Morgunblaðið - 12.02.1966, Side 13
Laugardagur 12. febrúar 1966
MORCU N B LAÐIÐ
13
Umferðarsíða Morgunblaðsins
Glitmerki geta forðað mörgu slysinu
Vafalaust eru þeir frekar
fáir ökumennirnir hérna í
Keykjavík og víðar, sem ekki
hafa lifað fieiri eða færri
angistarstundir, þegar hilið
varð svo mjótt milii farar-
tækis og fótgangandi, að engu
mátti muna, að illa færi. Hin
ir eru heldur ekki svo fáir —
og >að er skjalfest — sem
hefir mátt sortna fyrir aug-
um vegna slysaáfalls, og þá
ósjaldan í kjölfarið sársauka
og harms um lengri eða
skemmri tíma af hverju ein-
stöku tilefni. Og, hver cr oft-
ast ástæðan? Sjónleysið í
myrkrinu!
I>að er einfalt um að kenna
aðgæzluleysi ökumannsins.
Víst er athygli, og hennar
skarprar, allajafna þörf — en
oft má ekki sköpum renna
vegna illra og óþarfra kring-
umstæða. Getum við „frí-
kennt“ þær mannverur, sem
koma formyrkvaðar eins og
vofur undirheima út úr niða-
myrkri fyrirvaralaust og
ganiga hiklaust þvert í veg
fyrir hraðskreið farartæki,
sem ókleift er að stöðva í
tæka tíð, þótt ökumaður og
öll stjórntæki séu í bezta
lagi og vinni eins og frekast
er hægt að búast við? Enn
varhugaverðari verður myrk-
uraðstaðan fyrir það, að oft-
leg eru síkvik hærri eða lægri
ljós, sem koma á móti, og
valda því, að bifreiðarstjór-
inn hálfblindast annað veif-
ið, eða meira en það, þannig,
að sjónin verður bláþráðótt
og jafnvel slitin.
En hér duga engar ásakan-
ir á einn veg eða annan. Leita
þarf ráða til úrbóta — og
finnist þau, verður að not-
færa sér þau bjargráð.
Staðfest reynsla bæði hér-
lendis og erlendis sýnir, að
mikill meirihluti umferða-
slysa á sér stað í myrkri. Hér
er það „MYRKURÐAUÐINN“
sem er á ferð. eins og (útlend-
ingar kalla það. Ökumenn sjá
ekki og vita ekki einhverja
sekúndu, hvað þeir gera.
Fótgangendur þusast áfram
og ana hugsunarlítið eða laust
út í hættuna. Um 63% slysa
á mönnum í íslenzkri umferð
stafaði árið 1963 af ákeyrslu
í myrkri. Jafnvel hin minnsta
ljósglæta hefði þráfaldlega
getað forðað slysum og dauða.
En þá þýðingarmiklu glætu
vantaði bara! Og hana vantar
víðast enn þann dag í dag,
og því fer enn sem fer.
Til myrkurdauðans á veg-
unum er enn hörmulega og
ömurlegra að hugsa fyrir þá
sök, að til er — og
hefir ekki verið notað
sem skyldi, heldur lát-
ið að mestu kyrrt liggja og
í þagnargildi hér á landi. Er
hér um að ræða minni eða
stærri fleti, sem á erlendu
máli eru kenndir við „REFL-
EX“, sem þýðir endurskin
eða speglun, og hafa shjá
okkur verið nefnd GLIT- eða
ENDURSKINS-merki.
I>eir í útlöndum kalla þetta
tiltæka bjargráð hvorki
meira né minna en „ÓDÝRA
LÍFTRYGGINGU" og hvetja
að vonum alla vegfarendur til
að notfæra sér hana — EKKI
til að auðvelda aðstandendun
um greiðan aðgang að dauða-
bótagreiðslum, HBLDUR
þvert á móti til verndar, ö-
ryggis og bjargar sjálfu líf-
inu.
Við Islendingar höfum fram
að þessu, eins og sagt hefir
verið, gert ótrúlega lítið til
þess að „líftryggja" okkur á
þann auðvelda og fyrirhafna-
litla hátt, sem hér er átt við.
Og samt þekkja menn nokk-
uð almennt til þessa mögu-
leika. En það er til nokkurs
marks, um, hvernig sumt fólk
Heröum sóknina gegn
umferðarslysunum
Slys á bömum i umferðinnl í Reykjavík voru 15 í janúar.
Það er alltof há tala. Svona há slysatala má ekki endurtaka
sig. Bíllinn á þessari mynd heldur varla bíllagi eftir áreskt-
ur. GÆTILEGA og MEÐ VARÚÐ, eru fyrstu boðorð öku-
manna. LENDIÐ EKKI 1 SLÍKU SLYSI!
hér hefir verið stemmt í þessu
þýðingarmikla slysavarna-
máli, að einstaka foreldrar
lágu þeim ágætu og fyrir-
hyggjusömu fataframleiðend-
um á hálsi, sem að dæmi „koll
ega“ sinna erlendis tóku að
festa endurskinsmerki á
barnafatnað — töldu þá for-
poka og óprýða föt fínu barn-
anna sinna! Og nú er víst bú-
ið að ganga af þessari merku
og stórþörfu hugmynd og
framkvæmd hálfdauðri eða
dauðri.
En nú hillir blessunarlega
undir breytingu til bóta,
verði ekki að ófyrirsynju
slegið á framrétta h.nd. Fyr-
ir utan endurskinsmerki þaú,
er Umferðarnefnd Reykjavík
ur hefir nýlega úthlutað í
yngstu bekki barnaskólanna
í höfuðborginni, eru nú kom-
in til landsins 7.000 endur-
skinsmerki, um það bil þre-
falt stærri en þau, er fyrr
voru nefnd.
Þessi nýju merki — sem
eru spjöld með glitfleti
beggja vegna, — fest í garn-
spotta með öryggisnælu í
endanum, — eru gefin af
fjórum áhugaaðilum í um-
ferðaröryggimálum: Slysa-
varnafélagi Islands, Félagi ís-
lenzkra bifreiðaeigenda, Bind
indisfélagi ökumanna og Sam
vinnutryggingum. Hefir Slysa
varnafélaginu verið falin
dreifing þessara verndar-
merkja og það tekið að sér
að annast afhendingu þeirra.
Mun tvenns konar aðferð
beitt við dreifinguna: annars
vegar skipulagðri ráðstöfun
félagsins sjálfs einkum til
gamalmenna x>g barna — hins
vegar afhendin-gu til allra
þeirra, er láta í ljós ósk um að
fá endurskinsmerki handa
sér og sínum. Öll merkin
eru látin — hverjum
ókeypis í té, sem vill
og ætlar að nota þau í
umferðinni, eða láta nota þau.
Muna ber, að merkin eru
„dauð,“ nema ljósi sé varpað
á þau! Þess vegna ber að
haga burði endurskinsmerkj-
anna í samræmi við það, og
beinlínis hagræða þeim eftir
aðstöðunni í umferðinni. Um
þetta o.fl. mun Slysavarna-
félagið í samráði við aðra
gefendur veita upplýsingar
opinberlega.
I>að verður ekki svo lítill
prófsteinn á umhugsun og fyr
irhyggju landsmanna nú
næstu daga. hversu þeir taka
þeirri dýrmætu og góðu gjöf,
sem viðkomandi aðilar bjóða
þeim nú upp á.
Enginn þarf að halda aft-
ur af sér í misskilinnar hóg-
værðar skyni við að biðja um
endurskinsmerkin, því a.m.k.
einn gefanda hefir skuldbund
ið sig til að bæta við gjöf
sína með hliðsjón af eftir-
spurninni. Hlífið ekki þeim
góða gefanda — hann vill það
ekki!
Takmarkið er að ekki að-
eins þeir, sem augljósast þarfn
ast: rólfær börn og gamal-
menni beri - endurskinsmerki
heldur allir. ALLIR fótgang-
endur, er leggja leið sína (it
í skuggsýnið til móts við æð-
andi bifreiðar. Verðum öll
ljósberar í myrkrinu!
Baldvin I>. Kristjánsson.
Flýttu þér
hægt í
umferðinni
Verum samtaka um að
koma I veg fyrir hin
alvarlegu umferðarslys
NOTIO
ENDURSKINSMERKI
15 börn slasast i janúar
Slys og árekstrar í janúar
1966 1965
Árekstrar 260 202
Slösuð börn 15 6
Slasaðar konur 4 1
Slasaðir karlm. 2 4
Slasaðir hjólreiðamenn
2 2
Slasaðir bifreiðastjórar
8 6
Slasaðir farþegar 17 8
Dauðaslys 0 2
Ath. aksturskilyrði voru verri
í janúarmánuði 1966.
Þetta er aðeins skýrsla yfir
árekstra og slys, sem Reykja-
víkurlögreglan hefur verið
kölluð út til þess að hafa
skipti af.