Morgunblaðið - 12.02.1966, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 12.02.1966, Qupperneq 20
20 MORCUNBLAÐIÐ Laugardagur 12, febrúar 1966 FaSir hennar hafði sagt henni, að Heather hefði farið snemma að hátta, en bráðlega heyrði hún einhverja hreyfingu í her- bergi Heather, sem var við hlið- ina á htnnar eigin herbergi. Hún gat ekki sofnað og þráði ein- hvern félagsskap og datt í hug, hvort hún gæti farið inn til Heather og skrafað við hana. Hún kveikti ekki ljósið hjá sér, heldur gekk; yfir gólfið og fram á ganginn, en þá sá hún einhverja ógreinilega mannveru, sem gekk eftir ganginum. Hún elti hana hljóðlaust og sá brátt, hvar Heather opnaði útidyrnar og gekik út. Skömmu seinna heyrði hún bíl fara í gang. Hvað var Heather að gera út á þess- um tíma sólarhringsins? Og með hverjum fór hún? Hún fór aftur í rúmið, áhyggju fyllri en nokkru sinni áður. Hún óskaði þess, að Heather vildi tala hreinskilnislega við hana. En síðan hún kom til Japan, hafði helzt verið ómögulega að tala við hana . . það var eins og enginn trúnaður væri á milli þeirra lengur. Ef hún reyndi að tala við Heather um trúlofunina hennar, brást hún við rétt eins og einhver framandi persóna væri að tala við hana. Hana grun- aði meir en, að Heather væri ástfangin af Rodney. En því í ósköpunum gátu þau ekki bara gift sig?. Loksins féll hún í órólegan svefn. Henni fannst hún varla meir en svo sofnuð, þagar Eiko kom til hennar með tebollann. Hún þaut á fætur og gekk beint inn í herbergi Heather. Hana hafði hálfvegis grunað, að Heather væri að strjúka með Rodney. En Heather sat uppi í rúminu og var að drekka te. Hún var mjög föl og dökkir skuggar voru undir augunum. Hún leit út eins og hún hafði ekkert sofið. Heather ieit upp: — Er nokk- uð að, systir? Clothilde gekk að rúminu. — Ég heyrði, að þú fórst út í nótt, sagði hún lágt. — Ég veit, að þú ert óhamingjusöm. Gerðu það fyrir mig, Heather, að lofa mér að hjálpa þér ef ég get það. Og þegar Heather svaraði engu, hélt hún áfram: — Þú fórst út með Rodney Fenwick, var það ekki? — Já, hvað um það. Hvað )) jMIilMM mMSSIkS.1 S HEILDSÖLUBIRGÐIR Kornvörumar frá General Mills fáiö þérí hverri verzlun. Ljúffeng og hætiefnarík fieða fyrir alla fjölskylduna. kemur þér það við, Clothilde? Ég vildi að þú vildir hugsa um sjálfa þig! — En ef þú ert óánægð með þessa trúlofun ykkar Minouru, hversvegna slítur þú henni þá ekki? nauðaði Clothilde. — Hef- ur hann eitthvert þrælatak á þér? Og ef svo er, þá segðu mér □—--------------------------□ 18 □---------------------------D það. En Heather bældi sig aðeins niður og gróf andlitið í koddan- um. Hún fór að snökta og allur líkaminn skalf. — Farðu! sagði hún. — Þú get ur ekkert hjálpað mér, hvort sem er. Það getur enginn. Við Rodney vorum að kveðjast í nótt. Ég ætla aldrei að sjá hann framar, meðan ég lifi. 13. kafli. Ken kom að sækja hana um morgunin í 80-yen Renault-leigu bíl. Japanskir leigubílar eru flestir mjög litlir en aka með óskaplegum hraða og taka fyrir tiltekna vegalengd frá 70 til 100 yen — yen er um það bil sem fjórðungs-penny enskt. Þeir þeysa með farþeganna gegn um umferðina, til þess að vera sem fljótastir á leiðarenda, og geta síðan náð í nýjan farþega. Þess- ir leigubílar eru kallaðir kami- kaze-bílar, en það þýðir þeir sem bjóða dauðanum byrgin. Clothilde hafði haft dálítil kynni af japönskum leigubílum og það brást aldrei, að hún yrði hrædd í þeim. En Ken bara hló að óvarkárni bílstjórans. Hann var í góðu skapi vegna þess, að nú virtist vera farið að rætast eitthvað úr erindi hans hingað. Þegar bíllinn tók krappa beygju, svo að Clothilde lagðist upp að 'honum, lagði hann armana utan um hana og þrýsti henni að sér. — Ég er svo öruggur um allt í dag, sagði hann glaðlega. — Ég veit alveg, að ég næ í upp- lýsingarnar, sem ég er að leita að, og ég er meira að segja viss um, að þú verður skotin í mér. Svo skríkti hann og bætti við: | — Ég næ alltaf í það, sem ég sækist eftir, áður en lýkur. Rétt í því bili staðnæmdist bíllinn við stöðina, þar sem þau átu að fara upp í rafmagns- lestina til Yokohama. Ferðin tók þrjá stundarfjórðunga. Það var mikill hávaði í lestinni og út- sýnið var heldur ekkert sérlega skemmtilegt. Það helzta, sem sást voru þyrpingar af lágum timburskúrum, en á stöku voru hrísgrjónaakrar og kálgarðar. Konur í dökkbláum buxum og blússum, með skýluklúta um höf uðið, voru að vinna á ökrunum og í kálgörðunum. Og þar voru hrúgur af káli og hrís, sem verið var að þurrka. HM mm L G IJ Cll Ef vatnsleiðsfan. bifar f húsi yðar má telja víst að af því leiði tjón, er hæglega getur numiff tugum þúsunda. Gegn þessu er unnt að tryggja með VATNSSKAÐATRYGGiNGU HOSEIGNA, en hún tekur til tjóna, sem verða á húseigninni af völdum skemmda eða bilana á vatnsleiðslum og öðrum tækjum innanhúss. Iðgjaldið er reiknað af brunabótamati, eins og það er á hverjum tíma, ein króna af hverju þúsundi. Ekki eru teknar til tryggingar einstakar íbúðir, heldur aðeins heilar hús- eignir. Vátrygging þessi er því miður ekki nægilega algeng meðal húseigenda. Vér veitum yffur ailar nánari upplýsingar. Hringið til vor og fáið tryggingu á húseign yðar nú þegar. Sími 11700. SJOIfAIRYGGINGARFELAG ISLANDS Ht 47AIA HMK SJOVA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.