Morgunblaðið - 15.02.1966, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 15. febrúar 1961
Afmæli Varðar
Landsmálafélagrið Vörður
efndi til glæsilegs afmælishófs
í Sjálfstæðishúsinu í tilefnj 40
ára afmæiis félagsins sl. sunnu-
dagskvöld. Mikið fjöimenni var
á afmælishátíðinni og fór hún
hið bezta fram.
Sveinn Guðmundsson formað-
ur Varðar setti hófið og bauð
gesti velkomna, en veizlustjóri
var Ágúst Bjarnason. Ræður og
ávörp fluttu Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri og Baldvin Tryggvason,
formaður Fulltrúaráðs Sjálfstæð
isfélaganna í Reykjavík.
Stefán A. Pálsson færði fél-
aginu að gjöf fullkomið segul-
bandstæki frá öilum núlifandi og
fyrrverandi formönnum félags-
ins, María Maack, formaður
Sjálfstæðiskvennafélagsins Hvat
ar afhenti Verði vandaða gesta-
bók frá Hvöt og Stefán Rafn las
upp frumort Ijóð.. Auk þess barst
félaginu mikill fjöldi blóma-
sendinga og skeyta.
Á þessum afmælisfagnaði Varð
ar voru fimm félagsmenn heiðr-
aðir með gullmerki Varðarfél-
agsins. Þeir Gísli Jónasson fyrrv.
skólastjóri, Árni Óla ritstjóri,
Þorkell Sigurðsson, vélstjóri,
Davíð Ólafsson, fiskimálastjóri
og Björn Ólafsson fyrrum ráð-
herra.
Ómar Ragnarsson og Svavar
Gests önnuðust skemmtiatriði og
dans var stiginn til kl. 2.
Hér sést nokkur hluti gesta á hinum fjölmenna afmælisfagnað
i Varðarfélagsins sl. sunnudag.
Nokkrir gesta á afmælishófi Varðarfélagsins; f |í Erna Finnsdóttir, Geir Hallgrímsson, borgar
stjóri, frú Sigríður Björnsdóttir, Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, frú Helga Markúsdótt-
ir, Sveinn Guðmundsson, formaður Varðar, Ragnheiður Hafstein, Jóhann Hafstein, dómsmála-
ráðherra og frú Ragnheiður Bjarnason.
Sveinn Guðmundsson formaður Varðar sæmdi fimm Varðarfelaga gullmerki felagsins. Frá
v. Gíslj Jónasson, fyrrv. skólastj. Árni Óla ritstjóri, ÞorkeU Sigurðsson, vélstjóri, Davíð Ólafs
son, fiskimálastjóri. Björn Ólafsson fyrrum ráðherra vantar á myndina.
fþróttafréttamenn
10
SAMTÖK íþróttafréttamanna
minntust 10 ára afmælis síns s.l.
laugardag að Hótel Sögu og heiðr
uðu um 70 forystumenn í íþrótta
hreyfingunni samtökin með nær
veru sinni, m.a. menntamálaráð
herra og borgarstjórinn í Reykja
vík.
Ræður fluttu Sigurður Sigurðs
son form. samtakanna, Gylfi Þ.
Gíslason menntamálaráðherra,
Geir Hallgrimsson borgarstjóri;
Gísli Halldórsson forseti ÍSÍ,
Emil Björnsson form. Blaða-
mannafél. íslands, Bogi Þorsteins
son form. KKÍ, Benedikt G.
Waage heiðursforseti ÍSÍ og Atli
Steinarsson fyrsti form. Samtaka
— Handbolti
Frh. af bls. 26
bezti maður hans naut við og
sennilega lykilmaður liðsins til
sigurs. En er hann meiddist tókst
liðinu ekki eins vel að útfæra
sínar leikaðferðir. Mieleszcauk
Chicky og Klosek voru og mjög
góðir svo og Gasior í markinu
sem varði oft mjög vel vegna
sinna liðugheita fyrst og fremst.
• Mörkin
Mörk íslands skoruðu Karl
Jóhannsson 8 (5 úr vítaköstum),
Gunnlaugur 5, Ingólfur 3 (2 úr
vítum), Guðjón Jónsson 4, Her-
mann 2 og Sig. Einarsson eitt.
ára
íþróttafréttamanna.
Gjafir og heillaóskir bárust
frá Ben. G. Waagé (skrá yfir öll
afrek á OL í Tokíó, 4 bindi); odd
fáni frá KKÍ; blómakörfur frá
Skíðaráði Reykjavíkur, KR og
Handknattleiksráðinu og blóm
frá íþróttafélagi kvenna. Heilla-
óskir bárust frá Sundsamband-
inu, KSÍ FRÍ, Sundráði Reykja-
víkur, Baldri Möller form. ÍBR;
Knattspyrnuráði Reykjavíkur;
Fél. blaðaljósmyndara; gestgjöf-
um Skíðaskálans í Hveradölum;
Þrótti, Val, ÍR og Carl Ettrup,
fyrrv. form. íþróttablaðamanna-
sambandsins í Danmörku.
Nánar verður síðar skýrt frá
afmælishófinu.
Mörk Pólverjanna skoruðu
Mieleszcauk 5, Ohicky 5, Klosek
2, Cholewa 3, Weglars 3, Zawada
2 og Fraszac 1.
Tveir leikmenn beggja liða
voru reknir af velli fyrir gróf
brot í 2 mín hvor. íslendingum
voru dæmd 8 vítaköst og skor-
aði Karl úr 5 og Ingólfur úr 2
en eitt var varið hjá Ingólfi.
Pólverjum voru dæmd 4 víta-
köst og var skorað úr þremur.
Dómari var Norðmaðurinn A.
Frydenlund og komst allvel frá
leiknum. Var hann að minnsta
kosti ekki eins fljótfær og þeir
dönsku.
— A. St.
Þessi mynd birtist á forsiðu „The Coventry Evening lelegraph 5. februar sl. og synir fram-
kvæmdastjóra Coventry knattspyrnuliðsins Jimmy Hill dást að hálsbindunum KR-strákanna
þriggja sem tjl Coventry eru farnir til æfinga. Það eru þeir Hörður Markan, Guðmundur
Haraldsson og Einar ísfeld. Það er framkvæmdastjórinn sem heldur í hálsbindi Guðmundar.
— Körfubolti
Frh. af bls. 26
ar Gunnarsson sem þó einleikur
full mikið, og einnig áttu Skúli
og Þofvaldur góðan leik.
Hjá ÍR voru Anton og Pétur
beztir og er Anton enn, þrátt fyr
ir litla æfingu, á við beztu meist
araflokksmenn ag er leiðinlegt
að þessi bráðefnilegi leikmaður
skuli hafa yfirgefið körfuknatt-
leikinn. Dómarar voru Finnur
Finnsson og Einar Oddsson.
Sunnudagskvöld:
KR—ÍKF 81:35. 1. flokkur.
Leikur þessi var aldrei nein
ánægja fyrir áhorfendur. Til þess
voru yfirburðir KR allt of mikl- 1
ir, og ruddaskapur og káf ÍKF-
manna of áberandi. Staðan í hálf
leik var 40:21 og lokastaðan eins
ag áður segir 81:35. Flest stig
KR skoraði Einar Bollason 37 og
Gunnar 22. Dómarar voru Hólm-
steinn Sigurðsson og Tómas
Zoega.
1. deild: Ármann—KFR 78:75.
Eina fyrstu deildar leik helgar
innar lauk með sigri Ármanns
yfir Reykjavíkurmeisturum KFR
með 3 stigum 78:75. Var leikurinn
frá upphafi til enda geysispenn-
andi ag skemmtilegur og var
óhemjubarátta milli liðanna.
KFR átti betri fyrri hálfleik og
hafði yfir í hléi 38:33. En í síðari
hálfleik náði Ármann yfirhönd-
inni, eftir að KFR missti útaf tvo
af sínum beztu mönnum, þá Þóri
Magnússon og Sigurð Helgason,
báða með fimm villur. Bæði lið-
in áttu góðan leik og var Birgir
örn beztur Ármenninga með 21
stig Og Ingvar með 21 stig, Davíð
með 14 stig og Hallgrímur með
15 stig áttu einnig góðan leik.
Ólafur Thorlalius átti langbeztan
leik KFR-manna, og skoraði 21
stig, aðrir sem áttu stigin voru
Einar Matt. 22 stig, Marino 12 st.
Sigurður 10, Þórir 8 og Rafn 2.
Dómarar voru Ingvi Gunnarssön
og Kristbjörn Algresson.