Morgunblaðið - 12.02.1966, Page 22
MORGU NBLADIÐ
Laugardagur 12. feb'rúar 1966
09
Hrafnhildur fjórfaldur
Reykjavíkurmeistari
— og Guðmundur þrefaEdur
Ármann vann stigakeppnina og
setti tvö boðsundsmet
TVÖ ÍSLANDSMET í sundi voru
sett á Sundmeistaramóti Reykja-
víkur í Sundhöllinni í fyrra-
kvöld. Bæði metin voru sett í
boðsundum og voru sveitir Ár-
manns í kvenna og karlaflokk
Hrafnhildur
— fjórfaldur meistari
um sem metin settu. Kvenna-
sveitin setti nýtt met í 4x100
m. skriðsundi á 4:58,2, en sama
sveit átti eldra metið sett í fyrra
5:03.9. Karlasveit Ármanns bætti
Islandsmet ÍR-inga í 4x100 m.
skriðsundi úr 4:15.1 og synti á
4:13.5.
• Stigakeppnin.
Mótið var stigakeppni milli
félaga og hlutu Ármenningar
flest stig eða 78, ÍR hlaut 45,
Ægir 32 og KR 5. í samíbandi við
stigakeppnina er jþess að geta (þó
ekki breyti úrslitum) að reglur
meela svo fyrir um að keppi
maður í fleiri greinum en þrem-
ur reiknist félagi hans ekki stig,
þó náð sé sæti í fleiri greinum,
sem stig veitir. í fþessu tilfelli
kom þetta mest við Hrafnihildi
Guðmundsdóttur sem sigraði í 4
greinum. Hví skyldi hún eða
félag hennar ekki £á stig, þegar
Ihiún megnar að vinna sundið?
Og núverancii reglur um stiga-
keppnina mun þannig, að ekkert
er sagt um, hvort keppandi má
velja þrjá sínar beztu greinar
(t.d. sigurgreinar) eða verður að
sæta því að þrjár fyrstu greinar
á dagskrá mótsins séu teknar til
stigaútreiknings. Og í þriðja lagi
virðist það ekki fráleitara að
að taka fyrir að t.d. fleiri en 2
eða 3 frá sama félagi geti hlotið
stig í sömu 'keppnisgrein fremur
en að meina þeim sem geta unn-
ið stig að hljóta það í fleiri grein
um en þremur.
0 Hrafnhildur fjórfaldur
meisitari.
Hrafnhildur vann sigur í
100 m. flugsundi á 1:16.3, í 200
m. bringusundi á 3:01.8, í 100 m.
skriðsundi á 1:06.0 og í 100 m.
ba-ksundi á 1:19.8.
Öll þessi sund vann Hratfn-
hildur örugglega og án „ógnun-
ar“ nema helzt í 100 m. skrið-
sundi þar sem Hrafnhildur Krist
jánsdóttir Á, átti ágætft sund og
náði 1:07.0 þrótt fyrir mistök í
lokin sem kostuðu nokkur sek-
úndubrot. Það verður gaman að
fylgjast með keppni þeirra nafn-
anna í vetur.
• Guðmundur þrefaldur
meistari.
Guðmundur Gíslason varð
þretfaldur Reykjavíkurmeistari,
í 200 m. skriðsundi á 2:11.9, en í
þessu sundi sigraði Davíð Val-
garðsson fBK á 2:10.9, en hann
keppti sem gestur. Guðmundur
sigraði með glæsibrag í 100 m.
flugsundi á 1:04.6 og í 100 m.
baksundi á 1:09.5.
í 200 m. bringusundi karla
sigraði Reynir Guðmundsson, Á,
á 2:52,5 Þátttaka var góð í þvi
sundi en keppni að sama skapi
ekki nógu spennandi.
í úrslitaleik Reykjavíkurrnótfs-
ins í sundknattleik vann Ármann
KR með 5-3 eftir íjörugan, harð-
an og spennandi leik, þar sem
um tíma stóð 3-3.
Guðmundur
Þrefaldur meistari
■
Núverandi stjórn Samtaka íþrótttafréttamanna, f.v. Alfreð Þorsteinsson, Sigurður Sigurðsson,
formaður og Öm Eiðsson.
Samtök íþróttafréttamanna
minnast 10 ára afmælis
Hafa sfoð/ð fyrir viðræðufundum um
iþróttamál, norrænu móti fréttamanna,
kjöri iþróttamanns ársins o.fl.
í DAG minnast íþróttafrétta-
menn þess, að tíu ár eru liðin síð
an Samtök íþróttafréttamanna
voru stofnuð hér á landi. t ára-
tugi hafa slík samtök verið starf-
andi á hinum Norðurlöndunum,
og fyrir frumkvæði norrænna
íþróttablaðamanna voru stofnuð
alþjóðasamtök íþróttafréttablaða
manna fyrir rúmum fjórum ára
tugum, og gerðust Islendingar
aðilar að þeim fyrir þremur
árum.
Aðdragandi stofnunar
Árið 1954 hófu samtök
íþróttafréttamanna á Norður-
löndum samstarf um árlegar ráð-
stefnur, til fræðslu og kynning-
ar, og var fyrsta ráðstefnan hald-
in í Ósló það ár. Hugmyndin að
þessu norræna samstarfi átti Per
Ohristian Andersen, ritstjóri við
Aftenposten í Osló, sem látinn er
fyrir fáum árum. Árið 1955
komu hingað til lands danskir
íþróttablaðamenn, í sambandi
við landsleik í knattspyrnu milli
íslendinga og Dana. Meðal
peirra var Carl Ettrup, formað-
ur danska íþróttablaðamanna-
sambandsins, og dvaldist hann
hér um tíma og kynntist ýmsum
starfsbræðrum sínum, m.a. Atla
Steinarssyni, íþróttaritstjóra
Morgunblaðsins. Þá um haustið
var fyrirhuguð ráðstefna nor-
rænna íþróttablaðamanna í Dan-
mörku og bauð Ettrup Atla til
ráðstefnunnar og enfremur bauð
hann ÍSÍ að senda ritstjóra í-
þróttablaðsins, en ÍSÍ sá sér
ekki fært að taka þessu boði,
og gekkst Atli þá fyrir því, að
Sigurði Sigurðssyni, íþrótta-
fréttamanni útvarpsins yrði boð-
ið. Sátu þeir Atli og Sigurður
jessa ráðstefnu og kynntust
þarna ýmsum forustumönnum
norrænna íþróttablaðamanna,
sem allir hvöttu til þess, að stofn
uð yrðu samtök íþróttafrétta-
manna á íslandi, og að fslend-
ingar gerðust gullgildir aðilar að
samstarfi Norðurlandanna á
>essu sviði. Þótt þessi stétt væri
þá, og sé enn, fámenn hér á
landi, ákváðu þeir Atli og Sig-
urður að boða til stofnfundar
Samtaka íþróttafréttamanna og
var stofnfundurinn haldinn 14.
febrúar 1956 og verður 10 ára af-
mæli samtakanna því á mánudag.
Stofnendur samtakanna voru
fjórir, fundarboðendurnir tveir
og Frímann Helgason, Þjóðvilj-
um og Hallur Símonarson,
Tímanum. Atli Steinarsson var
einróma kjörinn formaður sam-
takanna og Frímann Helgason
ritari og voru stjórnarmenn ekki
fleiri fyrstu árin. Smám saman
fjölgaði í stéttinni og Örn Eiðs-
son var kosinn í stjórn, ásamt
þeim Atla og Frímanni og var
stjórnin þannig skipuð, þar til
á síðasta aðalfundi. Aðalfélagar
í samtökunum eru nú 8, en rétt-
indi aðalfélaga hafa þeir einir,
sem að staðaldri skrifa um íþrótt
ir í blöð, svo og íþróttafrétta-
maður útvarpsins. Aukafélagar
geta þeir orðið, sem um stund-
arsakir skrifa um einstakar
íþróttagreinar eða eru íþrótta-
ritstjórum til aðstoðar, og hafa
aukafélagar verið um 10 talsins.
Merki alþjóðasambands íþrótta-
fréttamanna, sem sambandið
gerðist aðilar að 1963.
Núverandi stjórn Samtaka
íþróttafréttamanna er þannig
skipuð:
Sigurður Sigurðsson er for-
maður, Örn Eiðsson ritari og Al-
freð Þorsteinsson gjaldkeri.
Viðræðufundir
Samtök íþróttafréttamanna
eru ekki hagsmunasamtök, aðal-
félagar eru flestir í Blaðamanna-
félagi íslands, en samtökin hafa
reynt að stuðla að aukinni
fræðslu félaga sinna, m.a. með
þátttöku í fræðslumótum og ráð-
stefnum erlendis. Samtökin hafa
tekið þátt í öllum Norðurlanda-
ráðstefnum íþróttablaðamanna,
síðan þau voru stofnuð og tví-
vegis átt fulltrúa á þingum Al-
þjóðasambandsins. Þá hafa sam-
tökin beitt sér fyrir nánu sam-
starfi við íþróttaforustuna, m.a.
með viðræðufundum, sem gefizt
hafa mjög vel og aukið gagn-
kvæman skilning þessara aðila.
. Samtök íþróttafréttamanna
hafa viljað gera sitt til að efla
íþróttaáhugann í landinu og
einn liðurinn í því starfi er að
kjósa árlega „íþróttamann árs-
ins“, einnig gáfu samtökin á sín-
um tíma farandgrip fyrir bezta
afrek í kvennameistaramótum I
frjálsum íþróttum, til að reyna
að auka áhugann á þessari grein
íþrótta, sem þá var næsta lítill
Á Norræna mótið 1962
Samtökin hafa haldið Norð-
urlandamót íþróttablaðamanna
hér á landi, og er það viðamesta
verkefni samtakanna til þessa.
Þátttakendur voru milli 40 og
50, þar af nær 30 erlendir. Þetta
var árið 1962 og þótti mótið tak-
ast vel, og er enn til þess vitnað
í hópi íþróttafrtétamanna frá
Norðurlöndunum. Á mótinu var
lögð áherzla á að kynna íþrótta-
líf landsmanna og m.a. flutti
Finnbogi Guðmundsson, lands-
bókavörður, einkar fróðlegt og
skemmtilegt erindi um íþróttir
fornmanna, með hliðsjón af frá-
sögnum í gömlum bókum. Er-
indið vakti verðskuldaða athygli,
og varð dr. Finnbogi að svara
fjölda spurninga hinna erlendu
gesta, að erindinu loknu.
Þó Samtök íþróttafrétta.
manna séu enn fámenn, er það
von þeirra, sem að þeim standa,
að þau hafi einhverju góðu til
leiðar komið á 10 ára starfsferli,
og þykjast raunar samifærðir
um, að svo sé. Samtökin færa
öllum þeim, sem þau hafa átt
samskipti við síðastliðin 10 ár,
beztu þakkir fyrir skilning og
aðstoð, ekki sízt í sambandi við
framkvæmd Norðurlandamótsins
1962, og vonast íþróttafrétta-
menn til að sjá sem flesta vini
samtakanna í dag að Hótel Sögu,
en þar hafa þau „opið hús“ milli
kl. 15 og 17 í dag, í tilefni 10
ára afmælisins.
Köriuknattleiksmótið
í kvöld 09 á morgun
ÍSLANDSMÓTIÐ í körfuknatt-
leik verður tfram haldið um
þessa helgi og leikið að Háloga-
landi bæði í jtvöld og á sunnu-
dagskvöld.
1 kvöld fara fram þessir leikir:
2. f'l. 'karla ÍR—Árrnann.
1. H. — fS—KFR
1. f:l. — ÍR—KR
Á sunnuagskvöldið verða tveir
leikir í 1. deild karla, fyrst á
milli £KF og KR og siðan á milli
Ármanns og KFR og miá ætla að
það verði mikil barátta og jöfn.