstir láta sér fátt um finnast. Sú annarlega hugarró, sem virðist órofa tryggðum bundin við hægan dans þessarar mjúklátu mjallar er vafalaust eitthvað í ætt við þá ójarðnesku sælu, sem dulspakir menn segja, að við eigum í vændum eftir líkamsdauðann. Að minnsta kosti ættu margir Islendingar erfitt með að sætta sig við sælustað, þar sem aldrei snjó- aði í logni. Skömmu eftir hádegið í gær lögðum við leið okkar niður að Tjörn, í skáldlegum þörukum venju fremur. Við ætluðum að hitta lítil börn á skautum og ef til vill að hrella þau með fáeinum spurningum. Og það var eins og okkur grunaði, börnin þustu, stór og smá, klyfjuð skautum og vetrarfatnaði nið- ur á Tjörn, strax og skóla- bjallan var þögnuð í síðasta sinn þann dag. Úti á Tjörn- inni ösluðu þau í þykku lagi næturgamallar mjallar, duttu og sprikluðu í snjónum eins og fiskar í vatni. Á miðri Tjörninni ruddi dráttarvél sér braut, ótrauð í þykkum snjónum. -Brátt yrði þarna komið ákjósanlegt skautasvell. Við héldum varkárir lút á hálann ísinn og komumst um síðir í námunda við börnin, sem renndu sér, rjóð í kinn- um, á glæfralegri ferð um ísinn, svo að eldglæringar stóðu undan skautunum þeirra. Fimm kafrjóðar smástúlkur renndu sér í átt til okkar og Trén í Einarsgarði mynda hér fallega umgjörð um styttuna af Pomonu, gyðju ástar og frjó- semi. geistust fram hjá okkur um leið og við kölluðum: — Er gaman á skautum? En þær héldu hlæjandi framhjá okkur, enda spurn- ingin fávísleg. Þær taka stóra beygju og renna sér á ný framhjá okkur í annað sinn og kalla einum rómi: — Já! Við göngum von bráðar úr skugga um það, að þetta unga skautafólk hefur öðrum hnöppum að hneppa en að tala við menn, sem ekkert kunna á skautum. Hins vegar hittum við lítinn snáða, kannske verðandi skautasnill- ing, sem rennir sér í kring- um okkur og dettur tvisvar eða þrisvar sinnum á leið- inni. — Er gaman að skauta? spurðum við aftur. * • Þessir kátu krakkar voru að leik fyrir utan Austurbæjar- skólann. í snjókófinu fremst á myndinni er ung dama, sem strákarnir jusu snjónum yfir. Fyrir aftan hana er stalla henn ar, sem væntanlega hefur ætlað að koma henni til hjálpar. - Ben Barka Framh. af bls. 1. tekinn vegna máls þessa og kærður fyrir að hafa ekki tek- ið í taumana eða gert yfirboð- urum sínum viðvart, er hann vissi að til stóð að ræna Ben Barka. Einn af starfsmönn- um Leroys, Daniel Pouget, hefur lýst því yfir, að í gagn- njósnadeildinni ríki þagnar- skylda og henni hafi Leroy hlýtt, svo sem honum bar. — Pouget hefur verið vísað úr starfi, vegna Barka-málsins. Auk Leroys sitja nú fimm aðrir menn í fangelsi í París vegna þessa máls. Dómarinn, sem um það mun fjalla, Louis Zollinger, hóf í dag að kanna vitnaleiðslur, en ekki er vitað hvenær réttarhöld hefjast í málinu. Hann virti okkur fyrir sér tortryggnislega og tvístígur á skautaskónum sínum, sem bersýnilega eru of stórir. Svo segir hann snögglega og hik- laust: — Þið eigið ekkert að vera hér. Þið eruð svo stórir! Og við látum okkur orð hans að kenningu verða og höldum á braut frá þessum síkátu skautabörnum á Tjörn- inni. — et. I ,\t i X Þessi fallega vetrarmynd sýnir betur en mörg orð þá kyrrð sem hvíldi yfir borginni í gærmorgun. STAKSIFIHAR SJÁLFSTÆÐISMENN á Vestur- landi hafa um skeið gefið út málgagn, sem prentað er á Akranesi. Er blað þetta hið smekklegasta að öllum fi-ágangi, prýtt fjölda mynda og hið ásjá- legasta málgagn. Nýlega hafa orðið breytingar á fyrirkomulagi útgáfu blaðsins og segir svo um það í ritstjómargrein: Frá og með þessu tölublaði Framtaks verða gerðar nokkrar breytingar á útgáfu blaðsins. Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokks ins á Vesturlandi hefur tekið við útgáfu þess af Sjálfstæðismönn- um á Akranesi. í samræmi við það verður Framtak upp frá þessu málgagn Sjálfstæðismanna um allt Vesturlandskjördæmi. Jafnframt mun Framtak leitast við að birta fréttir, greinar og viðtöl ásamt öðru efni úr öllu kjördæminu. Með þessarri nýskipan er blað- inu lagður vaxandi vandi á herð- ar. Með hliðsjón af því, hefur verið ákveðið að blaðið komj framvegis út a.m.k. hálfsmánað- arlega. Jafnframt hefur verið ráðinn sérstakur ritstjóri að blað inu. Ný blaðanefnd hefur verið kjörin. Ýmsar breytingar eru fyrirhugaðar á blaðinu, og verða þær gerðar jafnóðum og tilefni gefst til. Það er von útgáfu- stjórnarinnar, að Sjálfstæðis- menn um allt Vesturlandskjör- dæmi sjái ástæðu til að leggja Framtaki það lið sem þeir megna. Það mun ekki sízt reyna á samtök þeirra, þegar hafin verð- ur sú áskrifendasöfnun, sem nú stendur fyrir dyrum. Framtak hefur verið útbreitt og vel látið á Akranesi. Áskrifendasöfnunin er gerð í von um að hið sama verði upp á teningnum í öðrum hlutum Vesturlandskjördæmis. Ritstjórn Framtaks væntir þess, að sem flestir hafi sam- band við skrifstofu blaðsins, segi álit sitt á efni blaðsins, leggi því til efni í einhverjúT formi, lesendum til fróðleiks og ánægju. Framtak hefur fengið fréttaritara víðsvegar um Vest- urlandskjördæmi en þarfnast aðstoðar enn fflieiri velviljaðira manna. Fjölmargir hafa heitið að leggja blaðinu til greinar og viðtöl, ásamt myndum. Ritstjór- inn mun fara út um kjördæmið til efnisöflunar og viðræðna við stuðningsmenn blaðsins. En bréf með athugasemdum eða efni, heimsóknir á skrifstofu blaðsins eða samband við skrifstofuna simleiðis verður ætíð metið mik- ils. Að lokum væntir Framtak þess, að gegna hlutverki sínu með sóma, Vesturlandskjördæmi og íbúum þess til gagns c> ánægju. að eru Þetta stúlkurnar fimm, sem ekki máttu vera að því að tala við okkur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.