Morgunblaðið - 15.02.1966, Page 2

Morgunblaðið - 15.02.1966, Page 2
2 MQRGUNBLAÐÍL Þriðjudagdr 15. feb'rúar 1966 2 bækur koma út hjá AB f dag ATjMEiNN A bókafélagið sendir frá sér i dag tvær nýjar bækur. Eru það smásögur eftir Stefán Jónsson, rithöfund og kennara, og nefnist hún Við morgunsól. — Hin bókin er Könnun geimsins, jþriðja bókin í Alfræðasafni AB, sem hafin var útgáfa á á s.l. hausti. í þessari nýju bók Stefáns Jóns sonar Við morgunsól, eru 8 nýj- Stefán Jónsson. ar smásögur, sem fjalla um bin ýmsu efni. Bera þær nöfnin: Rím, Blátt tjald, Halla á Krossi, Status que, Björn eldri, Björn yngri, Hinn rétti tónn. Á sól- mánuði. Fyrsta bók Stefáns var smá- sagnasafnið Konan á klettinum, og kom sú bók út árið 1936. Hef- ur hann síðan ritað fjölda sagna, jafnt smásögur sem lengri skáld- sögur, og aflað sér mikilla vin- sælda fyrir ritstörf sín, einkum þó fyrir bækur um börn og handa börnum og unglingum, þá.m bækurnar um Hjalta litla. En þótt hann sé ef til vill kunn- astur fyrir þau verk sín, er hann ritar fyrir yngri kynslóðina, þá hefur hann einnig beint penna sínum að þeim eldri, og í þeim hópi teijast þær smásögur, sem hann sendir nú frá sér. Við morgunsól er janúarbók Almenna bókafélagsins og er 180 bls. að stærð, prentuð og bundin í Prentsmiðju Hafnarfjarðar h.f. Kápu og titilsíðu hefur Kristín Þorkelsdóttir teiknað. Könnun geimsins er þriðja bók in á Alfræðasafni AB. Áður eru komnar bækurnar Fruman og Mannslíkaminin. í bókinni eru raktir draumórar mannsins um að komast út í geiminn, einmitt þeir draumórar sem nú eru sem óðast a& verða að veruleika í nýj um áföngum í geimsiglingum og könnun nýrra heima. Greint er ýtarlega frá eld- flaugasmiði og tilraunum með þær á styrjaldarárunum, þ.á.m. V-2 eldflaugunum og kapphlaup- inu um að koma fyrstu gervi- hnöttunum á loft. Nytsemi þeirra til veðurathugana, fjarskipta, þ.á.m til sjónvarpssendinga, og á ótal fleiri sviðum, eru gerð fróðleg skil. Er meðal annars að finna í bókinni ýtarlegar skýr- ingarmyndir af eldflaugum og hvernig aflvélar þeirra vinna. í bókinni er margur nytsamur fróðleikur fyrir þá, sem eiga eftir að bregða sér til annarra hnatta, og svarað er spurningunni um það, hvað ætlunin er að aðhaf- ast, þegar maðurinn kemst til tunglsins, en sá áfangi virðist nú skammt undan. í lokakafla bókarinnar er m.a. fjallað um, hvort þróaðar lífver- ur finnist á öðrum hnöttum, og Frh. á bls. 27 Varðskipið Oðmn tok fjora báta sl. föstudag að meintum íliglegum veiðum um 4 sjó- mílur innan 6 mílna mark- anna út af Alviðruhönirum. Þrír bátanna voru frá Vest- mannaeyjum, en einn frá Neskaupstað. Varðskipið fór með bátana til Vestmannaeyja og hófst RÁÐIST var á tvo menn í hótel- herbergi í Reykjavík s.l. föstu- dagskvöld og þeir slegnir í rot. Brotnaði tönn í öðrum, en hinin hlaut höfuðáverka og var lagður inn á sjúkrahús til rannsóknar. Tildrög atburðarins eru þau, að mennirnir tveir höfðu komið í heimsókn á hótelherbergi kunn ingja sinna til að sækja hann í kvöldverðarboð. Er þeir höfðu verið þar skamma stund kom stúlka, sem enginn þeirra þekkti, inn í her- bergið og ungur maður á eftir henni. Hann réðst fyrirvaralaust þar rannsókn hjá bæjarfogeía embættinu í máli skipstjór- anna samdægurs. í gær var kveðinn upp dómur í máli skipstjórans á Sæfaxa NK, en hann hafði játað brot sitt. Hlaut hann 20 þúsund króna sekt og afli og veiðarfæri voru gerð upp- tæk. að gestunum tveim og sló þá niður. Lögreglunni var gert aðvart og tók hún árásarmanninn í sína vörzlu, en hann var undir áhrif um áfengis. Við yfirheyrslu mun stúlkan hafa borið fyrir sig, að hún hafði villzt á herbergjum, en fylgimað ur hennar bjó einnig á hótelinu. Annars hefur hún borið við minnisleysi vegna ölvunar. Árás armaðurinn, sem einnig var ölvað ur, hefur játað brot sitt við yfir- heyrslu. Þá er lokið rannsókn í máli i skipstjóranna á Eyjabátunum, U en þeir eru Eyjaberg, Elías fl Sveinsson og Gylfi. Hefur mál J ið verjð sent til saksóknara V ríkisins til ákvörðunar. | Myndin sýnir þrjá bátana, y sem teknir voru, við hliðina J á varðskipinu Óðni. Ljósm. T Adolf Hansen. I Fundi Lögfræð- ingafélagsins frestað FUNDI Lögfræðingafélags fs- lands, sem halda átti í Tjarnar- búð í kvöld, 15. febrúar, er frest- að um óákveðinn tíma vegna veik inda annars frummælanda. Akranes S J ÁLFSTÆÐISK VENN AFÉ- LAGIÐ BÁRAN, Akranesi, held- ur fund þriðjudaginn 15. febrúar kl. 8,30 e.h. í félagsheimili templ ara. — Fundarefni: 1. Frú Guðrún Helgadóttir, skólastjóri, flytur erindi. 2. Önnur mál. 3. Myndasýning. 4. Kaffidrykkja og félagsvist. Ráðist á 2 menn í hótelherbergi „Ailt sem ég hafði skrif- að höfuðórar og firrur44 Örlög sögupersónu Sinyavskys dynja yfir sjálfan hann FYRIR nokkrum árum var bók Abram Tertz, eða Andrei Sinyavskys, „Rétt- ur er settur“ gefin út á Vesturlöndum, og 1962 kom hún út í íslenzkri þýð- ingu. Skáldsaga þessi vakti þegar mikla athygli. Fyrir skömmu birtist kafli úr bókinni hér í blaðinu, og nú þegar dómur er fallinn yfir höfundi hennar, er ekki úr vegi að birta hér brot úr eftirmála bókar- innar, en þar lsetur höf- undurinn persónu þa, sem söguna segir, hljota sömu örlög og hann sjálfur hlýt- ur nú, þ.e. að hafna í rúss- neskum vinnubúðum fyrir að hafa sett söguna saman. Fróðlegt er að rifja þetta upp og mun vafalaust mörgum finnast það ein- kennileg tilviljun hvernig örlög sögupersónu Siny- avskys hafa nú dunið yfir sjálfan hann. í eftirmálan- um segir m.a.: Eftirmáli í brekkufæti nærri bökk- um árinnar Koljma, grófum við skurð, Serjóska, Rabinó- vits og ég. Ég hafði komið í vinnu- búðirnar á eftir hinum, sum- arið ’56. Háttsettir embættis- menn höfðu komizt á snoðir um efnið í sögunni minni, en ég hafði þá lokjð við hana, utan þessa eftirmála. Eins og við var að búast, var það fyrr nefnd sía, sem komið var fyr ir í skolpleiðslunni undir hús inu okkar, sem varð mér að falli. Uppkastsblöðin sem ég hafði skolað niður úr salern- inu samvizkusamlega á hverj um morgni höfðu safnazt á skrifborði Skromníks rann- sóknardómara. Sú mikils- verða persóna, hverra erinda ég hafði gengið, þó ef til vill ekki nógu trúverðuglega, var ekki lengur á lífi og hafði raunar orðið fyrir opinberu endurmati. Samt sem áður var ég ákærður fyrir rógburð og klám og sakaður um að ljóstra upp leyndarmálum ríkisins Ég kom engum vörnum við: sönnunin lá í augum uppi. Þar að auki var Glóboff kallaður til vitnis og lagði fram gögn, sem tóku af allan vafa um sekt mína. í réttar- höldunum var því slegið föstu að allt sem ég hafði skrifað væru einberir höfuð- órar og sjúklegar firrur. Mér var einnig gefið að sök að hinar jákvæðari sögu- hetjur mínar (verjandinn Karlinskí, ákærandinn Gló- boff, húsfreyjan Mariana, leynilögregluþjónarnir tveir, o. s. frv.) væru sýndar af ein skærri illgirni frá síztu hlið- inni, en ekki hirt um að draga mynd þeirra til fulln- ustu og sýna hinar mörgu hliðar hversdagslífs þeirra. Hinar neikvæðari söguhetjur mínar voru barnamorðinginn Rabinóvits, landráðamaður- inn Serjóska og lagskona hans, Katja, sem hafði ekki uppgötvað mistök sín fyrr en um seinan og var troðin nið- ur af hneyksluðum múg. Að vísu var viðurkennt að ég hefði látið þetta fólk hljóta makleg málagjöld í hinni arðvítugu sögu minni, en hins vegar ekki sýnt nógu rækilega fram á að gerðir þeirra voru sprottnar af íhaldssemi. Þó að ég vænti mér engrar miskunnar, bað ég þess auð- mjúklega að ég mætti koma fram ýmsum leiðréttingum, að minnsta kosti í eftirmála, þar sem ég tæki tillit til ofan greindrar gagnrýni og sýndi sögufólk mitt í réttara Ijósi. Mér var að sönnu veitt það, en ekki leyft að verja til þess þeim tíma er fór í endur- menntun mín né skurðgröft- inn, en hann var liður í end- urmenntun minni í Koljma. Skömmu eftir komu mína, slóst ég í hóp Serjóska og Rabinóvits. Okkur tókst án mikilla erfiðleika að komast í sama svefnskálann og vor- um undir sameiginlegu eftir- liti. Sakauppgjöf hafbi valdið því að vinnubúðirnar voru allt að því tómar. Við vorum ekki nema tíu þúsund eftir, hættulegir glæpamenn. Yfir- völdin sýndu heldur meiri linkind en áður og leyfðu okk ur að mynda þriggja manna afkastahóp, og var sérstakur vörður vopnaður vélbyssu settur til höfuðs okkur.------ Rabinóvits spratt á fætur, rindilslegur Gyðingur með nauðrakað höfuð, í rifnum og moldugum buxum og hafði rýting undir hendinni. Andrei Sinyavsky — sá hann örlög sin fyrir? „Og hvað haldið þið að ég sé að segja: Er ég að rökræða við ykkur? Kemur ekki til mála!“ Hann greip rýtinginn báð- um höndum, lyfti honum líkt og regnhlíf og beindi honum t.il himins þar sem hann stóð í skurðinum: „f nafni Guðs! Með hjálp Guðs! í staðinn fyrir Guð! Gegn Guði! Nú var hann líkastur raun- verulegum vitfirringi. „Og nú er enginn Guð, bara díalektík! Steypið nýjan rýting til að þjóna hinum nýja tilgangi!“ Ég var að því kominn að bera fram mótmæli, þegar hermaðurinn sem gætti okk- ar gegn háskanum af flótta, vaknaði á hólnum sínum og öskarði: „Þið þarna í skurðinum! Þið hafið rausað nógu lengi! Haldið áfram að vinna!“ Við gripum rekurnar okk- ar sem einn maður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.